Dagur - 01.02.1978, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LX. ARG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGUR L FEBRÚAR 1978 5. TÖLUBLAÐ
^nda'iejffl
Samkeppni
Minnt er á ritgerðasam.
keppni SÍS, sem auglýst
hefur verið og ætlað er að
æskufólk, 14—20 ára, taki
þátt í. Ritgerðarefnið er:
Samvinnuhreyfingin á ís-
landi, hlutverk hennar og
starfsemi. Verðlaunin nema
alls einni milljón króna og
skilafrestur er til 1. maí n.k.
Upplýsingar um ritgerða-
samkeppnina eru veittar í
síma 81225. Lengd ritgerð-
anna á að vera 4—12 vélrit-
aðar síður eða 1—3000 orð.
Utanáskrift er: Samvinnan,
Suðurlandsbraut 32, 105
Reykjavík.
Band og lopi
Fregnir herma, að á síðasta
ári hafi band og lopi verið
talsverð útflutningsvara,
eða samtals að magni 410
tonn. Aðrar fregnir herma,
að ullarvörur úr þessu efni
keppi í vaxandi mæli er-
lendis við fullunnar vörur
úr sama efni, unnar hér á
landi til útflutnings.
Lengi hefur það verið
áhyggjuefni og kinnroða-
efni margra góðra íslend-
inga, hve hörmulegt það er
að flytja úr landi lítt eða
ekki unnar vörur, jafnvel
aðeins hráefni, í stað þess
að keppa að fullvinnslu. fs-
lenskur ullariðnaður nálg-
ast listiðnað og íslensk ull
hefur sín sérkenni, sem erf-
itt er að líkja eftir í vönd-
uðum vörum. Það er því
álíka grátbroslegt að flytja
út lopa og band og að flytja
út grásleppuhrogn í tunn-
um.
Sjúkdómar í fé
Sigurður Sigurðsson dýra-
læknir á Keldum sagði
„Lungnapest, garnaveiki,
tannlos, kýlapest og riðu-
veiki og fleiri fjársjúkdóm-
ar eru að flæða austur um
Suðurland. Enginn vafi er
á að þeir munu gera sín
vart í auknum mæli á
næstu árum. Þeir munu
berast austur yfir Þjórsá
austur um Rangárvalla-
sýslu og til Eyjafjalla, til
Mýrdals og að fjallabaki til
Skaftafellssýslu austan
sands, ef ekki verða hertar
vamaraðgerðir. Forsmekk-
inn að þessum pestum hafa
Eyfellingar þegar fengið,
en það er lungnapestin. —
Enn er tóm fyrir Eyfellinga,
og raunar alla Rangæinga
og Vestur-Skaftfellinga, og
að vissu leyti Árnesinga
líka, að verjast ef þeir vilja
gegn frekari áföllum. Vam-
irnar sem til þess þarf em
fyrst og fremst fólgnar í því
að Sunnlendingar vakni af
svefninum til vitundar um
hættuna og vilji verjast; að
Sunnlendingar geri sér ljóst
hvaða varúðarreglur eru í
gildi og fari eftir þeim, eftir
því sem kostur er.“
i|
Fiskverðið
Á fundi sínum 25. janúar ákvað
Verðlagsráð sjávarútvegsins
nýtt almennt fiskverð. Verðið
gildir frá 1. janúar í ár og til
31. maí.
Er um að ræða 13% almenna
hækkun fiskverðs.
Ákveðið var að greiða sérstak-
stakan verðauka á stórufsa í
fyrsta gæðaflokki tímabilið l.\
janúar til 28. febrúar. Þá var
einnig ákveðið að auka verð-
mun á slægðri ýsu og óslægðri
og slægðum ufsa og óslægðum.
Verðið í heild var ákveðið
með atkvæðum seljenda, þ. e.
sjómanna og útvegsmanna, og
oddamanns, gegn atkvæðum
kaupenda.
Loðnuaflinn
Akraborgin í slipp á Akureyri. Allar áætlanir stóðust segja eigendur.
(Ljósm. E. D.)
Miklar framkvæmdir
Verið er í Slippstöðinni á Akur-
eyri að reisa 500 tonna skuttog-
ara, sem Magnús Gamalíelsson,
útgerðarmaður í Ólafsfirði hef-
ur keypt. En smíði skipsins fer
fram í einingum og það sem
kallað er, á máli skipasmíða að
reisa, er það að setja einingarn-
ar saman. Sagður er togari þessi
verða þeirrar náttúru að hægt
verður að fara á honum á loðnu
veiðgr, án þess tað hann né
nótaskip.
Væntanlega verður hann sjó-
settur síðsumars og að því
stefnt, að smíði hans verði lok-
ið áður en árið er allt.
íslendingar voru orðnir 222.055
hinn 1. desember sl., að ’því er
bráðabirgðatölur Hagstofunnar
sýna. Á síðasta ári mun lands-
mönnum hafa fjölgað um u.þ.b.
1500 manns, eða tæplega 0.7 af
hundraði, en árið áður hafði
þeim fjölgað um 0.85%.
