Dagur - 02.03.1977, Page 5
Skrifstofur Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar: Ritstjóm 11166, Augl. og afgreiðsla 11167
Ritstj. og ábyrgðann.: ERLTNGUR DAVfoSSON
AugL og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Bjömssonar hf.
Fjárhags-
áætlunin
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akureyr-
ar fyrir árið 1977 var samþykkt með
samhljóða atkvæðum á fundi bæjar-
stjómar 15. febrúar, og er það í ann-
að sinn á þessu kjörtímabili bæjar-
stjórnarinnar, sem full samstaða næst
í þessu efni, þótt Sjálfstæðisflokkur-
inn ætlaði sér í upphafi að skapa
harðan minnihluta í bæjarstjóm.
Undanfarandi áratug hefur ýmsu
vel miðað í framfaraátt. Bæjarstjóm
hefur fyrir sitt leyti stuðlað að efl-
ingu atvinnulífsins í bænum, svo
sem með stuðningi við endumýjun
togaraflotans, þátttöku í rekstri
Slippstöðvarinnar, og með þeirri
stefnu, að hafa ætíð nægar bygginga-
lóðir, svo að byggingariðnaðurinn
næði að þróast eðlilega. Á sama tíma
hefur vel miðað í málefnum vatns-
veitu, hafnarinnar og í byggingu
skólahúsnæðis. Og samhliða þessu
hefur atvinnurekstur samvinnu-
manna og einkaaðila verið efldur
mjög mikið. Atvinnan í bænum hef-
ur því verið mikil síðari árin og
mjög mikil síðasta ár.
Gott atvinnuástand ásamt aðhaldi
í rekstrinum, rennir því stoðum und-
ir áframhaldandi framfarasókn, þótt
aukinn rekstur og ný verkefni sveit-
arfélaga og verðbólga rýri mögu-
leikana.
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akur-
eyrar fyrir yfirstandandi ár gefur til
kynna, að fylgt verði áfram stefnu
þeirri, sem hefur verið stefna bæjar-
stjómar síðustu árin og hefur gefist
vel. En sú stefna miðar í senn að eins
hröðum framkvæmdum og unnt er,
og bættri þjónustu.
Áfram verður unnið að eflingu
hinna ýmsu félagslegra þátta og
menningarstofnana, t. d. í skólabygg-
inga og íþróttamannvirkja. Haldið
verður áfram stuðningi við íþrótta-
félög og önnur frjáls samtök. Stór-
átak verður gert í undirbyggingu
gatna og síðast en ekki síst verður
unnið af alefli að koma hitaveitu til
bæjarins og um hann. En það verk-
efni jafnast á við rafvæðinguna á
sínum tíma. Miklar vonir era því
bundnar við það, að Akureyri haldi
vel hlut sínum gagnvart Faxaflóa-
svæðinu og eeti, með gagnkvæmum
stuðningi við nálægar byggðir, veitt
því öflugt mótvægi, allri þjóðinni til
heilla.
Fjárhagsáætlun sú, sem nú hefur
verið samþykkt, er mikil fram-
kvæmdaáætlun. Hún er mótuð af
núverandi bæjarstjómarmeirihluta,
og samþykkt af minnihlutanum, sem
með því hefur fallist á heildarstefnu
þess meirihluta, sem stjómar mál-
efnum bæjarins. □
Þverskurður af leiklistar-
lífinu við Eyjafjörð
Rætt við leikstjóra og leikhússtjóra
y—' ott leikhús rís á almennum leiklistaráhuga og áhuga-
mannaleikhúsum, eins og háskóli á almennum mennta-
þorsta og lægri skólum. Frá þessum sjónarhóli er auðsætt
hvers vegna Þjóðleikhúsið varð til, en út frá því berast örv-
andi listastraumar út um allt land.
Það vill svo til, að á Akur-
eyri hefur leiklistin verið í há-
vegum höfð um áratugi, og í
jafn langan tima hefur hún ver-
ið einn þáttur bæjarlífsins, löng
um menningarlegur og ætíð
umtalsverður. Leikhús bæjar-
ins hefur á síðustu árum hlotið
viðurkenningu bæjar- og lands-
yfirvalda og þar með fjárhags-
legan stuðning, til þess að verða
atvinnuleikhús. Lærðir menn í
leikstjóm, leikhúsfræðum og
leik, hafa í vaxandi mæli sett
sinn svip á leikhússtarfið og
það hefur eflst um allan helm-
ing.
