Dagur - 09.02.1977, Qupperneq 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Simar 1-11 66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Geirfinnsmálið
Miðvikudaginn 2. febrúar gerði
Sakadómur Reykjavíkur kunnar
niðurstöður sínar í Geirfinnsmálinu,
sem legið hefur þungt á þjóðinni og
er flóknasta glæpamál, sem um langt
skeið hefur upp komið. Niðurstaða
Sakadóms er sú, að þrír menn hafi
ráðið Geirfinni Einarssyni bana og
liggur játning þeirra allra fyrir. Enn
fremur tveggja annarra, sem við-
riðnir eru málið með öðrum hætti.
Allir sakborningar eru taldir sak-
hæfir. Þetta umíangsmikla morðmál
varð ekki leyst af íslenskum rann-
sóknarmönnum og því fékk dóms-
málaráðherra Ólafur Jóhannesson
þýskan og mjög kunnan afbrotasér-
fræðing, Karl Schutz að nafni, til að
veita rannsókninni forstöðu, og varð
árangurinn sá, er fyrr greinir. En
umfang þessa máls má meðal annars
marka af því, að 1200 manns komu
við sögu í rannsókninni en síðasta
tímann störfuðu tólf íslenskir rann-
sóknarlögreglumenn með hinum
þýska sérfræðingi að lausn málsins
með Erni Höskuldssyni sakadómara.
Karl Schutz upplýsti á blaða-
mannafundi, að hér væri um að ræða
lítinn hóp venjulegra glæpamanna,
sem einskis svifist til að komast yfir
peninga, en ekki skipulögð samtök,
enda ferill ógæfumannanna sam-
kvæmt því, samanber morðið á Guð-
mundi Einarssyni, innbrot og fjár-
svik, allt áður upplýst mál. En mein-
særi gegn fjórmenningum, sem af
þess völdum sátu lengi í fangelsi,
alsaklausir, tafði rannsóknina mjög.
Fjölmiðlar héldu máli þessu vakandi
og sumir með þeim sérstaka hætti,
að ráðast gegn dómsmálaráðherra
landsins og bera honum það jafnvel
á brýn, að hann tefði framgang rann
sóknar vegna þess að málið tengdist
Klúbbnum og nánum samstarfs-
mönnum í flokki hans. Þetta var
alvarleg ásökun, en væntanlega una
þeir, sem að herferðinni gegn dóms-
mállaráðherra stóðu, úrslitum, sem
aðrir landsmenn. Enda liggur það nú
fyrir, að enginn hefur átt meiri þátt í
lausn þessa erfiða sakamáls, en dóms-
málaráðherra landsins. Um niður-
stöðu Sakadóms sagði hann: Ég vil
sérstaklega tjá þeim starfshópi, sem
unnið liefur að þessum málum, þakk
læti mitt. Ég tel þá hafa unnið ákaf-
lega vel og að martröð sé létt af þjóð-
inni, því málið þykir nú hæft til send
ingar til ríkissaksóknara og þá vænt-
anlega til ákæru. Það hefði verið
óskemmtilegt, ef málið hefði ekki
upplýsts. Þá hefðu a. m. k. fjórir
menn og kannski fleiri verið tor-
tryggðir allt sitt líf. □
Dr. Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri flutti að venju yfir-
lit um landbúnaðinn hér á landi síðastliðið ár. Var yfirlit
þetta síðan birt í Tímanum 9. janúar. Ekki eru tök á að
birta það í lieild, en nokkur efnisleg atriði þess fara hér á
eftir.
Búnaðarmálastjórinn minnti
á það í upphafi málsins, að yfir-
leitt hefði árferðið 1976 verið
hagstætt ár landbúnaðinum,
veðurfarslega séð, en þó mjög
misjafnt. Þannig hefði árferðið
verið bændum á Norðurlandi
og Norðausturlandi með afbrigð
um hagstætt. Aldrei hefði, síð-
an veðurmælingar hófust 1928,
mælst fleiri sólskinsstundir á
Akureyri. Heyskapartíðin var
með afbrigðum hagstæð frá fjall
garðinum á milli Skagafjarðar
og Eyjafjarðar, austur um og
allt til Vestur-Skaftafellssýslu.
