Dagur - 18.01.1978, Page 4
Útgcfandi: ÚTCÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Hafnarstra-ti 90, Akurcyri
Sunar: Ritstjórn II166, Augl. or afRrciðsIa 11167
Ritstj or ábyrgðarm : ERLINGUR DAVÍÐSSON
Augl og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prcntun: Prcntvcrk Odds Bjömssonar hf.
Þjóðin er
þrýstihópur
Þess gætir oft í félagsmálum, einnig
stjómmálum og jafnvel á hinu háa
Alþingi, að hvert eitt mál, sem um
er fjallað, sé hið eina og sanna aðal-
mál, og að lausn þess krefjist for-
gangs. En fljótlega reka menn sig á
þær óþægilegu staðreyndir, að flest
mál em öðrum tengd, oftast á marg-
an veg og að þau verður að leysa með
yfirsýn. Þegar hina nauðsynlegu yfir-
sýn vantar, vill svo fara, að vandi sé
leystur með öðmm vanda og þannig
virðist nú komið í þjóðfélagi okkar
í sumum greinum. I þessu sambandi
má minna á síðustu stóm kjarasamn-
ingana við verkalýðsmélögin. Svo
hófsamir voru þeir taldir, að ekki
átti verðbólgan, hinn mikilsráðandi
efnahagsmáladraugur þjóðarinnar,
að fitna af þeim. Þá komu opinberir
starfsmenn, þá hraðfrystihúsin og út-
gerðin. í hvert sinn þóttust formæl-
endur breytinga, kröfugerðarmenn
og þrýstihópar, hverju nafni sem
nefnast, taka mið af verðbólgu-
draugnum og forðast að fita hann.
En á því herrans ári, sem nýlega er
liðið hækkaði kaupgjald í landinu
um 60% og verðbólgan hefur sjaldan
verið meiri.
Nú hafa stjómvöld stigið á stokk
og strengt þess heit, að ekki verði
safnað meiri erlendum skuldum og í
opinberum framkvæmdum verði segl
in rifuð á þessu ári.
Hér verður ekkert um það fullyrt,
hvort ahnenningur í landinu sé orð-
inn þreyttur á loforðum af þessu tagi
eða hlusti yfirleitt á þau með verð-
skuldaðri athygli. Hitt virðist ljós-
ara en nokkm sinni fyrr, hve mikið
veltur nú á efndum þessara loforða,
og að jafnframt verði næg atvinna
tryggð og rekstur atvinnuveganna.
Andstæðingar núverandi ríkis-
stjórnar álykta, að hún ætti að biðjast
um efnahagsmálum. Ef hklegt væri
að ríkisstjóm, mynduð af öðmm
stjómmálaflokkum, væri líklegri til
að takast á við vandann með meiri
árangri, væri ályktunin raunhæf, en
svo er ekki. Því verður almenningur
að vera sá þrýstihópurinn í þjóðfé-
laginu, sem í senn krefst efnda lof-
orðanna og styður stjómvöld dyggi-
lega í því efni, þótt raunhæfar að-
gerðir verði ekki gerðar án þess þær
komi óþægilega við.
* Á allra síðustu mánuðum hefur
orðið vart ótta hjá mörgum um
framtíðina, ef svo heldur sem horfir
í efnahagsmálum. Samkvæmt því
virðist nú tími til þess kominn, að
ráðast gegn meinsemdunum af meiri
einurð en fyrr og til þess hafa stjóm-
arflokkamir nægan styrk á Alþingi
og vaxandi fylgi með þjóðinni.
Hið efnismikla og vel unna rit
Gunnars Karlssonar sagnfræð-
ings, ,Erelsisbarátta Suður-
Þingeyinga og Jón á Gautlönd-
um“, sem út kom síðla árs 1977,
minnir á þá staðreynd, sem
ótrúlega mörgum félagshyggju-
mönnum hættir til að gleyma,
að samvinnuhreyfingin er í
raun og veru elsta nútíma fé-
lags- og framfarahreyfing, sem
fest hefur varanlegar rætur hér
á landi. Eftir aðeins 4 ár geta
samvinnumenn haldið upp á 100
ára afmæli fyrsta kaupfélagsins,
Kaupfélags Suður-Þingeyinga.
