Dagur - 15.12.1976, Blaðsíða 8

Dagur - 15.12.1976, Blaðsíða 8
Akureyri, miðvikudaginn 15. des. 1976 RAKVÉLA- BLÖÐIN m . GULLSMIÐIR MARGEFTIR- ffj \ SIGTRYGGUR SPURÐU ^yLiLy í &. PÉTUR KOMIN ' AKUREYRI Fóru suður til að hrista íjárhirslurnar Gunnarsstöðum í Þistilfirði, 13. desember. Nú gleðjum við ærn- ar okkai- með góðri gjöf dag hvern og síðar enn meira. Héðan er flest sæmilegt að frétta. Snjór er lítill og faeri svona sæmilegt. Bíll kom alla leið frá Reykjavík í gær. Það er nú kannski ekki sumarfæri á heiðum, en þessi bíll komst þó og ökumaður kvartaði ekki. En sennilega hefur verið nokkur hálka, og það þykir litlum tíð- indum sæta, þótt eitthvað þurfi að grípa til skóflunnar. Hér var hláka í gær og sumir spá góðum vetri, svo sem kona ein, sem ég talaði við í gær. Hana ' dreymdi draum og réði harin fyrir snjóléttum vetri. Hún sá eina kú skjöldótta, hreina og tvær rauðar, mjög óhreinar. Þessi draumur, sagði hún, boðar góðan vetur. En í draumi þessum var hún hjá nágranna sínum, sem einmitt á þrjár kýr. Félagsstarfsemi er eitthvað byrjuð hjá hinum ýmsu klúbb- um og félögum. Sjónleikurinn Tengdamamma var leikinn hér í haust, var sýndur hér á sl. vetri og svo aftur í haust. Síðast í gær var æfing hjá kirkjukórn- um, því það þarf að æfa jóla- lögin, eins og lög gera ráð fyrir. Togarinn, sem hér fór vel af stað og færði nýtt líf í atvinn- una, er nú bilaður í Reykjavík. í honum bilaði aðalrafallinn. Búið er að gera við hann, en þá vantar aura til greiðslunnar og eru menn farnir héðan til höfuð borgarinnar til að hrista pen- ingakassa og kynna sér, hvort einhvers staðar sé peninga von, svo leysa megi landfestar tog- arans, því hér veitir ekki af aflanum sem hann kann að geta veitt og veiðir, þegar hann er í lagi. Hálfs .mánaðar stopp er þegar orðið of mikið fyrir okkur. Ó. H. SMÁTT & STÓRT Fagmenn atluiga vatnsliitakerfi Frá Rafmagns- og öryggiseftir- liti ríkisins um vatnshitakerfi: „Öryggiseftirlitið vekur at- hygli á eftirfarandi: Öll vatnshitakerfi skulu hafa búnað, sem örugglega leyfir hitaþenslu vatnsins án þrýst- dngsvaxtar og útstreymis þeirr- ar gufu, sem kann að myndast ef kynding er viðstöðulaus í lokuðu kerfi og hitinn lítt eða ekki notaður. Búnaður þessi eru nægjan- lega gildar pípur til opinna þenslukerja eða nægjanlega stórir öryggislokar eða þynnur (membran), sem opna ef þrýst- ingur vex. Kerfum, sem hönnuð hafa verið til að starfa opin má ekki loka nema viðeigandi ráðstaf- anir verði jafnframt gerðar um styrk og öryggisbúnað. Rafmagnseftirlitið vill benda eigendum og umráðamönnum á ag nauðsynlegt er að láta fag- mann eftirlíta rafbúnað, vatns- hitakelfa, svo sem hitastilla, rofa og taugar. Hafa má samband við raf- magnseftirlitsmenn til að fá frekari upplýsingar um öryggi rafbúnaðarins.“ □ ÓSKÝRT OG ÞVOGLU- LEGT MÁLFAR Blaðinu hefur verið á það bent, hve mörg börn og unglingar tali óskýrt og þvoglulegt mál. Eitthvað mun vera til í þessu og líklega er það ekki nýtt, að misjafnt sé málfar manna að þessu leyti. En ábendingin er sjálfsagt þörf og fullrar athygli verð. Hér er ekki átt við ræðu- menn, upplesara eða leikara, sem allir verða að tileinka sér skýran framburð, svo hvert orð heyrist, heldur málfar í sam- tölum manna í milli. Auðvelt ætti það að vera skólum og heimilum, að leiðbeina börnum og unglingum í þessu efni, ef mn það er