Dagur - 13.12.1975, Page 1
EFNAVERKSMIÐJAN SJÖFN
LVIII. árg. — Akureyri, laugardaginn 13. des. 1975 — 53. tölublað
FILMUhúsið akureyri
Næst eru það
Glerdýrin
og Rauðheffa
Leikhússtjórinn á Akureyri,
Eyvindur Erlendsson, tjáöi blað
inu eftirfarandi í gær:
í kvöld verður tuttugasta og
fyrsta sýning á Kristnihaldi
undir Jökli hjá Leikfélagi Akur
eyrar. Aðsókn hefur verið slík,
að löngum hefur verið uppselt
á sýningarnar löngu fyrirfram
og raunar ekkert lát á aðsókn-
inni ennþá. Því er í athugun að
hafa nokkrar framhaldssýning-
ar strax úr áramótum, 'en það
verður þá auglýst síðar.
í æfingu er barnaléikritið
Rauðhetta í umsjá Þófis Stein-
grímssonar. Frumsýningin gæti
orðið í lok janúarmánaðar.
Gísli Halldórsson sviðsetur
Glerdýrin og verður sá sjón-
leikur væntanlega frumsýndur
um miðjan janúar. □
Færeyingar
fordæma breta
Landsfundur Þjóðveldisflokks-
ins f. Færeyjum, sem haldinn
var um helgina, fordæmdi her-
skipainnrás breta á íslensk fiski
mið. Jafnframt er skorað á
færeysk fyrirtæki að bresk skip
á leið á íslandsmið fái enga
fyrirgreiðslu í Færeyjum.
Einn af leiðtogum Þjóðveldis-
flokksins er Erlendur Paters-
son, íslendingum að góðu
kunnur. □
IIIII1IIIIIIII1BE1B1III1IISIII8IIIIH
Verslanir eru opnar til klukkan
sex í dag — laugardag 13. des.
lillllBIIHIIIIIBðElllSlIilBllillllll
Alvarlegir atburðir urðu við
Austurland í fyrradag, síðdegis
á finuntudaginn. I»að sem gerð-
ist var í stuttu máli þctta:
Þrír dráttarbátar úr deild
breska flotans, sem nú er á fs-
landsmiðum, gerðu árás á varð-
,skipið Þór í mynni Seyðisfjarð-
ar. Loydsmann sigldi tvívegis á
Þór. Eftir fyrri ásiglinguna
skaut Þór lausu skoti að dráttar
bátnum. Þegar dráttarbáturinn
Þau hafa raðað sér upp, tilbúin að ganga inn í skóla sinn, Barnaskóla Akureyrar, stillt og prúð eins og vera ber. Og hvort sem þau
finna til námsleiða innan veggja skólans eða ekki, er hitt víst, að öll hlakka þau til jólanna, sem nú eru skammt undan. Ljósm. E. D.
F réttir
Þorsteinn Sveinsson kaupfélags
stjóri á Egilsstöðum hefur orðið
við þeirri ósk blaðsins að vera
fréttaritari þess í stað Vilhjálms
Sigurbjörnssonar, sem andaðist
í haust og hafði gegnt því starfi
með mikilli prýði undanfarin
ár. Þorsteinn sagði blaðinu svo
frá á fimmtudaginn:
Sauðfjárslátrun hjá Kaup-
félagi Héraðsbúa fór fram í
fjórum sláturhúsum: á Egils-
stöðum, Reyðarfirði, Fossvöll-
um og Borgarfirði eystra. Lóg-
að var 64.129 kindum. Meðal-
vigt dilka var 14,50 kg á móti/
13,04 í fyrra. Búið er að flytja
út COO tonn af kjöti til Færeyja
og Noregs. Síðan var slátrað
855 nautgripum á Egilsstöðum.
í haust var tekin í notkun á
Egilsstöðum og Reyðarfirði flán
ingstalía og reyndist hún vel,
auðveldar og flýtir fláningunni.
Sams lsonar fláningstalía var
sett upp í sláturhúsinu á Sval-
barðseyri í fyrrahaust.
Nú er verið að bora eftir
heitu vatni við Urriðavatn í
Fellalireppi, skammt frá Egils-
stöðum, og með hitaveitu þang-
af Fljótsdalshéraði
að fyrir augum. Fyrir nokkrum
árum var þar borað úti í vatn-
inu. Var komið niður á hita en
borinn bilaði, svo ekki varð
meira úr framkvæmdum þá. Nú
er borað á þurru, skammt frá
og er búið að bora sex hundruð
metra. Á 250 metra dýpi mæld-
ist 47 stiga hiti, en um vatns-
magn er ekki vitað enn.
