Dagur - 23.12.1977, Síða 8
RAFGEYMÁR
í BÍLINN, 6ÁTINN, VINNUVÉLINA
VELJIÐ RÉTT
MERKI
Frá Siglufirði. — Ljósm. Ó. R.
Loðnan er mikilvæg
f samtali við Boga Sigurbjörns-
son, skattaendurskoðanda 14.
des., sagði hann meðal annars
eftirfarandi fréttir frá Siglu-
firði:
Fyrst er að geta þess, að jarð-
borinn Glaumur, sem hér hefur
verið að störfum, í Skútudal,
hefur lokið borun og varð kostn
aður samkvæmt áætlun, eða 37
milljónir króna. Boraði hann
holu 10 og varð árangur eftir
atvikum sæmilegur. Búið er að
dæluprófa holuna og komu þá
upp 8,5—13,5 lítrar vatns á sek._
67 stiga heitt. En þar sem hola
þessi er á sama vatnakerfi og
hola númer 7, er ekki um hreina
viðbót að ræða. Vatnsmagnið
samtals, sem við höfum n, er
rétt um 36 sekúndulítrar, því
viðbótin varð 20% aukning. Má
þá segja, að þetta heita vatn sé
nægilegt fyrir Siglufjörð, eða
fast að því.
Þá er unnið við kvndistöð og
er áætlað, að hún verði tilbúin
í janúarlok. Verður hún notuð
þegar álagið er mest. Um 70%
af íbúum bæjarins njóta nú
heita vatnsins.
Siglósíld var að ljúka starf-
rækslu þessa árs í gær. Þá var
starfsfólkinu haldin góð skemmt
un, svo sem var vel við hæfi
eftir mikil og vel unnin störf.
Búið er að framleiða 36000
kassa af gaffalbitum fyrir Sovét
markað og verðmætið er talið
um 300 milljónir króna. Svo
gerum við ráð fyrir, að starf í
verksmiðjunni hefjist á ný um
miðjan janúar, ef nýir samning
ar liggja þá fyrir, en frá þeim
er ekki búið að ganga enn sem
komið er.
Togararnir, Dagný, Stálvík
og Sigluvík, 'eru gerðir út héð-
an frá Siglufirði og hafa þeir
allir farið í söluferð, tveir til
Hollands og einn til Þýskalands
og seldu þeir allir mjög vel og
eru nú á ný komnir á veiðar.
Þá er hingað nýkominn 400
tonna_ þriggja ára, franskur
togari.
Þormóður rammi er að byggja
stórt frystihús, sem verður búið
öllum nýtísku vélum og tækj-
um. En bygging þessi er að
verða fokheld og verkinu er
hraðað svo sem kostur er. Gólf-
flötur er 2100 fermetrar og hús-
ið á einni hæð.
Smábátaeigendur hafa aflað
sæmilega á þessu ári og er af-
koma þeirra sæmilega góð.
Trillubátar eru mjög margir hér
og stutt á fiskimiðin.
Atvinnan hefur verið mjög
góð á Siglufirði allt þetta ár og
afkoman því sæmileg.
Hér er nú allt fullt af loðnu.
Um loðnuaflann má það annars
segja, að á sumarvertíð bárust
hingað 110 þúsund tonn og
vetrarloðnan er 35 þúsund tonn.
Reiknað hefur verið út, að verð
mæti loðnunnar, sem hér hefur
verið unnin, sé um 2.5 milljónir
á hvern íbúa staðarins og má
það teljast nokkuð gott.
Snjór er mjög lítill en víða er
hálka, svo sem á veginum inn
i Fljót, sagði Bogi Sigurbjörns-
son að lokum og þakkar blaðið
upplýsingarnar.
Hver þekkir?
Herra ritstjóri.
Sonur minn, Guðni, sem er
læknir við Mayo Clinic, Roch-
ester, Minnesota, Bandaríkjun-
um, hefur skrifað mér og beðið
mig að afla upplýsinga um ætt-
ingja eins starfsbræðra sinna að
nafni Kenneth Jóhannsson. —
Faðir Kenneths fæddist á Ak-
Ungar og framtakssamar
tþróttafélagið Völsungur á Húsa
/ík á sér ítök í margra hjörtum
! heimabyggð sinni. Þessar glað-
legu stúlkur, sem eru svo ung-
ir, að þær hafa ekki aldur til
ið ganga í félagið, tóku sig til
haust og efndu til hlutaveltu
til styrktar starfsenli Völsungs,
og var hagnaðurinn rúmar
60.000 krónur. Stúlkumar h.eita,
talið frá vinstri: Sólveig Ómars-
dóttir, Hlaðgerður Þóra Viðars-
dóttir og Þórunn Sif Péturs-
dóttir. Þormóður Jónsson.
ureyri 25. des. 1886, hét Jóhann
Tryggvi Jóhannsson, en móðir
hans hét Þuríður Sigurðsson
(eða Sigurðardóttir). Hann veit
ekki fæðingardag hennar eða
fæðingarár né fæðingarstað. —
Faðir Kenneths mun hafa átt
3 bræður. Einna þeirra, Gunn-
laugur, fluttist til Kanada. Kenn
eth er eins og fyrr greinir lækn-
ir við Mayo Clinic. Hann er góð-
ur íþróttamaður og var í liði
Bandaríkjanna 1960 í Squaw
Valley sem vann keppnina í ís-
hokkí.
Þeir sem kynnu að þekkja til
ættmenna Kenneths, eða eru
ættingjar hans, eru. vinsamlega
beðnir að hafa samband við
Þorstein Einarsson, Laugarás-
vegi 47, Reykjavík — 104 (sími
33618).
