Dagur - 12.03.1975, Page 8
SMÁTT & STÓRT
sér sta
Aðalfundur Dýraverndunar-
félags Akureyrar, sem stofnað
var í fyrra, hélt aÖalfund sinn
síðasta sunnudag í Varðborg.
Þar kom fram, að eitt og annað
er athugavert í sambandi við
meðferð húsdýra, meira en al-
menningur gerir sér ljóst. Van-
fóðrun búpenings mun eiga sér
stað, samkvæmt upplýsingum,
sem þarna komu fram, þótt hér
sé ekki nánar tilgreint. En í
: þeim tilvikum kemur til kasta
forðagæslumanns og síðan yfir-
valda, nema um kærur frá al-
mennum borgurum komi til.
I Einnig kom fram, að til er
| vítaverð vanhirða, án þess um
vannæringu sé að ræða. Þá er
kvartað undan því, að hestar
gangi eftirlitslausir, svo sem í
Kjarnalandi, þar sem land á að
vera algerlega friðað útivistar-
svæði. Þá hefur búfjárhald í
Flatey á Skjálfanda verið til
umræðu hjá dýraverndunar-
mönnum og ýmis önnur mál, er
hér verða ekki nánar greind.
Afskipti dýraverndunar-
manna af illri meðferð dýra eru
að jafnaði óvinsæl. Væntanlega
þykir þó hinu unga dýravernd-
unarfélagi meira um það vert,
að takast á við vandamálin, en
vera máttlaus félagsskapur
áhugalítils fólks.
í stjórn félagsins eru: Maríus
Helgason formaður, Guðmund-
ur Knutsen varaformaður, Jór-
unn Olafsdóttir ritari, Drífa Jó-
hannsdóttir féhirðir og Jón
Sigurjónsson gjaldkeri. □
Snjóffé
Um helgina féllu snjóflóð við
Skarð í Dalsmynni og einnig
við Ljósavatn. Ekki voru þau
j talin stór, en á báðum stöðum
lokuðu þau veginum. Á mánu-
I dagskvöldið var búið að ryðja
snjónum og opna veginn til um
ferðar. Biðu þá margir bílar,
: bæði vörubílar og fólksbílar,
i eftir því að geta komist leiðar
! sinnar, austur og vestur. Ekki
var til þess vitað, að tjón yrði
j á mannvirkjum og ekki urðu
slys á fólki. □
Eins og mörg undanfarin ár
mun kvennadeild félagsins efna
til köku- og munabasara til
styrktar starfsemi Vistheimilis-
ins Sólborgar. Ákveðið er, að
basarinn nú verði haldinn n. k.
laugardag 15. mars að Hótel
Varðborg kl. 3 e. h.
Verða þar seldar góðar kökur
og ýmsir munir, en andvirðinu
er varið til kaupa á leiktækjum
og áhöldum til nota á Sólborg.
Kvennadeildin hefur t. d. nú
nýverið samþykkt að vei'ja til
þeirra hluta um 300 þús. kr. og
hefur þegar. afhent heimilinu
verulegt magn leiktækja og
mun á næstunni færa því að
gjöf sjúkrarúm á barnadeild.
Á laugardag og sunnudag
mun svo fara fram á vegum
félagsins merkjasala og verður
hagnaði hennar varið til upp-
byggingar á Sólborg, en þar
standa nú fyrir dyrum veru-
legar byggingarframkvæmdir
til að bæta úr brýnni þörf fyrir
aukna aðstöðu og fjölgun vist-
manna .Eins og sakir standa er
ekki hægt að taka inn fleiri
vistmenn, en margir eru á bið-
lista.
Styrktarfélagið vill þakka
bæjarbúum og öðrum hversu
vel þeii' hafa brugðist við fjár-
öflun félagsins á liðnum árum
og væntir þess, að það megi enn
njóta velvilja þeirra.
TfMI ÞVf EKKI AÐ BÚA
STÓRT
Meiri ræktun, aukinn bústofn,
vélvæðing og byggingar hafa
verið keppikefli bændanna og
er ennþá. Landbúnaðurinn hef-
ur á skönimu tíma orðið vel vél-
væddur viðskiptabúskapur og
búvörurnar hafa lækkað veru-
lega í verði, miðað við kaup-
gjald neytenda. Fyrir nokkru
sagði eyfiskur bóndi, liér á skrif
stofu Dags, þegar rætt var um
búskap bænda og hans eigin
búskap, að hann tírndi því ekki
að búa stærra en hann gerði,
tímdi ekki að búa stórt, eins og
svo margir aðrir sækjast eftir.