Það er því sannarlega komin
reynsla á samvinnustarf hér á
landi, þv£ að segja má, að fimm
kynslóðir fslendinga, a. m. k. í
Suður-Þingeyjarsýslu og Eyja-
firði, hafi tekið virkan þátt í
samvinnustarfi, og hefur það
aukist og eflst í höndum hverr-
ar nýrrar kynslóðar. Verður
ekki séð að neitt lát sé á sókn
sigurs og dáða, ellimörk verða
ekki greind á athöfnum hennar.
Má svo heita, að allir landshlut-
ar og flestar byggðir eigi gengi
sitt að verulegu leyti undir sam-
vinnufélögum og fyrirtækjum
þeirra í einni eða annari mynd.
Samvinnuhreyfingin er svo sam-
gróin íslensku þjóðfélagi, að
hrörnun hennar eða vanþróun
myndi óhjákvæmilega hafa í för
með sér efnahags- og félagslega
röskxm, sem fyrst og fremst
kæmi niður á landsbyggðinni og
vinnandi alþýðufólki til sjávar
og sveita.
LIFANDI LÝÐRÆÐISSTARF
Það verður aldrei lögð nægileg
áhersla á, að samvinnuhreyfing-
in er alþýðleg félagsmálahreyf-
ing, reist á lýðræðisgrundvelli,
þ. e. a. s. almennri þátttöku fé-
lagsmanna í fundarstörfum og
stefnumörkun. Kaupfélögin eru
lýðræðislega uppbyggð og m. a.
Samvinnuhreyfingin er elsta
félagsmálahreyfing landsins
vegna deildaskiptingar sem á
sér stað innan kaupfélaga, er
auðvelt fyrir hvern félagsmann
að láta að sér kveða, ef hann
notfærir sér rétt sinn samkvæmt
félagslögum. Hitt er annað mál,
að oft skortir á þátttöku félags-
manna í störfum kaupfélaganna.
Þó mun það svo, að víða úti um
sveitir landsins er góð þátttaka
í deildarfundum og lifandi áhugi
á málefnum félaganna. Og aðal-
fundir flestra kaupfélaga í land-
inu eru vel sóttar samkomur,
sem tryggja lýðræðislega starf-
semi kaupfélaganna, bæði að
því er varðar umræður og kosn-
ingar í trúnaðarstöður. Kaupfé-
lögin halda þannig uppi lifandi
lýðræðisstarfsemi, sem er snar
þáttur í félags- og menningar-
lífi nútímans. Og þó ber á
nokkum skugga. Því verður
ekki móti mælt að félagsdeyfð
segir víða til sín í landinu, m. a.
innan kaupfélaga, og svo mún
einnig vera í verkalýðshreyfing-
unni. Þessi deyfð lýsir sér ekki
einungis í lélegri fundarsókn,
heldur allt eins í sljóleika al-
mennings fyrir þeirri staðreynd,
að samvinnuhreyfingin er einn
aðalburðarásinn í þjóðfélags-
byggingunni. Menn átta sig ekki
á því, að ef þessi burðarás
brestur, myndi þjóðfélagið slig-
ast, — hvorki meira né minna.
Sannleikurinn er sá, að sam-
vinnuhreyfingin, — kaupfélög-
in og hin víðtæka atvinnustarf-
semi samvinnufélaganna —
hefur öðlast sess í þjóðfélaginu,
sem ekki er auðvelt fyrir aðra
að setjast í. Hins vegar er það
samvinnuhreyfingunni áhyggju-.
Gjalddagar fasteignagjalda
á Akureyri 1978
Bæjarstjórn Akureyrar hefir ákveðið tvo gjald-
daga á fasteignagjöldum til Akureyrarbæjar á
árinu 1978.
Hinn 15. janúar fellur í gjalddaga helmingur fast-
eignagjaldanna eða upphæð sem svarar til þeirra
gjalda, er greidd voru af fasteigninni sl. ár.
Hinn 15. maí er síðan gjalddagi á eftirstöðvum
fasteignagjaldanna 1978.
Þess er vænst, að fasteignaeigendur bregðist vel
við og greiði á réttum gjalddaga tilskilinn hluta
fasteignagjaldanna, þótt gjaldseðlar berist ekki
fyrr en síðar.
Dráttarvextir eru samkvæmt lögum fallnir á öll
ógreidd bæjargjöld frá fyrra ári og nema 3% fyrir
hvern mánuð eða brot úr mánuði frá gjalddaga.
Bæjarskrifstofan er opin daglega frá kl. 8.30—
12.00 og 13.00—16.00, en auk þess á mánudög-
um og föstudögum kl. 17.00—18.30.