Á þessu svæði eru hey bæði
mikil og góð, sagði búnaðar-
málastjórinn. En á Vestfjörðum,
Vesturlandi og Suðurlandi allt
til Mýrdals, var fádæma erfið
heyskapartíð, en grasspretta
ágæt. Á óþurrkasvæðunum
varð mikill heyfengur en hjá
þorra bænda lélegur að fóður-
gildi.
Búfjáreign landsmanna í árs-
byrjun var sem hér segir: Naut-
gripir voru 61.785,'þár af 36.453
mjólkurkýr. Sauðfé var 860.778,
þar af nær 714.000 ær. Hross
voru 46.925, gyltur 1.028 og
182.000 'hænur. Talið er að naut
gripum hafi fækkað um 3,7%,
sauðfé fjölgað um 1,8%. Á síð-
asta hausti var lógað í slátur-
húsum landsins 931.723 dilkum
og nær 76.000 fullorðnum kind-
um. Kindakjötið varð 14.035
tonn eða 680 tonnum minna en
árið 1975.
Minkaskinn voru framleidd
fyrir um 120 milljónir króna,
frá sjö minkabúum, sem fækkar
um þrjú á þessu ári.
Grænfóðuruppskeran var víð
ast hvar með allra bezta móti,
en á stöku stað spratt græn-
fóðrið illa vegna þess að jarð-
vegur varð of vatnsósa. Græn-
fóðurræktin er eitt mikilvæg-
asta framfaraspor í íslenzkum
landbúnaði síðasta aldarfjórð-
ung. Það lengir hið stutta sum-
ar okkar ómetanlega, auðveld-
ar bændum að halda nyt í kúm
á haustin og sparar kjarnfóður
og gefur bændum tækifæri til
þess að bata rýrari hluta lamba
sinna meðan beðið er eftir að
fá þeim slátrað og gefur a. m. k.
sunnanlands tækifæri til að
lengja sláturtíðina öllum til
hagsbóta, nógu hár er slátur-
kostnaðurinn samt.
Kornrækt var stunduð á
tveim stöðum í Rangárvalla-
sýslu, Þorvaldseyri og Sálms-
stöðum, og á Skriðuklaustri.
Alls var sáð byggi í 11 ha og
varð heildaruppskeran 20 smá-
lestir, mest á Skriðuklaustri, 33
tunnur af ha, en minnst á Sáms
stöðum, 12 tunnur á ha.
Hraðþurrkað gras og græn-
fóður. Framleiddar voru 7536
smálestir af grasmjölskögglum,
330 smálestir af grasmjöli og
431 smálest af heykökum eða
samtals 8297 smálestir af hrað-
þurrkuðu fóðri. Er það rúmlega
30% aukning frá árinu 1975.
Framleiðslan skiptist á verk-
smiðjurnar sem hér segir:
Kartöfluuppskera 1976 var
áætluð um 75 þúsund tunnur,
sem er næstum tvögöld upp-
skera miðað við árið 1975. Samt
er þetta allt of lítil framleiðsla,
sem er bændum ekki vansa-
laust. Árlega þyrftu bændur að
framleiða um eða yfir 120 þús-
und tunnur af kartöflum. Nú
var kai’töfluspretta frábær á
Norðurlandi og yfirleitt góð um
land allt, nema hjá bændum í
Djúpárhreppi, þar sem miklir
skaðar urðu vegna hvassviðris
seint í júní. Skóf þá sandinn og
moldina ofan af útsæðiskartöfl-
unum, og grösin ýmist eyðilögð
ust eða skemmdust til stór-
skaða. Aftur á móti urðu frost-
skaðar síðari hluta sumars
óvenju litlir. Gæði kartaflna í
ár eru með bezta móti. Enda
þótt of mikið sé af smælki, sem
lendir þess vegna í II. gæða-
flokki, þá eru það stinnar og
bragðgóðar kartöflur.