Ástæðuna skilgreindi hann með
þessum orðum: Ég tími því
ekki að fækka þeim tómstund-
um, sem þessi bústærð nún
gefur mér.
FRIÐUR OG GLEÐI
Þessi orð eyfirska bóndans rifj-
uðust upp fyrir þeim, er þetta
ritar, er kunnur forystumaður
bændasamtakanna í landinu
lýsti heimsókn sinni á bænda-
býli á Ströndum. Hann sagðist
hafa orðið snortinn af þeim
friði, sem fólkinu virtist svo
eiginlegur þar, og af þeirri kyrr
látu og sönnu gleði, sem lífið
gæfi fólkinu á þessum slóðum.
Margt af þessu fólki væri ein-
angrað um lengri eða skemmri
tíma, en þó væri það svo fram-
úrskarandi félagslynt, heilbrigt
og liamingjusamt. Hann sagði
ennfremur, að kapphlaupið
mikla í framkvæmdum land-
búnaðarins gengi of nærri lík-
amlegri heilsu margra bænda,
Heita vatnifi á Laugum 70 sekl.
Blaðið hafði á mánudaginn sam
band við Þóri Sveinbjörnsson,
er stjórnar borun eftir jarðhita
á Laugum í Reykjadal. Hann
sagði:
Við erum nú komnir á 690
metra dýpi. Vatnsmagnið, sem
kemur úr 7 þumlunga borhol-
unni er 70 lítrar á sekúndu og
hitinn er 64 gráður. Á 522 metra
dýpi fengust 54 lítrar á sek. af
62—63 gráðu heitu vatni.
Þrýstingur nú er 12 kg. Það
Kútmagakvöld
Lionsklúbbsins Hugins verður
haldið að Hótel KEA föstudag-
inn 14. mars n. k. kl. 19.30.
Þetta er í 4. sinn, sem þessi
skemmtun er haldin á vegum
klúbbsins og hafa þær tekist
sérstaklega vel fram til þessa,
en á borðum eru eingöngu
sjávarréttir og mun tala þeirra
nálgast 40.
Ágóða af kútmagakvöldinu
mun síðan verða varið til líknar
mála, eins og aðrar fjáraflanir
sem fram hafa farið á vegum
klúbbsins.
Allir Lionsfélagar eru vel-
komnir og leyfilegt er að taka
með sér gesti.
Vinsamlegast tilkynnið þátt-
töku til Ólafs Stefánssonar í
síma 2-36-01 eða Magnúsar
Þórissonar í síma 2-14-44 fyrir
þriðjudaginn 11. mars n. k.
Kútmaganefnd
Lionsklúbbsins Hugins.
vatnsmagn, sem þessi borhola
gefur, mun það mesta, sem upp
hefur komið úr borholu hér á
landi. Til samanburðar er rúm-
lega 40 lítra holan í Reykja-
hverfi. Þín1. ér vatnið mjög heitt.
Eftir að borinn var kominn
niður á áðurnefnda 522 metra
og nægt vatn var fengið fyrir
skólana á Laugum og næsta
umhverfi, var haldið áfram og
er það rannsóknarborun Akur-
eyrarkaupstaðar. Óvíst er að
við fáum mikið meira vatn á
U>» <j,r-i-'- » * »eytn*, g-— « — "3
Í.000—1.200 metra dýpi, sem
áætlað er að bora, en e. t. v.
eykst hitinn er neðar kemur.
Ég tel öruggt, að unnt sé að ná
miklu meira af heitu vatni með
nýrri borholu eða holum, sagði
Þórir Sveinbjörnsson að lokum.
Þegar blaðið ræddi um bor-
unina og heita vatnið við Pál
H. Jónsson á Laugum, sagði
hann, að það væri mikil og dýr-
leg lífsreynsla að vera vitni að
þessum störfum og árangrinum.
Heita vatnið væri eins og vænn
bæjarlækur og biði upp á marg
þætta möguleika. □
og um leið þeirri hamingju, sem
sveitalífið gæti veitt, ef menn
gefa sér einhvern tíma til að
líta upp úr störfunum.
EIGA MENN AÐ VELTA
ÞESSU FYRIR SÉR?
