Dagur - 09.03.1977, Síða 2
v.v.v
Smáauglýsingar
Sala HúsnæAi Félagslíf
Til sölu sjónvarpstæki,
selst ódýrt.
Upplýsingar í síma 23950.
Hringlaga borS á stálfæti og
hár barnastóll til sölu.
Upplýsingar í síma 22009.
Sófasett til sölu, alstoppað
með útskornum örmum.
Upplýsingar I sima 21538
kl. 6—7 e. h.
24” sjónvarp til sölu.
Sími 11267.
Sjónvarp til sölu.
Upplýsingar í síma 19624
eftir kl. 18.
23” B. O. sjónvarpstæki til
sölu, ódýrt.
Upplýsingar I síma 23438 og
23524.
Til sölu notuð skíði, sklða-
skór og skíðabuxur.
Sími 23406.
Vegna þrengsla eru til sölu
nokkrar vorbærar kýr á
Tjarnarlandi, Öngulsstaðahr.
Til sölu snjósleði Harley
Davidson 1974.
Upplýsingar f sfma 23455.
Húsmæður athugið!
Til sölu gulrófur á hagstæðu
verði.
Pantið f sfma 21814 og
21675 á kvöldin.
Til sölu Woltron útvarps- og
segulbandstæki með tveim
hátölurum. Tilvalin fermingar-
giöf.
Upplýsingar f sfma 21945.
Til sölu er sófasett og sófa-
borð, selst ódýrt.
Upplýsingar [ síma 21164.
Óska eftir að kaupa notaða,
létta barnakerru. Má vera
með lausu skýli.
Upplýsingar í síma 22016.
Taaaó
Grá og hvít læða tapaðist f
Glerárhverfi.
Sfmi 23314.
Iðnaðarhúsnæði óskast undir
skósmíði. — Sími 22927.
Halldór Árnason skósmiður.
3—4ra herb. íbúð óskast til
leigu nú þegar.
Vinsamlegast hringið í Pál
Gústafsson, sími 21400,
lína 71.
2—3ja herb. íbúð óskast til
leigu frá 1. maí í sumar.
Góð umgengni. Fyrirfram-
greiðsla ef óskað er.
Upplýsingar f síma 21980.
Til leigu 4ra herb. íbúð við
Skarðshlíð frá og með 1. maf
nk. Fyrirframgreiðsla æskileg.
Upplýsingar f sfma 91-38054.
Ung hjón með tvö börn óska
eftir 2—4ra herb. fbúð um
eða fyrir næstu mánaðarmót.
Öruggar greiðslur.
Sími 21874.
3ja herb. fbúð óskast leigð
1. maí nk.
Upplýsingar f sfma 19699.
Til sölu lítið einbýlishús við
Gránufélagsgötu. Húsið er
járnvarið timburhús, hæð, ris
og kjallari.
Upplýsingar f sfma 19719
eftir kl. 7 á kvöldin.
Tvenn barnlaus pör óska eftir
3ja herb. íbúð til leigu strax.
Upplýsingar í síma 23343.
Ungt og reglusamt par óskar
eftir 1—2 herb. fbúð til leigu
strax.
Upplýsingar f sfma 22948.
Barnagæsla
Kona óskast til að gæta 5
mánaða stúlkubarns, sem
næst Víðilundinum.
Upplýsingar f sfma 21742
eftir kl. 16.
Félagslíf
Kökubasar verður f Kristni-
boðshúsinu Zíon sunnudaginn
13. mars og hefst kl. 16.
K.F.U.K.
Spilakvöld í Sjálfstæðishúsinu
(litla sal) sunnudagskvöld 13.
mars kl. 8,30 e. h.
Skógræktarfélag Tjarnar-
gerðis og Bílstjórafélögin.
Akureyringar!