Gulrófnauppskera var mikil
og góð, en engar áreiðanlegar
tölur liggja enn fyrir um heild-
aruppskerumagnið.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sölufélagi garðyrkjumanna var
framleiðsla helztu tegunda
grænmetis sem hér segir. Töl-
urnar eru að nokkru leyti
áætlaðar:
Sölufélag garðy rk j umanna
seldi grænmeti fyrir um 240
milljónir króna á árinu 1976 eða
fyrir um 90 milljónir króna
hærri fjárhæð en 1975.
Dr. Halldór Pálsson ræðir
ítarlega um fjárhagsafkomu
bændanna og stöðu landbúnað-
arins og segir m. a.:
Þótt enn liggi ekki fyrir tölur
um afkomu bænda á árinu 1976
er augljóst, að hún hefur orðið
lakari en 1975, en mjög misjöfn
eftir landshlutum. Á Norður-
landi a. m. k. austan Skaga-
fjarðar og um allt Austurland
hlýtur afkoma bænda að vera
með bezta móti, en hið gagn-
stæða gildir um sunnan- og
vestanvert landið. Veldur þar
einkum afleiðing tveggja
óþurrkasumra. Afleiðing
óþurrkanna á Suður- og Suð-
vesturlandi 1975 kom fram með
tvöföldum þunga á árinu 1976,
bæði sem stóraukin kjarnfóður-
kaup og ekki síður sem minnk-
aðar afurðir. Nú bættist annað
óþurrkasumarið við á sama
svæði, en það kom þó mjög mis
illa við einstaka bændur. Sum-
ir, sem voru vel undir heyskap
búnir, höfðu öfluga súgþurrkun
og aðstöðu og vilja til að verka
hluta af heyinu sem vothey,
eiga nú mikil hey og helming
eða meira af þeim gott eða
ágætt fóður. Hinir, og þeir eru
því miður margir, sem höfðu
enga eða lélega aðstöðu til súg-
þurrkunar, byrjuðu seint að
slá, höfðu ekki aðstöðu eða
vildu ekki gera vothey og/eða
urðu óheppnir með að fá ofan
í hey sín þá fáu daga, sem að
naíninu til voru víða þurrir í
júlímánuði, eiga yfirleitt hrak-
lega léleg hey og þurfa nú ann-
að árið í röð að kaupa miklu
meira af kjarnfóðri en í venju-
legu ári. Bændur hafa haft ótrú
lega hljótt um sig vegna þess-
ara erfiðleika. í fyrra báru allir
Halldór Pálsson,
búnaðarmálastjóri.
sinn vanda án þess að kvarta,
enda er bændum ljóst, að bú-
skap fylgir ávallt áhætta af
veðurfari. Nú er gjaldþol of
margra þessara bænda á þrot-
um, þeir verða að fá aðstoð og
vonandi verður Bjargráðasjóði
gert kleift að veita nauðsynleg
lán.
Samkvæmt niðurstöðum Bú-
reikningastofu landbúnaðarins
voru nettó fjölskyldutekjur 134
búreikningsbænda af landbún-
aði og annarri vinnu árið 1975
kr. 1.359 þúsund. í þessari fjár-
hæð eru vinnutekjur við annað
en landbúnað kr. 127 ?úsund og
auk þess áætlaðir vextir af eign
bænda kr. 332 þúsund, ef reikn-
að er með 10% vöxtum, en
eignamat er óeðlilega lágt, þ. e.
aðeins afskrifað fasteignamat á
fasteignum, skattmat á búfé og
afskrifað kaupverð véla.
Mikil ’verðhækkun varð á
rekstrarvörum landbúnaðarins
frá 1974 til 1975, en magn þeirra
stóð því nær í stað. Áburðar-
notkun minnkaði um tæp 2%
en kjarnfóðurnotkun óx um
tæp 2%. í krónutölu hækkaði
áburðurinn á búreikningabú
um kr. 180 þúsund eða 71% en
kjarnfóður um 50%. Vélakostn-
aður hækkaði hins vegar um
59%, en framleiðslutekjur
hækkuðu aðeins um 41%. Fjöl-
skyldulaun af landbúnaði hækk
uðu aðeins um kr. 222 þúsund
eða 22%, sem er miklu lakari
útkoma en 1974.
