Dagur - 16.11.1977, Page 5
Útgcfandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Hafnarstræti 90, Akureyri
Simar: Ritstjóm 11166, Augl. og afgrciðsla 11167
Ritstj. og ábyrgðarm.: ERLINGUR DAVÍÐSSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prcnlun: Prcntverk Odds Bjömssonar hf.
Friðsamlegir
landvinningar
Margar þjóðir hafa aukið landirými
sitt með hemaði, svo sem gömul og
ný saga hermir. íslendingar hafa á
síðari ámm einnig aukið við land
sitt og þar með lífsrými og mögu-
leika til góðrar afkomu fyrir núlif-
andi kynslóð og þær næstu og það
ekkert óvemlega, en ekki með her-
valdi gegn öðram þjóðum, heldur
samræmdum aðgerðum á opnum
vettvangi þjóðanna og eigin löggjaf-
arþingi, og er þar átt við útfærslu
fiskveiðilögsögunnar út í 200 sjó-
mílilr, sem nú er viðurkennd stað-
reynd. Þar með hefur þjóð í norð-
lægu eylandi öðlast umráðarétt á
þeim fiskimiðum umhverfis land,
sem erlendar þjóðir nytjuðu áður að
hálfu. Þetta tókst í mörgum áföng-
um, þrátt fyrir hótanir og þvingun-
araðgerðir erlendra þjóða og ofbeld-
isaðgerða Breta.
Sagan sýnir okkur, að í öllum
meiriháttar áföngum til að öðlast
yfirráð yfir fiskimiðunum umhverfis
landið, höfðu framsóknarmenn for-
göngu í þessu máli. Það var engin
tilviljun, að Framsóknarflokkurinn,
undir stjóm Ólafs Jóhannessonar,
gerði landhelgismálið að mesta bar-
áttumáli og stefnumáli flokksins við
síðustu alþnigiskosningar og fylgdi
því þann veg eftir, að fullnaðar sig-
ur vannst. Þessi sigur var ekki aðeins
eitthvert mesta hagsmunamál þjóðar-
innar, heldur einnig sjálfstæðismál
hennar. Þessa forystu ber að virða og
viðurkenna, um leið og stuðnnigur
annarra stjómmálaflokka, stjóm-
málamanna og landsmanna allra er
þakkaður.
í stefnuræðu forsætisráðherra okk-
ar á Alþingi nú fyrir skemmstu
komst ráðherrann réttilega svo að
orði um þetta mál:
í upphafi síðasta þings gerði ég
grein fyrir lokaáfanga þeirrar stefnu,
að íslendingar fengu full yfirráð yfir
200 mílna fiskiveiðilögsögunni. Ár-
angur þeirrar stefnu kemur skýrt
fram þegar litið er til afla útlend-
inga við ísland á þessu ári í saman-
burði við 1976. f ágústlok sl. höfðu
útlendingar veitt hér við land 8.000
tonn af þorski frá því í ársbyrjun,
en 50.000 tonn á sama tíma í fyrra.
Ég læt þetta litla dæmi nægja til að
sýna árangurinn af stefnunni í land-
helgismálinu. Það minnir okkur á,
að löngum veiddu aðrar þjóðir helm-
ing eða meira af þorskaflanum hér
við land. Nú sitjum við einir aíS
þeirri auðlind. Við náðum markmiði
okkar að lokum með samkomulagi
við nágrannaríkin, sem við emm í
bandalagi við. 'Með þessum hætti
hefur undirstaða þjóðarbúsins verið
tryest stórlega, og framtíðin er þess
vegna bjartari en ella.
Gömul og ný
ftirfarandi grein er uppistaða úr erindi, sem flytja átti á
-i ráðstefnu Framsóknarflokksins í Reykjavík 11. nóvem-
ber 1977. Mjög er stuðst við bók Áskels Einarssonar, Land í
mótun, við samningu þess.
Hvað er byggðastefna?
Það er og var oft sagt að
byggðastefna sé það að tryggja
að hver landshluti og byggð
þróist efnahagslega, imenning-
arlega, og að hlutfallslegri íbúa-
tölu svo sem hún hefir kosti til.
