Dagur - 15.12.1976, Page 8
Akureyri, miðvikudaginn 15. des. 1976
RAKVÉLA-
BLÖÐIN m . GULLSMIÐIR
MARGEFTIR- ffj \ SIGTRYGGUR
SPURÐU ^yLiLy í &. PÉTUR
KOMIN ' AKUREYRI
Fóru suður til að
hrista íjárhirslurnar
Gunnarsstöðum í Þistilfirði, 13.
desember. Nú gleðjum við ærn-
ar okkai- með góðri gjöf dag
hvern og síðar enn meira.
Héðan er flest sæmilegt að
frétta. Snjór er lítill og faeri
svona sæmilegt. Bíll kom alla
leið frá Reykjavík í gær. Það
er nú kannski ekki sumarfæri
á heiðum, en þessi bíll komst þó
og ökumaður kvartaði ekki. En
sennilega hefur verið nokkur
hálka, og það þykir litlum tíð-
indum sæta, þótt eitthvað þurfi
að grípa til skóflunnar.
Hér var hláka í gær og sumir
spá góðum vetri, svo sem kona
ein, sem ég talaði við í gær.
Hana ' dreymdi draum og réði
harin fyrir snjóléttum vetri.
Hún sá eina kú skjöldótta,
hreina og tvær rauðar, mjög
óhreinar. Þessi draumur, sagði
hún, boðar góðan vetur. En í
draumi þessum var hún hjá
nágranna sínum, sem einmitt á
þrjár kýr.
Félagsstarfsemi er eitthvað
byrjuð hjá hinum ýmsu klúbb-
um og félögum. Sjónleikurinn
Tengdamamma var leikinn hér
í haust, var sýndur hér á sl.
vetri og svo aftur í haust. Síðast
í gær var æfing hjá kirkjukórn-
um, því það þarf að æfa jóla-
lögin, eins og lög gera ráð fyrir.
Togarinn, sem hér fór vel af
stað og færði nýtt líf í atvinn-
una, er nú bilaður í Reykjavík.
í honum bilaði aðalrafallinn.
Búið er að gera við hann, en þá
vantar aura til greiðslunnar og
eru menn farnir héðan til höfuð
borgarinnar til að hrista pen-
ingakassa og kynna sér, hvort
einhvers staðar sé peninga von,
svo leysa megi landfestar tog-
arans, því hér veitir ekki af
aflanum sem hann kann að geta
veitt og veiðir, þegar hann er í
lagi. Hálfs .mánaðar stopp er
þegar orðið of mikið fyrir
okkur. Ó. H.
SMÁTT & STÓRT
Fagmenn atluiga vatnsliitakerfi
Frá Rafmagns- og öryggiseftir-
liti ríkisins um vatnshitakerfi:
„Öryggiseftirlitið vekur at-
hygli á eftirfarandi:
Öll vatnshitakerfi skulu hafa
búnað, sem örugglega leyfir
hitaþenslu vatnsins án þrýst-
dngsvaxtar og útstreymis þeirr-
ar gufu, sem kann að myndast
ef kynding er viðstöðulaus í
lokuðu kerfi og hitinn lítt eða
ekki notaður.
Búnaður þessi eru nægjan-
lega gildar pípur til opinna
þenslukerja eða nægjanlega
stórir öryggislokar eða þynnur
(membran), sem opna ef þrýst-
ingur vex.
Kerfum, sem hönnuð hafa
verið til að starfa opin má ekki
loka nema viðeigandi ráðstaf-
anir verði jafnframt gerðar um
styrk og öryggisbúnað.
Rafmagnseftirlitið vill benda
eigendum og umráðamönnum á
ag nauðsynlegt er að láta fag-
mann eftirlíta rafbúnað, vatns-
hitakelfa, svo sem hitastilla,
rofa og taugar.
Hafa má samband við raf-
magnseftirlitsmenn til að fá
frekari upplýsingar um öryggi
rafbúnaðarins.“ □
ÓSKÝRT OG ÞVOGLU-
LEGT MÁLFAR
Blaðinu hefur verið á það bent,
hve mörg börn og unglingar
tali óskýrt og þvoglulegt mál.
Eitthvað mun vera til í þessu
og líklega er það ekki nýtt, að
misjafnt sé málfar manna að
þessu leyti. En ábendingin er
sjálfsagt þörf og fullrar athygli
verð. Hér er ekki átt við ræðu-
menn, upplesara eða leikara,
sem allir verða að tileinka sér
skýran framburð, svo hvert orð
heyrist, heldur málfar í sam-
tölum manna í milli. Auðvelt
ætti það að vera skólum og
heimilum, að leiðbeina börnum
og unglingum í þessu efni, ef
mn það er hugsað.
