Dagur


Dagur - 09.02.1977, Qupperneq 1

Dagur - 09.02.1977, Qupperneq 1
Auglýsendur athugið: Vegna breytinga verða auglýsingar að berast fyrir mánudagskvöld Dagur LX. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 9. febrúar 1977 — 6. tölublað Borinn enn fastur Jarðborinn Jötunn sat enn fast- ur í holu sinni síðdegis í gær, er blaðið hafði síðast spurnir af og hefur svo verið síðan á fimmtudaginn. Möl eða sandui' hefur hrunið niður í borholuna og skolun hefur enn ekki borið árangur, þótt stöðugt sé að því unnið að losa borinn, sem kominn var 463 metra niður. Fóðraðir hafa verið 200 efstu metrarnir. Hiti er talsvert mikill í bor- holunni og seytlar einn lítri á sekúndu upp á yfirborðið af 70—80 gráðu heitu vatni. □ Grenivík 8. febrúar. Á laugar- daginn hélt Leikfélagið Vaka sína árshátíð og tóku félagar með sér gesti. Verið er að æfa sjónleik, en aðrir félagar, sem skipt var í hópa, sáu að þessu sinni um skemmtiatriðin og skemmtu menn sér hið besta yfir þeim, enda voru þau nokk- uð fjölbrfeytt. Frumsýningin verður svö síðar, á sjónleiknum, sem er í æfingu. Síðan stillti til hefur verið róið og er reytingsafli, fimm og upp í hálft sjötta tonn á línu. Beitt er krabba og síld því ftú næst ekki í loðnuna. Snjór er mikill og vegir hafa verið erfiðir_ en aðeins á smá köflum, sem ekki ætti að vera mikils vert að byggja upp. En nú eru allir vegir færir. P. A. Dagur kemur næst út miðvikudaginn 16. febrúar. Fj árhagsáætlun Akureyrar Fjárhagsáætlun Akureyrar fyrir yfirstandandi ár er 40% hærri en í fyrra, og var hún til fyrri umræðu í bæjarstjórn- inni í gær. Vegna aukinna tekna fólks og fyrirtækja hækka iitsvör um 38% með sömu álagningarreglu. Fjárhagsáætlun- in var samþykkt af fulltrúum allra flokka í bæjarráði. Fjárhagsáætlun Akureyrar- kaupstaðar fyrir yfirstandandi ár, var til fyrri umræðu í bæjar stjórn í gær. Samkvæmt niður- stöðutölum hennar, er hún veru lega hærri en síðasta fjárhags- áætlun. Niðurstöðutölur henn- ar eru rúmar 1570 milljónir króna, á móti 1100 milljónum á Bændur hafna álveri Fulltrúafundur Búnaðarsam- bands Eyjafjarðarr, haldinn í síðustu viku á Akureyri, hefur sent frá sér samþykkt, þar sem mótmælt er hugmyndum um að reisa álver við Eyjafjörð. Þar segir meðal annars, að Eyja- fjörður sé eitt besta landbúnað- arhérað landsins, rekstur álvers myndi raska verulega búrekstri heilla sveita og héraðsins alls, hefði í för með sér ýmisleg fé- lagsleg vandamál og ylli tjóni af völdum mengunar er frá liði. Hins vegar er ljóst, segir í samþykkt fulltrúafundar Bún- aðarsambands Eyjafjarðar, að vinna beri að atvinnuuppbygg- ingu fyrirtækja hér við fjörð- inn, séu þau þannið, að ekki stafi hætta af slíkri uppbygg- ingu fyrir náttúru héraðsins eða þau valdi verulegri byggða- röskun. □ r Jakob O. Pétursson Jakob Ó. Pétursson, fyrrum rit- stjóri á Akureyri, andaðist 7. febrúar eftir skamma legu, nær sjötugur að aldri. Hann var lengi ritstjóri íslendings, en síð- ar skrifstofustjóri Fasteigna- matsnefndar Akureyrar o g starfsmaður bæjarfógetaembætt isins á Akureyri mörg síðustu árin. Jakob Ó. Pétursson var kunnur hagyrðingur og fékkst einnig við þýðingar. Ekkja bans er Margrét Jóns- ■dótlir. Þau eignuðust tvær dætur. □ síðasta ári og er það yfir 40% hækkun. Tekjur eru áætlaðar 1476 milljónir kr., en auk þess er gert ráð fyrir lántökum að upphæð 97 millj. króna. Það, sem kölluð