En leiklistin á sér unnendur
víðar við Eyjafjörð en í höfuð-
staðnum, og má best sjá það
með því að líta yfir það, sem
annars staðar er að gerast í
leiklistarmálum. Á Dalvík er
búið að frumsýna Pétur og
Rúnu undir leikstjórn Guðrún-
ar Alfreðsdóttur, Gestur E.
Jónasson æfir sjónleik á Greni-
vík, Aðalsteinn Bergdal æfir
sjónleik í Öngulsstaðahreppi,
Júlíus Oddsson æfir Júpiter
hlær í Laugarborg og Mennta-
skólinn æfir sinn skólaleik und-
ir stjórn Þórhildar Þorleifsdótt-
ur. Herdís Þorvaldsdóttir kom
nýlega frá Þjóðleikhúsinu til að
sviðsetja á Akureyri sjónleik-
inn Sölumaður deyr. Og á sama
tíma og Sölumaðurinn verður
frumsýndur, kemur hingað til
Akureyrar finnska leikhúskon-
an Kristín Olsoni, með tilstyrk
Norðurlandaráðs, og setur sjón-
leik á svið. Og þá er þess að
geta, að hinn dugmikli leikhús-
stjóri á Akureyri, Eyvindur Er-
lendsson, er í raun og veru að
ljúka sínu starfi hér, með síð-
ustu sýningunum á Öskubusku,
sem hann leikstýrði, en hann
hverfur að þessu leikári loknu
frá leikhúsinu á Akureyri.
Allt það, sem nú hefur verið
talið, og er þó líklega eitthvað
vantalið, er merkileg þverskurð
armynd af leikhúslífi við Eyja-
fjörð um þessar mundir, og hún
er e. t. v. einnig þverskurðar-
mynd af leiklistarl'fi þjóðar-
innar. Um þetta og fleira ræddi
leikhússtjórinn á Akureyri, Ey-
vindur Erlendsson, er hann og
Herdís Þorvaldsdóttir leikkona
litu inn á skrifstofur Dags.
Blaðið notaði síðan tækifærið
og lagði nokkrar spurningar
fyrir leikkonuna Herdísi, sem
nú er að sviðsetja í leikhúsinu
á Akureyri verk Arthur Millers
Sölumaður deyr, þekkt og
vandasamt leikhúsverk.
Frú Herdísi Þorvaldsdóttur
leikkonu þarf hvorki að kynna
lesendum Dags né öðrum lands-
mönnum, Hún hefur starfað hjá
Þjóðleikhúsinu frá því það tók
til starfa, en kom nú hingað til
Akureyrar til þess að leysa það
vandasama verkefni að setja
Sölumanninn á svið.
Okkur þykir verulegur feng-
ur að því að fá þiálfað leikhús-
fólk frá Þjóðleikhúsinu til starfa
hér nyrðra?
í reglugerð Þjóðleikhússins
er gert ráð fyrir því, að það
stuðli að leiklist út um landið,
bæði á þann hátt að fara með
leiksýningar út á landsbyggð-
ina og lána leikstjóra og leikara
til aðstoðar, þar sem þess er
óskað. Þessi starfsemi hefur
verið alltof lítil til þessa. Það er
Hve lengi dvelur þú hér, Her-
dís?
Við höfum æft í um það bil
sjö vikur og það er algert lág-
mark með svona viðamikið verk
efni og stórum og erfiðum hlut-
verkum, sérstaklega hlutverk
Willey Lomann sölumanns, sem
er með stærri og erfiðari hlut-
verkum. Marinó Þorsteinsson
leikur hann. Hann fékk frí úr
sínu sölumannsstarfi í tvo mán-
uði til að gerast Willey Lomann
sölumaður og hefur sjálfsagt
aldrei púlað meir. Við höfum
unnið sex tíma á dag, alla daga
stjóri.
mikill kostnaður við leikferðir
og oftast er fólk að vinna í
fleiri sýningum í einu, eða það
er bundið við æfingar, svo það
er erfitt að fara frá. Nú er leik-
hópurinn orðinn stærri en áður,
svo verkefnin skiptast niður á
fleiri. Sveinn Einarsson þjóð-
leikhússtjóri hefur mikinn
áhuga á, að leikhúsið ræki sínar
skyldur í þessu efni.