Ég leyfi mér að þakka fyrir-
fram birtingu þessarar beiðni.
Kær kveðja,
ÞorsL Einarsson.
———
T 7T 3 V T (P r w
li m. s > 1 _ ij.
• Sextán ára
fangelsi
í Sakadómi Reykjavíkur var
fyrir fáum dögum kveðinn
upp dómur í sakamáli. Einar
Hjörtur Gústafsson var
dæmdur í 16 ára fangelsi
fyrir að hafa skotið unnustu
sína til bana í bifreið þeirra
á Elliðavatnsvegi 15. ágúst í
sumar. — Auk fangels-
isvistar var hinum seka gert
að greiða sakarkostnað.
• Umferðarslysin
Fram tii 1. nóvember höfðu
niun færri slys orðið í um-
ferð hér á landi en í fyrra.
En á sama tíma höfðu 35 lát
ist í umferðarslysum á móti
17 á sama tíma í fyrra.
f skýrslu Umferðarráðs
segir einnig, að umferðar-
slys á árinu til nóvember
loka hafi orðið 479 á móti
493 á síðasta ári.
Sérstök ástæða er til þess
að hvetja til varúðar í
skammdegi og oft háiku og á
það bæði við um gangandi
og akandi vegfarendur.
• Olíugróði
Norðmanna
Tekjur norska rfldsins af
olíu úr Norðursjónum munu
nema 140 milljörðum
norskra króna á tímabilinu
frá 1978 til 1985. Sextíu
milljarða af þessum tekjum
verður aflað á árunum 1978
—1981 og áttatíu milljarðar
króna koma inn frá 1982 til
1985. Þetta eru nýiustu tölur
frá norska fjármálaráðuneyt
inu. Stærsti hluti teknanna
fram til 1985 kemur frá Eko-
fisksvæðinu, en tekiur ríkis-
ins af Statfjordsvæðinu
verða ekki umtalsverðar fyrr
en eftir 1985.
Bjóða 150 millj.
króna í Ásgeir
Sigurvinsson
Ekki hefur það tíðkast á Is-
landi, að íþróttagarpar
gengju kaupum og sölum, en
er algengt í fjölmörgum lönd
um. Fyrir skömmu bárust
þær fregnir, að íslendingur-
inn Ásgeir Sigurvinsson,
knattspyrnumaðurinn ágæti,
sem leikið hefur hjá Stand-
ard Liege, se nú til margra
peninga metinn. Ajax frá
Hollandi vill greiða fyrir
hann jafngildi 150 milljóna
íslenskra. Ef þessar fregnir
eru réttar, eru þær að því
leyti ánæg’ulegar, að þær
vitna um hæfni og velgengni
íslensks knattspyrnumanns
á erlendri grund, hvað sem
segja má um kaup og sölur
íþróttamanna almennt séð.
• Skattheimtan vex
Fjárlög ríkisins fyrir árið
1978 eru að hækka í meðför-
um um rúma 18 inilljarða.
Þessum hækkunum hyggjast
stjómvöld mæta með tvennu
móti. Rúmum helmingi þess-
arar upphæðar er ætlunin að
ná með aukinni skattheimtu
en að öðru leyti með niður
skurði framkvæmda.
Auknir skattar mælast
aldrei vel fyrir, svo sem tvö
földun sjúkratryggingagjalds
ins, sem gefur 1.9 milljarð
í ríkiskassann. En 10% af
„hátekjum“ í skyldusparnað
mun hins vegar ekki valda
neinum verulegum mót-
blæstri, né heldur hækkun
flugvallargjalds. Hitt mun
þykja öllu verra, að klípa á
af Byggðasjóði, og einnig sú
ráðstöfun að Iáta sjúka
greiða hærra hlutfall lyfja-
kostnaðar en áður, svo og sér
fræðiþjónustu. Samdráttur
opinberra framkvæmda virð
ist nauðsynlegur, ef þess er
jafnframt gætt, að atvinna sé
næg.
• Hvergiiið líður
hestunum?
Öðru hverju hringir fólk til
blaðsins í vondum veðrum
eða vegna þeirra, út af hross
urn á útigangi og hefur
áhyggjur af þeim.
! flestum tilvikum eru
þessar áhyggjur ástæðulaus-
ar. Hrossum líður oftast þol-
aniega á útigangi, nái þau
kviðfylli sinni í haganum.
Þau eru svo vel úr garði
gerð, að þola kulda og kom-
ast af með létt fóður. Þau
eru mjög loðin á vetrum og
feldur þeirra hlýr, en rign-
ingar og hvassviðri fara illa
með hrossin og því er skjól
nauðsynlegt í vetrarhaga.
Þrátt fyrir þetta þurfa eig-
endur útigönguhrossa að
fylgjast vel með þeim, og
styðst sú áminning við full
rök.
• Hrauneyjafoss-
virkjun
Nú líður senn að því, að
fyrsti áfangi Hrauneyjafoss-
virk’unar verði boðinn út og
er m. a. verið að l:úka kjara
samningagerð, en þar er um
að ræða mjög nákvæma
kiarasamninga við virkjun-
arframkvæmdir, sem fylgja
munu í útboðinu. I fyrsta
áfanga er gert ráð fyrir %
hlutum virkjunarinnar, eða
140 megavöttum. I upphafi
var ákveðið að þrískipta
virk.iunarframkvæmdunum,
í 3x70 megavatta fram-
kvæmdir, en virkjunin á að
geta framleitt 210 megavött
fullbyggð.