Dagur - 18.02.1976, Síða 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Sírnar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðamiaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Eigum við
lengur heima í
NAIO?
Norðmenn hafa í fyrsta sinn opin-
berlega lýst yfir stuðningi sínum við
baráttu íslendinga fyrir 200 rnílna
fiskveiðilögsögunni. Öldungadeild
bandaríkjaþings samþykkti fyrir
skömmu útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar og nú hafa rússar lýst yfir því,
að þeir styðji 200 mílna efnahags-
lögsögu strandríkja á hafréttarráð-
stefnunni. Eru Jætta allt góðar frétt-
ir og renna enn styrkum stoðum
undir J)á væntanlegu samþykkt haf-
réttarráðstefnu Sameinuðu J>jóð-
anna, að strandríki ráði sjálf yfir
auðlindum hafsins hið næsta sér. Þar
styðja bretar 200 mílna stefnima, en
brjóta hana hér við land.
Á fslandsmiðum sýna bretar meiri
og grófari yfirgang en nokkru sinni
fyrr, bæði með háskalegum ásigling-
um á íslensk varðskip, og með því að
beina togaraflota sínum í smáfiskmn
á alfriðuðum svæðum. Þá hafa J>eir
fjölgað mjög togurum sínum á ís-
landsmiðum. Allt þetta gera þeir á
sama tíma og þeir óska samninga og
sátta og lýsa yfir friðunarsjónarmið-
um til verndar ofveiði. Herskip
Jjeirra, dráttarskip og önnur aðstoðar
skip vernda veiðiþjófnaðinn og
hverjum atburði af löggæslustörfum
íslenskra skipa Landhelgisgæslunnar
snúa Jjeir sér í hag í opinberum
fréttum og eru margsannir að hrein-
um ósannindum í því efni.
Hótun íslendinga um stjórnmála-
slit h:ífa enn ekki komið til fram-
kvæmda, meðal annars vegna við-
leitni framkvæmdastjóra NATO til
lausnar fiskveiðideilunnar. Margir
gagnrýna }>á töf, og undrast lang-
lundargeð íslenskra stjórnvalda. Við
erum í varnarbandalagi vestrænna
J>jóða, höfum lánað land okkar und-
ir herstöð í J>eirra þágu og J>etta
varnarbandalag hefur tekið að sér
varnir lands okkar. En ennj>á situr
herinn á Miðnesheiði með hendur í
skauti, eins og honum komi J>að ekki
við, að ein varnarbandalagsþjóðin
fari ránshendi um fiskimið okkar og
taki þar undir herskipavemd drjúg-
an skerf af þegar ofveiddum fisk-
stofnum landgrunnsins.
Menn hafa löngum viljað trúa
J>ví, að herstöð NATO hér á landi
tryggði rétt okkar og landvarnir.
Eftir vopnaða íhlutun breta á ís-
landsmiðum og aðgerðarleysi
„verndara" okkar, vaknar sú spurn-
ing, hvort við getum, sem frjáls og
fullvalda þjóð, lengur setið í banda-
lagi með J>eim, sem kúga okkur. □
PÉTUR GAUTUR A HÚSAVÍK
Vel gengur á Húsavík að æfa
sjónleikinn Pétur Gaut. Hann
verður frumsýndur í leikhúsinu
við Garðarsbraut þriðjudaginn
24. febrúar n. k. Þann dag verða
liðin 100 ár frá því að Pétur
Gautur var sýndur í fyrsta sinn
á leiksviði. Fyrsta leiksýningin
á Pétri Gaut var í Kristianíu —
léikhúsinu í Osló 24. febrúar
1876.
Á Húsavík fer Gunnar
Eyjólfsson, leikari frá Þjóðleik-
húsinu, með aðal hlutverkið í
sjónleiknum og frumsýningar-
daginn verður hann fimmtugur.