GAMLIR HJÓLBARÐAR
Ferðamaður sagði blaðinu frá
því í haust, að hann hefði nú
loksins séð, hvernig unnt væri
að gera það tvennt í senn, að
nota gamla hjólbarða og búa
svo um í hesthúsinu sínu, að
reiðhestunum væri ekki ofboðið
með básstöðum. Hann sá á
bændabýli einu, hjá hestelskum
húsráðendum, hvernig gamlir
hjólbarðar voru ristir sundur
Dagtjb
Aukablað kemur út á morgun,
fimmtudaginn 16. desember.
Eitt og annað frá bæjarsjórn
Norðurlandsvegur yfir Leirur.
Lagt var fram bréf dags. 22.
nóvember sl. frá skipulags-
stjóra ríkisins ásamt skipulags-
tillögu um legu NorSurlands-
vegar frá Akureyri yfir Leirur,
um land í Öngulsstaðahreppi og
Svalbarðsstrandarhreppi að
Hallandsnesi.
Náttúruverndarráð hefir lok-
ið könnunum sínum á óshólma-
svæði Eyjafjarðarár og mælir
með þeirri legu vegarins, sem
sýnd er á uppdrættinum, „enda
verði uppfyllt tiltekin skilyrði
um brúarop og varnargarð, svo
og um könnun á hugsanlegum
breytingum á seti.“
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt
leyti, að skipulagstillagan verði
auglýst svo sem lög mæla fyrir
Yerzlanir verða epnar tii kl.
22.00 á laugardagdnn kemur,
18. dosember.
um, en óskar eftir að áður liggi
fyrir samþykki skipulagsnefnd-
ar. — (Bæjarráð 25. nóv.).
Enn um hitaveituna.
Bæjarráð lýsir samþykki sínu
við útboði á stálpípum í aðveitu
æð hitaveitu frá Syðra-Lauga-
landi, sem Innkaupastofnun
ríkisins annast.
Lögð var fram áætlun um
Hitaveitu Akureyrar gerð af
Verkfræðistofu Norðurlands h.f.
og Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen s.f. Áætlunin er
dagsett í október 1976.
í áætluninni kemur fram að
heildarkostnaður er áætlaður
3.411 milljónir króna miðað við
verðlag í ágúst 1976. Jafnframt
er gerð áætlun um fjármögnun
framkvæmda og framkvæmda-
röð.
Bæjarráð leggur til við bæjar
stjórn, að hún samþykki stefnu
þá, sem fram kemur í áætlun-
inni um fjármögnun og fram-
kvæmdir.
Jafnfcamt leggur bæjarráð
ti?, að bæjarstjórn samþykki
heimild til bæjarstjóra að leita
eftir framkvæmdalánum í sam-
ræmi við áætlunina.
Lagt var fram uppkast að
regdugerð um Hitaveitu Akur-
eyrar í 19 greinum samið af
bæjarverkfræðingi.
Farið var gaumgæfilega yfir
uppkastið, það rætt og gerðar
við þaí ýnasar athugasenadir.
Ákveðið var að vísa uppkast-
inu og k'aaakomauaa abhuga-
semdum til hitaveitunefndar til
frekari athugunar.
Að lokinni athugun hitaveitu-
nefndar verði uppkastið aftur
lagt fyrir bæjarráð.
Leitað eftir samningum um
jarðhitarétt og fleira.
Bæjarráð Akureyrar felur
bæjarstjóra, formanni hitaveitu
nefndar og bæjarverkfræðingi
að leita eftir samningum um
jarðhitarétt og nýtihgu hans
vegna hitaveitu á Akureyri í
samræmi við þær umræður,
sem fram fóru á fundinum.
Jafnframt heimilar bæjarráð
bæjarstjóra að undirrita slíka
samninga með fyrirvara um
samþykki bæjarráðs.
Bæjarráð Akureyrar felur
bæjarstjóra, formanni hitaveitu
nefndar og bæjarverkfræðingi
að leita eftir samningum við
landeigendur, vegna legu að-
veituæðar Hitaveitu Akureyrar
um lönd þeirra, í samræmi við
þær umræður, sem fram fóru á
íundinum.
Jafnframt heimilar bæjarráð
bæjarstjóra að undirrita slíka
samninga með fyrirvara um
samþykki bæjarráðs.
Ályktun vegna framkvæmda og
fjármögnunar hitaveitu 1977.