En við þessa skilgreiningu er
það að athuga, að kostimir, sem
hver sveit eða landshluti hefur,
eru ekki nema að nokkru leyti
fólgnir í landinu sjálfu. Heldur
er það þjóðfélagsgerðin og
skipulag mannanna sem ræður
þessum kostum og gæðum engu
að síður en náttúran sjálf. Það
er því ef til vill réttara að segja,
að byggðastefna sé það að ákapa
það ástand, að mannfólkið, sem
land þetta byggir, hafi nokkuð
jafna tilhneigingu til að velja sér
búsetu, hvort heldur er sunnan
lands, vestan, austan eða norð-
an. Hver þessi skilyrði eða að-
stæður þurfa að vera er mjög
breytilegt frá tíma til tíma. —
Kemur þar ekki síst til hvað
talið er manninum eftirsóknar-
vert.
Fyrstu níu aldir íslandsbyggð-
ar var bvggðastefna allsráðandi.
Valdamiðstöðvar voru margar
og dreifðar. Þær voru lengst af
höfuðból sveitanna, aðsetur
höfðingja andlegra eða verald-
legra. Landið skiptist í fjórar
nokkuð jafn áhrifamiklar heild-
ir sem héldu jafnræði á Alþingi.
Innan fjórðunganna var einnig
jafnræði milli vorþinganna.
Með stofnun biskupsstóls í
Skálholti var gerð tilraun til
samfærslu valds í landinu, sem
styrkja átti með menningar-
miðstöð á staðnum og síðar með
upptöku tíundarlaga. Stofnun
klaustranna og dreifing þeirra
um landið dró þó nokkuð úr
þessum áhrifum. Og gamla
höfðingjastéttin, sem var tiltölu
lega fljót að smeygja sér inn í
valdakerfi kirkjunnar, hélt um-
ráðaréttinum yfir landinu lengi
í sínum höndum. Það hefir
heldur áreiðanlega ekki verið
trúræknin ein, sem gerði það
að verkum, að Norðlendingar
knúðu fram stofnun biskups-
stóls að Hólum, áður en ára-
tugur leið frá upptöku tíundar.
Ekki ler vafamál að .stofnun
biskupsstóls og skóla á Norður-
landi hefur allt til okkar tíma
styrkt byggðavitund í landinu
og istyrkt íslenska þjóðernis-
kennd. Á Sturlungaöld gerðu
kappmiklir höfðingjar heift-
úðuga tilraun til samfærslu
valds, með árangri sem varð
annar en þeir ætluðu í upphafi.
Með siðaskiptunum varð að
sjálfsögðu mikil breyting, þeg-
ar eignir kirkjunnar gengu til
konungs, svo ekki sé talað um,
er verslunin var seld á leigu
eða einokuð. Að lokum varð
eigi umflúið að allt færi í einn
stað. Báðir biskupsstólamir
voru lagðir niður og fluttir til
Reykjavíkur og skólarnir til
Bessastaða. Alþingi lagt niður
en landsréttur stofnaður. End-
urreist alþing fært til Reykja-
víkur. Valdamiðstöðin ein.
Rækileg drög voru þar með
lögð að höfuðborginni.
Eftir að ömtin komust í tengsl
við sveitastjórnarkerfið með
aðild sýslanna rættist þó aftur
nokkuð úr og framtak því sam-
fara kom í ljós.
Gagnfræðaskóli var stofnaður
að Möðruvöllum húsmæðra-
skóli í Húnavatnssýslu og bún-
aðarskólar á Hólum og Eiðum
og félagssamtök um verslun
voru stofnuð á Norðurlandi.
Með afnámi amtanna var aftur
horfið frá því að byggja upp
landshlutana sem sjálfstæðar
heildir. Ákvörðunin um inn-
lendan ráðherra og stjórnarráð
fyrir ísland, sem skyldi, auk
heildarstjórnunarstarfa, taka
við störfum amtanna, innsiglaði
þá stefnu, sem einkennt hefir
tuttugustu öldina. Afnám vald-
dreifingar. Ekkert form eða leið
andi kerfi var til, sem þegar á
uppbyggingarskeiði íslensks at-
vinnulífs, gætti þess að viðhalda
aldagamalli jafnvægishefð í
byggð landsins. Verkefnaskipt-
ing myndaðist fljótlega milli
landsbyggðar og þjónustukjarn-
ans í Revkjavík.
Þar voru stjórnsýslu- og fjár-
málastofnanir. Þar þróuðust
þjónusta og viðskipti. Aðalsam-
göngur við útlönd voru einnig
þaðan og þangað. Hafnarskil-
yrði voru bar góð og tiltölulega
stutt á góð fiskimið. Með skútu
öldinni og síðan togaraútgerð-
inni tók Revkjavík forvstu í at-
vinnumálum um langt skeið.