Athyglisverðasta breytingin
á afkomu búreikninga bænda,
ef þeim er skipt eftir bútegund-
um, eins og Búreikningastofan
gerir, er sú, að fjárbúin sýna nú
mun betri afkomu en kúabúin,
og blönduðu búin eru á milli,
en 1969 höfðu bændur á kúa-
búum 32% hærri fjölskyldu-
laun en bændur á fjárbúum og
þá höfðu bændur á blönduðum
búum mun minni fjölskyldu-
tekjur en fjárbændurnir. Næstu
4 ár hafa kúabændur hærri fjöl
skyldutekjur en fjárbændur, og
jafnan á þeim árum hafa bænd-
ur á blönduðum búum lægri
fjölskyldutekjur en fjárbænd-
urnir. Fyrst 1974 fá bændur á
fjárbúum aðeins hærri fjöl-
skyldutekjur en kúabændur, og
á næsta ári vex munurinn fjár-
bændum í hag, svo að þá fá þeir
síðarnefndu 18% hærri fjöl-
skyldutekjur en kúabændur, og
þá loksins tekst þeim, sem
blönduð bú hafa að ná hærri
tekjum en kúabændur.
Ýmsar ástæður munu valda
þessari breytingu. Mest er fram
förin hjá blönduðu búunum og
má telja víst, að eigendur þeirra
búa hafi lært af búreikninga-
haldinu. Þau bú hafa á 6 árá
tímabili stækkað um 19% í 503
ærgildi, en kjarnfóðurgjöf auk-
izt aðeins um 5% og áburðar-
notkun um 6%; Fjárbúin stækk
uðu á sama tíma um 24% í 419
ærgildi, kjarnfóðurgjöf öx um
6% og áburðarnotkun um 16%.
Kúabúin stækkuðu á sama tíma
um 31% eða í 659 ærgildi, kjarn
fóðurgjöf óx um 21% og áburð-
arnotkun um 17 %. Á sama tíma
vex mjólk eftir kú um 4,8% á
kúabúum, 7,6% á blönduðum
búum og 13% á fjárbúunum, en
kjöt eftir fóðraða kind hækkar
á kúabúum. um 17%, blönduð-
um búum um 28% og á fjár-
búum aðeins um 5,6%.
Bættur hagur blönduðu bú-
anna virðist einkum að þakka
afurðaaukningu eftir hverja bú
fjáreiningu samhliða hækkuðu
áburðar- og kjarnfóðurmagni á
búfjáreiningu, þrátt fyrir 19%
bússtækkun. Bættur hagur fjár
búanna virðist að nokkru byggj
ast á sömu ástæðum og á blönd
uðu búunum, þótt afurðaaukn-
ing eftir fóðraða kind sé þar
minni, en bústækkunin virðist
hafa haft sízt minni áhrif á
bætta afkomu fjárbúanna. Hið
gagnstæða virðist eiga sér stað
hjá kúabændum. Þrátt fyrir
mikla stækkun búanna, þá
batnar ekki afkoman, enda
hækka afurðir eftir kú lítið og
tilkostnaður í kjarnfóðri og
áburði á búfjáreiningu lækkar
mun minna en á blönduðu bú-
unum og á fjárbúunum. Þess
ber einnig að geta, að veru-
legur hluti bússtækkunar hjá
kúabændum eru geldneyti, og
þau gefa ekki miklar afurðir.
Ef til vill hefur búfénu á sum-
um kúabúunum verið fjölgað of
ört, þ. e. áður en næg ræktun
var til staðar, bæði til beitar og
fóðuröflunar.
Síðustu árin er ískyggilegt að
sjá, að hlutur bóndans og fjöl-
skyldu hans af brúttó tekjum
búsins fer stöðugt minnkandi
vegna aukins tilkostnaðar ann-
ars en vinnu. Árið 1972 fékk
fjölskylda bóndans fyrir vinnu
sína 43% af brúttó tekjum bús-
ins en árið 1975 aðeins 34,3% af
brúttó tekjum. Þetta gefur auga
leið, að bændur þurfa að bæta
rekstrarafkomu búanna með
minnkuðum tilkostnaði en ekki
í bilu aukinni framleiðslu, þar
sem ekki er þörf fyrir aukið
búvörumagn.