Það vildi svo til, þegar ég var
beðin að koma hingað norður,
að við vorum að ljúka við sýn-
ingar á ímyndunarveikinni. Um
áramótin lauk einnig æfingum
á Dýrunum í Hálsaskógi, en þar
var ég aðstoðarleikstjóri með
Klemensi Jónssyni. f Gullna
hliðinu var ég með lítið hlut-
verk, svo önnur leikkona var
sett í það. Þannig gat ég farið
frá í tvo mánuði og þjóðleik-
hússtjóri gaf fúslega samþykki
sitt.
hlaupið, samkeppnina í við-
skiptalífinu og sölugræðgina.
Það fjallar einnig um lífslygina
og sjálfsblekkinguna, sem: allir
menn eru haldnir meira og
minna. Gamalt efni en þó alltaf
nýtt. Willy Lomann gerir sér
háar vonir og þolir ekki að sjá
þær bresta. Vonir hans um
sjálfan sig og starf sitt, sonu
sína og framtíð þeirra bresta
allar og þá grípur hann til ör-
þrifaráða. Þetta er stórbotið
leikrit um hversdagslegt efni.
Sálrænt innsæi höfundarins
laðar og heillar. Miller er meist-
ari í frásögn og ræður yfir
mikilli kunnáttu í leikritagerð
og tækni. Leikrit hans eru
vægðarlaus og áhrifarík, en
skrifuð með djúpri samúð með
manneskjunni. Þó að Sölumað-
urinn teljist til harmleikja, þarf
enginn að óttast að hann sé
þungur og leiðinlegur, því leik-
ritið er hlaðið spennu og jafn-
vel gáska inn á milli. Endur-
minningin grípur aftur og aftur
inn í atburðarásina, svo segja
má, að tíminn og jafnvel rúmið
víki um set og slíkar vinnu-
aðferðir bregða ævintýrablæ
yfir líðandi stund. Þegar leik-
ritið var sýnt í Þjóðleikhúsinu
á sínum tíma, sagði einn leik-
dómarinn meðal annars: Leik-
rit þetta á afar brýnt erindi til
allra. Enginn ætti að láta hjá
líða að sjá það, því hver sem
slíkt gerði, yrði að mun fátæk-
ari í andlegum efnum. Hann
drýgði þá synd, sem er flestum
ófyrirgefanlegri, að loka eyrun-
um fyrir rödd hrópandans,
hummar fram af sér fátítt tæki-
færi til að skírast í ægiátökum
harmleiks.
heyrt. Við, fyrir sunnan, höfum
lítið getað fylgst með því, sem
hér hefur verið að gerast, nema
í þau fáu skipti, sem farið hefur
verið með sýningar suður, og
svo nokkur útvarpsleikrit. Af
því sem ég hef séð eða heyrt,
finnst mér leiklistin hafa tekið
stórt stökk fram á við síðan hér
kom atvinnuleikhús með
nokkra fastráðna leikara og
leikhússtjóra. í svona fámenn-
um hóp verður það óhemju
starf að vera burðarásar í öllum
sýningum, sem eru ekki færri
en fimm á vetri. Þó að hér sé
stór hópur af miklu hæfileika-
fólki, þá velst það fremur í
smærri hlutverkin af þeirri ein-
földu ástæðu, að það getur ekki
mætt á æfingar fyrr en eftir
vinnu á kvöldin. Við höfum t. d.
nýtt okkar tima þannig, að æfa
þrjá tíma fyrripart dags með
fastráðna fólkinu, með stærstu
hlutverkin, og svo þrjá tíma að
kvöldinu með hinum. Þetta hef-
ur allt verið mjög ánægjulegt
og allir áhugasamir. Með svona
mikilli starfsemi og stórhug í
leikritavali og fyrsta flokks
leikurum, eins og hér eru, eigið
þið eftir að komast langt. Ég
spái því, að bráðum verði farið
að fara hópferðir að sunnan til
að sjá sýningar hér á Akureyri,
sem frægar verða. Til hamingju
með leikhúsið ykkar. Megi það
vaxa og dafna til andlegrar
næringar og ánægju, segir Her-
dís Þorvaldsdóttir að lokum og
þakkar blaðið viðtalið. □
Klúbbur 4x4
Eigendur jeppa og annarra
fjallabíla, ásamt áhugamönnum
um öræfaferðir, hafa stofnað
klúbbinn 4x4. Formaður er Eð-
vald Gestsson. Ætlar klúbbur-
inn að gangast yrir hópferðum
um hálendið, vinna að bættri
umgengni rnn landið og reyna
að opna augu sem flestra fyrir
fegurð öræfanna og leggja hönd
að því, að sem flestir geti notið
hennar. □
FYRIR VELSLEÐANA
01 ía
á allar sleSategundir.