Akureyri, 12. janúar 1978.
BÆJARRITARI.
efni, að á henni mæðir nokkurt
skilningsleysi eða sljóleiki al-
mennings — oft og einatt — á
mikilvægi hennar fyrir almanna
heilþ m. a. atvinnuöryggi og
réttlátt vöruverð. Það er of
sjaldgæft að menn spyrji sjálfa
sig: „Hvemig væri umhorfs í
atvinnumálum, ef ekki væm
atvinnufyrirtæki samvinnufé-
laganna?“ — Eða: „Hvar væri
landsbyggðin stödd, ef ekki
væru kaupfélögin?" Ellegar,
sem ekki er síður umhugsunar-
vert: „Hvern þátt eiga kaupfé-
lögin í að halda niðri vöm-
verði?“
„EÐLILEGIR
ANDSTÆÐINGAR.“
Það er ekki við öðm að búast
en að samvinnuhreyfingin eigi
sér andstæðinga — eðlilega
andstæðinga, ef svo má segja.
Sérhagsmunaöflin í þjóðfélag-
inu mimu ætíð fylkja liði gegn
samvinnuhreyfingunni. í sjálfu
sér er óþarfi að óttast slíka and-
stöðu, því að yfirleitt er auðvelt
að bægja henni frá með rökum
og réttum upplýsingum. Raun-
ar mun það styrkja samvinnu-
hreyfinguna fremur en veikja,
ef sérhagsmunaöflin sækja að
henni, sem vissulega er enginn
skortur á. Fróðlegt er að fá
vitnisburð um þá staðreynd í
bók Gunnars Karlssonar, að
andstaða kaupmannavaldsins
varð til þess að þjappa kaupfé-
lagsmönnum saman þegar í
byrjun samvinnustarfsins í
Þingeyjarsýslu.
Heildsalavaldið er og verður
í andstöðu við samvinnuhreyf-
inguna. Hitt er lakara, ef syst-
urhreyfing samvinnuhreyfingar-
innar verkalýðshreyfingin, sýn-
ir samvinnuhreyfingunni tóm-
læti eða elur jafnvel á tor-
tryggni í hennar garð. Að sjálf-
sögðu eiga frjáls samvinnu-
hreyfing og frjáls verkalýðs-
hreyfing samleið. Þær eru
greinar á sama meiði. Þar sem
samstarf hefur tekið millis þess-
ara hreyfinga í öðrum löndum,
hefur það orðið almenningi til
heilla.
En haldbesta vamar- og sókn-
artæki samvinnuhreyfmgarinn-
ar er félagsáhugi og hugsjóna-
kraftur fólksins, sem myndar
hreyfinguna. Öllu máli skiptir
að félagsfólkið sé vakandi fyrir
málefnum hreyfingarinnar,
innar, hvort heldur er um að
ræða grundvallarhugsjónir eða
einstök dægurmál og fram-
kvæmdir, sem nauðsynlegt er
að vinna að. Það er ekki nóg að
samvinnuhreyfingin eigi sér
ráðna eða kjöma forystumenn,
sem sjá um framkvæmdir og út-
breiðslustarf. Samvinnuhreyf-
ingin þarf að eiga talsmann í
hverjum einasta félagsmanni.
Því miður óttast ég að mikið
skorti á að svo sé. Það er því
mikil nauðsyn að finna leið til
þess að auka félagslegan áhuga
í samvinnufélögunum, ekki síst
hinum stærri og fjölmennari.
Forystumenn samvinnuhreyfing
arinnar gera sér vel ljósa þessa
nauðsyn, og hreyfingin einbeitir
sér að því um þessar mundir
að auka áhuga félagsmanna í
samvinnufélögunum á málefn-
um samvinnunnar og efla al-
menna þátttöku þeirra í fund-
um og samvinnustarfi.
S AM VINNTJHREYFIN GIN
OG IÐNVERKAFÓLK
í þessu sambandi er skylt að
geta þess, að Samband ísl. sam-
vinnufélaga hefur stigið mikil-
vægt spor á sviði atvinnulýð-
ræðis með þvf að heimila tveim
kjörnum fulltrúum starfsfólks
SÍS að sitja stjómarfunái með
málfrelsi og tillögurétti. Annar
þessara fulltrúa starfsfólksins
er kjörinn úr hópi starfsfólks
SÍS á Akureyri. Er það Aðal-
steinn Halldórsson verkstjóri.