Góð fiskimið og góð hafnarað-
staða voru að vísu til víðar, en
þar vantaði drifkraftinn, —
stjórnar- og fjármálastofnanir
ásamt þjónustu. Nokkur gróska
varð þó víða um land í tengsl-
um við vélbátaútgerð, en með
aukinni ágengni togara á grunn
slóðum og breyttum þjóðlífshátt
um dró þó fljótt úr þeirri
grósku. Eina mótvægið voru
síldarstaðirnir og kaupfélögin.
Lengi framanaf var samt ágóði
síldarævintýrisins fluttur burtu
fyrst til útlanda og síðar ýmist
til útlanda eða annað. Síldar-
gróðinn gat líka og reyndist
stopull. Vegna þess hvernig
ágóða síldarævintýrisins var
ráðstafað varð hann ekki sú
lyftistöng sem hefði mátt
vænta.
Hinsvegar reyndust kaupfé-
lögin sterkasta aflið til að halda
fjármagninu í byggðum lands-
ins. Með stofnun þeirra og fé-
lagslegri þátttöku fólksins í
rekstri þeirra var komið í veg
fyrir að við hver kynslóðaskipti
í atvinnurekstri og verslun yrði
blóðtaka fyrir byggðirnar, þeg-
ar einstaklingar fundu aðrar og
sér hagkvæmari leiðir og staði
til að ávaxta fjármagnið. Að
vísu voru möguleikar kaupfé-
laganna til að komast yfir og
eignast fjármagn næsta litlir.
Lengi vel ekki annað fjármagn
en það, sem íbúarnir sjálfir
trúðu þeim fyrir og því ekki af
miklu að taka. Auk þess voru
gerðar ítrekaðar tilraunir til að
ræna kaupfélögin og samtök
þeirra því trausti, sem íbúarnir
báru til þeirra. Vegna fjárskorts
varð því hlutur kaupfélaganna
víða að mestu í því fólginn að
treysta landbúnaðinn með því
að bæta hag bænda, en á því
var mikil þörf. Þau knúðu þó
yfirleitt til fjárfestingar í
vinnslustöðvum landbúnaðarins
og nokkuð í fasteignum vegna
verslunar. Það var ekki nema
á nokkrum stöðum sem þau
gátu fjárfest í öðrum atvinnu-
greinum. Enda kannske skilj-
anlegt þar sem þau voru yfir-
leitt borin uppi af bændum.
Það var eigínlega ekki fyrr
byggðastefna
en eftir stríð sem þau hófu af-
skipti af uppbyggingu sjávarút-
vegs. Á uppbyggingu þeirra og
öðru félagslegu framtaki heima
manna hefir varnar og sóknar-
barátta landsbyggðarinnar hvílt
síðustu áratugina. Vegna póli-
tískrar andstöðu sterkra afla í
þjóðfélaginu, sem meira og
minna hafa ráðið yfir fram-
kvæmdafjármagninu, hafa kaup
félögin ekki aukið eðlilega þátt
töku sína í þessari uppbygg-
ingu. En félagshyggjan hefir
fundið aðrar leiðir. Byggðahluta
félögin er hinn nýi vettvangur.
Hlutafélög þar sem burðarás-
arnir eru sveitarfélögin og kaup
félögin, sem bera mestu fjár-
hagsábyrgðina oft að jöfnu, en
#
Sigurður Óli Brynjólfs-
son ræðir byggðastefnu
fyrr og nú.
einstaklingar sem leggja fram
ýmsa kunnáttu eða fjármagn
hafa þó sín áhrif. I þessum
byggðahlutafélögum sameinast
hin félagslega vitund og staðar-
leg skylda við byggðarlögin,
ásamt þeim sóknarhvata, sem
sækir til arðsemi í rekstri fólk-
inu til hagsbóta. Fyrmefnd póli
tísk öfl hafa enn sem komið er
litið þessi félög öðrum augum
en kaupfélögin og er gott með-
an þau reyna ekki að setja fót-
inn fyrir þau einnig. Þessi öfl
kalla þetta gjarnan einkafram-
tak. En hvað um það. Aðalat-
riðið er að þetta er byggðafram-
tak sem byggir á áþekkri fé-
lagshyggju og kaupfélögin, vel-
ferðarhyggju íbúanna. Þetta
form hefir sýnt ágæti sitt og
leyfist mér að nefna sem dæmi
Utgerðarfélag Akureyringa hf.,
Fiskiðjusamlag Húsavíkur og
skagfirsku útgerðina. f fram.
