Dagur - 06.07.1977, Side 4

Dagur - 06.07.1977, Side 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur Hafnarstræti 90, Akureyri Símar: Ritstjórn 11166, Augl. og afgrciðsla 11167 Ritstj. og ábyrgðami.: ERLINGUR DAVÍÐSSON Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prcntun: Prentvcrk Odds Bjömssonar hf. Vert að þakkað sé Forystugrein íslendings á Akureyri sem á mánudaginn var lesin upp í útvarpi, er bæði lofsverð og lærdóms- rík. Framsóknarmenn, með góðum stuðningi vinstri flokkanna í bæjar- stjóm, mynduðu þann meirihluta, sem þetta kjörtímabil hefur stjórn- að Akureyrarbæ. Sjálfstæðismenn, sem í upphafi þess ætluðu að mynda harðsnúna stjórnarandstöðu, hurfu frá því. Málefnalega höfðu þeir ekk- ert fram að færa og létu sér því nægja að fylgja meirihlutanum í öll- um aðalmálum og styðja þannig að þeim framkvæmdum, sem bærinn stendur í. Þegar Sjálfstæðismenn skrifa um bæjarmálin á Akureyri, vefst þeim eilítið tunga um tönn, því þeir vita ekki hvort þeir eiga heldur að koma fram sem stjómar- andstæðingar, eða þeir eiga að af- saka fylgi sitt við meirihlutann með því að slá því fram, að oft sé farið að tillögum þeirra. Forystugrein íslendings, sem fyrr var að vikið, staðfestir vel stöðu minnihlutans í bæjarstjóm. Þar seg- ir um reikninga bæjarsjóðs: Reikn- ingamir em ánægjulegir á flestan hátt. Fáir liðir eða engir sem miklu máli skipta, hafa farið stórlega fram úr áætlun, og sérstakrar athygli er það vert, að stjóm bæjarins og skrif- stofukostnaður er 10% undir áætl- un. Mönnum er tíðrætt um að „kerf- ið“ þenjist út, en hér hefur sannar- lega verið farið með aðgát og var- fæmi, — en hvorki átt sér stað út- þensla né bmðl. Síðan segir íslend- ingur: Hin góða fjárhagsstaða bæjar er geysilega mikilvæg einmitt nú, þegar bærinn og stofnanir hans þurfa mjög á lánstrausti að halda, bæði innan- lands og utan, enda hefur það sýnt sig undanfarið að þetta traust er fyr- ir hendi. — Og enn segir Islendingur í sömu forystugrein: í fjárhagsáætlun þeirri, sem sam- þykkt var fyrir yfirstandandi ár, var það haft að leiðarljósi að veita borg- urunum sem besta þjónustu og stuðla jafnframt með sem mestum framkvæmdum að áframhaldandi vexti og grósku. í bæjarlífinu. Sjálf- sagt er þar í ýmsum greinum teflt á tæpasta vað. En ef bærilega árar og beitt verður sömu vinnubrögðum og sl. ár, þá ætti það mark að nást, .. . . Hvað sem pólitískum sálufélögum íslendings finnst um það, að einn af þeirra sauðahúsi skuli styðja svona vel við bakið á framsókn, kommum og krötum, í stað þess að berjast fyrir einhvers konar íhalds- stefnu, ber að þakka þessa miklu og rökstuddu viðurkenningu um bæjar- stjómarmeirihlutann í höfuðstað Norðurlands, og stuðninginn. Ganhabúi kynnir sér sauð- fjárrækt austur í Þistilfirði Óli Halldórsson ræðir við Atu Stepheri Frá smábátahöfninni á Akureyri. (Ljósm. E. D.) Lófótlínan engin nýjung? Á Gunnarsstöðum í Þistilfirði eru rekin tvö nokkuð stór fé- lagsbú. Þar eru þrjú íbúðarhús. í einu húsinu búa ung hjón, Berghildur Björgvinsdóttir og Jóhannes Sigfússon, ásamt syni sínum, Axel, sem er tæplega ársgamall. Jóhannes rekur fé- lagsbú með föður sínum og bræðrum. Á búi þeirra feðga hafa oft dvalið útlendingar. Á síðastliðnu hausti var t. d. einn gangnamaður þeirra dýralækn- ir frá