Dagur - 15.03.1978, Side 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjómarsímar: 11166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 11167
Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVÍÐSSON
Blaðamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Bjömssonar hf.
Flokksþingið
Flokksþing Framsóknarflokksins
stendur nú yfir í Reykjavík, hið 17 í
röðinni, en þau eru haldin fjórða
hvert ár, en miðstjórnarfundur
flokksins verður í lokin. Á fimmta
hundað manns, fulltrúar úr öllum
héruðum landsins, mættu til þings
og fer það fram í Bændahöllinnni.
Á flokksþinginu verður stefna
flokksins í einstökum málum
endanlega og formlega mörkuð,
og verður að henni vikið síðar hér í
blaðinu. En þau mál, sem fyrst og
fremst koma tíl meðferðar á þingi
þessu, eru þjóðmálin og svo innri
mál flokksins. Meðal þjóð-
málanna verða það eflaust
efnahags- og atvinnumál og fleiri,
bæði stærri og minni málaflokkar,
sem flokksþingið tekur afstöðu til.
í núverandi stjórnarsamstarfi
með Sjálfstæðisflokknum hafa
merkir áfangar náðst og er það
fyrst að nefna fullan sigur í land-
helgismálinu, full afköst atvinnu-
veganna og næga atvinnu um land
allt. Þá hefur landsbyggðarstefn-
unni verið fylgt fram. Allt eru þetta
stórmál, sem vel hefur verið staðið
við af hendi stjórnvalda. En viður-
kenna ber, að núverandi ríkis-
stjórn hefur ekki ráðið við verð-
bólguvandann og fylgikvillar
mikillar verðbólgu, sem hér á
landi hefur þróast örar en í ná-
lægum löndum, eru margvíslegri
og meiri bölvaldar en menn hafa
hingað til fengist til að viðurkenna
í verki.
Sú mynd, sem nú blasir við er
ókyrrð á vinnumarkaðinum vegna
bráðabirgðalaga, sem nýlega voru
sett um gengisbreytingu og
skerðingu vísitöluákvæða kaup-
taxta, óðaverðbólga og af hennar
vöidum meðal annars erfiðleikar
útflutningsatvinnuveganna,
skuldabyrðin við útlönd og þrot-
laus eyðsla og jafnvel hrein sóun
gjaldeyris. Við þessi vandamál
verður ríkisstjórnin, sem nú situr
að glíma og einnig sú stjórn, sem
verður að afloknum kosningum.
Til þess verður ætlast af Alþingi
og ríkisstjórn, að þau geti í góðæri
séð fótum þjóðarinnar forráð, og
af meiri fyrirhyggju en staðreyndir
efnahagslífsins benda til.
Stjórnmálaflokkar marka sínar
stefnur, sem þeir berjast fyrir í
næstu kosningum. Þess er nú
beðið, að heyra markmið og leiðir
þess flokks, sern ábyrgastur og
þjóðhollastur er talinn íslenskra
stjórnmálaflokka, og nú heldur 17.
flokksþing sitt í Bændahöllinni í
Reykjavík. Um leið og blaðið árnar
þinginu heilla í störfum, er þess
fastlega vænst, að það marki
djarfa og drengilega stefnu í efna-
hagsmálunum, öllu öðru fremur.
Viljum gera Dynheima að
öflugri félagsmiðstöð
Æskulýðsheimilið Dynheimar
(Lón) hefur verið starfrækt á
vegum Akureyrarbæjar í rúm-
an hálfan áratug. Þegar húsið
var keypt var það það í heldur
bágbomu ástandi, en stöðugt
hefur verið unnið að viðgerðum
og í dag verður sá hluti húss-
ins sem Æskulýðsráð hefur til
umráða að teljast mjög viðun-
andi. Hins vegar er áhugi fyrir
því að ráðið fái neðri hæð húss-
ins, en hún er í eigu Kaupfélags
Eyfirðinga. Þar er starfrækt tré-
smíðaverkstæði og hafa for-
ráðamenn KEA tekið vel í þá
málaleytan að selja verkstæðið,
þegar fundist hefur hentugt
húsnæði fyrir það.
var inntur eftir því í upphafi,
hvemig starfsemin hefði gengið
að undanförnu.
Starfsemin flytur æ meir
út í skólana.
Vantar góða
fundaaðstöðu.
Diskótekin njóta sömu
vinsælda og dansleikir.
— Nokkuð vel. Þegar við
byrjuðum sl. haust höfðum við
sama snið á, og undanfarin ár.
Klúbbar voru stofnaðir, en þeir
eru heldur færri en oft áður.
