Dagur - 11.11.1977, Side 8
DAGUR
Akureyri, föstudagur 11. nóv. 1977
RAFGEYMAR
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA
VELJIÐ RÉTT
MERKI
Mikið er nú um að vera á
Laugalandi í Öngulstaðahr.
Rifkclsstoðum 3. nóvember. A
Laugalandi er mikið um að vera
nú og hefur verið í allt sumar
sem leið á vegum Hitaveitu Ak-
ureyrar. Þar er nú unnið með
tveim jarðborum. Dofri borar
suður og upp af íbúðarhúsi
prestsins og er kominn um 1500
metra niður, en ekkert vatn er
þar enn en einhver hiti. Ráðgert
er að bora allt að 2000 metra ef
þarf. Narfi er að lagfæra virka
borholu niður undir flata og á
að laga fleiri holur þarna.
Þá er unnið af fullum krafti
við dæluhúsið, sem er mikil
bygging og einnig er verið að
einangra leiðsluna til bæjarins
og er þetta hvort tveggja vel á
veg komið.
En þótt hitaveituframkvæmd-
ir setji mikinn svip á allt á
• Alltaf verða
þeir sér til
skammar
Lítinn trúnað líefur þetta
blað löngum lagt á eltlgosa-
spádóma jarðfræðinganna. í
sambandt við Kröfluvirk'un
og Kísiliðiu í Mývatnssveit.
Þar kom þó, að ritst.i. gtóðst
ekki samhHóða spádóma um
eldgos „eftir þriá eða fióra
daga“ og brá sér austur. Að
s5álf«ögðu voru líkurnar til
þess að s.iá eldgosið aðeins
50%, þar sem um tvo daga
var að ræða. En niður=taðan
varð sú, að hvorki þann dag
né hinn næsta lo«nuðu iarð-
eldar austur þar og hafa ekki
enn gert.
Laugalandi, er fleira þar sem
er minna áberandi, því þar er
barnaskóli hreppsins. Skóla-
stjóri er frú Edda Eiríksdóttir.
Skólinn hófst á venjulegum
tíma, en svo varð hálfs mánaðar
hlé vegna verkfallsins. Bömin
eru nær 50 talsins þegar allt er
heimt. Þau ljúka sjö fyrstu
bekkjum grunnskólans þar, en
tveim síðustu bekkjum í Hrafna
gilsskóla. Börnum er ekið til og
frá skóla og telja flestir það
besta fyrirkomulagið.
Á Laugalandi var einnig
kvennaskóli sem starfaði með
miklum blóma lengi vel. En í
fyrravetur og vetur var þar
enginn skóli vegna þess að ekki
fengust nægilega margir nem-
endur. Þetta telja menn ljóð á
ráði ungra kvenna og vona að
það sé stundarfyrirbæri og að
senn fyllist skólinn á ný af
horskum meyjum sem sæki
þangað hagnýta menntun í
kvenlegum fræðum og e. t. v.
upphaf að sinni lífshamingju.
Tvö undanfarin sumur hafa
náttúrulækningamenn haft þar
hvíldar- og hressingarhæli fyrir
aldrað fólk við góðan orðstír.
Nú er þar mötuneyti og húsnæði
fyrir þá, sem vinna við hitaveit.
una. Að öðru leyti er þetta
stóra og góða skólahús í eyði,
þó það sé í einu veðursælasta
og besta héraði landsins, hæfi-
lega langt frá höfuðstað Norður-
lands, í örskotsfjarlægð frá
góðu félagsheimili og rétt hjá
ágætri útisundlaug, sem er svo
heit, að kennt er þar skóla-
börnum um háveturinn.
Ekki veit ég betur en búskap-
ur gangi mjög sæmilega hér í
hreppi. Nýliðið er gjöfult og
gott sumar. Veturinn heilsaði
vel. Menn eru önnum kafnir við
haustverk og hafa ekki tíma til
að fara í verkfall. Félagslíf er
lítt vaknað enn, nema sauma-
klúbbar kvenna. Ein þrjú íbúð-
arhús eru í smíðum í sveitinni,
eitt fjós og viðbyggingar og
a. m. k. tvær heyhlöður. J. H.
Samningur um vöruskipti
yfir skömmu var undiiTÍtaður í Moskvu samningur um
vöruskipti á milli Sambands íslenzkra samvinnufélaga
og Samvinnusambands Sovétríkjanna, Centrosoyus. Gildir
samningurinn fyrir árin 1977 til 1980.