hugsað. GAMLIR HJÓLBARÐAR Ferðamaður sagði blaðinu frá því í haust, að hann hefði nú loksins séð, hvernig unnt væri að gera það tvennt í senn, að nota gamla hjólbarða og búa svo um í hesthúsinu sínu, að reiðhestunum væri ekki ofboðið með básstöðum. Hann sá á bændabýli einu, hjá hestelskum húsráðendum, hvernig gamlir hjólbarðar voru ristir sundur Dagtjb Aukablað kemur út á morgun, fimmtudaginn 16. desember. Eitt og annað frá bæjarsjórn Norðurlandsvegur yfir Leirur. Lagt var fram bréf dags. 22. nóvember sl. frá skipulags- stjóra ríkisins ásamt skipulags- tillögu um legu NorSurlands- vegar frá Akureyri yfir Leirur, um land í Öngulsstaðahreppi og Svalbarðsstrandarhreppi að Hallandsnesi. Náttúruverndarráð hefir lok- ið könnunum sínum á óshólma- svæði Eyjafjarðarár og mælir með þeirri legu vegarins, sem sýnd er á uppdrættinum, „enda verði uppfyllt tiltekin skilyrði um brúarop og varnargarð, svo og um könnun á hugsanlegum breytingum á seti.“ Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti, að skipulagstillagan verði auglýst svo sem lög mæla fyrir Yerzlanir verða epnar tii kl. 22.00 á laugardagdnn kemur, 18. dosember. um, en óskar eftir að áður liggi fyrir samþykki skipulagsnefnd- ar. — (Bæjarráð 25. nóv.). Enn um hitaveituna. Bæjarráð lýsir samþykki sínu við útboði á stálpípum í aðveitu æð hitaveitu frá Syðra-Lauga- landi, sem Innkaupastofnun ríkisins annast. Lögð var fram áætlun um Hitaveitu Akureyrar gerð af Verkfræðistofu Norðurlands h.f. og Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen s.f. Áætlunin er dagsett í október 1976. í áætluninni kemur fram að heildarkostnaður er áætlaður 3.411 milljónir króna miðað við verðlag í ágúst 1976. Jafnframt er gerð áætlun um fjármögnun framkvæmda og framkvæmda- röð. Bæjarráð leggur til við bæjar stjórn, að hún samþykki stefnu þá, sem fram kemur í áætlun- inni um fjármögnun og fram- kvæmdir. Jafnfcamt leggur bæjarráð ti?, að bæjarstjórn samþykki heimild til bæjarstjóra að leita eftir framkvæmdalánum í sam- ræmi við áætlunina. Lagt var fram uppkast að regdugerð um Hitaveitu Akur- eyrar í 19 greinum samið af bæjarverkfræðingi. Farið var gaumgæfilega yfir uppkastið, það rætt og gerðar við þaí ýnasar athugasenadir. Ákveðið var að vísa uppkast- inu og k'aaakomauaa abhuga- semdum til hitaveitunefndar til frekari athugunar. Að lokinni athugun hitaveitu- nefndar verði uppkastið aftur lagt fyrir bæjarráð. Leitað eftir samningum um jarðhitarétt og fleira. Bæjarráð Akureyrar felur bæjarstjóra, formanni hitaveitu nefndar og bæjarverkfræðingi að leita eftir samningum um jarðhitarétt og nýtihgu hans vegna hitaveitu á Akureyri í samræmi við þær umræður, sem fram fóru á fundinum. Jafnframt heimilar bæjarráð bæjarstjóra að undirrita slíka samninga með fyrirvara um samþykki bæjarráðs. Bæjarráð Akureyrar felur bæjarstjóra, formanni hitaveitu nefndar og bæjarverkfræðingi að leita eftir samningum við landeigendur, vegna legu að- veituæðar Hitaveitu Akureyrar um lönd þeirra, í samræmi við þær umræður, sem fram fóru á íundinum. Jafnframt heimilar bæjarráð bæjarstjóra að undirrita slíka samninga með fyrirvara um samþykki bæjarráðs. Ályktun vegna framkvæmda og fjármögnunar hitaveitu 1977. Bæjarráð leggur til, að bæjar stjórn samþykki eftirfarandi: Bæjarstjórn Akureyrar legg- ur áherslu á, að framkvæmdum við Ilitaveitu Akureyrar verði