Dagur - 20.07.1977, Side 8

Dagur - 20.07.1977, Side 8
DAGTJR EINANGRUNARBAND Skemmtilegt íþróttamót Hafsteinn Þorvaldsron og Sigurður Geirdal (Ljósm. E. D.) Frá Árósum í Danmörku kom hingað til lands 45 manna hópur frjálsíþróttafólks á vegum Ungmennafélags ís- lands. En samskipti við íþróttafólk þar í landi og á hinum Norðurlöndunum við UMFÍ hafa vaxið mjög á undanföm- um árum og ungmennafélagar og íþróttafólk skiptist á heim- sóknum. starfseminni hér um slóðir. — Mótsstjóri var Sveinn Jónsson. Að íþróttakeppni lokinni var efnt til kvöldvöku og var reglu- legur kvöldvökublær yfir henni, eins og hann getur bestur orðið. Þá var mikið sungið og fjörlega dansað á eftir svo allir skemmtu sér hið besta. Öll var móttaka í Árskógi hin myndarlegasta og heimamönnum til sóma. í dag, mánudag, er erlenda fólkið á Akureyri, losar sig væntanlega við eitthvað af ferðapeningunum sínum og hef \ ur frídag. í gær, sunnudag, var landið skoðað og þá var hópnum boðið til kaffisamsætis á Melum, hjá ungmennafélagi Möðruvalla- sóknar og skorti þar ekkert á ágætar móttökur. Það má með sanni segja, að við og danska íþróttafólkið sé bæði ánægt og þakklátt fyrir hinar ágætu mót- tökur hér norðanlands. Hingað til Norðurlands kom danska íþróttafólkið á föstudag- inn og hélt fyrst til Stórutjam- arskóla, þar sem HSÞ tók á móti því og sýndi því sýsluna. Síðan stóð UMFf og USE að frjálsíþróttamóti í Árskógi á Ás- skógsströnd. En þar hefur ung- mennafélagið Reynir komið upp góðum grasvelli og annarri íþróttaaðstöðu. Blaðið hitti á mánudaginn að máli þá Hafstein Þorvaldsson, formann UMFÍ, og Sigurð Geir- dal framkvæmdastjóra þess og Hlaut prófessors- embætti við Háskóla íslands Dr. Herði Kristinssyni hefur verið veitt prófessorsembætti í grasafræði við Háskóla íslands, frá 1. júlf þessa árs að telja. — Hann hefur sagt upp starfi sínu við Náttúrugripasafnið á Akur- eyri, en því hefur hann veitt forstöðu um nokkurra ára skeið með miklum sóma. spurði þá um ferð hins erlenda íþróttafólks. Þeir sögðu meðal annars: Frjálsíþróttamótið á Árskógs- strönd var mjög skemmtilegt og þáttaka var óð. En mót þetta var opið öllum og áhorfendur voru fleiri en á ýmsum frjáls- íþróttamótum í Reykjavík. Sýn- ir það ómetanlegan áhuga sveita fólksins og fleiri á frjálsíþrótta- í Ungmennafélagi íslands eru nú tæplega 20 þúsund manns í 200 félögum víðsvegar um land og hefur félagatalan nær tvö- faldast síðan 1970. Og starf margra ungmennafélaga og hinna 18 héraðssambanda þeirra er ört vaxandi, sögðu forystumenn ungmennafélag- anna. Um 170 félagsmálanám- skeið hafa verið haldin víða um land síðan 1970, og hefur fé- lagsmála- og kynningastarfið borið mikinn og góðan ávöxt. 600 hross verða flutt út á þessu ári Dr. Hörður Kristínsson. Búið er að selja úr landi 300 hesta það sem af er árinu, og með eru taldir um 60 hestar, er fara einhvern næsta dag til Sví- þjóðar, Noregs og Danmerkur, og eru nú öll hross flutt í flug- vélum, sem seld eru úr landi. Gert er ráð fyrir, að útflutn- ingur hrossa síðari hluta ársins verði svipaður, eða samtals 600 hross á árinu. Verðið hefur far- ið hækkandi og nú eru það eink- um tamin hross, sem út eru flutt. Þá var fyrir skömmu flogið með 30 hross til Banda- ríkjanna og er það nýjung. Þar er sögð allmikil eftirspum, sem talin er stafa af hinni miklu þol- reið vestra í fyrra og hinu ótrú- lega þoli, sem íslenskir hestar sýndu þar og frægt varð. Samband íslenskra samvinnu- félaga er stærsti útflytjandi ís- lenskra hrossa. Stóð rekið á fjall Sauðárkróki 18. júlí. Grasvöxtur er orðinn mikill, sláttur er fyrir nokkru hafinn, en vegna óþurrk anna hefur ekki verið farið í heyskapinn af krafti. Og nú sprettur óðfluga, og ekki geta menn lengi haldið að sér hönd- um. Um helgina var stóð rekið til afréttar, en samkvæmt reglu- gerð má það ekki fyrr en 15. júlí. Á laugardag og sunnudag var stóðið rekið í stórum flokk- um til heiðalandanna, t. d. á Staðarafréttina, en það gera menn hér um slóðir. Þetta var hin skemmtilegasta ferð, enda hið besta veður. Heiðarnar eru mjög vel grónar. Drangeyjan landaði 185 tonn- um í dag, svo að það má eitt- hvað taka til hendi. Yfirleitt vantar fólk til starfa hér á Sauð- árkróki,- G. Ó. 