Astæðan er sú að þessi þáttur
Dagur ræöir viö
Harald Hansen
fi a
Haustið 1976 var tekin upp
sú stefna að hafa diskótek í stað
dansleikja, eins og áður hafði
verið. Þessi ákvörðun varð til
þess að ólæti unglinga minnk-
uðu til muna og sömu sögu er
að segja um neyslu áfengis. Að
vísu áttu diskótekin örðugt upp
dráttar í fyrstu, en í dag njóta
þau álíka vinsælda og ef um
hljómsveit væri að ræða.
starfseminnar hefur sífellt verið
að færast meir og meir út í skól-
ana. Til dæmis stofnaði Nem-
endafélag Gagnfræðaskólans,
ásamt Æskulýðsráði, nokkra
klúbba, sagði Haraldur. — Núna
— Það hefur verið mjög erf-
itt fyrir klúbbana að halda t. d.
fundi í Dynheimum. Hver þekk-
ir það ekki að sitja á fimmtán
manna fundi í sal sem rúmar
rétt um eitt hundrað manns?
Þannig er það í dag og þessir
klúbbar hafa ekki geymslur
fyrir sína hluti. Það eitt út af
fyrir sig er nógu slæmt. Ég vil
taka það strax fram að trésmíða-
verkstæðið er ekki í stóru hús-
næði, en það myndi gera okkur
kleift að innrétta fundaher-
bergi og eitt geymsluherbergi.
Með þessu mót fengist mun
betri nýting á Dynheimum og
t. a. m. mætti hugsa sér alls-
kyns starfsemi í stóra salnum
sem fær ekki inni í dag.
Áfengisneysla
er mjög lítil.
Sumir bæjarbúar hafa löng-
run hneyklast á víndrykkju
unglinganna sem sækja Dyn-
heima. Það er hægt að fullvissa
þá sem hæst gjamma, að áfeng-
út. Þau voru víst að bræða það
með sér hvort þau ættu að fara
inn eða norpa í miðbænum. Við
sáum á eftir þeim inn fyrir dyr,
en eflaust hafa þau — eða ein-
hverjir aðrir gestir Dynheima,
beðið fyrir utan önnur danshús
bæjarins eftir að diskótekinu
var lokið. Ef einhver hefur hald.
ið að það, sem krakkamir fá að
sjá, auki virðingu þeirra fyrir
hinum eldri, er það hinn mesti
misskilningur. — á.þ.
*
* ^
Arnald Reykdal sigraði og spilaði fyrir
Efnaverksmiðjuna Sjöfn
Firmakeppni Bridgefélags Akur- 6. Mjólkursamlag KEA 109
eyrar er nýlega lokið. Sigurvegari Sp. Jóhann Helgason.
varð Efnagerðin Sjöfn með 123
stig. Spilari var Arnald Reykdal.
Að öðru leyti urðu úrslit þessi:
Stig
2. Lögfræðistofa Steindórs
Gunnarssonar. ^ 122
Sp. Ingimundur Arnason.
3. Jón Bjarnason úrsmiður 118
Spilari Jón Stefánsson.
4. Lögfræðistofa Asmundar
Jóhannssonar 115
Sp. Þorvaldur Pálsson.
5. Drangur 114
Sp. Þormóður Einarsson.
NÝ FISKABÓK AB
Almenna bókafélagið hefur sent
frá sér aðra útgáfu af bókinni
Fiskar og fiskveiðar við ísland og i
norðurhöfum eftir Preben Dahl-
ström og Bent J. Muus þýdda og
staðfærða af Jóni Jónssyni fiski-
fræðingi. Fyrsta útgáfa bókarinnar
kom hér út 1968 og segir Jón Jóns-
son í formála þeirrar útgáfu:
„Bókin er miðuð við fiskveiðar
undan ströndum Norðvest-
ur—Evrópu og helstu tegundir
fiska á því hafsvæði. Þótt hér sé því
getið allra þeirra tegunda, sem
mesta þýðingu hcfa í veiðum ls-
lendinga, þótti mér ekki fært annað
en bæta inn í textann ýmsum frek-
ari upplýsingum um lifnaðarhætti
helstu nytjafiska okkar, svo og þær
veiðar, er á þeim byggjast.“
Texta fyrstu útgáfu hefur í þess-
ari nýju útgáfu verið breytt í sam-
ræmi við þá þróun sem orðið hefur
í fiskveiðimálum, síðanm fyrsta út-
gáfa kom út. Að öðru leiti er önnur
útgáfa óbreytt frá þeirri fyrri, að
því er Jón Jónsson segir í formála.
7. Olís 109
Sp. Sveinbjörn Sigurðsson.
8. Smári h.f. 109
Sp. Grettir Frímannsson.
