Dagur - 23.11.1977, Síða 8
DAGUR
Akureyri, miðvikudagur 23. nóvember
Verkamannabústaðurinn við Hjarðarlund. — (Ljósm.: GM).
Verkamannabústaðirnir
nýju eru mjög myndarlegir og ódýrir
Á fimmtudaginn í síðustu viku
voru nýju verkamannaíbúðirn-
ar í Hjarðarlundi Akureyri af-
hentar. Þær eru í einkar mynd-
arlegri blokk og sjálfar vand-
aðar að gerð og frágangi, 18
fjögurra herbergja íbúðir og 3
þriggja herbergja íbúðir.
Verkið var boðið út, og var
Smári hf. á Akureyri með
lægsta tilboðið. Hann bauð í allt
verkið nema smíði og uppsetn-
ingu eldhúsinnréttinga, fata-
skápa og innihurða. Var tilboð
Smára rúmum 18 milljónum
undir áætluðu kostnaðarverði.
íbúðirnar eru fullfrágengnar
með tækjum og málaðar. Á gólf
um í stofum, göngum og stiga-
húsum eru teppi, en á öðrum
gólfum er dúkur. Áætlað verð
Norðurlanda-
ráð 25 ára
í' tilefni af 25. starfsári Norður-
landaráðs, verður, á vegum
Norræna félagsins á Akureyri,
efnt til kynningarfundar á Hót-
el KEA næstkomandi laugar-
dag klukkan 16.00.
Þar verður 25 ára afmælis
Norðurlandaráðs minnst og
ávarp flytur Hjálmar Ólafsson.
Björn Th. Björnsson sýnir lit-
skyggnur og á döfinni er ýmis-
konar kynning
fyrir íbúðirnar er 7,5 milljónir
fyrir fjögurra herbergja íbúð-
irnar, en 6,6 milljónir fyrir þær
þriggja herbergja. Það kom
fram hjá Tryggva Pálssyni for-
stjóra Smára við afhendingu
íbúðanna, • að af þessu verði
íbúðanna fór 1% milljón ein-
ungis í gatnagerðargjöld og fjár
magnskostnað.
Verktakar afhentu íbúðirnar
á fundi á Hótel KEA, og tók
Sigurður Hannesson, formaður
stjórnar verkamannabústaða
við lyklum úr hendi verktak-
ans, Tryggva Pálssonar for-
stjóra Smára. Afhenti Sigurður
síðan Helga Bergs bæjarstjóra
Akureyrar lyklana.
Það kom fram í ræðu Helga
Bergs, bæjarstjóra, að fyrirhug-
að er að halda áfram byggingu
verkamannabústaða í svipaðri
mynd þar sem þetta fyrirkomul.
hefur reynst mjög vel, og auð-
veldað efnalitlum fjölskyldum
að komast yfir íbúðir. Sagði
Helgi að það væri mjög ánægju-
leg þróun að byggingakostnað-
ur hér á Akureyri væri lægri
en annars staðar á landinu.
íbúðirnar eru fjármagnaðar
með því að kaupendur greiða
20% af kostnaði íbúðanna, Hús-
næðismálastjórnarlán og lán frá
Byggingasjóði verkamanna
fjármagna svo afganginn.
Við afhendinguna tók til
máls formaður Húsnæðismála-
stjórnar, Sigurður Guðmunds-
son. Færði hann verkalýðs-
hreyfingunni hamingjuóskir
með þennan merka áfanga í
kjarabaráttunni, eins og hann
komst að orði. Sömuleiðis, og
ekki síst, óskaði hann íbúun-
um til hamingju með þessar
glæsilegu íbúðir.
— Það eru þrjú atriði sem
skipta sköpum þegar um er að
ræða hamingju fólks. Það er
örugg atvinna, góð heilsa og
gott húsnæði. Lélegt húsnæði
skapar ætíð óöryggi og óhyggj-
ur> °g þess vegna óska ég íbú-
unum innilega til hamingju,
sagði Sigurður Guðmundsson,
formaður Húsnæðismálastjórn-
ar að lokum.
GM
£7
'1X1 -j— íi' iq "1 Díl
lii lLS. [l| Vw- Jju.
• Þrír alþingis-
menn
„fallnir“ út
f hinni miklu augiýsingaher-
fcrð Alþýðuflokksins, þar
sem bindandi prófkjör var
sett á svið og framkvæmt,
hcfur margt eftirtektarvert
gerst. Meðal annars hafa þrír
alþingismenn flokksins „fall
ið út“, en þeir eru: Gylfi Þ.
Gíslason, sem dró sig í hlé
áður en til lokaátakanna
innan flokksins í Reykjavík
kom, Jón Ármann Héðinsson
féll í prófkosningu í sínu
kmrdæmi og Eggert G. Þor-
steinsson einnig, en þeir cru
báðir kunnir alþingismenn
og sá síðamefndi verkalýðs-
leiðtogi. Þá er hitt íhugunar-
efni, að prófkosningar flokks
ins sýna, að enginn maður,
sem upp hefur vaxið f verka
lýðshrcyfingunni, skipar
lcngur öruggt sæti á fram
boðslistum.