Sovétríkjanna samkvæmt þess-
um samningi eru alls konar
skinnavörur, værðarvoðir og
prjónavoðir úr ull. Prjónavör-
urnar verða að mestu leyti fram
leiddar hjá prjónastofum víðs
vegar um landið. Sambandið
Hér er um að ræða fyrsta
Iangtíma viðskiptasamning, sem
samvinnusambönd þessara
landa hafa gert með sér. Á
fyrsta ári er gert ráð fyrir 400
milljón króna viðskiptum á
hvora hlið, sem fari síðan vax-
andi á samningst'mabilinu.
Helztu vörutegundir, sem
Sambandið mun flytja út til
kaupir aftur á móti gasolíu og
ýmsar matvörur frá Samvinnu-
sambandi Sovétríkjanna.
Kúludráttur er í Öxarfirði
Sandsbæirnir í Öxarfirði og
Núpur hafa komið sér upp nýrri
vatnsveitu og sóttu bændur
vatnið um langan veg, að Þverá.
Skortur á vatni á þessum bæj-
um hefur verið tilfinnanlegur,
einkum eftir jarðskjálftana
miklu. Búa þessir bæir allir nú
við gott vatn og nægilegt, sagði
fréttaritari Dags á Kópaskeri,
Olafur Friðriksson, kaupfélags-
stjóri í gær.
Á mánudaginn voru rækju-
miðin í Öxarfirði opnuð. Fjórir
bátar héðan hófu þegar veið-
arnar og hafa aflað ágætlega.
Lítið er um seiði í aflanum. í
rækjuvinnslunni hjá okkur er
unnið á tveim vöktum og eru
12 á hvorri vakt. Það sem stað-
urinn er ekki stærri en raun
ber vitni, er þetta mikill og
kærkominn atvinnuauki.
Nú er komin nokkur snjór,
kúludráttur fyrir fólksbíla í
Öxarfirði og ofantil í Keldu-
hverfi. Svipaður snjór var á
Sléttu, en vegurinn þar var
mokaður að hluta, en því miður
ekki allur, því ófært verður
strax ef eitthvað rennir.
Bændur hafa tekið fé í hús
og telja ekki æskilegt að beita
vegna þess hve snjórinn er mik-
ill.
Rjúpnaskyttur fóru strax að
huga að rjúpum, þegar leyfðar
voru veiðar í haust. En bænd-
ur segja mér, sagði fréttaritar-
inn, að lokum, að lítið sé um
rjúpu og því hafa rjúpnaveiðar
lítið verið stundaðar.
Vetraráætlun Flugleiða
Vetraráætlun millilandaflugs
Flugleiða gengur í gildi í dag,
1. nóv. Áætluriin er svipuð og
síðastliðinn vetur og verða ferð
ir flugvéla Loftleiða og Flug-
félags íslands sem hér segir:
Til Kaupmannahafnar verður
flogið alla daga, til Oslo eru
flug tvisvar í viku á þriðjudög-
um og sunnudögum, til Gauta-
borgar verður flogið á laugar-
dögum. Til London verða þrjú
flug í viku, á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum.
Til Glasgow verða fiögur flug í
viku á mánudögum, miðviku-
dögum, föstudögum og laugar-
dögum, til Luxenborgar verða
daglegar ferðir og tvær ferðir
á miðvikudögum og föstudög-
um. Til New York verða ferðir
daglega, til Chicago verður
flogið á þriðjudögum og fimmtu
dögum. Til Færeyja verða ferð-
ir á fimmtudögum og sunnu-
dögum.
Auk þeirra ferða sem að fram
an greinir og eru fyrst og fremst
flug með farþega, verða sér-
stakar vöruflutningaferðir til og
frá Kaupmannahöfn einu sinni
í viku, þ. e. á mánudögum.
Flogið er til og frá Keflavíkur-
flugvelli nema til Færeyja,
þangað er flogið frá Reykjavík-
urflugvelli og um Egilsstaði í
báðum leiðum á sunnudögum.
Milli Nassau á Bahama og
Luxenborgar flýgur þota Inter-
national Air Bahama þrjár ferð
ir í viku. Auk þess verða farin
allmörg leiguflug á þessari leið
Frá Kynningardeild Flugleiða
hf., Aðalskrifstofu, Reykjavík-
urflugvelli.
Víða um land er nú efnt til
skoðanakönnunar, prófkjörs
og jafnvel bindandi próf
kjörs, vegna næstu alþingis-
kosninga. Margt mælir gegn
því að sundra kröftunum
vegna innbyrðis ósamkomu
lags, en prófkjör eða skoðana-
kannanir, sem eru með ýmsu
móti framkvæmdar, eru hins-
vegar trygging fyrir þá, sem
þyk:ast órétti beittir innan
flokks síns um val frambjóð-
enda. Framsóknarmenn í
Norðurlandskjördæmi eystra
samþykktu sinn framboðs-
lista alveg einróma á kjör-
dæmisþingi sínu um síðustu
helgi. Það er eflaust mikill
styrkur í flokkspólitísku
starfi að standa jafn einhuga
að framboðinu og hér varð.