Fræðslu- og kynningarkvöld
í skyndihjálp og meðferð
slökkvitækja verða í:
Oddeyrarskóla miðvikudaginn
9. mars, Glerárskóla mánu-
daginn 14. mars, Lundarskóla
þriðjudaginn 15. mars, Gagn-
fræðaskólanum miðvikudag-
inn 16. mars kl. 20 á öllum
stöðunum.
Allir velkomnir.
Kvennadeild S.V.F.Í.,
Akureyri.
Atvinna
Afgreiðslustúlka óskast frá kl.
1—6 á daginn.
Upplýsingar f síma 11094
milli kl. 6—7 e. h.
Bifreiðir
Óska eftir að kaupa Fíat 127,
eða VW 1300 '71—74.
Upplýsingar í síma 22431
eftir kl. 7.
Til sölu Bronco árg. 1966 og
Volvo 144 árg. 1974. Báðir f
fyrsta flokks ástandi.
Sigurður Aðalgeirsson,
skólastjóri Hrafnaglisskóla.
Til sölu Taunus 17 M árg. '64
þarfnast viðgerðar.
Upplýsingar í sfma 21362
eftir kl. 19.
Til sölu Trader '62 5 tonna
Nýupptekin vél.
Upplýsingar gefur Haukur
Óskarsson, vélaverkstæði
K.N.Þ., sfmar 52124 eða
52147 á kvöldin.
Til sölu Citroen G. S. árg. '74
ekinn 21.00 km. góður bfll.
Upplýsingar í síma 23868.
Til sölu Ffat 125 P árg. 1974.
Guðrún Helgadóttir Túns-
bergi, Svalbarðsströnd.
Trésmiðafélags Akureyrar
KRISTJÁN FRÁ DJÚPALÆK
skrifar
um bækur
!■■■■■!
Frá aðalfundi
Aðalfundur Trésmiðafélags Ak-
ureyrar var haldinn hinn 3.
febrúar sl. í skýrslu stjórnar
kom fram að hagur félagsins
hefur farið batnandi á sl. ári.
Heildartekjur félagssjóðs á ár-
inu 1976 reyndust vera 6.5 millj.
kr. og varð nokkur rekstrar-
hagnaður. Tekjur sjúkra- og
orlofssjóða voru 1.5 millj. kr.
og varð verulegur rekstrar-
afgangur hjá báðum sjóðunum.
Sl. tvö ár hafa uppmælingar
á félagssvæði T.F.A. verulega
dregist saman, fyrst og fremst
vegna þess að nýjar gerðir
steypumóta hafa komið til og
ekki hefur enn verið gert sam-
komulag milli Trésmiðafélags-
ins og Meistarafélags bygginga-
manna á Norðurlandi um nýjan
taxta fyrir þessar mótagerðir.
Stjómir félaganna hafa hins
vegar gert samkomulag um að
stefna beri að gerð slíks taxta.
Má reikna með að að því verði
unnið á næstu mánuðum.
Félagið hefur nú nýlega tek-
ið að sér að sjá um útgáfu á
Blaði Sambands bygginga-
manna, en á síðasta þingi þess
voru gerðar skipulagsbreyting-
ar á fræðslu- og útgáfumálum
sambandsins er gera ráð fyrir
að einstökum félögum bygginga
manna sé falið það verkefni.
Orlofsheimilismál hafa verið
til athugunar undanfarið ár hjá
félaginu og virðist nú ástæða til
að ætla að möguleikar séu að
skapast fyrir því að félagið eign
ist eigið orlofshús,
Á aðalfundinum var sam-
þykkt að félagið gerðist aðili að
Listaskála Alþýðu, en það er
félag sem verkalýðsfélögin hafa
nýlega stofnað til að byggja hús
yfir Listasafn ASÍ.
Veigamestu mál sem fram-
undan eru hjá félaginu eru að
sjálfsögðu kjaramálin, eins og
hjá öðrum verkalýðsfélögum,
en kjarasamningar félagsins
gilda til 1. maí 1977.