Þá geta þeir árnað hvor öðrum
heilla með sameiginlegan merk-
an afmælisdag Gunnar Eyólfs-
son og Pétur Gautur. Þeir hitt-
ust ekki í fyrsta sinn hér á Húsa
vík, heldur eru þeir búnir að
þekkjast lengi og Gunnar hefur
áður leikið Gaut í Þjóðleikhús-
inu í Reykjavík. Ekki mun á
nokkurn hátt spilla þeirra sam-
starfi, að Gautur er hálfu eldri
en Gunnar, því að list er list af
því að hún er list, en ekki vegna
aldurs.
Með meiriháttar hlutverk
utan Gautinn sjálfan fara kunn-
ir og góðir leikarar á Húsavík:
Ásu, móður Péturs, leikur Her-
dís Birgisdóttir, Sólveigu leik-
ur Guðný Þorgeirsdóttir, Dofr-
ann leikur Ingimundur Jónsson
og Hnappasmiðinn leikur Einar
Njálsson.
Ég leit inn á sefingu hjá leik-
félaginu í gærkveldi. Þá stóð
svo á, að margt var á seiði í
höll Dofrans, Dofrinn og þursar
allir vildu gjarnan og með sín-
um hætti fá Pétur í sinn hóp.
Hvort varð Pétur Gautur þurs
eða ekki þurs? Svarið kom síð-
ar fram í leiknum.
Það er merkur heimur og
seiðandi, sem utanleikhúsmað-
ur kemur í, þegar hann fær að
koma á æfingu hjá leikhúsfólki
og mætti um þann heim segja
marga hluti. Hér skal aðeins
greint frá því, að óhemju mikið
starf liggur að baki uppfærslu
á viðamiklu leikhúsverki slíku,
sem Pétur Gautur er. Nálega
50 manns, leikarar og annað
fólk, sem býr yfir margháttuð-
um hæfileikum og kunnáttu,
sem til þarf að koma upp góðri
leiksýningu, hefur að unnið frá
því í desember. Það starf er
unnið á frístundum, sem gefast
á kvöldum, á nóttum og á helgi-
dögum. Mikið hvílir á leikstjór-
anum, hvert smá atriði verður
að vera á sínum stað og engu
má gleyma. Leikstjórinn, Sig-
urður Hallmarsson, skólastjóri,
er kunnur leikhúsmaður og hef
ur oft áður stjórnað leiksýning-
um hjá Leikfélagi Húsavíkur.
11. febrúar 1976.
Þorm. J.
Rauðhella og úlfurinn
Flestir kannast við söguna um
Rauðhettu litlu og úlfinn. Rauð
hetta var send með mjólk og
brauð í körfu til ömmu sinnar
og leiðin lá í gegn um skóginn.
í skóginum var mikið af fugl-
um, sem ýmist flugu yfir skóg-
Loðnan og leikstarf-
semin á Raufarhöfn
Hóli við Raufarhöfn, 16. febr.
Nýr snjór er ekki teljandi en
það er mikill gaddur og svella-
lög á túnum, sem við óttumst
að valdið geti kali.
Leikstarfsemi hefur verið líf-
Við æfingu á Pétri Gaut hjá Leikfélagi Ilúsavíkur. Þursar, Pétur
Gautur og fleira fólk. (Ljósmyndastofa Péturs, Húsavík)
FRÁ SJÓMANNAFFLAGI eyjafjarbar
A ð a 1 fundur Sjómannafélags
Eyjafjarðar var haldinn á Akur
eyri sunnudaginn 8. febrúar.
Fram kom í skýrslu forma'nns,
að mikið starf hefur verið hjá
félaginu á síðasta ári. Sjómenn
á stóru togurunum áttu í verk-
falli í 82 daga á fyrrihluta árs-
ins til að ná fram leiðréttingu
á sínum kjörum, en aðrar
vinnustöðvanir hafa ekki orðið.
Hins vegar blasir nú við vinnu-
stöðvun á bátaflotanum.
Reikningar félagsins sýna all-
góða afkomu á árinu, nema hjá
Vinnudeilusjóði, en eignir hans
eyddust upp að kalla í togara-
verkfallinu. Rekstrarafgangur í
heild er 2,18 millj. og bókfærðar
eignir í árslok rösklega 8
milljónir. Á árinu nutu 18 fé-
lagar dagpeninga úr sjúkrasjóði
félagsins, að upphæð alls kr.
