Dagur - 09.03.1977, Page 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LX. ARG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGINN 9. MARS 1977 10. TÖLUBLAÐ
Sveinbjörn
Jónss. heiðraður
Sveiabjörn Jónsson, á síð-
ari árum kenndur við Ofna-
smiðjuna, byggingarmeist-
ari, uppfinningamaður og
brautryðjendi á ýmsum
sviðum iðnaðar, hlaut sl.
fimmtudag 600 þús. króna
verðlaun úr Verðlauna-
sjóði iðnaðarins, sem Krist-
ján Friðriksson stofnaði í
tilefni 35 ára afmælis fyrir-
tækis síns, Ultímu. □
Bjórinn
Sala milliöls var leyfð í
Svíþjóð 1965. Eftir það
jókst unglinga- og barna-
drykkja, og sænska þingið
hefur nú ákveðið að banna
framleiðslu og sölu á milli-
öli frá 1. júlí í sumar.
Sala áfengs öls var leyfð
í Finnlandi 1968. Eftir það
keyrði um þverbak hvað
drykkju snerti, og eftir tvö
ár hafði ofbeldisglæpum
þar í landi fjölgað um 51%
og alvarlegustu glæpunum
enn meira.
Danir eru stórdrykkju-
menn bjórs og þar eykst
sala sterkra drykkja jafnt
og þétt. Þar er öldrykkjan
ekki aðeins vandamál á
vinnustöðum ,heldur einn-
ig í skólum, meðal annars
í barnaskólum.
íslenskir bjórunnendur
geta ekki horft fram hjá
reynslu nágrannaþjóðanna
í þessu efni. □
Rækfum meiri
kartöflur
Kartöflur landsmanna, sem
ætlaðar eru til matar, eru
nú á þrotum og hefst þá
innflutningur, fyrst frá
Póllandi. Má segja að auka
þarf kartöfluræktina að
mun, og er það vafalaust
hægt.
Mjög mikið af kartöfluút-
sæði er ræktað við Eyja-
fjörð, svonefnd stofnrækt.
Um kartöfluræktina fjallar
næsti bændaklúbbsfundur
og ætti að mega vænta
góðrar fundarsóknar og
aukins áhuga á þessari
grein ræktunar. □
Heildarvelta K.E.A. varð 11,5
milljarðar síðastl. ár
eildarvelta Kaupfélags Eyfirðinga var 11,5 milljarðar á
síðasta ári og hafði aukist um 44% frá fyrra ári. Fjár-
festing varð yfir 400 milljónir og komu þessar upplýsingar
fram í skýrslu Vals Arnþórssonar kaupfélagsstjóra á félags-
ráðsfundi KEA á föstudaginn.
Félagsráðsfundur KEA var hald
inn á Hótel KEA föstudaginn 4.
mars. Auk kaupfélagsstjórnar
og framkvæmdastjóra mæta til
þessa fundar tveir félagsráðs-
fulltrúar úr hverri deild félags-
ins á kaupfélagssvæðinu öllu,
en deildirnar eru samtals 25 og
Góð vertíð
Á laugardagskvöldið var loðnu-
aflinn á þessari vertíð orðinn
435 þúsund tonn, eða nokkru
meiri en á allri vetrarvertíðinni
í fyrra. Loðnunni hefur verið
landað á 22 stöðum, en lönd-
unarhæsti staðurinn er Vest-
mannaeyjar með 60 þúsund
tonn.
Verð á loðnu til frystingar
hefur verið ákveðið 26 krónur
kílóið, út þessa vertíð. Loðnu-
frysting hefur gengið vel og
kaupendur frystrar loðnu eru
Japanir, sem nú eru kröfuharð-
ari en áður. Þeir kaupa hrygn-
ur, og þarf hlutur hrognanna
helst að vera 15% og fita loðn-
unnar um 8%. FJ
félagsmenn á sjöunda þúsund.
Á félagsráðsfundi, sem að venju
er haldinn um þetta leyti árs,
eru gefnar fyrstu upplýsingar
um rekstur KEA á liðnu ári,
svo og hag þess og framtíðar-
horfur ræddar. Á þessum fund-
um eru ýmis mál rökrædd og
fyrirspurnir eru jafnan margar.
Hjörtur E. Þórarinsson stjórn
arformaður setti fundinn, fund-
arstjóri var kjörinn Angantýr
Jóhannsson og ritari Hjörtur E.
Þórarinsson. Flestir fulltrúar
mættu svo og ýmsir forsvars-
menn hinna einstöku sölu- og
framleiðsludeilda í bænum og
verslunarútibúa við Eyjafjörð.
Valur Arnþórsson kaupfélags-
stjóri flutti síðan skýrslu sína,
yfirgripsmikla og Ijósa. Kom
þar í upphafi fram, að heildar-
velta KEA árið 1976 varð 11,5
milljarður króna, sem er 44%
aukning frá fyrra ári. Er ljóst,
að þessi aukning er meiri en
verðbólgunni og kauphækkun-
um nemur. Hann gat þess, að á
síðasta ári hefði KEA minnst
90 ára afmælis og sama ár hefði
Mengunin í Straumsvík
mun leiða til aðgerða
Byggðalínan
fullgerð í ár
Stjórnvöld hafa ákveðið,
að á þessu ári verði byggða
línan fullgerð, en ófullgerð-
ur er kaflinn frá Draghálsi
að Vatnshömrum og því
getur hún litla orku flutt
til Norðurlands. en fullgerð
getur hún flutt 50 mega-
vött. Þessu verki á að ljúka
x nóvember. □ .