Reimar í margar teg.
Krómaðir demparar
ásamt festingum.
Kerti í margar teg.
Áttavitar, vandaðir fyrir
sleða.
Fyrir ökumenn:
Hjálmar.
Gleraugu.
© STÖÐIN
Tryggvabraut 14,
Símar 21715 og 23515.
á Akureyri og
Herdís Þorvaldsdóttír leikstjóri og Eyvindur Erlendsson leikhús-
(Ljósm.: E. D.)
vikunnar, nema þá daga sem
fólkið var að leika í Öskubusku,
þá var æft skemur.
Hvenær verður frumsýning-
in?
Á föstudaginn 4. mars, og það
verður að standa, hvort sem
okkur finnst tíminn til undir-
búnings nægur eða ekki, því
hingað er að koma finnskur
leikstjóri, sem á að setja upp
næsta verkefni. Þar sem leikar-
ar eru flestir þeir sömu í báðum
verkunum, geta þeir ekki snúið
sér að nýju verkefni fyrr en
Sölumaðurinn er frá.
Viltu segja eitthvað um höf-
undinn og Sölumanninn?
Sölumaður deyr er talið eitt
af bestu verkum Arthurs Mill-
ers og er orðið klassiskt í bók-
menntunum, t. d. lesið í háskól-
um í Bandaríkjusum og víðar.
Verkið fjallar um lífsgæðakapp-
Leikhúsið
leikaramir?
Leikhúsið ykkar hlýtur að
vera orðinn ómissandi þáttur í
bæjarlífinu. Hér hefur alltaf
verið starfandi áhugamanna-
hópur, mikið leikið og margar
eftirminnilegar sýningar, hef ég
Frá Skákfélagi Akureyrar
Skákþingi Akureyrar er að
mestu lokið, nokkrar biðskákir
eru ótefldar. Skákmeistari Ak-
ureyrar 1977 varð Halldór Jóns-
son með 8Y2 vinning af 10 mögu
legum. Annar varð Gylfi Þór-
hallsson með 8 vinninga. Hreinn
Hrafnsson hlaut 6 vinninga en
Jóhann Snorrason hefur 5%
vinning og biðskák og getur því
náð þriðja sæti.
í neðri flokki sigraði Ari Frið
finnsson, hlaut 9 V2 vinning af
11 mögulegum, í öðru sæti varð
Óli Jón Gunnarsson með 8%
vinning.
Unglingameistari varð Jakob
Kristinsson með 7% vinning af
9, næstur a<j vinningum varð
Þorsteinn Sigurðsson með 7
vinninga.
Hraðskákmót Akureyrar var
haldið sl. sunnudag £ Félags-
borg. Sigurvegari varð Gylfi
Þórhallsson, hlaut 20 vinninga
af 24 mögulegum, 2. Jón Björg-
vinsson með 19 v., 3.—4. Hólm-
grímur Heiðreksson og Svein-
björn Sigurðsson með 17 v.
Keppendur voru 13 og tefldu
þeir tvöfalda umferð. — Skák-
stjóri var Albert Sigursson. □
Kvildsala
Höfum opnað kvöld- og helgarsölu í Markaðsversluninni
HRlSALUNDI 5
Seljum allar vörur verslunarinar á okkar hagstæða verði.
OPIÐ TIL KL. 10 ÖLL KVÖLD
Kaupfélag Eyfirðinga
Mafvörudeild
NÝ SENDING AF Múu fniv
JL v A14UI IÍ4II VEGGFÓÐRI J BYGGINGAVÖRUDEILD
Punktamót Keppt í stórsvigi unglinga
Um helgina var haldið á Húsa
vík punktamót í Alpagreinum
og voru keppendur alls staðar
af að landinu og veður og
færð mjög góð.