Fer vel á því að iðnverkamenn
á Akureyri eigi fulltrúa á stjóm-
arfundum Sambandsins, því
hvort tveggja er, að iðnfyrir-
tæki SÍS em meðal merkustu
atvinnufyrirtækja í landinu og
iðnverkamenn em fjölmennasta
starfsstéttin í Akureyrarbæ og
óumdeilanlega máttarstólpi bæj-
félagsins. Iðnverkamenn eiga
ómældan þátt í velgengni sam-
vinnuiðnaðarins. Það ætti eng-
um að dyljast að náið samstarf
og trúnaðartraust milli stjóm-
enda og starfsfólks fyrirtækj-
anna. Þá er slíkt samstarf og
trúnaðartraust mikilvægt til
þess að skapa þá vinnuaðstöðu
og aðbúnað á vinnustað, sem
veitt getur raunvemlega vinnu-
gleði og gefið þá fullnægingu í
starfi, sem vinnandi fólki ber
réttur til og allir þrá að eign-
ast.
BÆTT AÐSTAÐA
A VINNUSTAÐ
Þótt kaupgjandið skipti megin-
máli í kjarabaráttu almennings,
þá kemur margt annað til, þeg-
ar ákveða skal kjör vinnandi
fólks. Vinnuaðstaða, vinnuvemd
og öryggismál eru þar ofarlega
á blaði. Mörgu hefur miðað í
rétta átt á þessum sviðum, m. a.
í verksmiðjum samvinnuhreyf-
ingarinnar, en eigi að síður
stendur margt til bóta bæði þar
og annars staðar í því að fegra
og bæta vinnustaði. Enn er það
svo_ að margt verksmiðjufólk
verður að láta sér lynda lakari
og óheilnæmari vinnustaði en
almennt gerist, bæði vegna
mengunar andrúmslofts og háv-
aða. Yfirleitt má girða fyrir
slíka ágalla vinnustaða með
ýmsum endurbótum og þó
miklu fremur með því að útiloka
ágallann sem mest í upphafi
með réttu byggingarfyrirkomu-
lagi og verktilhögun, sem dreg-
ur úr heilsuspillandi áhrifum
vinnustaðarins. Þessi atriði eru
ofarlega á baugi £ umræðum
um vinnumál hvar sem er í
heiminum, enda er það ekki
einungis á Akureyri sem iðn-
verkafólk er burðarás atvinnu-
lífsins, heldur alls staðar í hin-
um tækniþróaða heimi.
FÉLAGSLEGIR
MÖGULEIKAR
Samvinnuhreyfingin er elsta
og ein áhrifamesta framfara-
hreyfing landsins. Hún er reist
á alþýðlegum grundvelli og á
sér mikla félagslega möguleika.
Hún hefur verið sóknarafl al-
þýðu manna til sjávar og sveita
í næstum 100 ár. Hún býður
upp á margs konar tækifæri til
samskipta vinnandi fólks í land-
inu og sameiginlega úrlausn í
atvinnu- og félagsmálum. Þótt
á ýmsu geti oltið um stjóm-
málaástand og sjórnarsamstarf
milli pólitískra flokka, þá verð-
ur að forðast þá miklu hættu,
að félagshyggj ufólk afræki sam-
vinnuhreyfinguna og missi
sjónar á hugsjónum hennar og
möguleikum til fegurra mann-
lífs og réttlátara þjóðfélags.
Snædrottningin
Kári Árna aðstoðarþjálfari
Kári Árnason fyrrv. knatt-
spyrnumaður hefur nú verið
ráðinn aðstoðarþjálfari hjá
meistaraflokki KA í knatt-
spymu. Kári er knattspymu-
áhugamönnum að góðu kunn-
ur én hann lék um árabil með
ÍBA og KA. Þá lék hann
einnig í landsliði íslendinga.
Hann mun verða Jóhannesi
Atlasyni til aðstoðar í sumar,
og þá mun hann einnig sjá
um æfingar liðsins þangað til
Jóhannes kemur hingað al-
kominn, en hann er íþrótta-
kennari í Reykjavík. Vitað er
að erfitt verk bíður þeirra fél-
aga, þ. e. a. s. að reyna að
halda KA í deildinni. Flest
fyrstu deildar liðin hafa nú
ráðið sér þjálfara, og eru sum
ir þeirra erlendir. Vitað er að
Ámi Stefánsson flytur nú aft-
ur til Akureyrar og mun verja
mark síns gamla félags, og þá
er Elmar Geirsson einnig að
hugsa um að gerast leikmað-
ur hjá KA. Æfingar em nú
hafnar hjá knattspymumönn-
unum og þegar nálgast vorið
mun félagið leika nokkra æf-
ingarleiki áður en til keppn-
innar í deildinni kemur. Þá
er í ráði að félagið verði í æf-
ingarbúðum erlendis um pásk
ana. Ekki munu Þórsarar
ennþá vera búnir að ráða sér
þjálfara fyrir næsta keppnis-
tímabil, en em á höttum eftir
góðum þjálfara innlendum eða
erlendum.
