Dagur - 16.12.1977, Side 8
DAGTJR
Akureyri, föstudaginn 16. desember 1977
Aldarafmælis minnst
Á þessu ári eru hundrað ár lið-
in frá upphafi Kvennaskólans á
Syðra-Laugalandi. Hann var
settur hið fyrsta sinni 12. októ-
ber 1877 og starfaði þar síðan í
nítján vetur við hinn bezta orðs-
tír, undir stjórn frú Valgerðar
Þorsteinsdóttur frá Hálsi í
Fnjóskadal. Til Akureyrar var
skólinn fluttur 1896 en lagðist
niður tíu árum síðar. Alls voru
það rúmlega þrjú hundruð
stúlkur, er sóttu Laugalands-
skólann gamla.
í Sögu íslendinga, sem
menntamálaráð og Þjóðvinafé-
lag gáfu út, en kláruðu ekki,
segir Magnús Jónsson svo:
„Vafi er, í hvaða röð ber að
nefna kvennaskólana norðan-
lands, því að þeir hefjast um
svipað leyti, og ræturnar að
þeim liggja allar í sömu vakn-
ingunni 1874. En þó hefði ef til
vill verið réttara að nefna
Laugalandsskóla fyrst, því að
þar hefst fyrst í Norðurlandi
reglulegur skóli í eigin húsi.“
(Lbr. B. K.). „Löngu síðar,“
segir Magnús ennfremur, „hófst
svo kvennaskólahald að Lauga-
landi að nýju, 1937. eins og
gamalt fræ hefði legið þar í
jörðu og ekki getað visnað eða
dáið út.“
Húsmæðraskólinn á Lauga-
landi var vígður og settur 3.
október 1937, „í hinu blíðasta
haustveðri er komið getur,“ eins
og segir í frétt af þeim viðburði
í einu Akureyrarblaðanna. Var
þar margt um manninn og mik-
ill fögnuður yfir hinum nýja og
jafnframt endurreista skóla á
Laugalandi. Hefði engum dott-
ið þá í hug, að honum mundi
ekki verða lengri lífdaga auðið
en nú virðast horfur á. En svo
sem kunnugt er hefir skólahald
legið þar niðri síðustu árin. Lífs-
glaðar námsmeyjar svífa þar nú
ekki um salarkvnni, og hafa
ekki gjört frá því skólanum var
slitið á vordögum 1975. Ónógri
aðsókn var um kennt að ekki
var aftur tekið til starfa á næsta
hausti. Og síðan hefir, mér vit-
anlega, engin tilraun verið gerð
til að kanna það mál. Þó heyri
ég, að enn sé verið að spyrjast
fyrir um skólann. Ég held því,
að hér hafi verið of fjótræðis-
lega að unnið, og ekkert sem
Bjartmar Kristjánsson.
sannaði, að starfsgrundvöllur-
inn fyrir skólann væri brostinn
í bráð og lengd.
Aðsókn að velflestum hús-
mæðraskólum landsins hafði að
sönnu minnkað hin síðustu ár-
in. En dæmi eru þess, að slíkar
sveiflur koma og fara og ber
því ekki að taka það of alvar-
lega. Þá er því ekki að leyna,-
að áróður hefir verið hafður í
frammi gegn húsmæðraskólun-
um, og hann ekki svo lítill.
í ágætri grein, Sem Þorbjörg
Bjarnadóttir skólastjóri hús-
mæðraskólans á ísafirði skrif-
aði í Mbl. 4. marz 1975, þar sem
hún hvetur eindregið til efling-
ar húsmæðraskólanna í land-
inu, segir hún svo: „Undanfar-
in ár hefur verið unnið mark-
visst að því af nokkrum hópi í
fjölmiðlum að gera lítið úr heim
ilisstörfunum og þá um leið
þeim stofnunum, sem helzt
veita fræðslu í þeim efnum,
húsmæðraskólunum. Þetta hef-
ur greinilega borið tílætlaðan
árangur, hvað snertir hús-
mæðraskólana, og því miður
virðist það líka hafa haft áhrif
á marga ungu konuna, sem
undi glöð við heimili sitt og
litlu börnin, sem sannarlega
þarfnast nærveru hennar, ,að
henni finnst hún lítilsvirt og
ómerkilegur þegn þjóðfélags-
ins.“ Þá segir skólastjórinn, að
„margir leggi nú lítið upp úr
gildi góðra heimila." Leynir sér
ekki, að honum þykir hér um
óheillaþróun að ræða, sem allir
hugsandi menn hljóta að sam-
þykkja. Því að liér er í raun-
inni vegið að undirstöðunum að
heilbrigðu og farsælu þjóðlífi í
landinu. Þegar heimilin eru
nánast að engu orðin, fer þjóð-
félagið sömu liðina. Heimilin
eru hornsteinar hinna „háu
sala“ þjóðfélagsbyggingarinnar.