Á laugardag var keppt í stór
svigi karla og kvenna og í
karlaflokki sigraði Haukur
Jóhannsson, Akureyri, annar
varð Tómas Leifsson, Akur-
eyri og þriðji Böðvar Bjama-
son frá Húsavík.
f kvennaflokki sigraði Jór-
unn Viggósdóttir, Reykjavík,
önnur varð Nína Helgadóttir,
Reykjavík og þriðja Kristín
Úlfsdóttir, fsafirði.
í stórsvigi karla, sem keppt
var í á sunnudag, sigraði Haf-
þór Júlíusson, fsafirði, annar
varð Árni Óðinsson, Akureyri
og þriðji Bjarni Þórðarson,
Reykjavík.
í kvennaflokki sigraði Jór-
unn Viggósdóttir, Reykjavík,
önnur varð Sigurlaug Vil-
helmsdóttir, Akureyri og
þriðja Kristín Úlfsdóttir, ísaf.
f Alpatvíkeppni karla sigr-
aði Böðvar Bjarnason, Húsa-
vík, annar varð Guðjón Ingi
Sverrisson, Reykiavík og
þriðji Árni Jónasson, Húsavík.
í kvennaflokki sigraði Jór-
unn Viggósdóttir, Revkiavík,
önnur varð Kristín Úlfsdóttir,
fsafirði og þriðja Nína Helga-
dóttir, Reykjavík.
Um næstu helgi verður
haldið á Akureyri punktamót
fyrir unglinga og verður á
laugardag keppt í stórsvigi og
á sunnudag í svigi. Það verður
Skíðaráð Akureyrar sem sér
um mótið.
Um helgina var haldið í Hlíð-
arfjalli Akureyrarmót í stór-
svigi unglinga 7 til 12 ára.
Veður og færi var eins og best
verður á kosið og mikill fjöldi
fólks á skíðum. Keppendur
voru fjölmargir eins og vana-
lega hjá unglingunum, en það
var Foreldraráð SRA sem sá
um mótið.
Úrslit urðu þessi:
7 ára og yngri. sek.
Jón H. Harðarson 67,1
Jón Harðarson 75,1
Kristín Hilmarsdóttir 7é,9
8 ára stúlkur. sek.
Gréta Bjömsdóttir 68,1
Ama ívarsdóttir 75,1
Anna Dóra Markúsdóttir 77,1
8 ára dregnir. sek.
Aðalsteinn Ámason 65,g
Hilmar Valsson 65,7
Árni Hauksson 76,9
9 ára stúlkur. sek.
Katrín Pétursdóttir 115,2
Guðrún Jóna Magnúsd. 121,6
9 ára drengir. sek.
Ólafur Hilmarsson 86,7
Smári Kristinsson 91,0
Valur Gautason 92,3
10 ára stúlkur. sek.
Anna María Malmquist 93,5
Signe Viðarsdóttir 94,4
Andrea Bjömsdóttir 114,2
10 ára drengir. sek.
Björn Júlíusson 89,0
Jón Björnsson 91,2
Andri Teitsson 91,3
11—12 ára stúlkur. sek.
Hrefna Magnúsdóttir 115,4
Lena Hallgrímsdóttir 117,4
Ingibjörg Harðardóttir 123,7
11—12 ára drengir. sek.
Erling Ingvason 109,9
Davíð Biömsson 112,7
Pálmi Pétursson 113,6
Ólafur Hilmarsson (Gíslason-
ar), en hann varð Akureyrar-
meistari í stórsvigi í 9 ára
flokki drengja. Þá hefur Ólaf-
ur sigrað í fjölmörgum skíða-
mótum í vetur og undanfarin
ár og þykir einn efnilegasti
skíðamaður Akureyringa af
yngri kynslóðinni og þykir
ekkert gefa eftír eldri félögum
sínum.
Körfubolti
Á laugardag kepptu í íþrótta-
skemmunni í körfubolta Þór
og ÍS í kvennaflokki, fyrstu
deild. Þórs stúlkurnar sigruðu
ömgglega í leiknum, skoruðu
35 stig gegn 24. Stigahæst Þórs
ara var Ásta Pálmadóttir með
15 stig.
Handknattleikslið Fram í heimsókn
Um síðustu helgi var fyrstu
deildar lið Fram í handknatt-
leik í heimsókn á Akureyri.
