Dagur - 18.02.1976, Síða 1

Dagur - 18.02.1976, Síða 1
FILMUhúsið akureyri AUSTUR A HÉRAÐI RIGNDIMILLJÓN Egilsstöðum, 16. febrúar. Starf- að hefur verið að undirbúningi skjalasafns á Egilsstöðum á vegum Suður- og Norður-Múla- sýslu. Keyptu sýslurnar hús af Pósi og síma til þessara nota. Er endurbótum á því að ljúka og verður þá hafist handa við skráningu og aðra undirbúnings vinnu. Forstöðumaður verður Ármann Halldórsson kennari á Eiðum. Safninu hefur borist góð bókagjöf frá Önnu Guðmunds- dóttur, ekkju Halldórs Ásgríms- sonar alþingismanns, um 4500 bindi og eru margt af því fá- gætar bækur. Verður þessari gjöf búinn staður í húsnæði safnsins. Mjög er snjólétt á Héraði og bílfært um allt. Hvergi sjást nú hreindýr. Fyrir hálfri annarri viku kom Vegirnir færir hér mikil hláka og hafa menn það á orði, að þá hafi rignt milljón, því báðar virkjanirnar ganga nú með fullum afköstum. Innvegin mjólk hjá Kaup- félagi Héraðsbúa var 16.000 kg minni árið 1975 en árið áður. En í janúar á þessu ári varð hún 20.000 kg meiri en á sama tíma í fyrra. Mjólkurmagnið til mjólkurbúsins hefur verið um 2,3 millj. kg á ári. Nýtt mjólkur- samlagshús er í byggingu og búið að steypa upp vélasalinn og verður hann einangraður í vetur. Nú fyrir skömmu hófst á ný útivinna við bygginguna og verður fram haldið ef sæmi- lega viðrar og er að því stefnt að taka samlagið í notkun á næsta ári. Heitt vatn náðist ekki við borun við Urriðavatn. Hiti var yfir 70 gráður en vatn ekki teljandi. Meira verður borað síðar. Þ. S. Myndin tckin nyrst í Ásvegi til norðurs. (Ljósm.: E. D.) Vegagerðin vann að hreinsun á vegunum á mánudaginn, síð- asta degi fyrir verkfall, hreins- aði þá snjó á Öxnadalsheiði, til Ólafsfjarðar og austur að Krossi í Ljósavatnshreppi og Vaðla- heiðarvegur var hreinsaður í bakaleiðinni. Þessir vegir voru allir opnir og greiðfærir í gær nema á Öxnadalsheiði, sem ekki var fær nema stórum bíl- um, að því er Vegagerðin tjáði blaðinu í gær. □ Ný brú á Glerá? Bæjarstjórnin hefur samþykkt, að láta gera áætlun um smíði brúar á Glerá í framhaldi af Hjalteyrargötu, samkvæmt skipulagi. Tilgangurinn er sá, að auðvelda tengsl iðnfyrir- tækja á Gleráreyrum við hafn- arsvæðið nýja, jafnframt því sem þessi tenging dregur mjög úr umferð aðalbrúarinnar á Glerá og á gatnamótum Tryggvabrautar og Glerárgötu. Þetta mun jafnframt reka á eftir ákvörðun um framtíðar- farveg Glerár á Gleráreyrum. Tcprar ÖA Togarar Útgei'ðarfélagsins eru allir á veiðum nema gamli Harð bakur, sem legið hefur bundinn síðan urn áramót. Þrír af togur- um Ú. A. lönduðu fyrir helgi, einn á föstudaginn og tveir á sunnudag. □ Talið er, að 30—35 þúsund manns hafi hafið verkfall frá og með 17. febrúar og eru það 75—80% af mannfjölda Alþýðu- sambands íslands, og næstu daga bætist í þennan hóp, ef samningar takast ekki á allra næstu dögum. Hér á Akureyri hófust verk- föll hjá Einingu og Iðju, Sveina- félagi járniðnaðarmanna, Tré- Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Ak- ureyrar fyrir árið 1976 var endanlega samþykkt á fundi bæjarstjórnar 10. febrúar. Nið- urstöðutölur tekna- og gjalda- megin eru 1.030 milljónir króna og hækkuðu frá upphaflegri gerð um 28 milljónir þróna. Stafar hækkunin af því, að úr- tak, sem skattstofan gerði á launagreiðslum stærstu fyrir- tækjanna í bænum gaf til Snjólítið í allan vetiu’ Kristján Sigurðsson á Gríms- stöðum, fréttamaður Dags þar, varð sjötugur fyrir fóum dögum og sendir blaðið honum bestu afmælisóskir. í viðtali við Kristján á mánu- daginn sagði hann m. a.: Með köflum er stormasamt, en hér hefur aldrei verið um- talsverður snjór í vetur og er mikill