Þess vegna veltur svo mikið á
því, að þau séu traust. Þeir
skólar, sem veita fræðslu í heim
ilishaldi og stuðla að aukinni
heimilismenningu í landinu, vil
ég því segja að séu öllum öðr-
um skólum nauðsynlegri.
Eitt af því, sem virðist hafa
verið húsmæðraskólunum and-
stætt er það, að þeir veita eng-
in skráð réttindi. En það er
hlutur, sem auðvelt er að ráða
bót á. Þorbjörg bendir á, að
hússtjórnarnámið sé mjög góð
undirstaða undir ýmislegt sér-
nám, svo sem fóstru- og hjúkr-
unarnám og fleira. Það er vafa-
laust, að ýmsu þyrfti að breyta
í fyrirkomulagi húsmæðraskól-
anna, en það er annað mál.
Við fvrsta andbyr megum við
ekki leggja niður stofnun, sem
við vitum að stórmikill menn-
ingarauki hefir verið að, og vit-
um jafnframt, að sama hlut-
verki hefir enn að gegna um
ófyrirsjáanlega framtíð. Mér er
kunnugt um það, að óánægian
sýður í almenningi hér um slóð-
ir yfir niðurlægingu Laugalands
skóla. Hún hefir, því miður,
ekki soðið uppúr ennþá en ger-
ir það vonandi, e fforráðamenn
þessarar stofnunar láta það ekki
fullreynt, hvort „fræið“ er visn-
að og dáið, eða það liggur að-
eins í dvala.
í desember 1977.
Bjartmar Kristjánsson.
Hraðskák á sunnudaginn
Sl. sunnudag var keppt í
hraðskák Haustmótsins. Kepp-
endur voru 18 og tefldu þeir
einfalda umferð. Sigurvegari
varð Gylfi Þórhallsson með 15
vinninga, nr. 2 Jón Björgvins-
son með 13 vinninga, nr. 3—5
Gunnlaugur Guðmundsson,
Margeiv Steingrímsson og Þór
Valtýsson, allir með 12V2 vinn-
ing. Þá var einnig keppt í ungl-
ingaflokki. Þar voru keppendur
8 og tefldu þeir tvöfalda um-
ferð. Sigurvegari varð Pálmi
Pétursson með 14 vinninga,
vann allar sínar skákir, nr. 2
Jakob Kristinsson með 10 vinn-
inga.
Mánudaginn 19. des. kl. 20.00
verður haldið 15 mín. mót í Fé-
lagsborg.
£7
• Raflína austur
á Hérað.
Búið er að setja upp raf-
línu frá Akureyri til Kröflu-
virkjunar. Hún er hluti af
samtengingum orkuveranna
í landinu, auk þess sem hún
á að flytja okkur raforkuna
frá Kröflu þegar þar að
kemur.
En nú er unnið að upp-
setningu raflínu frá Kröflu
til Austurlands eða austur á
Hérað og er kostnaður við
hana áætlaður 1340 milljónir
króna og á verkinu að ljúka
næsta liaust.
Austurlínan frá Kröflu á
að enda í aðveitustöð við
Grímsár- og Lagarfosssvæð-
ið. Með þessari línu á að
vera unnt að flytja 20 mega-
wött austur á Hérað og þá
þarf ekki lengur að kejnra
dísilstöðvar á Austurlandi.
En Grúnsárvirkjun og Lagar
fossvirkjun framleiða ekki
næga orku fyrir landshlut-
ann.
• Franskur
skuttogari.
Fyrir nokkrum vikum keypti
Sigurður Finnsson útgerðar-
maður í Siglufirði nýlegan
skuttogara í Frakklandi, og
hefur hann þegar hlotið nafn
ið Sigurey SI 70. Sigurey er
væntanleg til Siglufjarðar á
næstunni, en um þessar
mundir er verið að breyta
skipinu í Frakklandi. Skut-
togarinn Dagný er í eigu
Sigurðar Finnssonar.