Á föstudagskvöldið lék liðið
við KA en við Þór á laugar-
dag. Var þetta aðeins vináttu-
heimsókn og leikimir góðir
æfingaleikir fyrir öll liðin, en
vegna undirbúnings íslenska
landsliðsins hefur ekkert ver-
ið leikið í fyrstu deildinni nú
um tíma.
Lið Fram er nokkuð gott,
létt leikandi og þeir eru harð-
ir í vörninni. Þjálfari Fram er
hinn kunni handknattleiks-
maður Ingólfur Óskarsson, en
hann var ekki með í þessari
ferð.
í leiknum á móti KA á föstu
daginn byrjaði KA liðið frek-
ar illa og átti í töluverðum
vandræðum með að skora og
það var ekki fyrr en um miðj-
an hálfleikinn að þeir náðu
sér á strik, en þá skoruðu þeir
fimm mörk í röð og var þá
staðan 8 gegn 8. Það sem eftir
var hálfleiksins skiptust liðin
á að skora og í hálfleik var
staðan 13 gegn 12 fyrir Fram.
Fram að miðjum seinni hálf
leik stóðu KA-menn í Framör-
um og voru m. a. einu sinni
yfir, 17 gegn 16. Seinast í leikn
um náðu Framarar að gera út
um hann en þegar leikurinn
var flautaður af var staðan 26
gegn 22.
Flest mörk KA gerði Þor-
leifur 7, Hörður 6 (2 úr víti),
Ármann 4 og aðrir leikmenn
færri.
Bestir og þekktastir af leik-
mönnum Fram eru þeir Pálmi
Pálmason, Andrés Bridde og
Arnar Guðlaugsson, en þeir
eru aðal máttarstólpar liðsins
og skoruðu einnig flest mörk-
in.
Ólafur Haraldsson stóð í
marki KA mest allan leikinn
og verði oft á tíðum mjög vel
og m. a. eitt vítakast.
Einar Birgisson var í marki
Fram og stóð sig mjög vel og
varði m. a. þrjú víti.
Á laugardag léku svo Fram-
arar við Þór og í þeim leik
máttu þeir svo sannarlega
þakka fyrir sigurinn, en um
miðjan fyrri hálfleik var stað-
an orðin 5 gegn 13 fyrir Þór,
en þá höfðu þeir skorað sex
mörk í röð. Þá snerist dæmið
algjörlega við og Framarar
skora sjö mörk í röð og jafna
þá stöðuna til muna. Þórsarar
áttu síðan síðasta orðið í fyrri
hálfleik en honum lauk með
12 gegn 15 fyrir Þór.
Þorbjörn gerði fyrsta mark-
ið í seinni hálfleik og þá um
leið sitt 11 mark f leiknum,
en síðan kom mjög lélegur
leikkafli hjá Þór og Framarar
gerðu hvert markið á fætur
öðru og um miðjan hálfleikinn
var staðan orðið 18 gegn 16
fyrir Fram. Þá minnkar Ámi
Gunnarsson muninn fyrir Þór
með tveimur góðum mörkum
en hann gerði einnig það síð-
asta og lauk leiknum með
sigri Fram, 22 gegn 21.
Dómarar í fyrri leiknum
voru þeir Stefán Arnaldsson
og Guðmundur Skarphéðins-
son, en þann seinni dæmdu
Stefán og Ólafur Haraldsson.
Allir þessir menn stóðu sig
vel, en þeir eru nýir í dómara-
stéttinni og hafa ekki áður
dæmt slíka leiki. Verður það
að teljast furðulegt af leik-
mönnum, sérstaklega Akur-
eyrarliðanna, að gera allt sem
þeir geta til að dómararnir
missi tökin á leiknum með
sífelldum aðfinnslum, hlátrum
frá varamannabekkjum o. fl.
Væri ekki betur að leikmenn-
irnir hlýddu þeim umsvifa-
laust og þegjandi því þá um
leið styðja þeir við bak dómar-
anna og stuðla að betri leik
beggja aðila?
Flest mörk Þórs gerði að
vanda Þorbjöm, en hann skor
aði 13 mörk eða jafn mörg og
hinn frægi Klempel þegar hon
um tekst best upp.
Sömu leikmenn og á móti
KA skoruðu mest hjá Þór,
þ. e. a. s. Pálmi, Andrés og
Amar.
4 • DAGUR
DAGUR • 5