693 þúsund. Samþykkt var að
hækka dagpeningagreiðslur
sjúkrasjóðs á þessu ári nokkuð
Lyflingamól
Ákveðið hefur verið að íslands-
meistaramót unglinga í lyfting-
um verði haldið hér á Akureyri
laugardaginn 21. febrúar. Mótið
hefst kl. 15.00 í íþróttaskemm-
unni. Þetta verður fyrsta ís-
landsmeistaramót sem akur-
eyrskir lyftingamenn sjá um.
Þátttaka á mótinu verður mikil
og hafa þegar 18 keppendur lát-
ið skrá sig til þátttöku, 9 akur-
eyringar, 2 reykvíkingar og 7
selfyssingar. Búast má við
harðri keppni í stigakeppni
milli Akureyrar og Selfoss, en
þeir síðarnefndu sigruðu á mót-
inu í fyrra og hafa verið mjög
vaxandi í greininni.
(Fréttatilkynning)
frá því sem verið hefur. Félags-
gjald fyrir yfirstandandi ár var
ákveðið kr. 8.000.
Aðalstjórn félagsins er þann-
ig skipuð: Guðjón Jónsson for-
maður, Ragnar Árnason vara-
formaður, Ármann Sveinsson
ritari, Matthías Eiðsson gjald-
keri og Jón Hjaltason með-
stjórnandi. — í varastjórn eru:
Brynjar Sigfússon, Stefán Ósk-
arsson og Stefán Snælaugsson.
Auk þess voru kosnir 7 menn
í trúnaðarmannaráð og á fund-
inum var kosið til ýmissa ann-
arra trúnaðarstarfa fyrir félag-
ið.
Tryggvi Helgason lét nú af
formennsku félagsins að eigin
ósk, og voru honum í fundarlok
þökkuð mikil og gifturík stöi'f
í þágu félagsins og sjómanna-
stéttarinnar, en Tryggvi var
formaður félagsins í samfleytt
40 ár.
í sambandi við landhelgis-
málið gerði fundurinn sam-
þykkt, þar sem hafnað er öllum
samningum við breta.
Félagsmenn í Sjómannafélagi
Eyjafjarðar eru nú 303 og hafa
ekki áður verið fleiri.
(Úr fréttatilkynningu)
leg á Raufarhöfn í vetur og
tekist vel. Leikflokkurinn hefur
sýnt tvisvar heima á Raufar-
höfn, einnig á Þórshöfn, í Vopna
firði og í Skúlagarði. Sjónleik-
urinn heitir Tobacco Road og
leikstjóri er Magnús Axelsson.
Með helstu hlutverk fara Heim-
ir Ingimarsson, Kristjana Krist-
insdóttir, Jakob Jakobsson og
Hrefna Friðriksdóttir. Leikur-
inn er þýddur og gerist í Banda
ríkjunum. Hann fjallar um
niðurlægingu fátæktarinnar.
Gott er að ferðast því allir
vegir eru opnir. Margir búa sig
undir grásleppuveiðarnar. Von-
andi hafa bretarnir ekki náð
grásleppunni þótt þeir drepi
smáþorskinn hérna við Langa-
nesið og Sléttuna. Síldarbræðsl-
an hefur tekið á móti 14.250
tonnum. Sólarhringsbræðsla er
eftir. Þróarrými hér ei' 9 þús-
und tonn, svo við getum tekið
á móti nokkrum loðnuveiði-
skipum. Þ. S.
Frá mótanefnd Glímu-
r
sambands Islands
Landsmót í glímu 1976 eru nú
ákveðin sem hér segir:
1. Bikarglíma Glímusambands
fslands 21. febrúar n. k. —
Mótið verður háð á Húsavík
og sér Glímuráð Héraðssam-
bands Suður-Þingeyinga um
mótið.
