Dagur - 29.10.1975, Qupperneq 8
Akureyri, miðvikudaginn 29. okt. 1975
KDSINGtSH
GH.TU
TÍSKUHÁLS- @ . GULLSMIÐIR
KEÐJURNAR \Jf Jf \ SIGTRYGGUR
NÝKOMNAR J & .PÉTUR
, AkCJREÝRÍ
SMÁTT & STÓRT
Unnið er af kappi við nýju vöruhöfnina á Akureyri og hér á myndinni sjást menn reka niður
stálþilið. (Ljósm.: E. D.)
Húsavík, 27. október. Konur
liéldu kvennafrídaginn, 24. októ
ber, hátíðlegan í Félagsheimili
Húsavíkur. Fyrstu konurnar
komu klukkan. átta órdegis og
fjölgaði þeim stöðugt er á dag-
inn leið. Þar lá frammi gesta-
bók, sem konur á fjórða hundr-
að talsins skráðu nöfn sín í og
verður bókin síðan geymd í
Héraðsskjalasafninu á Húsavík.
Klukkan 2 eftir hádegi hófst
svo dagskráin. Þar fluttu nokkr
ar konur ávörp og einnig var
lesið úr bckmenntum, sungið
og fluttur leikþáttur. Að iokum
kvöddu nokkrar konur sér
hljóðs. Mikill samhugur. ríkti
meðal fundarkvenna.
Rjúpnaveiðin hefur yerið
fremur léleg í haust hér í ná-
grenni Húsavíkur. í fyrstu
göngum sást allmikið af rjúpu
í S.-Þingeyjarsýslu, en hret,
sem gerði skömmu síðar, virð-
ist hafa hrakið hana suður á
land. Einstaka menn hafa náð
að skjóta 30—40 rjúpur y'fir
daginn, en margir hafa aðeins
fengið eina eða þrjár eða fjórar
og sumir enga. Mest var veiðin
í veðurblíðunni í fyrri hluta
síðustu viku, en þá hélt rjúpan
sig við snjóröndina og var geng-
ið að henni þar.
Sauðfjárslátrun lauk í slátur-
húsi Kaupfélags Þingeyinga
miðvikudaginn 15. október.
Slátrað var 43.915 kindum,
Meðalþungi dilka var 14,7 kg
og er það 360 grömmum meira
en í fyrrahaust. Þ. J.
Stórutungu fyrsta vetrardag. —
Síðasta hálfan mánuð hafa veð-
ur verið góð og haustsnjóinn
tekið upp. Jörðin kom græn
undan snjónum því ekki hefur
frosið svo heitið geti. En nú
gengur vetur í garð og sýnir
þegar svip sinn.
Það tókst að gera allar lög-
skipaðar göngur í afrétt, þó eru
heimtur enn misgóðár. Fé hafði
reitt betur af í afrétt en heima-
löndum.
Tafir urðu á ýmsum fram-
kvæmdum, sem yfir stóðu í
sumar, vegna haustyeðrana, en
hófust að nýju þegar þeim létti.
Rafstöðin nýja í Svartárkoti
hefur verið tekin í notkun. í
aflvélina fóru á fimmta tonn af
járni og smíðaði hana Jón Sigur
geirsson í Árteigi. Hún er mikið
völundarsmíði. Annað, sem í
byggingu var og má telja til
nýjunga í byggingum, hér að
minnsta kosti, var íbúðarhús í
Úlfsbæ. Það reis af steyptum
grunni í sumar og er úr svo-
kölluðum einingum úr stein-
steypu, með gluggum og tvö-
földu gleri og sperrum. Að utan
er það frógengið undir máln-
ingu. Hús þetta er 140 fermétr-
ar að stærð. Tveir menn frá
framleiðanda sáu um flutning á
byggingarstað, kornu og settu
húsið saman á staðnum og nutu
við það aðstoðar heimamanna.
Verkinu var lokið á sex dögum
og kostar húsið, svo búið 2
millj. kr. Skarphéðinn Sigurðs-
son, bóndi á Úlfsbæ var mjög
ánægður m'eð þéssi vinnubrögð.
Þ. J.