Vertíðarlokin
Sunnudaginn 22. janúar býð-
ur stjóm knattspymudeildar
KA öllum leikmönnum yngri
flokka til hófs í Dynheimum
og hefst það kl. 16.00. Þar
verða veittar viðurkenningar
fyrir sigur í ýmsum mótum
svo og kjörinn besti knatt-
spyrnumaður hvers flokks, en
hann fær til varðveislu bikar.
Þá verða einnig á boðstólnum
veitingar og eitthvað til
skemmtunar. Allir yngri KA
menn em hvattir til að mæta
í Dynheima á sunnudaginn kl.
16.00.
Leikjum frestað
Frestað
Frestað
Frestað
Foreldraráð SRA ætlaði að
halda svokallað Hjallabrautar
mót um síðustu helgi. Veður-
guðimir vom hirus vegar skíða
mönnunum ekki hliðhollir þvi
á laugardag vom allar skíða-
lyftur lokaðar vegna veðurs,
svo og fram eftir degi á sunnu
dag. Mótinu varð því frestað
til næstu helgar. Snjór er nú
nægur í Hlíðarfjalli og skíða-
færi gott þegar vel viðrar.
Annarrar deildar lið Gróttu
átti að koma til Akureyrar um
síðustu helgi og keppa við Þór
og KA í karlaflokki. Þá áttu
einnig stúlkur úr Haukum að
keppa við stöllur sínar úr Þór
í fyrstu deild kvenna. Þar er
ekki var flogið á laugardag og
ekki fyrr en seint á sunnudag
komust þessi lið ekki norður
í tæka tíð, og varð því ekk-
ert úr leikjunum. Þá komu
dómarar ekki heldur, en ef
þeir hefðu komist hefði verið
upplagt að leika kæruleikinn
milli Þórs og KA í staðinn.
Það fer að verða efamál að
nægjanlegt sé fyrir lið sem
ætlar að leika hér tvo leiki
yfir há veturinn að ætla að
koma á laugardag, heldur ætti
að koma á föstudag. Svona
töf á leikjum er mjög baga-
leg bæði fyrir fólögin isem
eiga að leika svo og fyrir
mótanefnd_ en sem betur fer
ræður ekki mannleg tækni
ennþá yfir veðri og vindum.
Um næstu helgi á KA fyrir
höndum erfiða ferð. Þeir leika
tvo leiki í Reykjavík, við
Fylkir og Þrótt en þau eru
bæði á toppnum í deildinni
ásamt KA og fleirum.
ívar og
Haukur
ívar Sigmundsson framkv.stj.
Skíðahótelsins er nú í Mið-
Evrópu, en hann er fararstjóri
íslenska skíðalandsliðsins. Lið
ið er nú við æfingar en fara
síðan á heimsmeictpraro^Hð í
alpagreinum. Haukur Jóhanns
son er emn landsliðsmanna og
eini Akureyringurinn í lands-
liðinu að þessu sinni.
Leikfélag Akureyrar frumsýndi
á sunnudag bamaleikritið Snæ-
drottninguna eftir sovéska rit-
höfundinn Evgení Schwarz
(1897—1958). Leikstjóri er Þór-
unn Sigurðairdóttir,, leikmynd
teiknaði Þórunn S. Þorgríms-
dóttir og leikhljóð og tónlist eru
eftir Gunnar R. Sveinsson.