Nýja-Sjálandi. Síðan í janúar í vetur hefur verið hjá Jóhannesi svartur maður sunn- an frá Ganha. Hann heitir Atu Stephen og er meðeigandi í bú- garði suður þar. Þar hafa að mestu verið framleiddar skóga- afurðir, gúmmí og mahóní. Nú á að skipta um og fara í kvik- fjárrækt. Stephen hefur því dvalist í Danmörku undanfarin missiri og kynnt sér þar svína- og alifuglarækt. Hingað til lands kom hann í janúar til að kynna séx sauðfjárrækt. Það var umboðsmaður danska fóður vörufirmans Elías B. Muus, Árni Gestsson í Glóbus, sem kom honum hér fyrir. Stephen Lentu út í á Tveir menn í amerískum fólks- bíl, sem voru á mánudagsmorg- uninn á leið til Akureyrar lentu í Þorvaldsdalsá -á Árskógs- strönd. Fór bíll þeirra vestan við brúna og hafnaði á gagn- stæðum klettavegg. Annar maðurinn slapp ómeiddur en hinn var fluttur í sjúkrahús á Akureyri, en ekki hættulega slasaður og þykir það raunar með ólíkindum, að ekki fór verr. Þess má geta, að árgljúfrið er 7,5 metrar á þess- um stað og breiddin 11 metrar. Bílinn er talinn ónýtur. Lögreglan á Akureyri óskar eftir vitmrni að árekstri, sem varð á mótum Þingvallastrætis og Byggðavegar 8. júní sl. En við áreksturinn valt annar bíll- inn. Rjúpa í húsa- garði á Ak. Það bar til að morgni 24. maí sl. kl. 7.30, að hjón í Helga- magrastræti 21 sáu rjúpu á bak- lóð hússins. Brá húsbóndinn, Hermann H. Huijbens, við og greip 8 mm kvikmyndavél sem hann og náði mynd af rjúpunni. En þá flaug hún. Hér er myndin svo að auð- séð er að þetta er rjúpa. Það er alltaf gaman að fá óvæntar fuglaheimsóknir. En hvers vegna var þessi rjúpa þarna? Hafði hún flúið undan fálka? er nú á förum heim til sín. — Margt hefur Ganhabúinn ef- laust séð á íslandi, sem honum hefur komið framandlega fyrir sjónir. Fréttaritara Dags var þvj forvitni á, að fá hann til að svara nokkrum spurningum um dvöl sína á íslandi, sem hann gerði góðfúslega. — Stephen er mjög kátur og hlær mikið. — Steingrímur Sigfússon aðstoð- aði við samtalið. — Nú ert þú búinn að vera í fimm mánuði á íslandi. Hvað vissir þú um ísland, áður en þú komst hingað? Ég vissi að hér var kalt og snjór yfir öllu. Vinir mínir héldu að ég væri brjálaður, þegar ég sagði þeim að ég ætl- aði til íslands að læra sauð- fjárrækt, því ekki væri hægt að búa með sauðfé í snjó. — Hvað kom þér mest á óvart á íslandi? Þegar ég sá húsin að mestu á kafi í snjó. Líka þegar vindur- inn blés úr mörgum áttum sama daginn. Þá er ég ekki síður undrandi núna, þegar þetta fall- ega græna gras er komið yfir allt. — Hvernig fellur þér bjarta nóttin? Mjög vel. í gær fór ég ekki að sofa fyrr en kl. 3. Ég vildi njóta hinnar björtu nætur. Nokkru eftir að yfirlýsing okk- ar sexmenninganna um frásögn Tryggva Emilssonar í bókinni „Fátækt fólk“ um Draflastaða- heimilið kom út í blaðinu „Degi“, birtist þar grein um sömu bók eftir Steindór Pálma- son. Þar gagnrýnir hann ýmis atriði í bók Tryggva og telur að þar sé ekki farið rétt með, og missagnir séu æðimargar. — Telur hann upp allmörg dæmi því til sönnunar og eru sögu- sviðið Oxnadalur. Þar þekkir Steindór vel til, því hann er al- inn upp í næsta nágrenni dals- ins. Hnígur allt í sömu átt hjá honum og okkur um Drafla- staðaheimilið, að ekki er frá- sögn Tryggva allsstaðar byggð á traustum grunni. Nokkru síð- ar skrifaði minn ágæti