Bæjarráð leggur til, að bæjar
stjórn samþykki eftirfarandi:
Bæjarstjórn Akureyrar legg-
ur áherslu á, að framkvæmdum
við Ilitaveitu Akureyrar verði
hagað þaiaaig á nsesta ári, «ð
hægt verði að taka 1. áfanga
dreifikerfis veitunnar í notkun
þegar haustið 1977. Til þess að
slíkt sé mögulegt er nauðsyn-
legt að taka erlent lán að lág-
marksupphæð 1.000 milljónir
króna og er þá miðað við fram-
kvæmdir samkvæmt fram-
kvæmda-, kostnaðar- og fjár-
mögnunaráætlun um hitaveitu
á Akureyri gerðri í ágúst 1976.
Bæjarstjórn Akureyrar treyst
ir því, að eigi lægri upphæð en
1.000 milljónir króna verði tek-
in inn í lánsfjáráætlun ríkis-
stjórnarinnar fyrir árið 1977.
fþróttasvæði og starfsleikvellir.
Frá skipulagsnefnd bæjarins
er eftirfarandi bókað frá fundi
22. nóvember.
fþróttasvæði Þórs í Glerár-
hverfi.
Erindi frá íþróttafélaginu
Þór, þar sem óskað er eftir að
lóðamörk íþróttasvæðis Þórs í
(Framhald á blaðsíðu 2)
og festir á báspallana í hest-
liúsinu. En hjólbarðarnir eru
sennilega hæfilega mjúkir og
einnig mjög sterkir.
ÁBENDING BÆJARBÚA
Bæjarbúi hringdi til blaðsins á
mánudaginn, áhyggjufullur yfir
því, að víða væri klaki og snjó-
dyngjur á húsþökum, sem öðru
hverju losnaði, dytti niður og
gæti grandað fólki. Er þessari
ábendingu hér með komið á
framfæri við vegfarendur — en
einnig til húseigenda, sem
þarna eiga ekki síður hlut að
máli, þegar klaki kemur á ný.
NÝR VEGAMALASTJÓRI
Snæbjörn Jónasson, sonur Jón-
asar Snæbjörnssonar fyrrum
kennara við M. A. á Akureyri,
hefur verið skipaður vegamála-
stjóri í stað Sigurðar Jóhanns-
sonar vegamálastjóra, sem er
nýlega látinn. Snæbjörn var
yfirverkfræðfingur Vegagerðar
ríkisins og forstjóri tæknideild-
ar hennar, er vel menntaður,
glöggur og vinsæll, og vænta
menn sér mikils af honum í
þessu embætti.
HVAR A GAMLA FÓLKIÐ
AÐ HVÍLA SIG?
Eldri kona í Glerárhverfi biður
fyrir eftirfarandi: Þar sem ég
og margir aðrir þurfum oft að
fara gangandi, kæmi það sér
einkar vel að við gætum hvílt
okkur á þessum göngtileiðum,
og væri okkur mikil þökk á
hvíldarbekkjum af þessu tilefni.
Þessari ábendingu er hér með
komið á framfæri og á það
minnt um leið, að það er ekki
aðeins í Glerárhverfi, sem huga
þarf að þessu máli, heldur einn-
ig á öðrum stöðum. Það ætti
ekki að kosta mikla fjármuni að
verða við þessum óskum aldr-
aðs fólks.
BALDURSBRÁ
MÓTMÆLIR ÁLVERI
Fjölsóttur fundur { kvenfélag-
inu Baldursbrá, Akureyri, hald
inn 9. dés. 1976 mótmælir ein-
róma að reist verði álver við
Eyjafjörð. Er fundurinn sam-
mála þeim rökum er Héraðs-
samband eyfirskra kvenna
færði fyrir sínum andmælum er
birt voru nýlega í bæjarblöðum
Akureyrar og víðar, bæði hvað
viðvíkur lífríki Eyjafjarðar og
jafnvægi í atvinnu og félags-
málum. Væri nauðsynlegt að
sem flest félagasamtök sendu
frá sér slíkar yfirlýsingar svo
þeir aðilar er um mál þetta
fjalla af hálfu stjórnvalda séu
ekki í vafa um vilja meirihluta
eyfirðinga.
(Fréttatilkynnirag)
Skatðsöngvar Tryggva
Skátafélögin á Akureyri hafa
gefið út i vasabókarbroti skáta-
söngva Tryggva heitins Þor-
steinssonar skátaforingja, og eru
þeir allir gerðir við kunn lög og
hafa verið sungnir í óteljandi
skátaferðum. Margir skátasöngv
»r»ir kaf« verið prentaðir iiur,
en sumir ekki. Lögin eru einnig
prentuð í þessu kveri, sem er
yfir 100 blaðsíður og prentað í
Ofsettstofunni á Akureyri. Þótt
bókin sé ekki fyrirferðarmikil,
er þar eflaust margt að finna,
sem skátusn og kðrum þykir
gott að eiga á einum staí. □