Leikritið er gert eftir ævin-
týri H. C. Andersens og geta
böm og fullorðnir dregið af því
lærdóm auk þess sem þetta er
hin besta skemmtun. Sögu-
manni, Gesti E; Jónassyni, tekst
vel að hrífa áhorfendur með sér
með glettni sinni og léttleika,
og Kristín Gunnlaugsdóttir leik-
ur Helgu litlu ágæta vel. Sig-
urður Sigurðsson leikur Karl,
vin hennar og bróður, af festu
og öryggi. Kristjana Jónsdóttir
leikur ömmuna af innlifun og
sannfæringu. Miklum kulda
stafar af snædrolttningunni,
Þóreyju Aðalsteinsdóttur, eins
og vera ber, og á hún ekki sam-
úð áhorfenda, enda er hún tákn
hins illa í leikritinu ásamt versl-
unarfulltrúanum, Þóri Stein-
grímssyni, og gera bæði hlut-
verkum sínum góð skil. Gervi
Kmmma og Kráku eru mjög
góð og leikur þeirra Aðalsteins
Bergdals og Nönnu Jónsdóttur
skemmtilegur. Sigríður Vigfús-
dóttir leikur Elsu prinsessu og
tekst henni að gera persónuna
sannfærandi í tepruskap og
einfeldni hennar. Jóhanna Birg-
isdóttir leikur ræningjatelpu af
miklum krafti og stafar af henni
ógn og skelfingu svo þetta leik-
rit fær unga áhorfendur bæði til
að hlæja og gráta. Saga Jóns-
dóttir, Hreinn Skagfjörð, Ámi
Valur Viggósson, Alfreð Almars-
son, Gunnar Eiríksson og Jón-
steinn Aðalsteinsson leika önn-
ur hlutverk og gera vel. Saga
er ótútleg sem ræningjaforingi
og Jónsteinn nær skemmtileg-
um hreyfingum í gervi hrein-
dýrsins.
Ekki er mikið skraut í þessari
sýningu, enda á það ekki við,
þegar verið er að lýsa góðleika,
manngæsku og einfaldleika og
er sýningin einföld og stílhrein.
Tryggvi Gíslason.
Þórey Aðalsteinsdóttir
í sínu hlutverki.
Smjörið lækkar
Hvert kílógramm af smjöri
kostaði 1342 krónur í smásölu,
en með deginum í dag gengur
verðlækkun í gildi á þeirri vöru
og kostar smjörkílóið nú 880
krónur. Verðlækkunin er 464
krónur, og er hér miðað við
besta smjörið. Niðurgreiðslur
ríkissjóðs hækka með þessari
breytingu úr 578 krónum í 1010
krónur hvert kíló. Auk þess
greiðir Framleiðsluráð landbún-
aðarins 339 krónur á kíló úr
verðmiðlunarsjóði mjólkur.
Ekki er ákveðið um gildistíma
þessa nýja verðs, en verðlækk-
unin mun stafa af allmiklum
smjörbirgðum í landinu.
Innritun í Námsflokka Akureyrar hefst mánudag-
inn 16. janúar og stendur til laugardags 21. jan.
Kennsla hefst 23. janúar. Innritað er í Gagn-
fræðaskólanum á Akureyri alla daga frá kl. 17-19
og í síma 11241.
Fyrirframgreiðslur útsvara og aðstöðugjalda
á Akureyri 1978
Bæjarstjórn Akureyrar hefir ákveðið fimm gjald-
daga á fyrirframgreiðslu útsvara og aðstöðu-
gjalda til bæjarsjóðs Akureyrar á árinu 1978, þ. e.
1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí og 1. júní.
Á hverjum þessara gjalddaga ber að greiða upp-
hæð, sem svarar til 14% af álögðu útsvari 1977.
Akureyri, 12. janúar 1978.
BÆJARRITARI.
Námsgreinar: Kennarar:
Bókband Þórarinn Loftsson
£ Bílaviðgerðir Svavar Gunnarsson
<L> l/O Enska II Hólmfríður Jónsdóttir
Enska III Hólmfríður Jónsdóttir
fö Enska IV Hrefna Torfadóttir
"5> Enska V Hrefna Torfadóttir
cz 0 Enska VI Hrefna Torfadóttir
o Esperanto II Ólafur Halldórsson
íslenska fyrir útl. Bárður Halldórsson
Skattaframtöl Karlotta Aðalsteinsdóttir
Spænska I María Svavarsson
Spænska II María Svavarsson
Sænska I Guðrún Hallgrímsdóttir
Sænska II Guðrún Hallgrímsdóttir
Vélritun I Guðbjörg Reykjalín
Vélritun II Guðbjörg Reykjalín
Vélritun III Guðbjörg Reykjalín
Þýska II Stefanía Arnórsdóttir
NÁMSFLOKKAR AKUREYRAR.
4 • DAGUR
DAGUR•5