kunningi, Steingrímur Eggertsson, grein í blaðið Norðurlandið á Akur- eyri. Þar á eftir kemur svo grein í Visi eftir Svarthöfða og nú síðast í 27. tbl. Dags birtist grein eftir Höskuld Egilsson. Hann þekki ég ekki. Allar eru þessar greinar skrif- aðar um bókina „Fátækt fólk“ í tilefni af ýfirlýsingu okkar sexmenninganna og grein Stein- dórs Pálmasonar, um sömu bók. Allir eru þessir greinarhöfund- ar sammála um ágæti bókar- innar og telja það nánast goðgá að gagnrýna nokkuð af því, sem þar er skýrt frá og þó að þar séu nokkrar missagnir, þá komi þær til af misminni höfundar, en ekki óheiðarleika. Steingrím- ur segir, að við þessir sex góðu eyfirðingar, eins og hann orðar það, höldum því fram að margt af því sem Tryggvi segir frá í — Hvað þótti þér skemmtileg- ast og hvað leiðinlegast af því, sem þú vannst? Það skemmtilegasta og áhuga verðasta var sauðburðurinn, en leiðinlegast var að kafa snjóinn í fjárhúsin í vetur. — Heldur þú, að þú getir not- að eitthvað af því, sem þú lærð- ir á íslandi, þegar þú kemur heim til þín? Já, heilmikið. Eftir alla þá þjálfun, sem ég hefi fengið hjá Jóhannesi, get ég kannske orð- ið ennþá betri bóndi en hann. — Nú skellihlær Stephen. — Mér finnst mjög athyglisvert hvernig þið merkið fé og þekkið það. Hjá Jóhannesi er það að þekkja ærnar, sem bætast við árlega, eins og eignast 70 til 80 nýja vini á ári. — íslenskt skáld sagði einu sinni, „að hjörtum mannanna svipaði saman í Súdan og Gríms nesinu. Finnst þér fólkið líkt hér og heima hjá þér, þegar allt kemur til alls? Já, þeita get ég tekið undir. Blóðið er rautt, þótt hörundið sé með ýmsum lit. — Ef þú mættir taka með þér einn hlut frá fslandi, hvað mundir þú þá taka? Gestrisnina, hún er dásamleg. Það var sama hvar ég kom, ég bókinni sé ósannindi og rugl. Ég neita því algerlega, að í yfir- lýsingu okkar felist nokkurs- staðar sú staðhæfing Stein- gríms að Tryggvi fari með rugl. Hinsvegar er þar sagt, að það megi til sanns vegar færa að bókinni sé hælt fyrir ágæta frá- sagnarhæfileika höfundar og góðan stíl. Það er alveg víst að bókin fengi ekki slíka viður- kenningu hjá okkur, ef við teld- um, að hún flytti rugl. Stein- grímur lætur að því liggja að Tryggvi hafi verið á sveitar- framfæri á Draflastöðum og er svo með bollaleggingar um hvernig með þá hafi verið farið á þeim tíma. Það er skoðun mín. byggð á reynslu minni og upplýsingum frá öðrum, að á öðrum tug þessarar aldar hafi skilningur fólks á þörfum og rétti einstaklingsins og þá um leið meðferð sveitarómaka, ver- ið orðin með nokkuð öðrum hætti en t. d. 20—30 árum áður. Með aukinni frelsisþrá fólksins og meiri upplýsingu á sviði menningar og mennta, fékk það aukna trú á lífið og það væri í reynd ekki nándar nærri eins vonlaust og það hafði verið þjóðinni fyr á árum. Mér finnst að bæði Steingrímur og Hösk- uldur hafi tilhneigingu til að mála hlutina of dökkum hlið- um, á þeim tíma, sem frásögn Tryggva nær yfir. Ég man vel eftir Tryggva, þegar hann var á Draflastöðum, þó hann hefði engin samskifti við okkur stráka á Eyvindar- stöðum. Ekkert man ég eftir því, þegar þeir feðgar komu í Eyvindarstaði og Emil fær að fann mig allsstaðar velkominn, þó sérstaklega hér á Gunnars- stöðum. — Hvað er þér nú ríkast í huga eftir dvölina hér? Þakklæti. Þakklæti til fólks- ins