Ekki liafa bændur verið lattir
til framkvæmdanna í þessu
blaði, og ekki er það ætlunin
nú. En þó myndi ýmsum liolt
að velta framanrituðu fyrir sér,
í hinu stranga kapphlaupi fram
fara og stórframkvæmda í land-
búnaðinum. Eitt er óliætt að
fullyrða, að ekki mega búannir
koma í veg fyrir félagsmála-
störf byggðanna, því þau störf
liafa einmitt lyft bændastéttinni
meira en flest annað, úr fátækt
til sæmilegrar velmegunar, svo
sem auðvelt er að rekja af sögu
undangenginna áratuga.
TILVIL J ANIR?
Það er langt síðan ég veitti því
athygli hve margir menn, sem
nú eru á miðjrnn aldri eða
meira, og búa í kaupstað, telja
sér þess mikils virði að hafa
verið í sveit á barns- eða ungl-
ingsárum. Hélt lengi vel, að það
væru tilviljanir að rekast á svo
marga, sem þessa sögu höfðu að
segja. En þetta er engin tilvilj-
un. Sveitadvöl eitt eða fleiri
sumur er kaupstaðabörnuin
holt og meira en það — það
getur orðið þeim til ævilangrar
blessunar og er það í mörgum
tilvikum. Því er það mikil aftur
för og raunar sorgarsaga, hve
fáir unglingar eiga þessa kost
nú á síðustu árum og hlutfalls-
lega miklu færri en áður var.
Tæplega er hægt að telja það
sumardvöl þegar börn eru í hóp
dvöl undir sérstakri gæslu i
sveit, því þar komast þau lítt
eða ekki í snertingu við sjálft
sveitalífið, sem er hið eftir-
sóknarverðasta.
TIL JÓNS FRÁ |
GARÐSVÍK
Eftir lestur ljóðabókar Jóns frá
Garðsvík.
Annar „Káinn“ er hann Jón
— áður Garðsvíkingur —
gæðir lífið gamantón,
græskulaus og slyngur.
Værum ung og engum gift
— ör í lund að vonum —
mundi ég öllu angri svift
una mér hjá lionum.
Gömul kona.
Brjánn Guðjónsson deildarstjóri hefur undanfarin ár og einnig nú
í vetur fengið þá til liðs við sig, hina gömlu og skemmtilegu haiþn-
onikuspilara Hauk og Kalla, og lagt leið sína út í Skjaldarvík og
lialclið j>ar dansleiki fyrir gamla fólkið, sem orðið hafa liinir fjörug-
ustu og þakksamlega þegnir af vistmönnum. Ilér á myndinni er
Brjánn að dansa við 100 ára gamla konu, Þorbjörgu Þórðardóttur.
5x$x$xJx$x$>^x$xí>^x$x$><$x$xíxJ4x^<í^<í>^x$><$x$x$x5x$xíx$x$x$x$>^x$>^x$x$x$xíx$xJx$>^><J><$x
Gunnarsstöðum, Þistilfirði, 10.
mars. í dag er sól og bjartvirðri
i Þistilfirði. Dálítið hefur enn
snjóað og er því þungfært á
vegum í byggð, jeppafæri, og
ekki farið að moka og eflaust
ófært á heiða- og fjallvegum.
Til tíðinda má það teljast, að
kennarar og fleira fólk hér
austurfrá er að gera merkilega
tilraun með fullorðinsfræðslu á
Þói-shöfn. Fer hún fram á
kvöldnámskeiðum og stjórnar
þeim Guðbjörg Ingimundar-
dóttir. Kennd er íslenska og
enska, bókfærsla, vélritun o. fl.
15—20 manns taka þátt í full-
orðinsfræðslu þessari og eru
þátttakendur hinir áhugasöm-
ustu og kennarai' einnig. Þess
má einnig geta, að kennararnir
læra hver hjá öðrum.
Hvorki hef ég frétt af meiri
sauðburði eða heimtum meiia
en ég sagði frá síðast. Hrein-
dýra hefur ekki orðið vart, en
hins vegar hefur tófu orðið
vart. Einn maður á Þórshöfn
drepur tófur á vetrum og fer
til þess um fjöll og fyrnindi.
Hann hefur á þessum ferðum
sínum bjargað margri sauð-
kindinni. Hann er annars bíl-
stjóri á sumrin, hrognkelsaveiði
maður á vorin og veiðimaður á
landi á vetrum. Hann er öðrum
betur læs á stafróf náttúrunn-
ar. Til dæmis fylgist hann vel
með fuglakomum og um dýra-
líf almennt. Þessi maður er
Kristján Ásgeirsson. Ó. II.