haldi af tali um kaupfélögin má
nefna sem dæmi um sóknarafl
valdamiðstöðvarinnar í Reykja-
vík að átthagaelskir norðan-
menn, er höfðu forustu fyrir
Sambandi íslenskra samvinnu-
félaga, sem stofnað var fyrir
norðan sáu sig tilneydda að
flytja miðstöð þess til Reykja-
víkur. Þessar rætur sambands-
ins slitnuðu þó ekki, og eru úr-
vinnsluiðnaður Sambandsins á
Akureyri gott dæmi um það.
í lok fjórða áratugs þessarar
aldar var meiri byggðaró en
verið hafði. Afurðasölulögin,
vinnslustöðvar landbúnaðarins
höfðu bætt búsetuskilyrði í
sveitum og atvinnuleysi stærstu
þéttbýlisstaðanna hélt aftur af
vexti þeirra og fleiri aðgerðir
stuðluðu þar að. En hörmungar.
skeið sauðfjárveikinnar var að
hefja innreið sína og með her-
námi íslands 1940 og síðan varn
arsamningum við Bandaríkin
varð bylting í efnahagslífi þjóð-
arinnar. Af styrjaldarástandinu
leiddi enn aukna miðstýringu
og stríðsgróðinn, sem, að lang-
mestu leyti varð á suðvestur-
landinu, var meira en lands-
byggðin þoldi. Með vaxandi um-
svifum í byggingariðnaði fyrir
herinn og stríðsgróða og auk-
inni kaupgetu uxu þjóðfélags-
umsvif ríkisins og samfélags-
stofnanna í Reykjavík en lands-
byggðinni blæddi. Þegar að
stríðinu loknu voru uppi í öðr-
um löndum ráðagerðir um sér-
stakar byggðaáætlanir, sem
hluti endurreisnarinnar. En hér
á landi var lítið um slikt að
ræða. í tíð nýsköpunarstjóm-
arinnar var togurunum að
nokkru dreift um landið. En
landsbyggðin var illa í stakk bú-
in að taka við þeim. Þeir urðu
að sækja alla sína þjónustu til
Reykjavíkur og röng gengis-
skráning og lágt fiskverð til
togaranna olli slíkum erfiðleik-
um í rekstri þeirra að flestir
staðirnir gáfust upp á þeirri út-
gerð. Þessi atvinnutæki soguð-
ust því flest á ný til Reykja-
víkur beint eða óbeint. Undan
má þó skilja togaraútgerð frá
Akureyri og Neskaupsstað.
Ekki er þó vitað nema lands-
byggðin hefði snúist til varnar
og staðið sig, ef ekki hefði kom-
ið hin gífurlega innspýting í
suðvesturhomið með varnarliðs
framkvæmdunum á Reykjanesi.
Sagt var að sumir þingmenn
hefðu talið það sér til ávinn-
ings að hafa fastan og góðan
kvóta fyrir mannaráðningar ut-
an úr kjördæmunum á Völl-
inn. Á meðan var haldið fram
uppbyggingu á oðrum sviðum
við Faxaflóa. Það er samt á þess
um árum eftir 1950 að stjórn-
völd sjá að ekki varð lengur
komist hjá aðgerðum. Þá var
sett á fjárlög atvinnuaukafé,
sem skipt var upp í lánsformi,
og gekk fyrst og fremst til út-
gerðar. Á þessum árum var mót
virðissjóðum breytt í banka,
Framkvæmdabanka íslands,
sem var forveri framkvæmda-
sjóðs. Atvinnuaukafé var á fjár-
lögum þar til myndaður var at-
vinnubótasjóður og síðar at-
vinnujöfnunarsjóður m. a. með
framlögum úr mótvirðissjóði.
Á dögum stjórnar Ólafs Jó-
hannessonar var svo Byggða-
sjóður stofnaður með föstu fram
lagi úr ríkissjóði og láhsheim-
ildum úr framkvæmdasjóði. í
tíð núverandi stjórnar var rík-
issjóðsframlag til sjóðsins hækk
að mjög og er nú 2% af fjár-
lögum.