Um gærudeiluna alkunnu
sagði búnaðarmálastjórinn með
al annars:
Margir viðurkenna gildi sauð
fjárræktunar til að framleiða
dýrmæt hráefni fyrir íslenzkan
iðnað, en þykir leitt að kjöt
skuli fylgja gærunni. Þótt ís-
lenzkir iðnrekendur eigi lof
skilið fyrir þróun ullar- og
skinnaiðnaðarins og fyrir að
vinna góðan markað fyrir þess-
ar vörur erlendis, þá fylgir sá
böggull skammrifi, að íslenzku
iðnrekendurnir þurfa helzt að
fá hráefnin í þennan dýrmæta
iðnað fyrir því sem næst ekki
neitt. Á undanförnum árum
hefur verð á ull hér á landi
verið svo lágt, að margir bænd-
ur hafa látið meira og minna af
ullinni fara í súginn. Nú hefur
ríkisstjórnin og sexmannanefnd
bætt örlítið úr þessu, með því
að hækka verð á ull, en hlut-
fallslega minna á kjöti. En því
miður fellur samtímis verð á
gærum í hlutfalli við kjöt svo
að bóndinn fær nú varla kaffi-
bolla með kökuskammti fyrir
meðallambsgæruna. Samt er
þetta svo eftirsótt vara, að þeir
sem verzla með hana ímynda
sér af einberri óskhyggju að
50—70 þúsund lambsgærur
komi á markaðinn, af lömbum
sem ekki voru til og gátu ekki
verið til. En svo mikil er græðg
in í þessa verðlitlu vöru, að ósk
hyggjugærur voru seldar eða
þeim lofað áður en sláturtíð
hófst. Þegar ímynduðu gærurn-
ar komu ekki í leitirnar ætlaði
allt vitlaust að verða. Hér skýt-
ur skökku við. Úr því þetta er
svo verðlítil vara sem verðlagið
ber vitni um, af hverju eru þá
ekki fluttar inn gærur í stað-
inn. Varla hefur skort þjónustu
vilja verzlunarstéttarinnar, en
var ef til vill erfitt að fá jafn-
góðar gærur erlendis á sam-
keppnishæfu verði? Bændur
óska eftir svari við þessari
spurningu.
Um harðar og jafnvel ósvífn-
ar ádeilur á landbúnaðinn,
sagði dr. Halldór Pálsson m. a.:
Það hefur vakið þjóðar-
athygli, að þeir fjölmiðlar með
Dagblaðið í broddi fylkingar,
sem ötullegast hafa deilt á land
búnaðinn og útmálað hvílík
byrði hann sé fyrir skattborgar.
ana, hafa haft hljótt um sig
þegar embætti verðlagsstjóra
upplýsti, að íslenzkir innflytj-
endur gerðu oft óhagstæð inn-
kaup erlendis, t. d. í London.
Þeir keyptu oft vörur til að
flytja til fslands fyrir 10—30%
hærra verð en stórkaupmenn í
Bretlandi. Það hefði verið til-
valið fyrir hið óháða Dagblað
og aðalritstjóra þess og vernd-
ara skattgreiðenda, Jónas
(Framhald á blaðsíðu 2)
JARNSMÍÐUR
FÆDDUR 14. APRÍL 1921 - DÁINN 30. JAN. 1977
Kveða frá Rótarvklúbbi Akureyrar
Þann 5. febrúar sl. kvöddum
við félagar { Rótarýklúbbi Ak-
ureyrar vin okkar og félaga,
Steindór Steindórsson járnsmið.
Andlát hans bar að höndum
30. jan. sl. Aðeins tveim dögurn
fyrr hafði hann verið á fundi
meðal okkar, og gegndi þar
skyldustörfum sínum, sem
endranær. Ekki er ætlunín að
fjölyrða hér um uppruna eða
störf Steindórs járnsmiðs, en
undir því nafni var hann þekkt-
ur, ekki aðeins hér á Akureyri
og nærsveitum, heldur nánast
um allt land. Kom þar oinkum
tvennt til. Steindór hafði unnið
sér orðstýr í iðn sinni, sem hann
nam ungur og stundaði síðan
alla ævi og var við kenndui’.