hér á Gunnarsstöðum, fyrir að taka mig á sitt heimili og hafa mig nánast sem fjölskyldu- meðlim. Þakklæti fyrir alla þol- inmæðina við að útskýra hlut- ina fyrir mér og lofa mér að reyna sjálfum svo margt nýtt. Það er ekki ég einn sem nýt þessarar dvalar, heldur munu félagar mínir heima í Ganha koma til með að njóta hennar með mér þegar ég kem heim. Mér finnst dásamlegt að fá að kynnast framandi þjóðum og siðum. Ég held að heimurinn yrði betri, ef þjóðirnar reyndu að kynnast meir hver annarri. — Hvað vilt þú segja að lokum? Ég vil senda þakkir til allra á Gunnarsstöðum, sérstaklega til hjónanna Berghildar og Jó- hannesar. Hvern dag sem ég bjó hjá þeim, var ég eins og heima hjá mér. Þá vil ég þakka Berghildi fyrir þá móðurlegu umhyggju sem hún hefur sýnt mér. Ég vil þakka litla vininum mínum, Axel, líka. Milli okkar voru engir tungumálaerfiðleik- ar. Ó. H. (Tilraunir til að láta myndir fylgja viðtalinu báru ekki ár- angur. — Ritstj.) sofa þar um stund. Ekki er ég að væna Tryggva um að hann skýri ekki rétt frá komu þeirra. En því er hann að enda frásögn sína með þeirri vitleysu að syn- ir Guðjóns hafi verið yngri en hann. Sannleikurinn er sá að Þórir heitinn bróðir minn var nærri 4 árum eldri og ég full- um 2 árum eldri en Tryggvi. Þetta hefir engin áhrif á sögu hans sem slíka, aðra en þá að sýna að ekki er verið að vanda til heimildanna. Svarthöfði heldur því fram að Tryggvi skrifi ekki af illvilja til nokkurs manns og einskis kala gæti í skrifum hans um fólkið á Draflastöðum. Ég spyr: Hvað atilfinningar bærast í höfði þessa ágæta skáldsagnahöfund- ar, þegar hann er að lýsa því, þegar Sigfús á Draflastöðum er að berja hann beint á nefið, alveg að tilefnislausu, svo hann fær fossandi blóðnasir, en gæt- ir þess þó að Guðrún, heima- sætan, sé nærstödd svo hún geti hlegið að þessu afreki og hlakkað yfir því? Þessar og þvílíkar lýsingar bera menn naumast fram um dáið fólk, sem menn eru í fullri sátt við. Svona óhróður tel ég að setji blett á annars vel skrifaða bók. Svarthöfði segir líka að Tryggvi skrifi af svo mikilli kurteisi að fágætt geti talist. — Ég held að Svarthöfði hljóti að hafa nokkuð sérstæða skoðun á því hvað felist í orðinu kurt- eisi. Ég er ekki viss umi að fólk almennt, sem lesið: hefir bók Tryggva geti fallist á að hann skrifi af fágætri kurteisi um alla þá, sem í bók hans er í íslenskum blöðum hefur all- mikið verið skrifað um Lófót- línuna, sem á að vera allt að fjórum sinnum fisknari en þær eldri. Reykjavíkurblöðin, og síðast Sjómannablaðið Víking- ur hafa stagast á þessu mikla veiðitæki. Sagt hefur verið frá sunnlenskum skipstjórum, sem utan fara til að kynna sér marg- umrædda Lófót-línu. Alla tíð hefur það verið keppi- kefli við veiðiskap í sjó að veiða sem mest. með sem minnstum tilkostnaði, og því vekur Lófót- línan áhuga sjómanna. En samkvæmt lýsingu og myndum er þetta Norðlending- um, eða a. m. k. sjómönnum við Eyjafjörð, engin 'nýjung, því sams konar lína hefur verið getið. Mér finnst sannast að segja það vera allmikill skort- ur á kurteisi og háttvísi gagn- vart afkomendum Draflastaða- fólksins, sem enn eru á lífi, sú lýsing sem Tryggvi gefur af forfeðrum þess. Mér dettur í hug að þessum greinarhöfundum sem afsaka Tryggva á allan hátt og telja að hann skrifi af