Það er mikið talað um hver
röskun hljótist af Byggðasjóði
og ekki er ástæða til að telja úr
að fjármagn hans sé áhrifamik-
ið í vissum skilningi. En sé
lánsfjáráætlun fjárfestingar-
sjóða fyrir árið 1977 skoðuð,
sést að útlán þeirra voru áætl-
uð 18,39 milljarðar, og þar af
eru lán Byggðasjóðs 1,8 mill-
jarður, eða innan við 10% af
heildarútlánum þeirra. Sé mið-
að við lánasjóði, sem lána til
atvinnuveganna eru útlán hans
um 15%. Samkvæmt lánsfiár-
áætlun 1977 er heildarfjármögn
unaráætlun yfir 85 milljarða og
áhrif Byggðasjóðs rúm 2% af
heildar fjármögnun í landinu.
Þetta sýnir á ljósan hátt hve
lítið fjármagn Byggðasjóðs væri
ef því væri dreift á heildarkerf-
ið.
Hins vegar getur hún haft af-
drifarík áhrif á fámenn byggða
lög út um land, sem standa höll-
um fæti. Og áhrifin hafa þegar
sagt til sín. En það er eitt enn
sem mönnum hefir yfirsést í tal
inu um áhrif Byggðasjóðs, en
það er vitneskjan um hugarfar
stjórnvalda. Sú vitneskja fólks-
ins að breytinga sé að vænta á
þeirri stefnu sem haldið var
uppi og lýst hefir verið. Þessi
vitneskja og trú hefir aukið
kjark og áræði fólksins og jafn-
vel fjármálaspekúlantar eru
farnir að átta sig á því að fjár-
festing í atvinnuvegunum út
um land sé ekki síður gróða-
vænleg en á höfðurborgarsvæð-
inu.
Það er raunar alger óþarfi að
líta öfundaraugum til fjármagns
þess sem í Byggðasjóð rennur.
Þetta er ekki nema lítill hluti
af því mikla fjármagni, sem til
höfuðstöðvanna hefir streymt,
meðan hún var að vaxa. Eitt-
hvað álíka og það sem Danir
skiluðu við sambandsslitin, eft-
ir að hafa byggt upp Kaup-
mannahöfn og lýst hana upp
með floti og lýsi frá íslandi. En
svo var mér kennt í bamaskóla.
En þótt uppbygging atvinnu-
veganna út um land sé þjóð-
inni mikilvæg, þá má þó hinu
ekki gleyma að ríkisvaldið er
umsvifamesti atvinnurekandi
þjóðarinnar og því hefur rekst-
ur þess gífurleg áhrif á fram-
boð og eftirspum vinnuafls.
Þjónusta og rekstur, sem henni
er samfara hefur því mjög mikil
áhrif á búsetu þjóðarinnar eftir
því hvernig henni er fyrir. kom-
ið.
Þótt fátækt þjóðarinnar og
getuleysi hennar fyrst eftir að
heimastjórn komst á og með
auknum félagslegum áhuga,
sem reyndar var byrjaður fyrr,
varð hún að láta sér
nægja eitt eintak af hverri nýrri
þjóðlífsstofnun, má slíkt að sjálf
sögðu ekki halda áfram. Þess-
um stofnunum var valinn stað-
ur í Reykjavík, hvort heldur
þær skyldu þjóna allri þjóðinni
eða dreifðum byggðum. Það var
helst í skólamálum á lægri skóla
stigum að önnur stefna réði.
Stofnun menntaskóla á Akur-
eyri 1928 þótti sérstakt og
frekjulegt tiltæki, sem talin var
óráðsía
Dreifing þjónustustofnana rík
isins og auka kostnaður henni
samfara fyrst í stað verður því
innan skamms að falla undir
verksvið Byggðasjáðs. annars
verður hann alm. sjóður en ekki
Byggðasjóður. Munurinn á því
að verja fé til atvinnufyrirtækja
og atvinnuuppbyggingar, að
hefðbundnu mati á þeim orð-
um, og því að verja fénu til
þjónustudreifingar liggur í því
að framkvæmdafé er yfirleitt
beint til tímabundinnar fyrir-
greiðslu en ekki varanlegrar.