Hlutfallslega fjölgaði íbúum
mest í Reykjaneskjörædmi á
síðastliðnu ári. Á Suðurnesjum
Kjalarnesi og Kjós varð fjölg-
Þá er stöðugt unnið að smíði
Óskars Magnússonar AK 177 og
verður sá togari afhentur í
seinni hluta febrúarmánaðar.
Hann er smíðaður fyrir botn-
vörpu og nót og er um 490 tonn.
Þá er í smíðum pólsksmíðað
nótaskip, sem á að geta tekið
um 800 tonn af loðnu og er nú
á Akranesi. Skip þetta keypti
Slippstöðin, sem skipsskrokk,
sem dreginn var hingað til lands
og hefur verið unnið að leng-
ingu og yfirbyggingu og fleira
á Akranesi, en hingað verður
hann dreginn um miðjan febrú-
unin mest hlutfallslega eða rúm
3%. Á höfuðbargarsvæðinu utan
sjálfrar Reykjavíkur varð fjölg-
unin sem næst 2,4%, en í Reykja
vík sjálfri fækkaði íbúum hins
vegar um 646.
Uti á landi varð alls staðar
nokkur fjölgun. Mest varð hún
á árinu á Norðurlandi eystra, en
þar fjölgaði um tæp 2%. Þar
næst koma Vestfirðir, en þar
fjölgaði hlutfallslega um 1,35%.
ar og lokið við smiði hans hjá
Slippstöðinni á Akureyri. Skip
þetta er óselt.
Þá má geta þess, að í smíðum
er rúmlega 20 tonna trébátur,
sem senn verður tilbúinn og þá
til sölu.
Þess má geta, að nýsmíðar
hjá Slippstöðinni og skipavið-
gerðir skiptast nokkurn veginn
til helminga.
Miðvikudaginn 1. febrúar frum
sýnir Leikfélag Dalvíkur
finnska leikritið „Fjölskyldan“
eftir Claes Anderson, leikstjóri
er Saga Jónsdóttir, leikmjmd
gerir Jón Þórisson og lýsingu
gerði Magnús Axelsson. Með
hlutverk fara Teódór Júlíusson,
Dagný Kjartansdóttir, Inga
Matthíasdóttir, Kristján Hjart-
arson, Lovísa Sigurgeirsdóttir,
Sólveig Hjálmarsdóttir og Rún-
ar Lund. Einnig hafa margir
aðrir lagt hönd á plóginn og
Á miðunum eru nú 65 skip. Eru
það fleiri skip en áður hafa
stundað þessar veiðar og betur
búin. En aflinn, það sem af er
vertíðinni, var orðinn tæp 60
þúsund tonn um síðustu helgi,
Veðráttan hefur verið óhag-
stæð og „fyrsta gangan“ af loðn-
unni fannst aldrei. Þá hafa fiski-
fræðingar látið í ljós, að loðnu-
stofninn kunni að hafa minnkað
nokkuð.
Rannsóknarskipin Ámi Frið-
riksson og Bjami Sæmundsson
eru við loðnuleit á miðunum úti
fyrir Norðurlandi.
Mest af þeirri loðnu, sem
hingað til hefur veiðst á þessari
vertíð, hafa skipin fengið á Kol-
beinseyjarsvæðinu.
lætur nærri að um 20 manns
hafi starfað að undirbúningi sýn
ingarinnar.
1 „Fjölskyldunni“ er varpað
upp greinilegum myndum af
samskiptum bama og foreldra,
drykkjuskap og sambúð hjóna.
Leikritið var sýnt hjá Leikfélagi
Reykjavíkur árið 1975 við mjög
góðar undirtektir.
Næstu sýningar verða föstu-
dags- og þriðjudagskvöld kl. 21.
Fyrirhugað er að ferðast með
verkið um nágrannabyggðir.
(Fréttatilkyiming).
Að læra af öðrum
Landsmenn l.des.
Fjölskyldan sýnd
Gunnarsstöðum 30. janúar. —
Senn mun Fontur fara að fiska
eftir langa og mikla viðgerð
syðra. Vænkast þá hagur okkar.
En 'bátar reyta aðeins á línu hér
þegar gefur, en það er lítið um
gæftir.
Snjór er lítill og ágætlega
fært hér um sveitir. Fénaður er
auðvitað á fullri gjöf, sem að
líkum lætur.
Nú standa heimsóknir bænda
yfir og er það gamall og góður
siður. Við sýnum systrahópa,
sem ýmislegt má af læra í sauð
fjárræktinni, berum saman bæk
ur okkar og læmm hver af öðr.
um. Betur sjá augu en auga, og
því fleiri sem saman koma, sjá
og ræða málin, þess meiri ár-
angur af gagnkvæmum heim-
sóknum. Þessi siður hefur lengi
verið hjá okkur.
Þorrablót er framundan og
sjónleikur er æfður. Ó. H.
Fiskur
Hrísey 30. janúar. — Snæfellið
landaði 63 tonnum úm helgina
og nú eru allir á kafi í fiski og
þykir okkur það gott. Loðnu-
bræðsluskipið NorgloBal liggur
héma vestur á sundinu og blas-
ir við. Verið er að landa í það
loðnunni.
Snjór er næstum enginn, að-
eins föl. Líferni fólks er skikk-
anlegt en þorrablót verður um
helgina.