2. Landsflokkaglíman 20. mars
kl. 14.00.
3. íslandsglíman 1976 24. apríl
kl. 14.00.
Landsflokkaglíman og íslands
glíman fara fram í íþróttahúsi
Kennaraháskóla íslands og
þurfa þátttökutilkynningar að
berast sjö dögum fyrir mótsdag
til formanns mótanefndar, Sig-
urðar Ingasonar, pósthólf 997,
Reykjavík.
Sendibréf til Dags
Kæri Erlingur.
Fyrst vil ég þakka þér stuðning
við margvísleg málefni, sem
stuðla að bættu þjóðlífi, bættu
mannlífi, bættu heilsufari fjöld-
ans og einstaklingsins. Þetta er
aðalsmerki góðrar blaða-
mennsku og ætti auðvitað að
vera háleitasta markmið allra
íslenskra fjölmiðla.
Það sem að mér snýr, er fram
ar öðru umfjöllun fjölmiðlanna
um starf mitt og vettvang þeirr-
ar vinnu, sem ég tel mig inna
af hendi í þágu almennings-
heilla. Þar á ég ýmislegt ósagt
ennþá, en mig langar að byrja
á bréfkorni, ef þú vildir birta.
í bók sinni „Hugur einn það
veit“ fjallar Karl Strand, geð-
læknir um huglæg vandamál á
mjög auðskilinn en yfirgrips-
mikinn hátt. Þessa bók ættu
allir að lesa til að glöggva sig á
því, hve nátengd og samofin
hugtökin sál, geð, taugar og
hugur eru í málvitund okkar.
Löngu áður en ritöld hófst á
íslandi var þetta ort:
Sorg etur hjarta
nema segja náir
einhverjum allan hug.
Þá höfðu snjöllustu menn
uppgötvað, hve þýðingarmikið
það er að eiga tiúnaðarmann.
I dag, á öld hraðans, á öld
tækninnar, fjölgar þeim sem
engan eiga trúnaðarmanninn.
Af þeim sökum fer þeim hægt
og hægt fjölgandi sem missa
geðheilsuna vegna einstæðings-
skapar og einangrunar. Til að
ráða bót á þessu m. a. var Geð-
deild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri í Álfabyggð 13 sett á
laggirnar. Deildin er nú í Skóla
stíg 7, og þar verða framvegis
tækin, sem Kiwanishreyfingin
var'svo vinsamleg að gefa deild
inni.
En gagnsemi tækjanna, —
myndsegulbands, kvikmynda-
tökuvélar og sjónvarps —, er
fyrst og fremst fólgin í því, að
nú gefst starfsfólkinu kostur á
margfalt betri aðstöðu til
kennslu- og fræðslustarfs. Nú
getur starfsfólkið hjálpast að
við að gera sig enn betur fært
um að sinna sínu hlutverki, svo
að geðdeildin geti komið þeim
að enn betri notum, sem þangað
leita eftir ráðgjöf og lækningu.
Notkunargildi þessara tækja
er einnig mjög mikið í margvís-
legum tilgangi annars eðlis. Á
bandspólum má geyma skemmti
efni og almennan fróðleik og
sýna að vild hvenær sem er.
Hér opnast gífurlegir möguleik-
ar, eins og hver og einn getur
sagt sér sjálfur.
Með kærri þökk til Kiwanis-
hreyfingarinnar, sem safnaði fé
og úthlutáði okkur gjöfum, og
til almennings í landinu, sem
gaf peningana. Frá T-deild
Fjórðungssjúkrahússins á Akur
eyri.
Brynjólfur Ingvarsson,
læknir.
inum eða settust á trjátoppana
og þeir sáu allt sem gerðist og
töluðu mikið. Niðri á jörðinni
var litli hérinn með stóru, hvítu
eyrun, slangan, refurinn, úlfur-
inn og björninn. Úlfurinn ætl-
aði að eta Rauðhettu, og hann
var stór og ægilegur með hár-
beittar tennur og vildi vera ein-
valdur í skóginum. Refufrinn
var slæguf, þóttist vera allra
vinur og skammaðist sín ekki
fyrir að skrökva. Slangan var
heldur hægfara og björninn var
matgráðugur en góðlyndur. Hér
inn, slangan og björninn voru
vinir Rauðhettu og vildu
vernda hana þegar þau fréttu,
að úlfurinn hafði ákveðið að eta
hana, gleypa hana með húð og
hári.