• Karvelíóháð
framboð
Karvel Pálmasön, sem nú er
orðinn viðskila við flokk
Frjálslyndra og vinstri
manna, eða Samtakanna.
hefur nú ákveðið að bjóða
sig fram á Vestfjörðum við
næstu alþingiskosningar, ut
an flokka. En Samtökin, eða
það flokksbrot sem eftir er,
hefur ákveðið að bjóða fram
í ötlum kjördæmum, að því
er sagt hefur vcrið frá i
fréttum. Af ýmsum er talið,
að hyggilegra hefði verið
fyrir Karvel, að „hengja sig
aftan í Alþýðuflokkinn",
eins og til stóð um tíma, eft-
ir að ljóst varð, að Samtökin
hafa þegar gengið sér til húð
arinnar og eiga ekkert eftir
nema að hverfa.
• Maraþondans
í Dynheimum
Klukkan þrjú á laugardag-
inn fór ungt fólk að láta skrá
sig í Maraþondans, er síðan
hófst klukkan fjögur með
Maraþondiskotek til aðstoð-
ar. Þátttakendur voru 13—15
ára og dönsuðu Iíflega. Hvfld
var auðvitað cngin, nema
leyft var að skreppa á klós-
ett og næring af skornum
skammti, þvi aðeins mátti
borða samlokur, án þess að
stöðva dansinn.
En um klukkan U sama
kvöld myrkvuðust Dynheim.
ar og lauk þar með þessari
keppni. Þá voru ennþá á
gólfinu sjö pör, nokkuð
þreytt orðin, en þó hin hress-
ustu. Verður af þessum
ástæðum að draga um úr-
slit, þar sem ytri aðstæður
leyfðu ekki, að lokið væri við
keppnina. Þess má svo að
iokum geta, að Hjálparsveít
skáta sá um hcimflutning
fólks frá Dynhcimum í hinu
versta veðri.
Þór og KA unnu sína leiki
Um síðustu helgi var annarar
deildar lið Fylkis í heimsókn
á Akureyri og lék við Þór og
KA í íslandsmótinu. Á laugar-
dag léku þeir við Þór og var
þá um mjög spennandi viður-
eign að ræða. Fylkis menn
voru yfir í hálfleik og höfðu
skorað 12 mörk á móti 10 hjá
Þór. I síðari hálfleik féll svo
allt í baklás hjá þeim og Þórs-
Sigurður Hannesson flytur ræðu við afhendingu íbúðanna. Aðrir á myndinni eru (f. v.): Gísli Hall-
dórsson arkitekt, Helgi Bergs bæjarstjóri og Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri Húsnæðis-
málastofnunar ríkisins. Neðst t. v. er Valgarður Baldvinsson bæjarritari. — (Ljósm.: GM).
arar náðu að jafna og komast
yfir og héldu síðan forustunni
það sem eftir var leiksins og
sigruðu með 19 mörkum gegn
18. Davíð markmaður Þórs
sem annars er markmaður hjá
þriðja flokki stóð sig mjög vel
í leiknum og varði m. a. línu-
skot úr hraðaupphlaupi hjá
Fylkir Þegar Þór var einu
marki yfir um miðjan síðari
hálfleik og Þórsarar náðu
þá knettinum og uppskáru
mark og tveggja marka for-
skot. Ef snilldarmarkvarsla
Davíðs hefði ekki verið fyrir
að fara hefði staðan verið jöfn,
og þá úrslit leiksins miög tví-
sýn. Flest mörk Þórs skoraði
Sigtryggur, en hann er mjög
góður um þessar mundir, eða
6. Einar skoraði 4. Árni 3, Val-
ur Knútsson, nýr og mjög efni-
legur leikmaður skaraði 5 og
Rögnvaldur 1.
Á sunnudag lék síðan Fylkir
við KA, og þeir komust j tvö
gegn engu strax á fyrstu mín-
útum með rnörkum Stefáns
Hjálmarssonar. — Leikurinn
jafnaðist síðar og í hálfleik
var staðan 11 gegn 10 fyrir
Fylki. í síðari hálfleik endur-
tók sama sagan sig hjá Fylki,
en þeir skoruðu aðeins eitt
mark á 17. mín., en á sama
tíma skoraði KA sjö. Leiknum
lauk síðan með sigri KA 18
mörkum gegn 16. Vörn KA
var góð í þessum leik svo og
markvarslan ágæt. Sérstak-
lega kom á óvart ungur mark-
maður, Aðalsteinn Jóhanns-
son, en hann varði mjög vel
fyrst í leiknum. Vörn Fylkis
var einnig góð, svo og mark-
varslan. Flest mörk KA gerði
Jón Hauksson 6 ( 5 úr víti),
Sigurður 6, Jóhann 3, Sigurð-
ur Ágúst -, Alfreð 1 og Jón
Árni 2.
Bæði lið Þórs og KA eru
eitt spurningamerki í hand-
boltanum.
Lið Þórs var talið lélegt
fyrst í vetur, en þeir vinna nú
hvern leikinn af öðrum og
leikur liðsins er að verða mik-
ið betri. í liði KA er allt yfir-
fullt af miög góðum einstakl-
ingum, en það er eins og eitt-
hvað vanti, sérstaklega í sókn-
ina, en hún er ekki nógu beitt.
Vonandi fer liðið að ná sam-
an og þá verða þeir eflaust
sterkir. Það væri því vonandi,
að bæði liðin blandi sér í topp-
baráttuna í deildinni í ár.
Að leik KA og Fylkis lokn-
um á sunnudag, lék fyrstu
deildar lið Þórs í kvenna-
flokki við KR í handbolta. —
Þórsstúlkurnar sigruðu í
leiknum og skoruðu 10 mörk
gegn 9 hjá KR stúlkunum.
Ó. A.