kurteisi og án kala til nokkurs manns, yrði nokkuð hverft við, ef allt i einu birtist í mikið lesinni bók, lýs- ing af foreldrum þeirra og nán- um ættingjum, sem gjörðu þau í augum lesenda að óþokkum, sem litið yrði á með lítilsvirð- ingu. Ætli viðbrögð þeirra yrðu þau að líta á það sem mein- lausa hrekki eða hálfgert grín, sem ylli þeirri yfirlýsingu, og bókarhöfundur dáður fyrir heiðarleika og kurteisa frásögn? Ég veit það ekki. Höskuldur segir að við Tryggvi lýsum fólkniu á Drafla stöðum hvor frá sínum sjónar- hóli, og er það augljóst, en mest virðistmérvelta áþví af hvorum sjónarhólnum er litið til réttari áttar, því þrátt fyrir allt, verð- ur sannleikurinn aldrei nema einn. Ég er sama sinnis og Höskuldur að æviminningar fólks er mér kært lesefni. En að mínu mati ræður það mestu að ævisöguhöfundar halli ekki réttu máli, svo eftir á verði þeir hankaðir á því að fara með ósannindi og missagnir. Það gefur auga leið að seinni- tíma menn, sem hafa í sér þá bakteríu, sem veldur því að söguskoðun þjóðarinnar frá fyrri árum. verður þeirra æðsta notuð hér síðan 1959, að Matt- hías Einarsson í Garði, hóf að nota hana og síðan aðrir. Blaðið ræddi við tvo „trillu- karla“ á Akureyri um þetta mál, þá Stefán Baldvinsson, Stór- holti 11 og Bergstein Garðars- son, Langholti 14. Stefáni fórust meðal annars svo orð: Já, ég kannast við þetta. Norska línan, sem um hefur verið rætt, er mjög svipuð þeirri, sem við notum, og Lófót- línan er því engin nýjung fyrir okkur hér á Akureyri og hið sama gildir um sjómenn á opn- um bátum hér út með firðinum, að þeir nota sams konar línu. Munurinn liggur fyrst og fremst að fara takmark, þurfa að geta byggt á traustum grunni varðandi heim- ildir og á ævisöguritun, engu síður en öðrum ritum, sem til falla, byggja þeir sína aldar- farslýsingu um ýmsa þjóðhætti og lífsvenjur fólksins. Ef undir- staða þessa er ekki traust, er hætt við að fram komi falsanir á sögu þeirra tíma, sem um er ritað hverju sinni. Hægt var að tína fleira til úr greinum þeirra þremenning- anna, sem áður eru nefndir, til andsvara, en ég læt hér staðar numið. Að síðustu skal það undir- strikað enn frekar að yfirlýsing okkar sexmenninganna er gef- in í fullri vissu um að lýsing Tryggva í bókinni „Fátækt fólk“, af heimilisháttum á Draflastöðum, er fjærri öllum sanni. Finnastöðum 25. júní 1977. Ketill S. Guðjónsson. Æskulýðsblaðið l.hefti 1977 komið Fyrsta hefti Æskulýðsblaðsins, þessa árs, er komið út og ritar séra Bolli Gústavsson ávarps- orð. Séra Jón Aðalsteinn Bald- vinsson á Staðarfelli hefur nú tekið við ritstjórninni. Þetta rit er gefið út af Æsku- lýðssambandi Hólastiftis, nær 30 blaðsíður að stærð með mörgum myndum. Margir rita í þetta hefti Æskulýðsblaðsins og forvitnilegt að fylgjast með því hvað prestar og leikmenn hafa þar fram að færa. í því, að sigurnaglinn, sem gengur upp á grunnslóðina er þræddur upp á og látinn leika á svona þriggja tommu bili á grunnslóðinni. Getur naglinn þá snúist á línunni og taumur- inn getur snúist í naglanum. — Línan sjálf er að öðru leyti eins, er úr næloni og krókarnir kannski svolítið minni. Það var Matthías í Garði, sem fyrstur byrjaði með svona línu, og þá var hann með þetta á trérúllu, en nú hafa sjómenn þetta á rúllu úr járni eða áli. Uppistaða þess fiskjar, sem