Dagur - 11.11.1977, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREVRI
DAGUR
LX. ARG. AKUREYRI, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1977 49. TÖLUBLAÐ
Fyrsta húsiðtengt
Ráðgert er að tengia fyrsta
húsið á Akureyri nýju hita-
veitunni um næstu helgi,
og er það Elliheimilið. Fer
vel á bví að veita gömlum
yl á undan öðrum. Það seg
ir okkur ennfremur, að
fljótlega muni fleiri á eftir
koma, sem njóti hitaveit-
unnar,
Reglugerð
barna vanvirt
f kaupstöðum og kauptún-
um með fleiri en 400 íbúa
gilda sérstakar reglur um
útivist barna og unglinga
til 15 ára aldurs.
Börn til 12 ára aldurs
mega ekki vera á almanna-
færi eftir klukkan 8 á
kvöldin nema í fylgd með
fullorðnum, og unglingar
til 15 ára aldurs mega ekki
vera úti á almannafæri
lengur en til klukkan 10 á
kvöldin. Gildir þetta frá 1.
september til aprílloka. Þá
er hvers konar þjónusta við
börn og unglinga eftir fram-
angreindan tíma á kvöldin
óheimil og varðar sektum,
annar en heimflutningur.
Þetta gildir t.d. um söluop.
Hér á Akureyri eru mik-
il brögð að því, að þessi
ákvæði séu ekki virt. Er þá
ekki aðeins um að ræða
brot á fyrrnefndri reglu-
gerð, heldur gerir það öðr-
um heimilum, sem halda
Vilja útivistarreglumar
mjög erfitt fyrir.
Frá lögreglunni
Lögreglan tjáði blaðinu í
gær, að allmargir árekstr-
ar hefðu orðið á götum bæj-
arins undanfarna daga, og
nokkrar skemmdir þá orð-
ið á ökutækjum^ en eng-
inn maður hefði þá slasast
í þessum umferðaróhöpp-
um.
Þá lagði lögreglan j
áherslu á sérstaka tillits- j
semi og aðgát í umferðinni,
bæði vegna hálku og þess,
að gatnaframkvæmdir í j
bajnum, einkum vegna hita- j
veitunnar, torveldaði um- j
ferð og krefðist meiri að- j
gæslu.
Komin í
bókaverslanir
Saga Kaupfélags Norður-
Þingeyinga og bvggða var
prentuð fyrir síðustu iól og
seld beint til héraðsbúa
heima og heiman en ekki
sett í bókaverslanir.
Vegna mikillar umræðu
og vaxandi eftirspurnar er
litlu upplagi bókarinnar nú
skÍDt í flestar bókaverslan-
ir á landinu þar á meðal á
Akurevri og Húsavík, seg-
ir í tilkynningu frá útgáf-
unni.
Mööruvallakirkja er 110 ára
Eins og kunnugt er er Möðru-
vallakirkja í Hörgárdal ein af
elstu og veglegestu timbur-
kirkjum landsins. Hún er höf-
uðsmíð hins kunna kirkjusmiðs
Bændafundur
í Freyvangi
Búnaðarsamband Eyjafjarð-
ar boðar til bændafundar í
Freyvangi fimmtudaginn
17. nóvember klukkan 21.
Frummælendur verða
Ami Jónsson, framkvæmda
stjóri Stéttarsambands
bænda, og Stefán Valgeirs-
son, alþingismaður. Ræða
þeir um framleiðslumál og
samþykktir síðasta stéttar-
sambandsfundar.
Hátt verð
á reiðhestum
í fyrradag seldi hestamað-
ur einn eyfirskur tvo reið-
hesta 5 og 6 vetra fola. —
Reykvíkingur greiddi 640
þús. krónur fyrir yngri
hestinn, en Þjóðverji rúma
eina milljón fyrir hinn.
Fóru hestarnir héðan sam-
dægurs.
og athafnamanns Þorsteins
Daníelssonar á Skipalóni, sem
reisti kirkjuna þegar eftir
kirkjubrunann á Möðruvöllum
1865. Kirkjan var vígð 5. ágúst
1866 en tekin út og afhent söfn-
uðinum sem albyggð 23. sept.
1867, og hefur afmæli kirkj-
unnar jafnan verið miðað við
það ár.
í ár er kirkjan því 110 ára og
er fyrirhugað að minnast bess
með hátíðaathöfn n. k. sunnu-
dag, 13. nóvember. Vígslubisk-
up, séra Pétur Sigurgeirsson,
prédikar og þjónar fyrir altari,
ásamt sóknarprestinum séra
Þórhalli Höskuldssyni, en
kirkjukór Möðruvallakirkju
syngur undir stjórn organist-
ans, Jóhanns Baldvinssonar. f
lok athafnar mun sóknarprestur
rekja sögu kirkjunnar, skýra
frá gjöfum, er kirkjunni hafa
borist og þeim framkvæmdum,
er átt hafa sér stað í tilefni af-
mælisins.
Formaður sóknarnefndar er
Páll V. Ólafsson, Dagverðar-
tungu.
Vænt og afurðagott fé í Þistilfirði
Vargfuglinn er svæföur með
Óli Halldórsson á Gunnarsstöð-
um sagði blaðinu eftirfarandi
fyrir helgina:
Sauðfjárslátrun lauk á Þórs-
höfn föstudaginn 21. október. —
Lógað var 14.449 kindum. Með-
alvigt dilka var 16.195, eða að-
eins hærri meðalvigt en haustið
1976.
