Dagur - 11.01.1978, Qupperneq 8
DAGUR
Akureyri, miðvikudagur 11. janúar 1978.
RAFGEYMAR
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA
VELJIÐ RETT
MERKI
Gömul mynd frá Hrísey. — (Ljósm. E. D.).
Útgerðarstöðin í Hrísey
Hrísey 8. janúar. Við erum rétt
um 300 íbúar Hríseyjar og geng-
ur fremur treglega að komast
mikið hærra, hverju sem um er
að kenna_ og þó tæplega okkur
körlum. Það var þó ein gifting
hér á jólum. Þá gengu í heilagt
hjónaband frystihússtjórinn
okkar, Sæmundur Guðmunds-
son og Sólveig Jóhannsdóttir og
mun þetta hafa verið eina brúð-
kaupið á árinu og hefðu mátt
vera fleiri.
Böm í skóla hér eru 48. Val-
týr Sigurbjamarson er skóla-
stjórinn og kennarar em tveir,
auk hans. Er því sæmilega
fyrir fræðslu séð. Og hjá okkur
er búsettur ágætur prestur,
Kári Valsson, svo að trúarlega
erum við ágætlega settir.
En flest væri í molum og
alveg í kaldakoli, ef ekki væri
einhver undirstöðuatvinnuveg-
ur. Hrísey er útgerðarstöð. Hér
er hraðfrystihús og dekkbát-
arnir Þorfinnur, Eyfell og Haf-
örn, en Snæfellið, sem Kaupfé-
lag Eyfirðinga á að mestu, er
bjargvættur okkar í atvinnu-
málum, enda urðu mikil um-
skipti þegar skipið kom. Fjög-
urra til sex tonna trillur eru sex
talsins og líklega einn tugur
þar að auki, sumar kenndar við
sport.
Vemlega hefur verið unnið í
höfninni og bætir það aðstöðuna
til muna.
í einangrunarstöðinni dafna
kýr og kálfar bærilega. Um
hana annast Guðjón Bjömsson
og Steinar Kjartansson. Þarna
eru 20 kýr og 12 kálfar, og út
af þessum stofni, blönduðum
holdanautablóði koma væntan-
lega gagnsamir gripir.
Allir Hríseyingar að heita má,
hafa nú heitt vatn í sínum hús-
um. Ystibæ, sem er sumarbú-
82 íslendingar hafa látizt hér-
lendis af slysförum í ár (28.
des.) en 70 allt árið í fyrra,
segir í skýrslu frá Slysavama-
félagi íslands. Erlendis hafa 5
íslendingar látizt af slysfömm
en þrír árið áður. Þá létust tvö
ungmenni af völdum slysa, sem
urðu í nóvember á fyrra ári.
Nítján banaslys hafa orðið í
sjóslysum og drukknunum, en
slík slys urðu 37 á fyrra ári. f
ár fórust tvö fiskiskip með sam-
tals 4 mönnum, en þrjú skip á
árinu 1976 með samtals 11
mönnum. Fjögur böm, átta ára
og yngri, hafa dmkknað á árinu.
staður, og ennfremur Stekkjar-
nef, einnig sumarhús, hafa ekki
þessi þægindi. Heita vatnið
skemmdi ofna framan af en nú
virðast skemmdir úr sögunni
vegna íblöndunar.
Hér starfar Björk hf. sem ann-
ast byggingar og smíðar. Björg-
vin Pálsson er forstöðumaður.
Senn munu tvö einingarhús frá
Siglufirði rísa á grunnum, sem
eftir þeim bíða. — S. F.
Af völdum þyrluslyss létust
tveir menn á árinu, en enginn
árið áður. í þeim flokki, er kall-
ast ýmis banaslys. hafa 22 látizt
hérlendis og 3 íslendingar er-
lendis, en 15 árið áður. f vinnu-
slysum hafa 6 látizt, og 16 ára
piltur lézt í dráttarvélarslysi. í
ár hafa 4 orðið úti og 6 hafa
látizt vegna bmna, sprenging-
ar, reyks og eitmnar. Hér er
meðtalinn ungur piltur er lést
í júlí af völdum höfuðmeiðsla,
er hann hlaut í nóv. 1976.
Af völdum umferðarslysa
hafa 39 manns látizt, og er þá
meðtalin ung stúlka er lést í
febrúar af völdum umferðar-
slyss í byrjun. nóv. árið áður.
19. manns létust í umferðarslys-
um árið 1976. í ár létust tveir í
umferðarslysum erlendis, eins
og árið áður.
Að sögn Sigurðar Ágústsson-
ar fulltrúa hjá umferðarráði
voru slys í umferðinni, sem ollu
dauða, í ár alls 33 í lok nóvem-
ber og 37 látnir í þeim slysum.