Og svo hófst ferðin gegn um
skóginn. Fuglarnir og öll skóg-
ardýrin fylgdust með ferðum
Rauðhettu. Úlfurinn ægilegi
beið færis að ná í Rauðhettu,
refurinn var alltaf á næstu grös
um og þá gerðust mikil ævin-
týri. Rauðhetta var dálítið ráða-
góð sjálf og svo átti hún marga
vini, sem vildu hjálpa henni.
En nú er ekki vert að segja
meira.
Leikfélag Akureyrar sýnir
um þessar mundir Rauðhettu,
ævintýrið gamalkunna, um
hana og úlfinn hræðilega. Leik-
stjóri er Þórir Steingrímsson.
Ingibjörg Aradóttir leikur Rauð
hettu, Marinó Þorsteinsson leik
ur úlfinn, Aðalsteinn Bergdal
refinn og Saga Jónsdóttir hér-
ann. □
U.M.S.E. SIGRAÐI
Seinni leikur UMSE og Völs-
ungs í 2. deild íslandsmótsins í
blaki fór fram 11. þ. m. í íþrótta
skemmunni á Akureyri og lauk
með sigri UMSE, 3—1.
Næstu leikir í Norður- og
Austurlandsriðli verða um
næstu helgi. Völsungur og ÚÍA
leika f íþróttaskemmunni á
Akureyri laugardaginn 21. þ. m.
klukkan 7 e. h. Daginn eftir
leikur UMSE við ÚÍA í íþrótta-
húsi Dalvíkur og hefst keppnin
klukkan 1.30 e. h. Q
Frá Bridgefélagi
Akureyrar
Nú eru aðeins tvær umferðir
eftir í sveitakeppni Bridgefélags
Akureyrar, en þar spila alls 14
sveitir. í elleftu umferð urðu
úrslit þessi:
Stig
Stefán — Sveinbjörn 20—0
Páll — Bigir 20—0
Sigurður — Friðrik 19—1
Júlíus — Alfreð 16—4
Arnald — Jóhannes 16—4
Gunnar — Ævar 14—6
Víkingur — Örn 12—8
Að loknum ellefu umferðum
er röð og stig sveitanna þessi:
Stig
1. Sv. Alfreðs Pálssonar 187
2. — Ævars Karlessonar 158
3. — Páls Pálssonar 146
4. — Gunnars Berg 145
5. — Júlíusar Thorarens. 138
6. — Arnalds Reykdal 125
7. — Stefáns Vilhjálmss. 117
8. — Sveinbj. Sigurðss. 100
9. — Víkings Guðmundss. 98
10. — Jóhannesar Sigurj.s. 86
11. — Arnar Einarssonar 68
12. — Birgis Steindórss. 62
13. — Friðriks Steingrímss. 49
14. — Sigurðar Vigfúss. 41
Leik Friðriks við Birgi úr 9.
umferð er ólokið. Næstsíðasta
umferð verður spiluð að Hótel
KEA n. k. þriðjudagskvöld kl. 8.
BRAGASON
KVEÐJA
ÆFINGAR KNATTSPYRNUMANNA HAFNAR
Svo rís um aldir árið hvert • 1
um sig,
eilífðar lítið blóm í skini hreinu.
Mér er það svo sem ekki
neitt í neinu,
því tíminn vil ei tengja sig
við mig.
Jónas Hallgi'ímssöh ' '
Á NÝÁRSDAG 1845.