Mestir að meðalvigt voru dilk-
ar Aðalheiðar Jónsdóttur á
Þórshöfn, sem lagði inn 122
dilka, sem vigtuðu til jafnaðar
15. þing Alþýðusambands Norð
urlands var haldið í Alþýðu-
húsinu á Akurevri dagana 29.
og 30. október. Þingið sátu 73
fulltrúar frá nær öllum sam-
bandsfélögunum. Þingforseti
var Ólafur Aðalsteinsson frá
Félagi verslunar- og skrifstofu-
fólks á Akureyri.
Aðalmál þingsins voru að
venju atvinnumál á sambands-
svæðinu og kjaramál. Þá urðu
miklar umræður um uppbygg-
ingu orlofsheimilis sambands-
ins að Illugastöðum í Fnjóska-
dal. Var lögð mikil áhersla á,
að hraðað yrði að ganga frá
sameiginlegum framkvæmdum
þar og gera svonefnt kjarnahús
notkunarhæft jafnframt því
sem haldið yrði áfram byggingu
orlofshúsa fyrir einstök verka-
lýðsfélög. í haust hófust fram-
kvæmdir við byggingu 6 nýrra
18.521 kg. Næstir að meðal-
þyngd voru 583 dilkar frá
Tunguseli, 18.159. Bændur í
Tunguseli eru bræðurnir Krist-
björn og Marinó Jóhannssynir.
Frá Syðra-Álandi komu 403
dilkar, sem voru að meðltali
17.794 kg. Eigendur eru bræð-
urnir Grímur og Vigfús Guð-
björnssynir. Geta má þess, að
þeir og bræðurnir { Tunguseli
eru bræðrasynir, afkomendur
Jóns í Dal. Þyngsta dilkinn átti
húsa og gert er ráð fyrir að
bygging fleiri húsa hefjist á
næsta ári.
Fráfarandi formaður AN, Jón
Karlsson form. Verkamanna-
félagsins Fram á Sauðárkróki,
Hákon Hákonarson.
lyfjum
Lárus Jóhannsson á Hallgils-
stöðum og vigtaði hann 32,4 kg.
Það er alltaf verið að drepa
mink. Fyrir nokkrum dögum
kom gestur í bíl sínum til Vil-
hjálms hreppstjóra á Syðralóni
og sá þá mink á hlaðinu. Hann
sagði frá og brá Vilhjálmur sér
út með byssuna og skaut mink-
inn við ruslatunnuna.
Grenjaskyttan okkar, Vigfús
Guðbjörnsson, fékk svefnlyf til
að drepa vargfugl. Hann bar út
gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs. í stað hans var Hákon
Hákonar.son, formaður Sveina-
félags járniðnaðarmanna á Ak-
ureyri, kjörinn formaður. Jón
Ingimarsson, formaður Iðju á
Akureyri, var endurkjörinn
varaformaður. Þorsteinn Jóna-
tansson, varaformaður Verka-
lýðsfélagsins Einingar, var kjör
inn ritari, og meðstjórnendur
Kolbeinn Friðbjarnarson, for-
maður Verkalýðsfélagsins Vöku
á Siglufirði. og Guðjón Jón=son
formaður Sjómannafélags Eyja-
fjarðar. — Miðstjórnin var öll
kjörin samhljóða og svo var
einnig um varastjórn og sam-
bandsstjórn.
Skrifstofa Alþýðusambands
Norðurlands er að Brekkugötu
4 á Akureyri, sími 21881.
(Fréttatilkynning).
á þeim stað, sem úrgangur frá
sláturhúsinu hafði verið graf-
inn. Þar svæfði hann 80—90
hrafna og svartbaka. Síðar
gerði hann aðra tilraun við sjó-
inn og fékk þá 13 vargfugla.
Leikfélagið hélt fund í gær,
en fréttir höfðu mér ekki bor-
ist um ákvarðanir, en eflaust
hefur næsti sjónleikur verið
þar á dagskrá og verður eitt-
hvað af því að frétta síðar. For-
maður er María Jóhannsdóttir,
Syðra-Álandi.
Óvanalega mikið er um bygg-
ingar og enn meira er framund-
an í því efni. Til dæmis um
þetta er það, að árið 1975 pant-
aði Kaupfélag Langnesinga 85
teningsmetra af timbri en nú
300 teningsmetra. Eru fyrirhug-
aðar útihúsabyggingar í sveit-
um og íbúðabyggingar á Þórs-
höfn, auk þess sem í Hlíð á
Langanesi, sem verið hefur í
eyði, verður byggt íbúðarhús
næsta sumar.
Þrár bátar róa með snurvoð
frá Þórshöfn, en aflinn er frem-
ur lítill og togarinn er enn í við-
gerð.
Átta einstaklingar eru að
byggja yfir sig og eru íbúðirnra
á ýmsum byggingarstigum. Þá
er verið að byggja bústað dýra-
læknis og viðbygging við skól-
ann er hafin í haust. Þá er byrj-
að á fyrsta grunni undir hús
fyrir aldrað fólk og verður það
fjögurra ibúða bygging.
Þá er enn unnið að jarðvegs-
skiptum í götum. Olíumöl, sem
ætlað er að leggja á götur næsta
sumar, er þegar kominn á stað-
inn. Ó. H.
Hákon er formaður AN