við fáum á trillurnar hér u mslóðir, veið- ist á þessa línu, þótt fleira sé notað. Sigurnagla höfum við á okkar línu, eins og Norðmenn, en hnýtum þá ekki alveg eins á, og er bæði kostur og galli. Bergsteinn sagði meðal annars: Byrjað var með þessar nælon- línur 1959. En smám saman hefur línan verið endurbætt síðan, og ég get ekki betur séð af norskum fréttamyndum, en þetta sé sams konar lína og okkar. Grenivíkingur einn keypti sér 500 króka norska línu sem svo mjög hefur verið í fréttum, og hann sagði mér, að þessi norska lína væri eiginlega alveg eins og okkar lína. Sigur- naglinn væri þó öðruvísi fest- ur. Við höfum sigurnagla á hverjum krók og höfum fikrað okkur áfram og höfum held- ur styttri taum en Norðmenn, og hluti hans úr gildara efni. Ég hef alltaf verið undrandi á því, að þetta skuli ekki víðar upp tekið. Það þurfti víst útlendinga til að opna augu íslenskra sjó- manna fyrir þessum nýju lín- um, sem hjá okkur eru þó marg- reyndar til fjölda ára, eða frá 1959. Sjálfur hef ég ekki séð norsku línuna, nema myndir af henni, og er þetta úr sama efni og nær eins að gerð. Fyrir mörgum árum komumst við á lag með að hafa línuna á því dýpi, sem við óskuðum og er það þægi- legt og var byrjað á því áður með gömlu línunni. En hvort þessi lina okkar er fjórum sinn- um fisknari en eldri línum, er naumast svaravert, þótt fiskn- ari sé hún eflaust. — Blaðið þakkar sjómönnunum fyrir upplýsingarnar og stað- festa þær, svo ekki verður um villst, að hin títt umtalaða Ló- fót-lína er engin nýjung hér um slóðir, þótt hún hafi ekki náð eins mikilli útbreiðslu og norska línan væntanlega gerir nú. Vanda þarf til heimildanna eigi vel Um Vistheimilið Sólborg á Ak. Vegna greinarspjalls um mál- efni þroskaheftra sem birtist í Degi þann 29. júní sl. og drótt- að er að Vistheimilinu Sólborg á þann hátt að fyrir þá sem málinu eru ekki kunnugir mætti álíta að heimilið sé dæmi- gert stórt hæli, ópersónulegt, í líkingu við fangelsi og vist- mönnum séu þar búin einhver óvenjuleg lífsskilyrði. Annað lítil spjall á því fullkomlega rétt á sér. Þess ber fyrst að geta að heimilið er að nokkru leyti í sömu aðstöðu og foreldr- ar þroskaheftra barna og þarf að sækja flest sín mál til ríkis- valdsins. Sólborg er sjálfseign- arstofnun sem byggir rekstur sinn á daggjöldum og velvild þeirra sem styrkja starfssem- ina. Daggjaldanefnd ákveður gjöldin sem að flestra dómi eru alltof lág (3000 kr. á dag fyrir einstakling) og setja heimilinu ákaflega þröngan stakk. — Fræðslukerfið úthlutar heim- ilinu og þeim sextíu einstakl- ingum sem tengdir því eru fjór- um kennarastöðum og er af því augljóst að þróunin nær ekki til allra þátta þess kerfis. Sól- borg hefur haft það á stefnu- skrá sinni, eftir föngum, að stofna minni einingar í formi eins konar fjölskylduheimila. Þegar er starfandi ein slík ein- ing og uppi ráðagerð um mynd- un annarrar. Reynt hefur verið að gera stofnunina heimilislega og tekist vel eftir þeim saman- burði sem ég hef, og er nær að líkja stofnuninni við heimavist, enda fjöldi vistmanna vart meiri en í meðalstórri heima- vist. Heimilinu er skipt í fimm einingar sem gerir til jafnaðar tólf einstaklinga á einingu. — Þetta er með allra minnstu ein- ingum sem ég hef rekist á hjá stofnunum, ef frá eru taldar litlar