Frá kjördæmisþinginu er
sagt í forystugrein blaðsins
í dag.
• Húsmóðir
hefur orðið.
í Gerðaliverfunum er mikið
af ungum flækingsköttum,
sem sitja um að komast inn
um opna glugga, hvar sem
þeir geta. Þetta eru húskett
ir, sumir með ól um hálsinn,
án allra upplýsinga um eig-
andann og er því ekki hægt
að láta þá vita. Það er nú
það minnsta, sem kattaeig-
endur geta gert, að hafa háls-
band á köttum sínum — með
símanúmeri eða hús og götu
númeri — svo auðveldara sé
að hafa uppi á cigendunum,
ef dýrin fara á flæking. Þess-
ari ábendingu er hér með
komið á framfæri til eigenda
hinna mörgu katta.
• Neyðin ekki
nógu stór
í nýlegu verkfalli var síma
þiónusta í sveitum heldur
bágborin, þar sem um hand-
virkan síma var að ræða.
Það bar þá við í Kollavík í
Þistilfirði, að kýr beiddi og
þurfti að ná í friótækninn.
Neyðarvakt var á símstöðv-
unum og gefið samband við
lögreglu og lækni, manna og
dýra o. s. frv. En óljóst var,
hvc neyðin þyrfti að vera
stór til að veita undanþágu.
Kona á neyðarvaktinni var
beðin að gefa samband við
fr5ótækninn og hafði hún
málið til meðfcrðar lengi
dags en úrskurðurinn féll á
þann veg, að neyðin væri
ekki nógu stór og hafnaði
ósk bóndans, sagði fréttarit-
ari.
Dýrahjúkrunarkonan Sigfríð
Þórisdóttir, kemur til Akur-
eyrar og verður hér stödd
dagana 19. og 20. nóvember.
Sigfríð liefur klippt hunda,
snyrt þá og lagt á ráð um
meðferð hunda og uppcldi
hvolpa. Ef einhverjir af hin-
um mörgu hundaeigendum
á Akureyri hafa áhuga á því
að leita til hjúkrunarkon-
unnar, geta þeir hringt í
síma 22537 og 22505. Hundar
munu nýhreinsaðir þegar
hjúkrunarkonan kemur norð
ur og eflaust vilja einhverjir
eigendur þeirra fræðast af
henni og njóta aðstoðar
hennar.
• Framboðslistinn
á Austurlandi
Framboðslistinn á Austur-
landi til næstu alþingiskosn-
inga hefur verið birtur. Efstu
sætin skipa cftirtaldir fram-
bjóðendur: — Vilhjálmur
Hjálmarsson, menntamála-
ráðherra, Tómas Árnason,
alþingismaður, Halldór Ás-
grímsson, alþingismaður, Jón
Sigurðsson, innkaupastjóri,
Egilsstöðum, séra Þorleifur
Kristmundsson, Kolfreyju-
stað og Kristján Magnússon,
sveitarstjóri, Vopnafirði.
Framboðslistinn var sam-
þykktur á fjölmennu kjör-
dæmisþingi í Austurlands
kjördæmi.
• Hver situr
við stýrið.
Nýlegur stjórnmálaþáttur í
sjónvarpinu varð enn einn
vonbrigðaþátturinn á þeim
vettvangi. f lok umræðunn-
ar var hver og einn viðmæl
andi í sjónvarpssal spurður
að því, hvernig snúast ætti
við verðbólgunni á íslandi,
áður en efnahagslífið færi í
rúst Þeim varð ekki svara-
þátt, aiþingismönnunum og
fyrrverandi ráðherrum, sem
auk þess voru formælendur
sinna stiórnmálaflokka og
lögðu fram svo sem þrjú
hollráð hver um sig. Sam-
kvæmt því mun þingheimur
með 60 alþingismenn eiga
svo sem 180 leynivopn og er
það ekki svo lítið. Hinsveg-
ar er það mál manna, að
þeim hóllráðum eða vopnum
megi ekki beita fyrr en hús-
bóndinn segir til. En hver er
þá húsbóndinn á þjóðarheint
ilinu? Sumir eru svo vondir
cða glámskyggnir að segja,
að þar sitji verðbólgan sjálf
og stjórni landinu.