Hann var einnig þekktur sem
vandvirkur og listrænn ljós-
myndari og kvikmyndatöku-
maður, sem slíkur var harin
kunnur alþjóð, m. a. vegna
starfa sinna fyrir sjónvarpið
hér á Akureyri.
Við félagar hans þekktum
hann þó enn betur á öðrum
vettvangi. Við þekktum hann
sem hinn duglega og ósérhlífna
félagshyggjumann. Á þessum
tímum fjölmiðla og efnishyggju
gerist æ erfiðara að halda uppi
umtalsverðu félagsstarfi. Að
slíkt tekst, er aðeins að þakka
mönnum með sama eiginleika
og ríkastur var í fari Steindórs
járnsmiðs. Hann hafði svo full-
HEFUR BÆRINN
EFNI Á AÐ EYÐILEGGJA
HEILSU FÓLKS?
Það vita allir, að margt af þeim
íbúðum, sem bærinn á og leigir
fólki eru óíbúðarhæfar og
heilsuspillandi, en ekkert er
Nýr 40 tonna
bátur sjósettur
Um helgina var sjósettur nýr
eikarbátur hjá Bátastöð Gunn-
laugs og Trausta og er hann 40
tonn. Heitir hann Sæborg ÞH
55. Eigendur eru Óskar Karls-
son, Aðalsteinn Karlsson og
Kjartan Aðalsteinsson.
Báturinn verður afhentur
eftir viku til hálfan mánuð og
er hann 10. báturinn frá þessari
bátasmíðastöð. □
£7
£7
gert til að fá betri íbúðir og
bjarga fólki frá að bíða tjón á
heilsu sinni í þessum gömlu,
hrörlegu ’ og allavega ómögu-
legu íbúðum.
Er ekki peningum bæjar-
félagsins varið í ýmislegt, sem
hægt væri að vera án? En án
þaks yfir höfuðið og sæmilegs
skjóls og hita getur fólk ekki
verið. Hvers vegna ekki að
leggja áherslu á að bjarga því,
sem nauðsynlegast er?
. Úrbætur þola enga bið. Það
þýðir ekki að sofa og segja á
milli drauma, að þetta komi
einhverntíma. Það verður þegar
í stað að gera gangskör að því
að bjarga því fólki í bæjaríbúð-
unum, sem við verstar aðstæð-
ur býr, ella mun illa fara, og
ekki aðeins fyrir því fólki, sem
í þessum íbúðum býr, heldur
einnig þeim, sem heita eiga for-
sjáármenn bæjarfélagsins.
Ásgrímur Þorsteinsson.
komlega tileinkað sér aðal eink-
unnarorð Rótarýhreyfingarinn-
ar, „Þjónusta ofar sjálfshyggju/.
Þegar þar við bættist hans ein-
staki áhugi fyrir félagsstörfum,
hlaut það að skapa hinn full-
komna félaga.
Steindór gerðist félagi í
Rótarýklúbbi Akureyrar árið
1964. Á umliðnum árum hafði
hann gegnt velflestum trúnaðar
störfum í félagsskapnum, að
einu undanskyldu. Því átti
hann að taka við á miðju yfir-
standandi ári. Hann var forseta-
efni klúbbsins næsta starfsár.
Sem forsetaefni var hann um
leið stjórnarmeðlimur yfirstand
andi strafsárs. Þar kynntumst
við ef til vill best hans rólegu
yfirvegun og rökvísi, sem svo
oft fann láusnina á aðsetjandi
vandamálum. Vissulega var
Steindór. maður mjög störfum
hlaðirm. En aldrei skyldi heyr-
ast frá- honum orð þess efnis,
að hann hefði ekki tíma til
verka, ef í þágu félagsskaparins
var. Því vissum við allir að vel-
ferð Rótarýklúbbsins yrði vel
borgið í hans höndum. Nú er
þar skarð-fyrir skildi.