munur á því eða um þetta leyti í fyrravetur. Síðast í gær var farið yfir öræfin á jeppa, austan frá Egilsstöðum, og er það fremur sjaldgæft í febrúar. Hagi er nægur fyrir sauðfé þegar gefur að láta fé út og við beitum eins og alla tíð hefur verið gert hér um slóðir. Hér er rólegt að venju og ekkert sjald- gæft hefur til tíðinda borið. □ smiðafélaginu, Bílstjórafélaginu og Rafvirkjafélaginu. Félag verslunar- og skrif- stofufólks hefur boðað verkfall eftir viku, hafi samningar þá ekki tekist. Mjólkurfræðingar hófu verkfall og tekur Mjólkur- samlag KEA því ekki á móti mjólk. Undanþágur hafa verið veitt- ar til að ljúka fiskvinnslu fyrir hádegi í gær, ennfremur er undanþága veitt til starfa í Fjórðungssjúkrahúsinu, elli- heimilunum og á Sólborg og fá þessar stofnanir fyrirgreiðslu eftir þörfum, ennfremur starfs- fólki heimavistar M. A., svo og ræstingarkonum skólanna í bænum. Þá hefur verið frestað lokun veitinga- og gistihúsa um eina viku. Verkfall sjómanna á bátum og minni togurunum hófst 14. febrúar. Hefur þv£ mikill hluti loðnuveiðiskipa stöðvast, en loðnan veiðist aðeins takmark- aðan tíma og loðnufrystingin var að hefjast, og bátaflotinn liggur bundinn í höfnum þar til deilan leysist. Hér er um að ræða einhver fjölmennustu verkföll, sem um getur, og gengur venjulegu fólki illa að skilja, hve langán tíma þarf til samninga. □ jarins samþykkt með kynna, að tekjur höfðu hækkað hér á Akureyri á milli ára um 30%, en Þjóðhagsstofnun hafði reiknað með 26% hækkun launatekna. Þessari hækkun var ráðstafað þannig af bæjarstjórn, að áætl- uð lántaka lækkaði um 12 milljónir og verður nú 71 millj. í stað 83, sem áætlað hafði ver- ið- Til viðhalds íþróttamann- virkja varð hækkun um 1,2 milljónir, styrkur til íþrótta- bandalags Akureyrar hækkaði um hálfa milljón og verður 3,5 milljónir króna. Hestamanna- félagið fékk hálfa milljón til skeiðvallargerðar og hjóna- garður stúdenta tvær milljónir, en bæjarstjórn hafði á sl. ári gefið loforð um að greiða kostn- að við byggingu tveggja íbúða í hjónagarði stúdenta í Reykja- vík, og er þetta fyrsta fram- lagið. Þessi fjárhagsáætlun var sam þykkt með samhljóða atkvæð- um allra bæjarfulltrúa og ekki aðeins áætlunin í heild, heldur hver einasti undirliður, sem skipta hundruðum, að einum undanskildum, sem fékk aðeins 10 atkvæði, mótatkvæðalaust. Mun þetta nánast eindæmi, að því er talið er. Er hér mikil breyting á frá síðasta ári, þegar fimm bæjai'fulltrúar Sjálfstæðis flokksins sátu með hendur í í fundargerðum bæjarráðs kem- ur fram, að kveðinn hefur vérið upp dómur í Hæstarétti í máli Pálma G. Jónssonar bifreiðar- stjóra gegn bæjarsjóði vegna slyss er Pálmi varð fyrir er hann var í vinnu hjá Akureyrar bæ með kranabifreið sína. Var bæjarsjóði gert skylt að greiða Pálma 1,3 milljónir kr. í slysa- bætur, auk vaxta og málskostn- aðar í héraði og fyrir Hæsta- rétti að upphæð 300 þúsund kr. öllum ðlkv, skauti sínu og vildu hvergi ábyrgð á bera. Þessa afstöðu þeirra nú, ber að þakka. \ Á fundinum minntist forseti bæjarstjórnar, Valur Arnþórs- son, þess, að 30 ár eru liðin síðan Jón G. Sólnes var fyrst kjörinn í bæjarstjórn Akureyr- ar, og þakkaði hann Jóni marg- háttuð störf í þágu bæjarins. □ En það sem vekur athygli er, að lagður er fram reikningur frá málflutningsmanni Akureyrar- bæjar, að upphæð 946 þúsund krónur í málflutningslaun og að málflutningsmaður Pálma mun hafa farið fram á svipaða upphæð frá Pálma. Bæjarstjórn mun ekki hafa fallist á reikn- ingsupphæðina og fól bæjar- stjóra að taka upp samninga við lögmanninn um greiðslur. H4 ERU LAUMN

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.