:/ ; :é. ý
Miklar umræður hafa staðið
um mengun frá alverinu í
Straumsvík eftir að birt var
skýrsla heilbrigðisnefndar, sem
virðist hafa legið í skúffunni
langan tíma áður en hún var
birt.
Mengunarvamir beindust að
því fyrstu árin að verja um-
hverfi verksmiðjunnar. Nú virð-
ist hins vegar ljóst, að mengun
innanhúss er svo mikil og
hættuleg starfsmönnum verk-
smiðjunnar, að of lengi hafi
dregist að i-áða bót á.
í framhaldi af þessu hafa
tveir þingmenn lagt til á Al-
þingi, að álverinu verði gert
skylt að setja up hreinsitæki
innan árs, ella verði verksmiðj-
unni lokað.
Virðist nú loksins öllum ljós,
að of lengi hafi dregist að
tryggja starfsmönnum viðun-
andi starfsskilyrði í álverinu,
auk þeirrar mengunar sem um-
hverfinu stafar af þessum at-
vinnurekstri. □
Valur Amþórsson,
kaupfélagsstjóri.
félagssvæðið stækkað með stofn
un sérstakrar deildar á Siglu-
firði, og um áramótin höfðu
yfir 100 nýir félagar bæst í hóp
félagsmanna þar. Þá ræddi
kaupfélagsstjórinn um endur-
skipulagningu alls samvinnu-
starfs við Eyjafjörð og óskaði
eftir umræðum um það efni. Þá
hefði Kaupfélag Ólafsfjarðar,
með samhljóða ályktunum, sótt
um að sameinast KEA og væri
það mál óafgreitt, m. a. vegna
skattalegra ástæðna.
(Framhald á blaðsíðu 4)
Fulltrúamir frá Siglufirði. Frá vinstri: Guðinundur Jónasson,
Benedikt Sigurðsson og Ólafur Jóhannsson. (Ljósin. E. D.)
Rígaþorskur hjá bátunum
Afli bátanna á Hauganesi og
Litla-Árskógssandi hefur verið
meiri en nokkru sinni á þess-
um árstíma og aflinn rígá-
þorskur. Sex bátarnir komu
einn daginn með 60 tonn. Allir
róa þeir með net og eru gæftir
ágætar. Nýlegur 45 tonna bát-
ur bættist við um áramótin. —
Hann heitir Sæþór og er frá
Dalvík. Eigandi er Guðmundur
Benediktsson og fleiri.
Piastlaug var tekin í notkun
við skóla sveitarinnar í haust
og kennt sund. Að þeirri fram-
kvæmd stóðu meðal annars fé-
lög í sveitinni og lögðu til áhuga
og fé.
Ungmennafélagið er með
skíöanámskeið um þessar
mundir. Toglyfta er í Krossa-
fjalli. Allar vinnufærar hendur
hafa nóg að starfa.
Markmið
og stefna
Markmið KaupféJags Ey-
firðinga, eins og það var
samþykkt 3. mars 1906, og
eins og það er enn í dag:
Tilgangur félagsins er
að útvega félagsmönnum
góðar vömr og ná hagfelld-
um kaupum á þeim.
Að efla vöruvöndun og
koma innlendum vör-
inn í sem hæst verð.
Að spoma við skuldaversl-
un og óreiðu í við-
skiptum.
Að safna fé í sjóði til trygg-
ingar fyrir framtíð fé-
lagsins.
Að stuðla að útbreiðslu og
eflingu sams konar fé-
laga hér á landi og
koma sér í samvinnu
við þau.
Að efla þekkingu manna á
samvinnufélagsskap og
viðskiptamá Ium.
Skíðafólk á
Sauðárkróki
Lionsklúbburinn á Sauðárkróki
færði Ungmennafélaginu Tinda
stóli að gjöf skíðatogbraut, sem
tekin var í notkun um miðjan
janúar. Togbrautin er í vestur-
hlíðum Tindastóls, skammt ut-
an við Heiði í Gönguskörðum,
um átta kílómetra frá Sauðár-
króki. Skíðatogbrautin hefur
verið starfrækt allar helgar og
þegar frídagar eru í skólum.
Starfræksluna annast ung-
mennafélagið, en formaður þess
er Páll Ragnarsson tannlæknir.
Skíðabrekkur eru þarna góð-
ar, bæði fyrir byrjendur og þá,
sem lengra eru komnir, enda
kann fólk að meta aðstöðuna.
Nú stendur skíðakennsla yfir
og skíðakona frá ísafirði, Sigrún
að nafni, annast kennsluna. Eru
skólarnir á námskeiðinu, sinn
daginn hvor. G. Ó.
Bændaklúbbsfund-
ur um kartöflurækt
Næsti Bændaklúbbsfundur verð
ur á Hótel KEA mánudaginn
14. mars og hefst klukkan 9
síðdegis. Frummælendur verða
Sigurgeir Olafsson, sérfræðing-
ur í jurtasjúkdómum og Bjarni
E. Guðleifsson tilraunastjóri. —
Rætt verður um kartöfluurækt,
stofnræktina, sjúkdóma í kart-
öflum og niðurstöður tilrauna.
Líklegt er, að margir bændur
og aðrir ræktunarmenn sitji
þennan fund sér til fróðleiks.
Bændaklúbbsfundir eyfirð-
inga eru eins konar búnaðar-
háskóli þeitxa og ætíð vel sóttir.