Stjóm félagsins var öll endur
kjörin en hana skipa: Helgi
Guðmundsson húsasmiður for-
maður, Torfi Sigtryggsson húsa
smiður varaformaður, Ámi Ingi
Garðarsson húsgagnasmiður rit
ari, Bjami Hjaltason húsasmið-
ur gjaldkeri, Jóhannes Þengils-
son húsasmiður meðstjórnandi.
Rætt hefur verið um aukna
verkmenntun í skólum að und-
anförnu og endurskipulagningu
iðnmenntunar sérstaklega. í því
sambandi hefur verið lögð auk-
in áhersla á, að verkleg kennsla
gæti farið fram í skólunum sjálE-
um í vaxandi mæli. Nú þegar
er allvel skipulögð kennsla í
trésmíði í Iðnskólanum á Akur-
eyri.
Nú stendur til að byggja við
Iðnskólann sérstaka byggingu
fyrir vél- og málmsmíðakennslu
sem gæti orðið sameiginleg fyr-
ir Vélskólann og Iðnskólann. En
eins og kunnugt er, er Véiskól-
K.N.Þ. 1894-1974
Samvinna í Norðursýslu.
Mannlíf við ysta haf.
Björn Haraldsson skráði.
Þetta er í alla staði myndarlegt
legt verk. Að baki liggur undra
mikil vinna, alúð og þekking.
Þó er höfundurinn nær áttræðu,
slíkir eru ekki á hverju strái.
Bókin er um 200 síður með
nafnaskrá og prýdd 129 manna-
myndum og svo staða. Manna-
myndirnar gæfu tilefni til
langra hugleiðinga, ef rúm
leyfði. Stórglæsilegt fólk, án
undantekningar, en svo undar-
lega ólíkt, að það gæti verið
runnið af 10 þjóðernum. En
slíkt heyrir undir mannfræð-
inga. Bókin rekur, eins og
nafn bendir til, meir en áttatíu
ára starfssögu K. N. Þ. Þetta er
einnig saga einstaklinga og hér-
aða. Raunar er þetta nær óslitin
sigursaga þó að herði oft. —
Áhugamálin dóu aldrei, fórn-
fýsin vakti, kraftarnir uxu við
átökin. Samvinnuhugsjónin óx
uppúr hrópandi þörf og hefur
leitt til margra búbóta. Bara
svo haldi, sem horfði. Auk höf-
uðlínu þessa verks eru nokkrir
sérlegir punktar, sem vöktu at-
hygli. Til dæmis er uppsetning
texta góð og það að prenta
kjarna efnis út á spássíðu, vek-
ur athygli á síðunni. Dæmi:
„Jakob finnur grundvöllinn“.
(bls. 22). Og hver var svo þessi
grundvöllur, Jú, „ . . . áður
höfðu verzlunarfélög verið
hlutafélög og í slíkum hlutafé-
lögum skilar hlutaféð eigend-
um arði. Jakob lagði til, að í
þessu félagi skyldi hlutafélagið
verða arðlaust, en skyldi hins-
vegar veita eigendum hlutfalls-
legan viðskiptarétt. . . .“ — Og
við fáum nánar útskýrt hvernig
þetta eina atriði: arðlaust, hjó
á Gordionshnút í íslenskum
samvinnufélagsskap. Vitanlega
var Jakob þessi hinn kunni for-
ystumaður samvinnuhreyfingar-
innar, Hálfdanarson.
Á spássíu, bls. 57: „Menn
stækka og standa þétt.“ Og við
lesum á síðunni: „Rétt er, að
það standi skrifað, að á þeim
árum (þ. e. 1920—33) var í
engu héraði á þessu landi hrað-
ari uppbygging en á félagssvæði
K. N. Þ.“ Þetta er vissulega
merkilegt á krepputíma, en við
fáum að vita að það var engum
fremur að þakka en Birni
Kristjánssyni kaupfélagsstjóra.
inn ríkisskóli með höfuðaðsetur
í Reykjavík, en hefur verið með
útibú hér undanfarin ár, undir
stjórn Björns Kristinssonar. Til
þess að ýta á eftir þessu máli
enn frekar en áður var gert,
hefur bæjarráð nú lagt til,
eftir ábendingu iðnskólanefnd-
ar, að kosnir verði fjórir menn
í nefnd, er vinni að því, að haf-
in verði bygging málmsmíða-
húss fyrir Vélskóla og Iðn-
skóla á iðnskólalóðinni, og að
eftirtaldir menn skipi nefndina:
Skólastióri Iðnskólans, skóla-
stjóri Vélskólans, form. iðnskóla
nefndar og bæjarstjóri.