Sigurjón, fornvinur minn
Bragason í Bjarkarstíg 7, er
látinn. Ekki skil ég, að tilgangur
geti verið með því, er menn
deyja á besta aldri, en þó tala
ég eins og barn. í huga minn
koma þó orð Stephans G. Step-
hanssonar:
... nú er vægð að vita á því
grein,
að var ei það, er laust þig
svona, kæri,
neitt skynbært vald, ...
Betra er að trúa þessu en því,
að skynbært vald „venji á gott“
með „grimmdarverkum" sínum.
Dauðinn er hins vegar jafn-
sjálfsagður öllu lifandi og ljósið
deginum. Við dauða æskuvinai'
vaknar þó umhugsunin um
dauðann og hinn undarlega
manngaldur sem tíminn er. Það
er eins og það hafi verið í gærr
að við vorum börn, ungir menn,'
hittumst hvern dag allir þrír.
Lífið hafði upp á margt að
bjóða, þá eins og nú, og margt
þóttumst við þurfa að taka
alvarlega, því stórir hlutir voru
að gerast þá eins og nú: her,
stríð, hungur, morð. Sigurjón
fann til með öllu, en heitt skap
hans fékk ekki við neitt ráðið.“
Þá var líka gott að geta horfið
á vit bókmennta. Að þeim,
beindist hugur Sigurjóns, og ég
held nú, að ekki hafi aðrir ungir
menn, sem ég hef þekkt, vígst
skáldmennt af meiri alvöru en
Sigurjón, enda skáld sjálfur og
af skáldum kominn. Og þetta
voru góðir dagar. Fyrir þá'er
ég þakklátur, og það held ég
Sigurjón hafi líka verið. Hann
átti góðan hug. Það gæti verið
huggun harmi gegn.
I
Eitt á ég samt, og annast
vil ég þig,
hugur mín sjálfs í hjarta,
þoli vörðu,
er himin sér og unir lágri jörðu,
og þykir ekki þokan voðalig: *
Jónas Hallgrímsson.’
Blessuð sé minning þín.
Tryggvi Gíslason.
Kveðja frá samstarfsfólki
Það snertir okkur ætíð djúpt
þegar ungir menn -eru brott
kallaðir úr þessum heimi, cfg
svo var um okkur starfsfélagá
hans í Útvegsbankanum er við
fréttum lát Sigurjóns hinn 4.
þ. m. Þrátt fyrir erfiðar sjúk-
dómsraunir hans undanfarið þá
v’æntum við og vonuðum að sá
tími kæmi að hann slægist í
hóp okkar á ný. En nú var
skyndilega orðið hljótt og hinn
hressilegi gustur sem um hann*
lék og var sem hluti af okkar
daglega lífi, tilheyrði nú skyndi
lega fortíðinni en glettni og
glaðværð þessa góða drengs
geymum við í minningu um
hann.
Sigurjón var fæddur 24. apríl
árið 1937 að Varmahlíð í
Réykjadal, sonur hjónanna
Helgu Jónsdóttur og Braga
Sigurjónssonar. Hann lauk
prófi úr Samvinnuskólanum
árið 1960, og vann síðan hin
ýmsu skrifstofustörf, m. a. starf
aði hann um hríð á Innkaupa-
stofnun ríkisins og í Lands-
bánka íslands í Reykjavík. En
• hann undi hag sínum betur hér
á norðurslóðum og snemma árs
1972 hóf hann störf hér í Út-
vegsbankanum og starfaði þar
- til hinstu stundar. Hann tók
,nokkurn þátt í félagsmálum og
átti hann um skeið sæti í stjórn
Félags ungra jafnaðarmanna
hér í bæ.
Sigurjón virtist við fyrstu
kynni nokkuð dulur og ein-
rænn, en við nánari samskipti
skipti maður fljótt um skoðun.
Hann var oftast hress og ræðinn
þótt hann gengi ekki heill til
skógar.
Sigurjón las mikið og var
fróður um hin ólíkustu efni.
Hann hafði gaman af hressandi
umræðum og ef talið barst að
sögu eða stjórnmálum var hann
býsna vígfimur, en umfram allt
var ættfræði honum hugleikin,
.og var oft bráðskemmtilegt og
fróðlegt að hlusta á hann þegar
hpnum tókst best upp.
