Dagur - 15.09.1976, Side 1
LEX. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 15. sept. 1976 — 38. tölublað
Dagur iðnaðarins
haldinn á Akureyri
íslensk iðnkynning, sem hef-
ur það a'ð markmiði að efla
íslenskan iðnað og sölu á
honum innanlands, hefur far
ið þess á leið við bæjarstjórn
Akureyrar, að hún tilnefni
5—7 menn í nefnd til þess
að annast undirbúning „Dags
iðnaðarins á Akureyri", sem
fyrirhugaður er á Akureyri
í októbermánuði. — Bæjar-
stjórn hefur beðið eftirfar-
andi aðila að tilnefna menn
í nefndina: Iðju, félag verk-
smiðjufólks, Kaupfélag Ey-
firðinga, Iðnaðardeild SÍS,
Slippstöðina og Meistara-
félag Akureyrar. Bæjarráð
mun tilnefna tvo menn í
nefndina. □
Grænlendingar á Akureyr
Átta grænlenskir menn frá
Narssak hafa dvalið á Akureyri
í eina viku og munu hafa farið
áleiðis heim í gær. Akureyrar-
FRÁ LÍGREGLUNNI
Á AKUREYRI
Á föstudagskvöldið varð mið-
aldra maður fyrir bifreið á
Glerárgötu, þar sem hann var
á merktri gangbraut að fara yfir
götuna við Þórunnarstræti, en
bíllinn kom að norðan. Slasað-
ist maðurinn mikið og var
fyrst fluttur í sjúkrahús á Akur
eyri en síðan til Reykjavíkur.
Grímsey, 14. september. Veðr-
áttan er dásamleg og dýrðar-
veður dag eftir dag. Allir bátar
eru á sjó og sjómenn fá reyting
á handfæri. Öllum heyskap er
fyrir nokkru lokið og féð var
rekið til réttar á sunnudaginn.
Það er einkar fallegt núna, enda
eyjan grösug í sumar og enn
fagurgræn. Líklega er 600—700
fjár í eynni eða vel það.
Hér hafa menn verið frá
Stuðlafelli á Akureyri. Þeir
komu fyrir einni viku með ein-
ingar í þrjú hús með sér á
Heklu og nú eru veggir húsanna
komnir upp en eftir er að setja
þakið á og eru þetta hröð vinnu
brögð við húsbyggingar, miðað
bær greiddi götu þeirra eftir
föngum, en grænlendingarnir
voru að kynna sér atvinnuhætti
og stjórnun Akureyrarbæjar.
Auk manns frá sjávarútvegin-
um, voru bændur og sjómenn
með í för og fóru tveir sjó-
mennirnir í róður frá Hauga-
nesi á bát Gunnars Níelssonar
og aðrir fóru í Hólshús og
kynntu sér einkum sauðfjáf-
búskap, og voru í réttum í Eyja
firði, — Fararstjórinn var Kaj
Egede.
Þetta er í annað skiptið, sem
kynningarhópur kemur hingað
frá Grænlandi, allt elskulegt
fólk og kærkomið hingað. □
Fcrðafólkið við Grána, sem byggður var 1920.
(Ljósm.: E. D.)
Jeppafær vegiir fram úr Eyja-
f jarðardal og upp á öræfin
Aflinn í Grímsey orðinn 600 fonn
við venjuna. Alls hafa níu
íbúðir verið í smíðum á þessu
ári og er þegar flutt í þrjár
þeirra.
Kirkjubrúðkaup var hér í
eynni og gefin saman í hjóna-
band fyrra sunnudag Sigrún
Þorláksdóttir, Garði, Grímsey
og Gylfi Gunnarsson frá Akur-
eyri og eru þau flutt inn í eina
nýju íbúðina.
Allir hlutir hafa leikið við
okkur í sumar, bæði gróðurinn
og svo fiskaflinn, sem árið 1974
var um 600 tonn og metafli, en
er nú kominn yfir 690 tonn og
er þó von um meiri afla áður en
árið er liðið. S. S.
Áhugamenn um vegalagningu
fram Eyjafjarðardal, frá byggð
og uþp á hálendið, buðu frétta-
mönnum að kynna sér veg og
vegarstæði á þessari leið á
sunnudaginn.
Voru fimm fjallabílar í för
þessari undir fararstjórn bænd-
anna Eiríks oddvita í Arnarfelli,
Sigurðar í Torfufelli og Angan-
týs Hjálmarssonar kennara, sem
á þessum slóðum eru manna
kunnugastir.
Hólsgerði og Tjarnir eru
fremstu byggðir bæir í Eyja-
fjarðardal. Þangað er 45 km
leið frá Akureyri. Þaðan og upp
á fjallsbrún við þann stað sem
Nýibær, veðurathugunarstöð,
stóð fyrir skömmu, eru 20 km.
Þaðan að Laugafelli er 21 km,
eða 86 km frá Akureyri að
Laugafelli.
Fram-eyfirðingar og ýmsir
fleiri áhugamenn hafa undan-
farin sumur unnið að því að
leggja akfæran veg frá byggð og
upp á hálendisbrúnina fram af
HraSlrystihús ÚA stækkað
Nýlega var samþykkt í stjórn
Utgerðarfélags Akureyringa h.f.
að hefjast handa um stækkun
frystihússins. í væntanlegri
byggingu, sem gengur til suðurs
frá aðalbyggingunni, verður
fyrst og fremst ný og fullkomin
fiskmóttaka, en jafnframt því
verður fiskvinnsla, vélasalur,
skrifstofur, fiskkassaþvottastöð
og fiskkassageymsla.