Lítið spratt af garðávöxtum
á Héraði í sumar, enda kom
vorið seint. Mót venju þurfti að
flytja hingað kartöflur til
neyslu strax í október og er það
nýlunda, þótt hér teljist ekki
kartöfluræktarhérað.
Við erum betur settir hvað
snertir raforkuna en áður var.
Þó eru menn uggandi um Fljót-
ið, að þar vanti vatn, enda hafa
lokurnar ekki verið settar í og
verður víst ekki gert í vetur.
Félagslífið er nú að færast í
hefðbundið vetrarform eftir eril
samt sumar. Bændahátíð var
haldin fyrsta vetrardag, að
venju, og komust þar færri að
en vildu. Þar voru að venju
heimafengin skemmtiatriði. En
heiðursgestirnir, þau Sveinn
Jónsson á Egilsstöðum og kona
hans Sigríður Fanney, fluttu
ræður.
Kirkjukórinn æfir nú undir
stjórn organista, Jóns Olafs
Sigurðssonar, sem hingað er
fluttur frá Patreksfirði, en er
héraðsmaður í ættir frgm.
Borunin á Syðra-Laugalandi
gengur vel. í gærmorgun var
borinn kominn niður á 975
metra dýpi. Vatnið hefur mælst
fast að 9Ó gráður, og það hefur
einnig aukist nokkuð og var á
miðvikudagskvöldið orðið 27
lítrar á sekúndu.
Jólaleyfi starfsmanna við jarð
borinn Jötunn hefst næsta mið
vikudag og lýkur 4. janúar.
Teljandi bilanir eða táfir hafa
ekki enn orðið á verki þessu.
Dagbjartui- borstjóri sagði, að
sæmilegt væri að bora á Syðra-
Laugalandi, fyrst var þó bergið
nokkuð hart en á sumum stöð;
um linara. Unnt er að skipta
um borkrónur í samræmi við
eðli bergsins og flýtir það verk-
inu að hafá viðeigandi krónu á
hverjum stað.
Samkvæmt viðnámsmæling-
unum í sumar var búist við
verulegu vatnsmagni á miklu
dýpi, e. t. v. þi'jú þúsund metr-
um, og vona menn auðvitað, að
það finnist þar. Fyrirfram er
dýpt þessarar fyrstu borholu,
sem boruð er í tilraunaskyni,
ekki ákveðin, en Jötunn á að
geta borað 3600 metra í jörð
niður. □
sinnti ekki viðvöruninni og
sigldi á Þór á nýjan leik, skaut
varðskipið föstu skoti í bol
dráttarbátsins, sem þá hélt á
haf út, ásamt hinum bresku
dráttarbátunum. Þetta gerðist
langt innan óumdeildrar land-
lielgi íslands, svo að segja uppi
í landsteinum.
Auk þessa alvarlega land-
helgisbrots, voru þetta, að sögn
skipherra Þórs, bein tilraun til
manndrápa og er alvarlegasta
brot breta í landhelgisdeilunni
til þessa.
Skenimdir á Þór eru miklar.
En sjófær er hann og heldur
áfram gæslustörfum þar til
meiri tími er til viðgerða. Engin
teljandi meiðsli urðu um borð
í varðskipinu.
Gæsluvél Landhelgisgæslunn
ar flaug yfir staðinn á meðan
þessi einstæði atburður átti sér
stað og voru ásiglingarnar kvik-
mjndaðar og ljósniyndaðar og
verða myndirnar því góð sönn-
unargögn gcgn bretum í þessu
máli.
Á íimmtudagskvöldið ákvað
ríkisstjórnin, í samráði við utan
ríkismálanefnd Alþingis, að
kæra fyrir öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna og Atlantshafs-
ráðinu siglingu breskra dráttar-
báta á varðskipið Þór í viðiir-
kenndri landlielgi fslands. Full
samstaða ríkti.
Einar Ágústsson utanríkisráð
herra flutti málið á fundi At-
Jantshafsráðsins í Brussel í gær
morgun og Ingi Ingvason sendi-
herra fslands hjá Sameinuðu
þjóðunum- bar fram kæru í
öryggisráðinu, í framhaldi af
orðsendingu um landlielgismál-
ið og afhenti kæruna í fyrra-
dag. □