hagað þaiaaig á nsesta ári, «ð hægt verði að taka 1. áfanga dreifikerfis veitunnar í notkun þegar haustið 1977. Til þess að slíkt sé mögulegt er nauðsyn- legt að taka erlent lán að lág- marksupphæð 1.000 milljónir króna og er þá miðað við fram- kvæmdir samkvæmt fram- kvæmda-, kostnaðar- og fjár- mögnunaráætlun um hitaveitu á Akureyri gerðri í ágúst 1976. Bæjarstjórn Akureyrar treyst ir því, að eigi lægri upphæð en 1.000 milljónir króna verði tek- in inn í lánsfjáráætlun ríkis- stjórnarinnar fyrir árið 1977. fþróttasvæði og starfsleikvellir. Frá skipulagsnefnd bæjarins er eftirfarandi bókað frá fundi 22. nóvember. fþróttasvæði Þórs í Glerár- hverfi. Erindi frá íþróttafélaginu Þór, þar sem óskað er eftir að lóðamörk íþróttasvæðis Þórs í (Framhald á blaðsíðu 2) og festir á báspallana í hest- liúsinu. En hjólbarðarnir eru sennilega hæfilega mjúkir og einnig mjög sterkir. ÁBENDING BÆJARBÚA Bæjarbúi hringdi til blaðsins á mánudaginn, áhyggjufullur yfir því, að víða væri klaki og snjó- dyngjur á húsþökum, sem öðru hverju losnaði, dytti niður og gæti grandað fólki. Er þessari ábendingu hér með komið á framfæri við vegfarendur — en einnig til húseigenda, sem þarna eiga ekki síður hlut að máli, þegar klaki kemur á ný. NÝR VEGAMALASTJÓRI Snæbjörn Jónasson, sonur Jón- asar Snæbjörnssonar fyrrum kennara við M. A. á Akureyri, hefur verið skipaður vegamála- stjóri í stað Sigurðar Jóhanns- sonar vegamálastjóra, sem er nýlega látinn. Snæbjörn var yfirverkfræðfingur Vegagerðar ríkisins og forstjóri tæknideild- ar hennar, er vel menntaður, glöggur og vinsæll, og vænta menn sér mikils af honum í þessu embætti. HVAR A GAMLA FÓLKIÐ AÐ HVÍLA SIG? Eldri kona í Glerárhverfi biður fyrir eftirfarandi: Þar sem ég og margir aðrir þurfum oft að fara gangandi, kæmi það sér einkar vel að við gætum hvílt okkur á þessum göngtileiðum, og væri okkur mikil þökk á hvíldarbekkjum af þessu tilefni. Þessari ábendingu er hér með komið á framfæri og á það minnt um leið, að það er ekki aðeins í Glerárhverfi, sem huga þarf að þessu máli, heldur einn- ig á öðrum stöðum. Það ætti ekki að kosta mikla fjármuni að verða við þessum óskum aldr- aðs fólks. BALDURSBRÁ MÓTMÆLIR ÁLVERI Fjölsóttur fundur { kvenfélag- inu Baldursbrá, Akureyri, hald inn 9. dés. 1976 mótmælir ein- róma að reist verði álver við Eyjafjörð. Er fundurinn sam- mála þeim rökum er Héraðs- samband eyfirskra kvenna færði fyrir sínum andmælum er birt voru nýlega í bæjarblöðum Akureyrar og víðar, bæði hvað viðvíkur lífríki Eyjafjarðar og jafnvægi í atvinnu og félags- málum. Væri nauðsynlegt að sem flest félagasamtök sendu frá sér slíkar yfirlýsingar svo þeir aðilar er um mál þetta fjalla af hálfu stjórnvalda séu ekki í vafa um vilja meirihluta eyfirðinga. (Fréttatilkynnirag) Skatðsöngvar Tryggva Skátafélögin á Akureyri hafa gefið út i vasabókarbroti skáta- söngva Tryggva heitins Þor- steinssonar skátaforingja, og eru þeir allir gerðir við kunn lög og hafa verið sungnir í óteljandi skátaferðum. Margir skátasöngv »r»ir kaf« verið prentaðir iiur, en sumir ekki. Lögin eru einnig prentuð í þessu kveri, sem er yfir 100 blaðsíður og prentað í Ofsettstofunni á Akureyri. Þótt bókin sé ekki fyrirferðarmikil, er þar eflaust margt að finna, sem skátusn og kðrum þykir gott að eiga á einum staí. □

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.