Dagur - 11.11.1977, Qupperneq 6
1 HHIi
Möðruvallaklausturspresta-
kall. Hátíðaguðsþjónusta
verður í Möðruvallakirkju
n. k. sunnudag 13. nóvem-
ber. Minnst verður 110 ára
afmælis kirkjunnar. —
Vígslubiskup, séra Pétur
Sigurgeirsson, predikar. —
Sjá frétt á öðrum stað í
blaðinu. Sóknarprestur.
Laufásprestakall. Messað í
Laufási nk. sunnudag kl.
1 e. h. (athugið t'mann).
Séra Björn H. Jónsson
sóknarprestur á Húsavík
predikar. Séra Björn pre-
dikar einnig við guðsþjón-
ustu í Grenivíkurkirkju
kl. 3 e. h. sama dag. —
Sóknarprestur.
Sjónarhæð. Almenn sam-
koma nk. sunnudag kl.
17,00. Biblíulestur fimmtu-
dag kl. 20,30. Sunnudaga-
skóli í Glerárskóla sunnu-
dag kl. 13,15. Verið vel-
komin.
Nýja-bíó er að hefia sýning-
ar á tveim nýjum mynd-
um. KI. 9 sýnir bíóið
Brannigan, bandaríska
sakamálamynd með John
Wayne í aðalhlutverki. Kl.
11 verður svo sýnd franska
myndin Gleðikonan, La
Marge. Mvndin er gerð
samkv. samnefndri skáld-
sögu eftir André Pierr de
Mandiargues, sem fékk
Goncourtverðlaunin, eftir-
sóttustu bókmenntaverð-
laun frakka, fyrir nokkr-
um árum. Tónlistin í mynd
inni er eftir fræga pop-
tónlistamenn; Elton John,
Pink Floyd, Ten CC,
Square, Sailor og fleiri.
Þrátt fyrir það hefur
myndin hlotið slaka dóma
í Reykjavíkurblöðunum.
Kl. 3 á sunnudaginn sýn-
ir bíóið Meistara Jakob.
Aukakílóafélagið heldur aðal
fund sinn í Lóni 23. nóv.
kl. 20,30. Kosin ný stjóm,
rætt verður um vetrar-
starfið. — Stjórnin.
Neðangreind áheit hafa bor-
ist Strndarkirkju á af-
greiðslu Dags: Frá N. N.
kr. 1.000, frá mæðgum kr.
3.000, frá G. M. kr. 500, frá
H. S. kr. 500, frá A. A. kr.
I. 000, frá N. N. kr. 500, frá
G. K. kr. 1.000, frá V. K.
kr. 1.500, frá H. H. kr.
1.000, frá F. J. og Þ. J. kr.
7.600, frá Þóri Áskelssyni
kr. 100, frá N. N. kr. 100,
frá I. G. B. kr. 1.000, frá
V. G. kr. 500, frá N. N. kr.
1.000, frá konu kr. 500, frá
Þóri Áskelssyni kr. 10.000,
frá ónefndum kr. 2.000, frá
H. H. A. kr. 5.000, frá K. A,-
H. H. kr. 1.500, frá Jónínu
Guðmundsdóttur kr. 1.500^
frá ónefndum kr. 500, fra
S. J. kr. 1.000, frá ÞE og
RS kr. 1.000, frá E. K. kr.
I. 000, frá M. S. kr. 2.000,
frá Jónínu Guðmundsd. kr.
1.500, frá S. S. kr. 500, frá
G. S. kr. 1.000, frá A. J. kr.
I. 000, frá sveitakonu kr.
500, frá N.N.X, kr. 2.000,
frá Kristínu kr. 1.000, frá
J. kr. 1.000, frá K. K. kr.
1.000, frá ónefndum kr.
1.000, frá konu kr. 1.000,
frá N. N. Dalvík kr. 3.000,
frá Í.Ó. kr. 5.000, frá F. P.
kr. 7.000, frá H. T. kr. 7.000,
frá N. N. kr. 1.000, frá n!
N. kr. 1.000, frá H. F. kr.
500, Jónína Guðmundsd.
kr. 1.500, S. S. kr. 700, frá
N. N. kr. 5.000, J. J. kr.
1.000, SS kr. 1.000, S. G.
kr. 1.000, P. L. kr. 1.000,
N .N. kr. 1.000, frá E. M. S.
kr. 2.000, frá N. N. kr. 1.500,
Þ. K. H. kr. 500, frá S. S.
kr. 500, frá H. H. kr. 1.000,
N. N. kr. 1.000, Sæmundur
Friðfinsson kr. 5.000, frá
S. V. kr. 600, Jónína Guð-
mundsdóttir kr. 500, S. S.
kr. 500, frá ónefndum kr.
20.000, Kr. B. kr. 1.000,
Baldvina Valdimarsdóttir
kr. 2.000. Samt kr. 144.100.