Nú að leiðarlokum sendum
við, samstarfsfólk Sigurjóns,
öllum ættmennum hans hug-
heilar samúðarkveðjur. □
Knattspyrnumenn á Akureyri
eru nú sem óðast að búa sig
undir væntanlega keppni í
annari deild næsta sumar.
Æfingar eru hafnar og eru það
aðallega þrek og hlaupaæfingar.
Samkvæmt upplýsingum Þór-
oddar Hjaltalín formanns knatt
spyrnudeildar Þórs, eru Þórsar-
ar byrjaðir að æfa af fullum
krafti undir stjórn Þrastar Guð
jónssonar íþróttakennara. Þeg-
ar þetta var ritað stóðu yfir
samningaviðræður við danann
Jack Johnson, sem þjálfaði ÍBA
fyrir nokkrum árum, en ekki
var vitað fyrir víst hvort hann
yrði hér næsta sumar eður ei.
Þá sagði Þóroddur að þeir væru
einnig að leita fyrir sér á öðrum
vígstöðvum eftir þjálfara ef
Jack brygðist. Þá sagði hann að
fjárhagslega hliðin á rekstri
knattspyrnudeildarinnar væri
mjög erfið og væri sjóðurinn
algjörlega þurr ausinn eftir sl.
sumar.
Þormóður Einarsson sagði
KA-menn vera byrjaða að æfa
undir stjórn þjálfara síns Einars
Helgasonar. Hann kvað litlar
breytingar mundu verða á lið-
inu næsta sumar, en þó kæmi
Gunnar Blöndal frá Siglufirði
í liðið, en hann lék með ÍBA
fyrir nokkrum árum eins og
menn muna. Þó sagði hann að
verið gæti að Hörður Hilmars-
son, Valsmaðurinn og landsliðs-
maðurinn kunni, léki með KA
næsta sumar, en Hörður hefur
eins og kunnugt er þjálfað og
leikið með annarrar deildarliði
KA í handknattleik nú í vetur.
Líklegt má telja að bæði þessi
lið blandi sér í toppbaráttuna í
annari deild næsta sumar, og
^vonandi fær annað hvort þeirra
að spreyta sig í fyrstu deildinni
að ári liðnu.
Glæsilegur árangur Halldórs Matthíassonar
í 15 km skíðagöngu i Innsbruck
Þrátt fyrir það að rúmlega 40
skíðamenn kæmu í mark á und-
•an Halldóri í 15 km skíðagöng-
unni í Innsbruck mun afrek
hans vera eitt það besta sem
íslendingur hefur náð í keppni
á veti'ar-Olympíuleikum. Hall-
dór skaut mörgum frægum
göngumönnum ref fyrir rass í
göngunni, og meðal annars hélt
ágúst í sumar, og æft markvisst
með keppni á Ólympíuleikun-
um í huga. Hann hefur að
mestu æft með norskum og
sænskum göngumönnum, en
Halldór hefur undanfarin ár
stundað nám í sjúkraþjálfun í
Noregi.
Sá sem þetta skrifar hitti
Halldór að máli í Lillehammer
hann fyllilega í við hiim þekkta . .íN.oregi sl. sumar og var hann
finnska göngumann Mietó, en
hann er margfaldur meistari í
göngu, og gekk meðal annars
einn glæsilegasta sprettinn í
4x10 km göngunni fyrir finna
er þeir urðu Ólympíumeistarar
nú á dögunum.
Halldór hefur algjörlega helg-
að sig skíðagöngunni síðan í
Blómasala Lionsklúbbs
Akureyrar á sunnudaginn
Eins og mörg undanfarin ár,
mun Lionsklúbbur Akureyrar
gangast fyrir blómasölu á konu-
dáginn, sem er næstkomandi
sunnudag. Er blómasala þessi
raunar orðinn fastur liður í
starfsemi klúbbsins og Lions-
félagar jafnan hvarvetna fengið
góðar móttökur hjá bæjarbúum,
‘ þegar þeir koma með blóm-
Bruni á Efri-Mýruin
Heimilisfólkið á Efri-Mýrum í
A-Hún. bjargaðist naumlega
þegar eldur varð laus í íbúðar-
húsinu á sjötta tímanum á
sunnudagsmorguninn. Tveir
hundar á bænum vöktu fólkið.