eru rekstrar- gjöld er áætlað 1291 milljón króna á móti 870 milljónum á síðasta ári. Til eignabreytinga er áætlað að verja 282 milljón- um eins og áætlunin er upp sett. En inn á rekstrarliðunum eru ýmsii' eignabreytingaliðir, að upphæð yfir 40 milljónir króna, auk þess sem nýbygging ar gatna og skipulagskostnaður sem mætti telja til eignabreyt- inga, um 300 millj. króna. Þá er framlag til sjóða um 60 millj, króna, og eru þar stærstu lið- irnir til Byggingalánasjóðs Ak- ureyrarkaupstaðar og Bygginga sjóðs verkamanna, samtals 30 milljónir króna. I Framkvæmda sjóð renna 29 milljónir króna. Þess má geta, að viðhald og endurbætur húseigna og ann- arra mannvirkja er áætlað að kosti um 80 milljónir króna. Hæsti, sérstaki gjaldaliður- inn er gatnagerð, skipulag og byggingaeftirlit, sem áætlaður er 398 millj. kr., en þess ber að geta, að sérstök áhersla verður lögð á endurbyggingu eldri gatna, í sambandi við hitaveitu bæjarins. Næst hæsti liðurinn eru fé- lagsmál, en til þeirra á að verja 250 milljónum króna, en þar eru stærstu liðirnir sjúkratrygg ingar og atvinnuleysistrygging- ar, samtals 104 milljónir króna. Til barnaleikvalla og dag- vistunarstofnana og æskulýðs- mála verður varið samtals yfir 70 milljónir króna, undir félags- málalliðnum. Þriðji hæsti liðurinn er menntamál, að upphæð 195 milljónir króna. En þar í eru ekki talin framlög til nýbygg- inga skólanna, sem eru áætlað- ar tæpar 50 milljónir, á þessu ári. Til íþróttamála er áætlað að verja 41 milljón króna, auk 30 milljóna til nýja, stóra íþrótta- hússins (svæðisíþróttahússins). í þessum llið er áætlað að veita styrki til félaga, sem hér segir: Til íþróttabandalags Akureyrar 4.5 millj. kr. Til íþróttafélag- anna vegna framkvæmda 1 millj. kr., til KA, Þórs, Golf- klúbbs Akureyrar og Skauta- félags Akureyrar, eða saman- lagt 4 milljónir króna. Undir liðnum um heilbrigðis- mál eru tannlækningar, sá hluti þeirra, sem bæjarsjóður greiðir, áætlaður 27 millj. kr. Hefur sá liður nær tífaldast á þremur árum. Framlög og styrkir til ýmissa félagasamtaka, annarra en til Á síðasta ári veiddust alls 59 þúsund laxar Veiðimálastofnunin hefur gefið út yfirlit um laxveiðar hér á landi á síðasta ári. Fram kemur, að laxveiðin varð sú f jórða besta til þessa og alls veiddust 59 þúsund laxar. Laxinn gekk fremur seint í árnar á síðasta sumri, og höfðu menn ýmsar skýringar á tak- teinum, hvað valdið hefði. Hitt er aftur á móti staðreynd, sam- kvæmt skýrslu Veiðimálastofn- unar, að árið 1976 varð fjórða mesta laxveiðiárið og veiðin 59 þúsund laxar, eða sennilega um 200 tonn. Þetta varð því gott laxveiðiár þótt það væri um 20% lakara en metárið 1975. Eftirtektarvert var það, að í Kollafjarðarstöðina gengu nú 2100 laxar úr sjó og í Lárós- stöðina 1153 laxar. Þótt hér sé aðeins um fimm af hundraði veiddra laxa að ræða, sýnir það árangur nýrra aðferða. Og um heildarveiðina er það að segja, að hún hefur vaxið ört á undan förnum árum og má þakka það laxaklaki og laxeldi, ennfremur laxastigum og öðrum aðgerðum til örvunar. Stærstur var laxinn úr Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu, eða 10,4 pund til jafnaðar og veiddust 1957 á síðasta sumri. Sjálfsagt eru laxveiðimenn farnir að hugsa fyrir sumar- veiðum og nú þegar mun mörg- um veiðiám þegar ráðstafað að fullu. □ Beita síld og krabba

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.