Sextán slysanna urðu í þétt-
býli. Þrettán sinnum var ekið
á gangandi vegfarendur, en 9
sinnum orsakaðist dauðaslys
vegna útafkeyrslu. Ellefu þeirra
sem látist hafa af völdum um-
ferðarslysa í ár, voru 65 ára eða
eldri. Þá sagði Sigurður að fleiri
dauðaslys hefðu átt rætur að
rekja til áfengisneyslu heldur
en t. d. vegna of hraðs aksturs.
Bamaleikritið „Snædrottningin" var frumsýnt á sunnudaginn við
ágætar viðtökur. Umsögn síðar. Sviðsmynd af þrem leikurum tók
Ljósmyndastofa Páls.
Áttatíu og tvö dauðaslys
urðu á síðastliðnu ári
T l,\) r~p rr 'T Rf tt
li JfflU h n)} :<! JL
• Kvarta yfir
virðingarleysi.
Alþingismcnn kvarta yfir
virðingarleysi kjósenda, bæði
fyrir sína hönd og Alþingis.
Ber að harma ef þessi kvört-
un er veruleg og enn meira
ef hún er á rökum reist. Til
mikils er ætlast af alþingis-
mönnum, hverjum og ein-
um, og að sjálfsögðu mæna
allra augu til æðstu og volda-
mestu stofnunar þjóðarinnar,
Alþingis, í von um þjóðholla
og örugga' forystu í veiga-
miklum málum. Sannleikur-
inn mun þó sá, að enn held-
ur Alþingi virðingu sinni, en
til þess eru e. t. v. ekki gerð-
ar nægilega miklar kröfur.
• „Ópíum
fólksins.
Því miður bendir ýmislegt
til þess, að stjómmálaflokk-
ar og stjómmálastarfið í
landinu njóti of lítillar virð-
ingar. Sem lítið dæmi eru
fáein orð eins sunnanblaðs-
ins, merkt eftirtektarverðum
höfundi, þar sem segir:
,Xenín taldi sig hafa fund-
ið hvert væri helsta ópíum
fólksins. Ópíum okkar ís-
lendinga em loftháar en að
sama skapi ómerkilegar ræð-
ur hvenær sem kosningar
nálgast. Og svo vill til að
tvær ræður þessa eðlis hafa
verið fluttar nú þegar á þess-
um áramótum, svo balUð er
í raun og vem byrjað.“
• Kaldyrðin
fjúka.
Framanskráð tilvitnuð orð
eiga eflaust meiri hljóm-
grunn í hugum fólks en
æskilegt má telja. Þess
vegna er fólk að miklu leyti
hætt að sækja pólitíska fundi
og að lesa pólitískar greinar
og er hvort tveggja andstætt
lýðræði, sem flestir vilja þó
búa við. Alþingismenn gera
sér þetta eflaust ljóst en fá
ekki rönd við reist. Stjóm-
málaflokkar ræða málin og
kanna leiðir til úrbóta, en
frá almenningi heyrast kald-
yrði í garð stjómmálamann-
anna sem er þó áhugaleysinu
skárra.
• Fræðsla
nauðsynleg.
Þegar betur er að gáð, reyn-
ast aðfinnslur oft ekki á rök-
um reistar vegna ókunnug-
leika, svo sem í efnahags-
málum, sem nú em efst á
baugi. Búið er að gera efna-
hagsmál þjóðarinnar svo
flókin, 'að nauðsyn er allmik-
illar fræðslu umfram það,
sem almenningur getur aflað
sér í umræðu og með lestri.
Fræðsla um efnahagsmál
sýnist vera nauðsynlegri en
margt annað, sem kennt er í
skólum og miðlað í útvarpi
og sjónvarpi, og nú fremur
en áður, þar sem efnahags-
mál verða í brennidepli
næstu mánuði, í kosninga-
baráttunni.
• „Daglegt mál“.
Þótt eflaust megi flokka það
undir hlutdrægni eða hreppa
pólitík verður ekki fram hjá
því gengið, að það gleður rit
ara þessara lína meira sem
vel er gert, þegar það er
tengt heimabyggð. Um nokk-
urt skeið hefur Gísli Jónsson,
menntaskólakennari, flutt I
útvarpi þáttinn „Daglegt
mál“ af slíkri prýði að þakk-
arvert er. Margir hafa áður
vel gert í þessu efni. Á þessa
íslenskuþætti útvarpsins
munu flestir hlusta, sem
vanda vilja málfar sitt, tal-
mál jafnt sem ritmál og ætíð
ber að viðurkenna það, sem
vel er gert.
Kristín, Arna og Auðunn, sem hér sjást á mynd, skiluðu á af-
greiðslu Dags 4 þúsund krónum til Sólborgar, sem var ágóði af
tombólu, sem þau og Mörður héldu, en hann vantar á myndina.
(Ljósm. E. D.).