Dagur - 12.11.1975, Blaðsíða 1
Baguk
LVIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 12. nóv. 1975 — 46. tölubl.
Þingfulltrúar úti fyrir Hótel KEA, en nokkra vantar þó á myndina, þar sem þeir slitu sig ekki nógu fljótt frá nefndarstörfunum. —
Kjördæmisþing framsóknar
Bátur sökk
í minni
Eyjafjarðar
Meðal margra góðra fulltrúa á
kjördæmisþinginu um helgina,
var Ármann Þórðarson kaup-
félagsstjóri í Ólafsfirði. Spurður
frétta sagði hann m. a.:
Á föstudaginn varð það slys
í mynni Eyjafjarðar, að mótor-
báturinn Kristbjörg ÓF 11
sökk. Þrír af áhöfninni komust
í björgunarbát og skipverjar á
Guðmundi Ólafssyni ÓF 40
'bjargaði þeim, en skipstjórinrí,
Kristján Ásgeirsson, drukknaði.
Hann var 46 ára og lætur eftir
sig konu og þrjú börn. Krist-
björg var tveggja ára bátur, 27
tonn að stærð, smíðaður á Norð
firði.
Unnið er að ýmsum fram-
kvæmdum í veðurblíðunni.
Verið er að hækka flugvöllinn,
ennfremur er verið að setja
burðarlag á nýjan íþróttavöll,
austan við gagnfræðaskólann.
Þá hefur verið unnið við grunn
væntanlegs sjúkraskýlis og elli
heimilis. Búið er að steypa
kjallara og sökkla.
Lógað var hjá Kaupfélagi
Ólafsfjarðar 1962 kindum.
Meðalvigt dilka var 15,52 kg án
nýrnamörs og er það 600
grömmum meiri vigt en í fyrra.
Þyngsta dilkinn átti Jóhannes
Jóhannesson í Kálfsárkoti, 28
kg, sem er líklega vænsti dilk-
ur, sem hér hefur verið lógað.
Atvinna er mikil í Ólafsfirði.
Lögregluvarðstjórinn, Árni
Magnússon, hafði þetta að segja
blaðinu á mánudaginn:
Síðasliðna nótt var brotist
inn í Eyrarbúðina. Engu var
þar stolið og er málið þegar
upplýst.
Aðfaranótt laugardags var
brotist inn hjá Skafta h.f. og
Norðurljósinu, sem er í sama
húsi. Peningum var stolið og
er málið ekki upplýst.
Fremur lítið hefur verið um
árekstra að undanförnu, þótt
ætíð séu þeir of margir.
Allmargir ökumenn léttra
bifhjóla hafa verið teknir fyrir
umferðarbrot og farartækin úr
umferð tekin.
Frá lögreglunni í gær, þriðju
dag:
29. þiitg UHFI
Sambandsþing UMFÍ það 29. í
röðinni verður háð að Varma-
landi í Borgarfirði dagana 15.
og 16. nóvember n. k. og hefst
þingið kl. 15.30 á laugardag.
Búist er við góðri mætingu á
þingið, enda óvenju viðburða-
ríkt starfstímabil að baki frá
síðasta þingi UMFÍ.
Reiknað er með að helstu
mál þingsins verði staða UMFÍ
og fjármál hreyfingarinnar,
fræðslumál og nýafstaðið lands-
mót.
(Fréttatilkynning
Átjánda kjördæmisþing fram-
sóknarmanna í Norðurlands-
kjördæmi eystra hófst á Hótel
KEA á Akureyri laugardaginn
8. nóvember klukkan rúmlega
eitt.
Hilmar Daníelsson á Dalvík,
stjórnarformaður sambandsins,
setti þingið og bauð þingfull-
trúa og gesti velkomna. Forset-
Banaslys varð á Norðurlands
vegi við afleggjarann að flug-
stöð við Akureyri. Kristjana
Halldórsdóttir húsfreyja á
Neðri-Dálksstöðum á Svalbarðs
strönd varð þar fyrir bifreið
með fyrrgreindum afleiðingum.
Hún hefði orðið 45 ára í gær.
Slysið varð kl. 17.15.