Þessa nýbyggingu teiknaði
Rögnvaldur Johnson. Áætlaður
byggingarkostnaður er 150
milljónir króna. Framkvæmd
þessi hefur lengi kallað að,
vegna vaxandi útgerðar og
nauðsyn á bættri meðferð fisks-
ins. □
Væntanleg nýbygging verður
á annað þúsund fermetrar. □
SIGLUFjÖRÐUR:
NY FELAGSDEILD K.E.A.
Hinn 8. þ. m. var á Siglufirði
stofnuð félagsdeild KEA, sú 25.
Fyrir nokkrum árum sendu á
•annað hundrað siglfirðingar
áskorun til Kaupfélags Eyfirð-
inga um að stofnað yrði þar úti-
bú og sérstök félagsdeild. En
þetta gerðist eftir að Kaupfélag
Siglfirðinga hætti störfum. Við
þessu var brugðist á þann hátt.
að KEA opnaði kjörbúð við
Suðurgötu, og heimilaði aðal-
fundur félagsins að reka þessa
verslun í tilraunaskyni í tvö ár.
Virðist þeessi verslun hafa not-
Ollerupflokkurinn sýnir í kvöld á Ak,
Fimleikaflokkur Ollerupskólans
á Fjóni hefur sýningu í íþrótta-
slcemmumni á Akureyri í kvöld,
miðvikudag, og Uefst sýningin
klukkan 8.30. Hefur fimleika-
fiokkurinn getið sér frægðarorð,
meðal annars af sýningarferð
sinni til Japans á síðasta ári.
Sýningarför þessi er jafn-
framt fyrsta utanlandsför nýs
skólastjóra, Gunnars Hansens,
með fimleikaflokk. Flokkurinn
fer í kynnisför til Mývatns-
sveitar á fimmtudaginn en fer
um kvöldið til Reykjavíkur.
Vonandi sleppir fólk ekki ein-
stæðu tækifæri til að sjá þraut-
þjálfaðan og snjallan flokk. Q
ið vinsælda. Á aðalfundi KEA
á síðasta vori var samþykkt
deildarstofnun á Siglufirði og
rekstur útibús.
Samkvæmt þeirri samþykkt
og óskum siglfirðinga, var deild
in stofnuð 8. september. Þeir,
sem ganga í félagið fyrir næstu
mánaðamót, teljast stofnfélagar
deildarinnar.
Deildarstjóri félagsdeildarinn
ar var kjörinn Ólafur Jóhanns-
son lögregluþjónn. Guðmundur
Jónsson er útibússtjóri versl-
unarinnar.
Stjórn og framkvæmdastjóri
Kaupfélags Eyfirðinga mættu á
fundinunn. Q
Eyjafjarðardal og er þar nú
jeppafær leið. Kostar þessi vega
gerð nú um eða yfir þrjár millj-
ónir króna, en Fjallvegasjóður
hefur lagt fram 1,4 millj. kr. í
veginn, en sýslusjóður og hrepp
arnir þrír framan Akureyrar
það sem á vantaði, með aðstoð
Vegagerðarinnar og Kaupfélags
Eyfirðinga.
Þegar upp á hálendið kemur,
eru víða sléttir sandar og mjög
greiðfærir en urðarhöft á milli,
sem seinka ferð, en svo liggja
vegir til allra átta þegar þangað
er komið. Hinn nýruddi vegur,
sem fjölmargir jeppaeigendur
hafa kosið að aka í sumar, er
talinn ódýrastur vega af sinni
gerð, um svo ógreiðfært land,
þar sem áður var jafnvel ekki
unnt að fara með hesta. Hvorki
er hann mjúkur né fljótfarinn,
en þessi vegagerð er eftirtektar
verð að því leyti, að hún sýnir
góða möguleika á að gera
skemmstu leiðina á milli byggða
norðan og sunnan akfæra öllum
ökutækjum. Vatnahjallavegur
upp úr Eyjafirði og Hólafjalls-
vegur upp úr Sölvadal þykja
ekki eins álitlegir og þessi nýja,
akfæra leið. ,
Þegar byggð sleppir í Eyja-
fjarðardal og haldið er sem leið
liggur eftir hinum nýgerða vegi,
er margt að sjá og skoða í
björtu og góðu veðri og lands-
lag fjölbleytilegt alla leiðina
fram í dalbotn, þar sem Eyja-
fjarðaráin kemur tær undan
stórgrýtisurðinni Runa, en þar
er vegur brattur upp á brún
hálendisins, en eflaust er unnt
að draga úr brattanum með
nýju vegarstæði þennan síðasta
spöl.
Nálægt Brúsahvammi, langt
fram í dal, er lítill foss í Eyja-
fjarðará, sá eini frá upptökum.
til sjávar. Um 1940 var það
ekkert einsdæmi að gangna-
menn veiddu þar stóra bleikju
með berum höndunum og settu
í hnakktösku sína. í Svínheiði
eru hvítflyssandi lækir á stóru
svæði, sem þar eiga upptök og
(Framhald á blaðsíðu 5)