tilraunastofnanir sem alls ekki er hægt með nokkurri sann- girni að bera saman við Sólborg. í samanburði við erlendar stofnanir af algengri stærð er hafa nokkur hundruð vistmanna á sínum snærum, er Sólborg mjög lítil stofnun og stofnana- bragur þar hverfandi. Það sem háir Sólborg mest nú er hversu lítil stofnunin er. Vegna skorts á húsrými er deildaskipting þar ekki nógu afmörkuð og háir það starfseminni nokkuð. Ekki er þó við stjórn heimilisins að sakast því tillögur hennar um uppbyggingu hafa legið fyrir í nokkur ár, en staðið hefur á framkvæmdum og fjárveiting- um. Það er fyrst nú sem hillir undir sjúkradeild og eins og fyrr segir er í bígerð stofnun annarrar lítillar einingar í tengslum við heimilið. Um það þarf vart að deila, að stofnun á borð við Sólborg getur boðið sérhæfðu starfsfólki upp á mun betri starfsaðstöðu heldur en fengist væri ef hver gaufaði í sínu horni. Sé vel að svona stofnun staðið getur það jafnvel lokkað sérhæfðan starfs- kraft til staðarins. Haldi ein- hver hinsvegar að starfslið Sól- borgar sjái ekki hversu tak- mörkuð hún er, veður sá hinn sami í villu. Margt þarf að gera og mörgu þarf að breyta á Sól- borg og er starfsfólk stofnun- arinnar sér þess fyllilega með- vitandi, en allt verður það að vera innan þess þrönga ramma sem stofnuninni er sniðinn í Þormóður Svafarsson, forstöðumaður. samskiptum hennar við ríkis- valdið. Ymiselgt verður einnig til að rýra hina ekki alltof gildu sjóði stofnunarinnar, eins og til dæmis það að styrkur Akureyr- arbæjar til Sólborgar nægir ekki einu sinni fyrir fasteigna- gjöldunum. Styrktarfélag vangefinna á Norðurlandi er stofnað af for- eldrum þroskaheftra barna og Vistheimilið Sólborg er árang- ur baráttu þeirra. Stofnunina verður að reka innan þess ramma sem henni er afmarkað- ur og innan þessa ramma er ekki hægt að framkvæma nema brot af því sem raunverulega væri ástæða til að framkvæma. Til þess að vinna að málum þroskaheftra með einhverjum árangri þarf sameinað átak allra þeirra sem veita vilja þessu málefni lið og er alger óþarfi að vera með illa skil- greindar dylgjur í garð heim- ilisins, enda ekki fljótséð hvaða tilgangi það þjónar. Sólborg er opin stofnun og er hver sá sem vill kynna sér starfsemi heimilisins velkomin hingað. Hafi einhver betri hug- myndir um framkvæmd og rekstur heimilisins, er sá hinn sami velkominn hingað til skrafs og ráðagerða, enda séu þær hugmyndir þá framkvæm- anlegar innan þeirra takmarka sem heimilinu eru settar. í júní 1977. Þormóður Svafarsson. Deildarstjóraskipti hjá Matvörudeild í stærstu deild KEA á Akureyri, Matvörudeildinni, urðu deildar- stjóraskipti um síðustu mánaða- mót. Kristinn Þorsteinsson, sem unnið hefur hjá KEA í rúmlega 50 ár, lét af störfum vegna ald- urs. Við deildarstjórastarfinu tók Brjánn Guðjónsson, sem unnið hefur hjá KEA hálfan annan áratug. Svarfdælingur að ætt og 53 ára. Matvörudeild KEA hefur 11 verslanir á Akur- KEA eyri og var umsetning þeirra síðasta ár um 1200 milljónir króna. Starfsmenn eru tæplega 100. En auk þess að sinna versl- unarþörf á sínu sviði á Akur- eyri annast MJatvörudeildin vörudreifingu matvara til allra útibúa KEA við Eyjafjörð, allt til Grímseyjar svo og til Siglu- fjarðar. 4•DAGUR DAGUR•5

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.