Banaslysin hér á Akureyri
eru nú orðin þrjú á árinu, en
alls á landinu eru þau 27, eða
10 fleiri en á sama tíma í fyrra.
ar þingsins voru Sigurður Jó-
hannesson, Akureyri og Ingi-
björg Indriðadóttir, Höfða-
brekku, en ritarar Indriði Ket-
ilsson á Fjalli, Baldur Hálldórs-
son á Hlíðarenda og Árni Ósk-
arsson, Dalvík.
Veður og færi var hið besta,
svo þingfulltrúar komu hvað-
anæva og sátu þingið 60 manns;
fulltrúar, alþingismenn og
nokkrir gestir.
Formaður flutti starfsskýrslu
stjórnarinnar og gjaldkeri gerði
grein fyrir fjárhagnum. Taldi
formaður, að starfið hefði verið
of lítið og fjárhagurinn hefði
nokkuð þrengst.
Alþingismennirnir Ingvar
Gíslason, Stefán Valgeirsson og
Ingi Tryggvason fluttu þessu
næst stuttar ræður og fjölluðu
í þeim um nokkra þætti stjórn-
málanna, einkum efnahagsmál-
in. Að þingmannaræðum lokn-
um hófust umræður um þær og
skýrslur formanns og gjaldkera
kjördæmissambandsins. Var
fundi fram haldið til klukkan
sex, með stuttu kaffihléi. En
eftir það hlé fluttu ávörp: Þór-
arinn Þórarinsson, ritstjóri,
Kristinn Finnbogason, fram-
kvæmdastjóri Tímans og Magn-
Fjalli, Aðaldal, 10. nóvember.
Verið er að byggja íþróttahús
og félagsheimili hjá Hafra-
lækjarskóla og stendur bygg-
ingin skammt austan við skóla-
húsið. Þar er innivinna hafin
við smíðarnar. Byggingar eru
fremur litlar hér í sveitinni.
Verið er þó að ljúka við íbúðar-
hús á Jódísarstöðum í Skriðu-
hverfi og iðnaðarbýli hefur ris-
ið í Miðhvammslandi og heitir
Heiðargarður. Það íbúðarhús er
langt komið og þriðja húsið,
sem verið er að byggja, er
skammt á veg komið og er í
Hafralækjarlandi. Utihúsbygg-
ús Ólafsson, formaður Sam-
bands ungra framsóknarmanna.
Nefndir störfuðu nú af kappi
að loknum fundarstörfum þenn
an dag, bæði kjördæmismála-
(Framhald á blaðsíðu 7)
ingár hjá bændum eru helst
viðbætur við hús.
Tankvæðing, sem hér er kom
in, tekur til þriggja hreppa:
Aðaldælahrepps, Reykdæla-
hrepps og Reykjahrepps. Einn
bíll er í förum og flytur mjólk-
ina, en annar mun bætast við í
vetur. Unnið er nú að lagfær-
ingu heimreiða hér í sveit.
Vont tíðarfar gerði hér í
haust og kom það þó verr við
framsveitirnar. Nú er búinn að
vera langur, góður kafli.
Sauðfjárbaðanir eru byrjað-
ar, eftir því sem skyldan bíður
þetta árið. Annars hafa menn
fé sitt úti, enda snjólaust í
byggð og að mestu leyti einnig
til fjalla.
Borað var hér í sveit eftir
heitu vatni í sumar, en án
árangurs, að heitið gæti, en hiti
var mikill og ég hygg, að þetta
verði kannað betur. I. K.
Nautðkjöt
á nýju verði
Samkvæmt samþykki sex-
mannanefndar og stjórnvalda
er nú upp tekin niðurgreiðsla á
nautakjöti, sem við það lækkar
í verði til neytenda um 26—
37%. Jafnframt lækka niður-
greiðslur á kindakjöti og hækk-
ar það þá í verði um 4—6%.
Niðurgreiðslur á kjötverði úr
ríkissjóði eru þær sömu og
áður, þótt hlutfall milli tegunda
breytist. Q
Togskipið Snæfell kom til Akurcyrar árdegis á mánudaginn og var þá þessi mynd tekin. I gær, þriðju-
dag, fór það til Hríseyjar og var því og áhöfn þess vel fagnað þar. (Ljósm.: E. D.)
Frá lögreglunni
ÍÞRÓTTAHÚS, FÉLAGSHEIMILI