Steindór, við þökkum þér öll
þín störf L þágu Rótarýklúbbs
Akureyrar. Við þökkum þér
samfýlgdina'alla tíð. Slíkt var
æðruleysi þitt á öllum stundum
að kveinstafir voru þér ekki að
skapi. Því munum við bera
harm ókkar og söknuð í hljóði.
, En minninga-rnar um góðan
dreng ög félága, munu ylj.a okk-
ur allt til endur’fundanna.
Eiginkonu, börnum, tengda-
börnum svo og öðrum ástvin-
um, .vottum.við einlæga samúð
okkar og biðjum blessunar
alföðurs.
Rótarýklúbbur Akureyrar.
AÐALFUNDUR
KNATTSPYRNURÁÐS
Þann 1. febrúar sl. var haldinn
aðalfundur Knattspyrnuráðs
Akureyrar. Formaður ráðsins,
Ólafur Ásgeirsson, flutti skýrslu
sl. árs og gjaldkeri, Ingvi Rafn
Jóhannsson, skýrði reikninga
ráðsins. Síðan voru umræður
um knattspyrnumál bæjavins
og bar þar margt á góma.
Formaður ráðsins var endur-
kjörinn, og aðrir í stjórn voru
kjörnir Guðmundur Sigur-
björnsson varaformaður, Ingvi
Rafn Jóhannsson gjaldkeri, Jó-
hann Karl Sigurðsson ritari og
bréfritari Steindór Gunnarsson.
Leikfélag
Akureyrar
Öskubuska
Sýning laugardag kl. 3.
Sunnudag kl. 2.
Miðasala opin föstudag
kl. 5—7 og sýningardaga
frá kl. 1.
SlMI 1-10-73.
mnDiiiim
Febrúsrmól haidið í Hlíðarfjalli
Um síðustu helgi var haldið í
Hlíðarfjalli Febrúarmót yngstu
skíðamannanna, og var keppt í
stórsvigi. Færi og veður var
gott meðan á mótinu stóð. Það
var foreldraráð þeirra yngstu
sem að mótinu stóðu og tókst
það í alla staði mjög vel.
Úrslit í mótinu urðu þessi:
(Samanlagður tími)
7 ára og yngri.
Jón Halldór Harðarson 72,3
Jón Harðarson 79,2
Kristín Hilmarsdóttir 86,0
8 ára stúlkur.
Erla Björnsdóttir 74,8
Hanna Dóra Markúsdóttir 77,0
Arna ívarsdóttir 80,7
BLAK
Um síðustu helgi fór fyrstu
deildarlið UMSE í blaki suður
yfir fjöll og keppti við Víking á
laugardag og við Umf. Laug-
dæla á sunnudag.
UMSE tapaði báðum leikjun-
um með þremur gegn engri, en
þau úrslit segja þó ekki allan
gang leiksins, þar er flestar
hrinurnar voru mjög jafnar og
Eyfirðingarnir voru óheppnir
að tapa þeim öllum.
Næsti leikur UMSE er gegn
íslandsmeisturunum ÍS, og verð
ur hann síðar í þessum mánuði,
og vonast þeir þá jafnframt til
að Akureyringar fjölmenni í
skemmuna og hvetji heima-
menn til dáða, og þá einnig til
að sjá eitt besta lið íslendinga
í þessari grein.
8 ára drengir.
Hilmar Valsson 66,0
Aðalsteinn Árnason 68,1
Gunnar Reynisson 73,8
9 ára stúlkur.
Guðrún J. Magnúsdóttir 94,3
Katrín Pétursdóttir 141,4
9 ára drengir.
Guðmundur Sigurjónsson 97,7
Ólafur Hilmarsson 99,9
Smári Kristinsson 100,0
10 ára stúlkur.
Signe Viðarsdóttir 104,4
Anna María Malquist 109,6
10 ára drengir.
Þorvaldur Örlygsson 93,8
Björn Júlíusson 95,9
Andri Teitsson 96,1
11—12 ára stúlkur.
Lena Hallgrímsdóttir 77,5
Hrefna Magnúsdóttir 79,6
Ásdís Frímannsdóttir 82,2
11—12 ára drengir.