Þar sem þjónustan er hinsveg-
ar fastur starfræksluliður um
fc.'.
m
Skiðaskór
f. börn og fullorðna
Góðar vörur -
Goft verð
Póstsendum
Símaskráin 1978
Tilkynning til símnolenda á Akureyri
og nágrenni
Áætlað er að símskráin fyrir árið 1978 komi út
fyrri hluta ársins, og er áríðandi, að þeir síma-
notendur sem vilja koma breytingur í hana, til-
kynni það sem allra fyrst og eigi síðar en 25.
nóvember n.k. á skrifstofu Landssímans, Hafnar-
stræti 102.
UMDÆMISSTJÓRI.
Bingó verður
í Sjálfstæðishúsinu sunnu-
daginn 20. nóv. kl. 8.30.
Margir glæsilegir vvinningar, s. s. litasjónvarp,
heimilistæki og fatnaður frá lcelook.
Hinir frábæru Halli og Laddi skemmta.
Tískusýning á fatnaði frá lcelook.
Allir á bingó í Sjallanum! SRA
ókomin ár. Rekstrarútgjöld
stjórnkerfisins fara yfirleitt vax
andi, en hreyfanlegir fram-
kvæmdaliðir eru rýrðir, eftir
því sem atvinnulíf annað blómg-
ast. Flestar þjónustustofnanir
ríkisins hafa byrjað smátt. En
samkvæmt hagstjórnarlögmál-
um valdaaðila sem við þær
starfa þykir sjálfsagt að auka
við þær í höfuðstaðnum. Sum-
ar þessar stofnanir eru áreið-
anlega yfirvaxnar á mælikvarða
þjóðarinnar og væri þeim og
öllum holt að um tvískiptingu
beirra yrði að ræða.
Ég hefi ekki rakið áhrif
byggðasjóðs eða annara opin-
berra sjóða á einstök byggðar-
lög. Hitt vildi ég hafa getað
sýnt fram á að slíkur sjóður er
og verður í náinni framtíð að
teljast eðlilegur miðað við þá
þróun sem átt hafði sér stað,
um langan aldur.
Auglýsing um uppboð
Að kröfu innheimtumanns ríkissjóðs, bæjarsjóðs
Akureyrar og ýmissa lögmanna og samkvæmt
lögtaks- og fjárnámsgerðum fer fram nauðung-
aruppboð á hinum lögteknu og fjárnumdu lausa-
fjármunum við lögreglustöðina á Akureyri föstu-
daginn 25. nóvember 1977 kl. 16.00.
Eftirtalið verður selt:
Bifreiðarnar A-1648, A-1675, A-2616, A-3273,
A-3387, A-3489, A-4244, A-5061, A-6284, B-892
og R-28242. Ennfremur verslunarinnréttingar,
gastæki, hitari, slöngur, ritvél, Linhoff myndavél
og stækkari og Meopta stækkari, Normende út-
varpsfónn, frystiskápur, ísskápur og ískista o. fl.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
UPPBOÐSHALDARINN Á AKUREYRI.
14. nóvember 1977.
en þeir sem eru áskrifendur HEB fá senda sjálfa Bókaskrána sem er 44 blað-
síður að stærð. Þar er að finna mikinn aragrúa allskonar bóka sem áskrif-
endur eiga kost á að eignast með sérstökum vildar kjörum. Tímaritið HEIMA
ER BEZT er þjóðlegt heimilisrit sem nýtur mikilla vinsælda um land allt.
Áskriftargjald fyrir yfirstandandi árgang er aðeins kr. 2.000 fyrir 12 tölublöð
auk Bókaskrár. Það er fljótt að borga sig að vera í hópi þúsunda áskrifenda
HEIMA ER BEZT. Nú er upplagt að nota tækifærið og fá um leið meira en
„reykinn af réttunum"
Til HEIMA ER BEZT
Tryggvabraut 18-20, 602 Akureyri
Sími 22500
Ég undirrit...... óska eftir að gerast áskrifandi að timaritinu
HEIMA ER BEZT nú þegar.
□ Hjálagt fylgir áskriftargjald 1977 að upphæð kr. 2.000.
□ Sendið mér ritið gegn póstkröfu (en þá bætist póstkröfugjaldið
við árgjaldið).
Nafn
Heimlli
Nýir áskrifendur geta valið um ókeypis gjafabók eða einn af eldri árgöngum
HEIMA ER BEZT meðan upplag endist! Merkið því við með krossi hér að neðan.
□ Sendið mér skrá yfir gjafabækur HEB.
□ Sendið mér einn eldri árgang HEB í kaupbæti.
VISSUÐ
ÞIÐ
ÞETTA?
4 : DAGUR
DAGUR•5