Gjafir þessar hafa allar
verið sendar
Höfum opnað nýja smur- og þjónustustöð að Fjölnisgötu 4 A
Oliuverslun Islands hf-
Olíufélagið Skeljungur hf-
jA5albjörg
Sunnudaginn 16. október lést að
heimili sínu Hólabraut 15 Ak-
ureyri ekkjan Aðalbjörg Ólafs-
dóttir rúmlega áttræð að aldri.
Hún átti við langvarandi van-
heilsu að stríða síðustu árin,
en var þó lengst af heima og
naut þar umhyggju og hjúkrun-
ar Kristbjargar dóttur sinnar.
Jarðarförin fór fram þriðju-
daginn 25. október.
Aðalbjörg fæddist í Ystagerði
í Saurbæjarhreppi 4. mars
1897, dóttir hjónanna Stefaníu
Stefánsdóttur og Ólafs Ólafs-
sonar. Þau bjuggu í Ystagerði
frá 1883 til 1907. Ólst Aðalbjörg
upp hjá foreldrum sínum, þar
til móðir hennar dó. Þá fluttist
hún til systur sinnar að Gils-
bakka í Hrafnagilshreppi. Þeg-
ar faðir hennar dó nokkru síðar,
var hún á fermingaraldri. Hún
mun hafa átt heimili á Gils-
bakka þangað til hún gifti sig.
Maður hennar, Steinþór Sigurðs
son, var fæddur á Kambhóli í
Arnarneshreppi. Þau hjónin
voru við búskap og þjónustu-
störf á nokkrum bæjum í Saur-
bæiar- og Hrafnagilshr. og á
Rútsstöðum í Öngulstaðahr.
bjuggu þau frá 1921 til 1927.
Þau eignuðust eina dóttur,
Kristbjörgu Pálínu. Steinþór
lést á Akurevri 1950. Hefur
Kristbjörg verið stoð og stytta
móður sinnar síðan eins og áð-
ur er fram komið.
Haustið 1933 fluttu þau hjón-
in til Akureyrar með dóttur
sína, er hafði verið fermd þá um
vorið. Þau fengu leiguíbúð hjá
okkur uppi á lofti í Aðalstræti
62. Voru þau hjá okkur í 15 ár
eða þann tíma, sem öll okkar
börn voru á bernskuskeiði. Það
elsta var fjögra ára, þegar þau
komu.
Ég lít svo á, að það hafi verið
happ fvrir börnin, að við feng-
um þetta fólk í húsið. Börnun-
um var tíðförult upp á loftið og
Ólafsdóttir |
þar var þeim ævinlega tekið
tveim höndum, sýnd nærgætni,
alúð og kærleiksþel. Þau virt-
ust eiga næstum eins mikið
heima þar eins og niðri hjá
mömmu og pabba. Of fá börn
eiga nú á tímum því láni að
fagna að alast upp með fólki,
sem þau finna hugarhlýju hjá
og velvild í garð allra. Slíkar
fyrirmyndir geta haft varanleg
áhrif á barnshugann.
Oft var gestkvæmt á loftinu
hjá Aðalbjörgu og Steinþóri.
Þau áttu marga vini og vensla-
fólk i Surbæjar. og Hrafnagils-
hreppum sérstaklega, og litu
margir inn til þeirra, er þeir
voru í bæjar- eða kaupstaðar-
ferðum. Greiðasemi og um-
hyggja var alltaf til reiðu hjá
þeim hjónum. Aðalbjörg virtist
hafa unun af að gera öðrum
gott og veita fyrirgreiðslu, ef
á þyrfti að halda. Hún mun
hafa verið talin af öllum, er til
þekktu góðhjörtuð kona. Kem-
ur þetta m. a. fram í eftirfarandi
skeyti, sem henni barst á sex-
tugsafmælinu:
Mikið var hún Góa góð
að gefa okkar litlu þjóð
sína björtu sólargeisla og mörgu.
Hinu skil ég ekkert í,
að hún skildi tíma því
að gefa svona góða Aðalbjörgu.
Aðabljörg var fædd á Góunni
og bjartir og fagrir sólskinsdag-
ar höfðu verið í röð á undan
afmælisdeginum í þetta skiptið.
Við hjónin og börn okkar eig-
um mikið af góðum minningum
frá þeim tíma. sem þessi góðu
hjón voru til húsa hjá okkur.
Fylgja línum þessum þakkir
okkar og bænir um farsæld
þeim til handa á hinu óþekkta
sviði.
Kristbjörgu dóttur þeirra
sendum við okkar innilegustu
hluttekningarkveðjur.
Ármann Dalmansson.
FRENCH FRIED
POTATO
OTI mjræ*
I I
FRANSKAR
KARTÖFLUR
4 OZ DÓSIR - VA 01 DÓSIR
^Xjörbúðir
6•DAGUR