Erling Ingvason 72,8
Ingólfur H. Gíslason 74,3
Stefán Bjarnhéðinsson 75,4
Valur vann
Á eftir leik KA og Þór í skemm
unni á laugardaginn léku í
fyrstu deild kvenna Þór og
Valur. Þórsstúlkurnar voru
óvenju slappar í þessum leik og
töpuðu með 9 mörkum gegn 14,
eftir að staðan hafði verið 3—4
fyrir Val í hálfleik.
Flest mörk Þórs gerði Anna
Gréta 3 (1 úr víti),' Söffía 3 (1
úr víti), Harpa 2 og Guðrún 1.
KÁ slapp með skrekkinn gegn Þór
JW-W'r-
SÍ. laugardag léku KA og Þór
í annarri deild karla í íslands-
mótinu í handknattleik. Mikill
fjöldi stuðningsmanna liðanna
var mættur í skemmunni og
hvatti liðin óspart til dáða.
Mikil spenna var í leiknum sem
hélst alveg fram á síðustu stund
hans.
Guðmundur Lárusson skor-
aði fyrsta mark leiksins þegar
um fjórar mínútur voru af leik-
tímanum og höfðu þá bæði liðin
átt illa nýttar sóknir. Þorbjörn
jafnaði síðan fyrir Þór og síðan
kom Þorleifur KA yfir, en Sig-
tryggur jafnar á sömu mínútu.
Því næst gerðu KA-menn þrjú
mörk í röð, og þegar um 20
mínútur voru af fyrri hálfleik
var staðan 10 gegn 5 fyrir KA.
Þá kom slæmur leikkafli hjá
KA og saxaði Þór á forskotið
og munaði þar mest um Sig-
trygg en hann gerði fjögur
mörk í röð og í hálfleik var
staðan orðin 11 gegn 9 fyrir KA.
Seinni hálfleikur yar æsi-
spennandi og skiptust liðin á að
skora og rétt fyrir miðjan hálf-
leikinn var staðan orðin jöfn,
13 gegn 13. Eftir það munaði
aldrei nema einu marki en voru
KA-menn ávallt fyrri til að
skora en Þórsurum tókst alltaf
að jafna. Leiknum lauk síðan
marki Þórs og er það sérstak-
lega ánægjulegt að sjá hann
aftur í markinu eftir nokkurt
hlé. Ólafur Haraldsson vara-
markmaður KA kom inná síð-
ustu mínútur leiksins og varði
vel og sérstaklega skot af lín-
unni á síðustu mínútu og hefði
það sennilega kostað KA a.m.k.
annað stigið ef Ólafur hefði
ekki varið. Fyrir vikið var hann
tolleraður af félögum sínum í
leikslok.
Dómarar leiksins voru þeir
Björn Kristjánsson og Óli Ól-
sen og var dómaragæsla þeirra
ekki til að hrópa húrra fyrir.
Flest mörk KA skoraði Hörð-
ur 5, Þorleifur og Sigurður 3
hvor, Ármann og Guðmundur
Lárusson 2 hvor og Albert og
Alfreð 1 hvor.
Flest mörk Þórs skoraði Sig-
tryggur 7, Þoi'björn 6 og Elías,
Einar og Ragnar 1 hver.
Með sigri í þessum leik færði
KA sig feti framar í baráttunni
um að leika í fyrstu deild á
næsta ári.
Staðan í deildinni í
KA — Þór 17—16
Ármann — Fylkir 19—17
Stjarnan — ÍBK 31—22
með sigri KA, 17 mörkum gegn KA 10 7 2 1 237-207 16
16. Ánnann 8 6 2 0 182-137 14
í heild var leikurinn mjög KR 8 6 11 193155 14
spennandi og skemmtilegur, en Þór 10 5 1 4 204-185 11
mikið um mistök, ótímabær Stjarnan 8 3 14 145-155 7
skot, rangar sendingar o. fl. Leiknir 10 2 2 6 182-219 6
Markmenn liðanna vörðu vel, Fylkir 8 2 15 134136 5
bæði Gauti í marki KA og sér- staklega Tryggvi Gunnarsson í IBK 11 0 0 11 190-311 0 Ó.A.