Húsið var þá að fyllast af gufu
og reyk. Það brann á skammri
stund, og nær öll búslóð fjöl-
skyldunnar.
Á bæ þessum búa Björn
Gunnarsson og Klara Gests-
dóttir ásamt fjórum börnum
sínum og sakaði þau ekki. Þessi
hjón fluttu að Efri-Mýrum fyrir
tæplega tveimur árum. □
Framlialdsaðalfund-
, ur Golfklúbbs Akur-
I eyrar verður haldinn
að Jaðri fimmtudag-
inn 19. febrúar kl. 8.
Reikningarnir, Kvikmynda-
sýning.
vendina. Einustu aðfinnslur,
sem orðið hefur vart við, hafa
komið frá þeim, sem útundan
urðu og engin blóm fengu. Er
ekki óalgengt að menn hafi ósk-
að eftir að greiða andvirði blóm
vandar, þótt engir væru til og
allt uppselt, og viljað á þann
hátt leggja góðu máli lið.
Þessa velvild þakka Lions-
menn og vonast til að fá góðar
móttökur á sunnudag.
Eins og endranær verður öll-
um ágóða varið til líknarmála,
og að þessu sinni til greiðslu á
krabbameinsleitartæki því, sem
gefið var til FSA fyrr í vetur,
í samvinnu við önnur félög. □
þá að hefja sinn einstæða áhuga
mannaferil í skíðaíþróttinni,
þ. e. a. s. hann hætti vinnu og
frestaði námi þar til að loknum
Ólympíuleikunum og helgaði
sig algjörlega æfingum í skíða-
göngu. Halldór mun væntan-
lega keppa á íslandsmótinu á
skíðum sem háð verður á Akur-
eyri um páskana, og mun hann
þá sennilega bæta í safn sitt
einhverjum verðlaunapening-
um. Jj
KOMÉST EKKI 1
SUÐllR 1
Knattspyrnumenn úr KA ætl-
uðu að keppa á íslandsmótinu
í innanhússknattspyrnu sem
háð var í Reykjavík um síðustu
helgi, en ekki reyndist hægt að
fljúga vegna óhagstæðra veður-
skilyrða.
• Kemur þetta sér oft á tíðum
mjög bagalega fyrir íþrótta--
menn úti á landsbyggðinni að
komast ekki til höfuðborgar-
innar, þar er svona ferðir eru
skipulagðar langt fram í tím-
ann, en sem betur fer ráðum
við nú ekki ennþá yfir veðri
og vindum.
ÁLYKTUN UM ORKUMÁL
Bæjarstjórn Húsavíkur leyfir
sér enn á ný, að minna stjórn-
völd á, að á Norðurlandi hefur
um árabil ríkt raforkuskortur.
Með tilkomu Ki'öfluvii'kjunar
og undirbúningi að Blöndu-
virkjun sér bæjarstjórnin fram
á varanlega úrlausn þessa máls.
Bæjarstjórnin óttast ekki of-
framleiðslu á raforku í lands-
hlutanum og bendir á, að til að
iðnaður rísi þarf orka að vera
fyrir hendi.
Það er álit bæjarstjórnar
Húsavíkur að jarðhitasvæði
landsins séu sameiginlegar auð-
lindir þjóðarinnar og fagnar
hún því áformum um aukna
nýtingu þeirra.
Bæjarstjóm Húsavíkur þakk-
ar Kröflunefnd fyrir óvenju
röskleg vinnubrögð við upp-
byggingu Kröfluvirkjunar og
væntir þess að áfram ríki góð
samvinna við heimamenn um
þessa framkvæmd.
Ályktunin var samþykkt ein-
róma. P
..._____ iÁ