EFNAHAGSMALIN
VANÞRÓUÐ
f þjóðfélagi okkar eru margar
blikur á lofti. Efnahagsmálin
e'ru vanþróuð. Verðbólga, al-(
mennt kaupæði og brask liafa
sýkt allt efnahagslíf, kröfu-
gerðir um kauphækkanir eru
tímanna tákn, ásamt óánægju í
ótryggum heimi. Við lifum dag
hvern um efni fram, höfum eytt
gjaldeyrisvarasjóðnum upp til
agna, safnað skuldum að auki
og stöndum enn frammi fyrir
þeim beiska sannleika, að vera
vitandi vits að taka út á fram-
‘tíðina, án þess að hafa áhyggj-
ur af skuldadögum.
UPPREISN AR ANDI
Vaxandi uppreisnarandi ríkir
með þjóðinni og sjást þess mörg
merki. Sjómennirnir eru ekld
ánægðir með fiskverðið og
hættu að fiska, skólanemendur
fara kröfugöngur og lieimta
•hærri námslán, Alþýðusam-
.band íslands hvetur til nýrra
átaka á vinnumarkaðinum, opin
berir starfsmenn heimta verk-
fallsrétt. Fámennir starfshópar
geta stöðvað helstu atvinnuvegi
þjóðarinnar svo að segja
hvenær sem er, svo nokkur
dæmi séu nefnd. Þjóðin býr við
< stiiðugan ótta um þá þróun
mála, að fjölmennir eða fámenn
ir starfshópar noti verkfalls-
vald sitt í þeim anda uppreisnar
öðrum þræði, sem með ein-
hverjum hætti hefur smitað
þjóðina og gert hana sjálfri sér
■sundurþýkka.
KVENNAFRÍ
Jafnvel kvennafríið bar keim af
hinum ábcrandi tískuöflum í
þjóðfélaginu þótt einn frídagur
kvenna væri í sjálfu sér enginn
þjóðarvoði, og ekki meiri skaði
að' honum á almennum vinnu-
markaði hér um slóðir en svo
sem ein smástífla á Laxá í
hausthreti. En á meðan konur
njóta aðeins í orði en ekki á
boröi fulls launajafnréttis,
munu þær minna á sig með ein-
liverju móti þar til sigur er
unninn. Sigur þeirra er e. t. v.
minni cn efni standa til, vegna
þe'ss að ö!l andstaða dó í fæð-
ingunni. Þó var hann rnjög
núkill.
HNÝTUR UM LAND-
IIELGISLÍNUNA
Alþýðubandalagsblaðið á Akur-
eyri er alltaf að hnjóta um 59
mílna mörkin í landhelgismál-
inu. Það gerði þá kröfu fyrir
nokkru, að engir undanþágu-
sanuúngar yrðu gerðir um vcið
| Um síðustu helgi komu ÍR-
j ingar hingað norður og léku
handknattleik í annarri deild
| við K. A. og Þór í íþróttaskemm
| unni.
i í. R. og K. A. léku á laugar-
daginn og sigruðu ÍR-ingar með
| 21—19, en KA-liðið hafði þó
J yfirhöndina fram í síðari hálf-
J leik. Hinir leikvönu gestir voru
_j sterkari í leiktækninni.
J Á sunnudaginn léku svo í. R.
j og Þór og Þórsarar urðu einnig
j að láta í minni pokann og varð
j markatalan 21—15.
Þess má geta, að ÍR-ingar
| léku í fyrstu deild síðasta
| keppnistímabil, en féllu jrá
niður í aðra deild, þar sem þeir
[ leika nú. P
Kristján frá Djúpalæk.
Á sunnudaginn varð fimm bíla
árekstur við Hrafnagilsstræti'
21. Mjög miklar skemmdir urðu
á tveim bílanna en allir
sliemmdust þeir meira og
minna. Siys urðu ekki á fólki.
Smáárekstrar liafa nokkrir orð-
Skrifar um bækur
Kristján skáld frá Djúpalæk
mun skrifa um nokkrar bækur
í blaðið á næstunni, fyrst og
fremst þær, sem gefnar eru út
á Akureyri, og birtist fyrsta
grein hans á öðrum stað í blað-
inu í dag og fjallar hún um ný-
útkomna ljóðabók Haraldar
Zophoníassonar á Dalvík. □
ið í umferðinni, en enginn stór-
vægilegur.