'X I—\r~ tí cx irr xr llli UU \h SL lli LjljLI • Sumt af ullinni kemur ekki til skila. Ábyrgir menn staðhæfa, að allt að þriðjungur af hinni verðmætu og eftírsóttu ull komi ekki til skila, vegna vanrækslu fjáreigenda. Þar að auki sé hirðingu fjárins í ýmsu áfátt, svo og meðferð ullarinnar. Ljótt ef satt er, og víst er um það, að ís- lenska ullin hefur ekki verið hátt metin á undanförnum árum, nema þeim allra síð- ustu, og löngum svo lágt met- in til verðs,,að sumum bænd- um hefur ekki þött til mik- ils að vinna að taka ullina af fénu fyrr en á liaustin. En víða fer það mjög í vöxt að vetrarrýja sauðfé og fæst þá betri ull og vel fóðruðurri ám líður betur. • Órúíðféá og í heima högum. Jóhann Þorvaldsson, skóla- stjóri á Siglufirði, leit inn á skrifstofur blaðsins, nýkom- in úr ferðalagi. Sá hann á leið sinni frá Hornafirði til Egilsstaða og þaðan tíl Ak- ureyrar svo margt órúið fé, að hann furðaði á því. Sagð- ist hann víða á Austurlandi hafa séð heyskapinn í full- um gangi og órúnar kindur við túngarðinn. Á einu túni sá hann sex hrúta og alla í ull. í einum stað sá hann þrjár ær standa í læk ein- um til að kæla sig og allar órúnar. Frá Egilsstöðum til Ljósavatnsskarðs sá Jóhann 260 kindur, auk lamba, og þar af 90 órúnar. Frá Ljósa- vatnsskarði til Eyjafjarðar sá ferðamaðurinn enga kind órúna. Þctta gefur tilefni til margra hugleiðinga, sagði ferðamaður. En einnig var gleðiefni að sjá hve sveita- bæir á allri þessari leið litu miklu betur út á allan hátt, en fyrir tiltölulega fáum ár- um. Ullariðnaður- inn getur tekit á móti mörgu Hjörtur Eiríksson, fram- kvæmdastjóri Iðnaðardeild- ar SfS sagði fyrir skömmu, að í ullariðnaðinum einum myndi geta skapast atvinna fyrir á annað þúsund manns. Þegar þetta er haft í huga, og óvéfengdar fregnir af háu verði á ullarvörum er- lendis, og sennilega ótæm- andi markaða úti í hinum stóra heimi, vegna séreini kenna íslensku ullarinnar og vörum úr henni, er enn nauð- synlegra en áður að fara vel með þetta góða iðnaðarhrá- efni. Og I framhaldi af því, sem fyrr er að" vikið, og efth< ferðamanni haft, mun nú á ýmsum stöðum smalað tíl rúnings og fækkar þá órúnu fé á fjalli. Mývetningur kom á skrif- stofuna á mánudaginn og spurði, hvort „j“ ætti að vera I orðunum net og dekk í fleirtölu. Samkvæmt úr- skurði tveggja íslenskufræð- inga, var net í eignarfalli fleirtölu ritað með „j“, en á síðari timum er orðið ritað j laust. Orðið beygist eins og ber. Um dekk sögðu málfræð- ingarnir að það væri tökuorð og ckki hefði hefð skapast um hvernig skrifa bæri. • Lesandi spyr. Lesandi spyr, hvort ekki verði sleginn og hirtur gras- blettur á milli Kotárgerðis og Mýrarvegar. Það hefur ekki verið gert síðustu árin. Þar er þvi kafgras og gott fyrir þá, sem skepnur eiga, að fá að slá blettínn. Hins vcgar er hann Ijótur og til óprýði eins og hann hefur verið. Þessari ábendingu er komiö áleiðis til þeirra aðila, sem um eiga að sjá. Frá lögreglunni á Akureyri Á miðvikudagsmorguninn valt bifreið hjá Brunnastöðum á Þelamörk. Ökumaður var einn í bílnum og slapp hann ómeidd- ur, en bíll hans skemmdist mik- ið. Síðar sama dag urðu tveir bifreiðaárkestrar í bænum, en ekki urðu slys á mönnum. — Næstu dagar voru fremur ró- legir, en um helgina var nokk- ur ölvun að venju og þá voru tveir menn teknir, grunaðir um ölvun. Nokkur umferðalagabrot voru framin þessa daga. Spikfeitur urrioi í Laxá Síðan 3. júlí hefur sprottið vel og er nú að verða sæmilega gott gras á túnum og sláttur alls staðar hafinn í Laxárdal. Það vantar bara þurrkana ennþá, sagði fréttaritari blaðsins, Gunnlaugur Tr. Gunnarsson í Kasthvammi. Veiðihúsið okkar hér í Laxár- dalnum var tekið í notkun 1974 og þykir gott þar að vera. Veiði- félag Laxár og Krákár byggði húsið. Veiðivörður nú er Helga SigurbjöPnsdóttir, og er hún jafnframt húsvörður. Veiði í ánni hefur verið góð í sumar, silungurinn stór og alveg sér- staklega feitur, svo að ég man ekki eftir honum feitari. Margt gesta hefur komið í Laxárdalinn í sumar, sagði Gunnlaugur. — Myndin er af Helgu veiðiverði. Tvö ráðin Nú hefur Leikfélag Akureyrar ráðið sér nýja leikhússtjóra sem taka við starfi Eyvindar Er- lendssonar. Það eru hjónin Brynja Benediktsdóttir og Er- lingur Gíslason, sem við starf- inu taka í sameiningu á næsta leikári. Formaður. Leikfélags Akureyrar er Jón Kristinsson. Eflaust getur blaðið síðar flutt fregnir af leikhússtarfinu. sem kunnugt er, hefur starf- semi Leikfélags Akureyrar mjög færst í vöxt síðustu árin og heldur sú þróun væntanlega áfram.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.