.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.vj
Svo segja menn að einstakling-
urinn marki lítt sögu.
Á bls. 59 er spássíugreinin:
„Þegar neyðin er stærst. ..“ Og
hér er fjallað um sjálfan
Kreppulánasjóð. Einhvernveg-
inn hefur mér fundist þetta
nafn hafa verið hálfgert feimn-
ismál hingað til. En Björn Har-
aldsson segir, að framkvæmdin
hafa bjargað mörgum bóndan-
um algjörlega frá efnalegu og
andlegu hruni. Og þetta bjarg-
aði einnig kaupfélögunum. —
Skuldir voru skomar niður að
hluta, hinu komið á föst lán
með lágum vöxtum til langs
tíma. Viturlegt ráð.
Bls. 89: „Vörður kveður sér
hljóðs.“ Hér segir frá útgáfu
málgagns fyrir félagið. „Vörð-
ur“ lifði 30 ár.
Á bls. 91: „Menningarsjóður.“
Sjóður þessi styrkti fjöldan all-
an af menningarmálum, söngur,
sjónleikir og bókmenntir nutu
góðs af honum, jafnvel kvik-
myndagerð og ljósmyndasafn
og margt fleira. Þetta fólk er
fjörugt í andanum.
Þetta eru aðeins fá sýnishom
af frásögn sératburða í sigur-
sögu K. N. Þ. En einn kafli
heitir „Óhöpp‘ og eu þau skil-
greind í spássíufyrirsögnum
svo sem: „Gjaldþrot Gunnars
Þórðarsonar“, „Þegar húsin
brunnu“ og „Innbrot á Raufar-
höfn“ og maður les um þetta
nánar í textanum. Hér er ræki-
lega sagt frá vexti þorpanna,
hvaða hús voru fyrst byggð á
Kópaskeri og hvenær og af
hverjum áfram í tíma. Einnig
Raufarhöfn. Þá eru taldir upp
allir læknar, sem þjónað hafa
héruðum, o. fl. o. fl. Þetta er
sem sagt héraðssaga um leið og
samvinnusaga og forvitnileg
fleirum en þeim, sem þekkja til
einstakra manna í þeim fögru
byggðum. Ég trúi að Björn Har-
aldsson hafi með þessu verki
reist sér varanlegan bautastein.
Vitanlega kann ég ekki um að
dæma )rrétt“ og „rangt“. En
heimildakönnun virðist traust
og maðurinn jafnaldri félagsins
og í stjórn þess furðu lengi.
Kvennadeildin
kynnir slökkvitæki
Á næstunni mun Kvennadeild
Slysavarnafélagsins gangast
fyrir fræðslu og kynningu á
meðferð slökkvitækja og nokkr-
um frumatriðum í skyndihjálp.
Kynning þessi fer fram á kvöld-
in í nokkrum skólum bæjarins
(sjá auglýsingu).
Þeir Víkingur Björnsson frá
eldvarnaeftirlitinu og Ólafur H.
Oddsson læknir annast kynn-
inguna. Sýndar verða tvær
stuttar kvikmyndir. Fyrsta
kynningin verður í Oddeyrar-
skólanum í kvöld, miðvikudag-
inn 9. mars kl. 8.
Allir velkomnir.
( Fr éttatilky nning )
/ÖMO/jgsTNS|
SlMIMl&k'm
Kennsluhúsnæði iðnaðar
2•DAGUR