Brotist var inn hjá Pétri &
Valdimar á laugardaginn og
ýmsu stolið, þar á meðal tal-
stöð. En innbrotsmennirnir
fundust samdægurs og skiluðu
þýfinu. Voru þar ungir menn
að verki, sá yngsti sex ára.
Þess má geta, að nokkrar
konur lentu í smávegis ái'ekstr-
um á föstudaginn.
Að öðru leyti hefur verið
fremur rólegt hjá lögreglunni
og fátt merkilegt borið við.
(Samkvæmt umsögn lögreglu
varðstofunnar í gær)
ar erlendra þjóða innan 50
niflna markanna. Blaðið birta
svo leiðréttingu og sagði að
krafan hefði átt að miðast við
200 mílna mörkin. En ekki leið
langur tími þar til sama blað
krefst þess, að ekki konú til
samninga um veiðiheimildir
innan 50 mílna markanna! Blað
ið hefur kvartað yfir prentvill-
um lijá sér!
ÞAÐ RIGNIR YFIR MANN
NAFNLAUSUM BRÉFUM
Sendibréf til Dags eru jafnan
kærkomin, því þrátt fyrir við-
varandi þrengsli í blaðinu, eiga
raddir lesenda um margvísleg
efni fullan rétt á sér og þeim er
komið til skila eins fljótt og auð
ið er. En því miður vill það við
brenna, að bréfritarar gleyma
að skrifa nöfn sín undir grein-
arnar og láta sín hvergi getið. .
Bréf þeirra fara, eins og áður,
beint í ruslakörfuna, þótt eftir-
sjá sé að ýmsum þeirra. Það má
ekki minna vera en bréfritarar,
sem ætlast til þess að bréf
þeirra séu birt, láti sín getið,
munnlega eða skriflega og get-
ur þá orðið samkomulagsatriði
hvernig greinin er merkt.
Ábendingar, tillögur og fyrir-
spurnir eru vel þegnar, sem
áður segir, bréflegar eða munn-
legar. En kæru bréfritarar, sem
felið ykkur bak við nafnleysið.
Ekki þetta pukur. Nafnlausu
bréfin fara öll sömu leiðina.
STANDANDI ÚTSALA
Nýlega var gerð sú fyrirspurn
til forráðamanna Verksmiðja
samvinnumanna á Akureyri,
hvers vegna ekki væri liér á
Akureyri útsala á gölluðum
vörum, eins og fyrr í liaust var
í Reykjavík.
Nú hefur framkvæmdastjóri
Gefjunar, Hreinn Þormar, sent
svarið og er það á þessa leið:
Hér á Gefjun hefur útsala á
göllúðum vörum verið ár hvert,
sem útsala hefur verið í Reykja
vík, ýmist á undan eða eftir.
Auk þess er búðin okkar stand-
andi útsala á göllúðum vörum.
LEITAÐ AÐSTOÐAR
Kona að nafni Patrecia Jóns-
son, Norðurbyggð 1, sími 23406,
tapaði nýrri og mjög vandaðri
leðurtösku, sem tekin var úr
ólæstri bifreið hennar að kveldi
kvennafrídags, milli kl. 9.30—
10.30. í töskunni voru erlendir
peningar, bankabók, nafnskír-
teini, kvittanir og ýmislegt
fleira. Sumt af innilialdinu
fannst skammt frá og hefur
verið skilað. En þeir sem geta
gefið frekari upplýsingar, cru
beðnir að gera lögreglunni eða
konunni aðvart liið fyrsta.
RAFVEITA AKUREYRAR
KVARTAR
Hringt var til blaðsins frá verk-
stæði Rafveitu Akureyrar.
Tjáði viðmælandinn, að núkil
brögð væru að því, að götuljós
væru eyðilögð. Væru þar
óknyttastrákar að verki og
væru fullorðnir beðnir að reyna
að kveða þennan ósóma niður
hið fyrsta. Mest ber á þessu á
hluta Syðri-Brekkunnar, Ham-
arkotstúni og í Gerðunum.
Hver pera kostar nú þúsund
krónur og oft skemmast einnig
ljósastæði og kosta þau 9 þús-
und krónur, auk vinnu við upp-
setningu.