• Eggjabóndinn.
Eggjabændur eru þeir stund-
um nefndir, sem framleiða
egg til sölu. Einn þeirra
hringdi til blaðsins og sagði,
að skjótt skipaðist veður í
lofti í eggjamálunum. — t
fyrra hefðu eggjaframleið
endur gengið í hús með
eggin og boðið þau fyrir lágt
verð, og boðið þau niður
hver fyrir öðrum. Nú kæmu
bæjarbúar til bændanna og
bæðu tun egg fyrir jólin, því
skortur væri á þeim. — Þá
gerði hann athugasemd við
grein í Degi um verð á eggj-
um. Hið rétta er, að útsölu-
vcrðið átti að vera 665 krón-
ur kílóið, samkvæmt frétt að
sunnan, en mun þó kosta
meira hér á Akureyri, að
sögn bóndans.
• Dalborg í
söluferð.
Rækjutogarinn Dalborg á
Dalvík hélt í söluferð um
helgina með 70—80 tonn af
rækju. Mun hann ætla að
selja afla sinn í Svíþjóð og/
eða Danmörku. Er þetta önn
ur söluferð togarans með
djúprækju á crlendan mark-
að. I fyrri ferðinni seldi
hann fyrir mjög hátt verð.
Lítt hefur gefið til rækju
veiða undanfarnar vikur og
hefur því aflast minna en
annars hefði orðið.
AB bækur
Ferilorð
Komin er út hjá Almenna
bókáfélaginu ljóðabók eftir Jó-
hann S. Hannesson, mennta-
skólakennara og nefnist hún
Ferilorð. Jóhann er eins og
kunnugt er hámenntaður í húm
aniskum fræðum og þekktur
fyrir vel grundvölluð og sjálf-
stæð viðhorf. Bera ljóð hans
glögg merki þess.
Aftan á kápu Ferilorða segir
á þessa leið: „Jóhann S. Hann-
esson er ekki margra bóka
skáld, en ljóð hans eru þeim
mun haglegar gjörð. Ljóðin í
þessari bók eru ort á 20 ára
tímabili (1956—75. Einkenni
þeirra eru myndríkur stíll, sam-
þjöppun efnisins, skarpskyggni
og skynsamleg svartsýni á lífið
og tilveruna. Þau eru í senn sér-
stæð og fjölbreytileg, sum hörð
og miskunnarlaus, önnur ljóð-
ræn og mild, og ávallt áhrifa-
mikil — eftirlæti ljóðvina.“ '
Vestangúlpur garró
Út er komin hjá Almenna bóka
félaginu ný bók Guðmundar
Daníelssonar, er ber nafnið Vest
angúlpur garró og er það saka-
málasaga. Ekki þarf að kynna
höfundinn. í bók þessari er sagt
frá slysi eða ekki slysi, sem ekki
er gamalt, en auk þess er bókin
þjóðlífsþáttur millistríðsáranna,
pólitík, fjársvik, stritvinna,
brask og mjög margar mannlýs-
ingar.
Sól rís í vestri
Svo heitir ný skáldsaga Grétu
Sigfúsdóttur. Höfundurinn lýsir
stéttamismun og brenglaðri sið-
ferðisvitund, svo sem bókar-
nafnið mun eiga að benda til.
Skáldsagan lýsir spillingu og
pólit'skum loddaraleik, sem
nær hámarki í kynvillu og
morði, frömdu í leit að afþrey-
ingu einni saman.
Ragtime
Almenna bókafélagið hefur sent
frá sér bókina Ragtime eftir E.
L. Doctorow, en Jóhann S.
Hannesson þýddi, og er hún
um 270 blaðsíður.
Þessi bók lýsir bandarísku
þjóðlífi, segir á bókarkápu og í
framhaldi af því segir: Við
kynnumst hetjum og úrhrökum
auðmönnum og sosialiskurr
byltingarseggjum, siðavendni
og stéttarfordómum og kyn-
þáttastríði. Flestar persónurn-
ar eru sögulegar. Henry Ford
kemur við sögu ásamt Pierpoint
Morgan og fleiri stórmennum
þessa tíma. Og síðar: Bygging
frásagnarinnar minnir mjög á
kvikmyndahandrit, enda mun
þess vart langt að bíða.