9. Bifv.verkst. Jóhannesar
Kristjánssonar 107
Sp. Guðm. Svavarsson.
10. Bautinn h.f. 106
Sp. Ármann Helgason.
110 fyrirtæki tóku þátt í
keppninni.
Bridgefélag Akureyrar þakkar
öllum fyrirtækjunum veittan
stuðning.
Jón Stefánsson
einmennings-
meistari 1978
Einmenningsmeistari félagsins
varð Jón Stefánsson með 307
stig. Að öðru leyti urðu úrslit
þessi: stig
2. Grettir Frímannsson 304
3. Ármann Helgason 300
4. Ingimundur Árnason 299
5. Gylfi Pálsson 293
6. Arnald Reykdal 292
Tryggvi Gíslason skrifar um leiklist
En það er ekki bara dansað í
Dynheimum. Þar hefur Æsku-
lýðsráð staðið fyrir ýmiskonar
námskeiðum og t. d. voru stofn-
aðir 1976 eftirfarandi klúbbar:
Leiklistarklúbbur, radíóklúbb-
ur, hljómplötuklúbbur og gömlu
dansaklúbbur. Upphaf þeirra
voru námskeið Æskulýðsráðs og
þess má geta í framhjáhlaupi að
leiklistarklúbburinn ætlar að
fara að setja barnaleikrit á svið.
Dynheimar standa opnir öllum
félögum og félagasamtökum og
hefur verið töluvert um það að
félög hafi notfært sér húsakynn-
in, t .d. fyrir fundi, skemmti-
kvöld, verðalaunaafhendingar
og fleira. Yfirleitt hefur það
verið notað á hverju kvöldi yfir.
vetrarmánuðina.
Til þess að forvitnast ögn nán-
ar um starfsemi þá er fer fram
í Dynheimum, fór tíðindamaður
Dags á fund Haralds Hansen
framkvæmdastjóra hússins.
Eftir að Haraldur hafði sýnt
undirrituðum húsið, þá settumst
við inn á skrifstofu, og hann
erum við að reyna að koma á
fót klúbbastarfsemi í Glerár-
skóla, enda er það álit þeirra
sem að þessum málum vinna,
að þátttaka í klúbbum sem mun
meiri, ef þeir eru færðir út í
hverfin.
— Verða Dynheimar ekki
ónauðsynlegir ef þið ætlið að
flytja starfsemina út í hverfin?
— Nei, það er mikið að fé-
lögum hér í bænum sem hafa
lítið eða lélegt húsnæði fyrir
starfsemi sína. Hins vegar þurf-
um við á neðri hæð hússins að
halda, til þess að geta boðið
fólki upp á gott húsnæði. Raun-
ar má segja að það myndi
Dynheimum úr dansstað í fé-
lagsmiðstöð. Við höfum rætt
hugsanleg kaup á neðri hæð-
inni við forráðamenn KEA og
hafa þeir verið okkur mjög vel-
viljaðir. Hins vegar verður að
finna gott húsnæði fyrir tré-
smíðaverkstæðið, en þá getum
við farið að ræða kaupin af ein-
hverri alvöru.
isneysla krakkanna er hverfandi
Htil. Hún minnkaði til muna
eftir að ákveðið var að diskó-
tekin hættu fyrr, en venja var
til. I byrjun ársins var aldurs-
takmarkið lækkað um eitt ár og
er nú miðað við árið 1964. Dans-
leikjum er lokið kl. 23.30 á
föstudögum og á miðnætti á
laugardögum. Unglingamir eru
ekki allskostar ánægðir með
þennan tíma og sagði Haraldur
að e. t. v. stæðu dansleikimir
nokkm lengur í framtíðirmi.
Það getur ekki talist dýrt að
sækja Dynheima. Haraldur
tjáði blaðinu að inngangseyrir-
inn væri fimm til sexhundruð
krónur, sem er mun lægra verð
en á sveitaböllunum — svo ekki
sé talað um Sjálfstæðishúsið.
Hljómflutningstækin em góð,
a. m. k. geta þau framleitt gífur-
legan hávaða og það ku vera
mjög eftirsóknarvert þegar þess
konar tæki eru annars vegar.
Það vom nokkrir krakkar
sem stóðu úti fyrir dymm Dyn-
heima er við Haraldur gengum
Leikfélag Akureyrar:
ALFA BETA
eftir E.A. Whitehead
Þessi sýning Leikfélags Akur-
eyrar á enska leikritinu ALFA
BETA er vönduð og traust.
Leikstjóri, Brynja Benedikts-
dóttir, hefur hugað að hverju
smáatviki, þýðing Kristrúnar
Eymundsdóttur er mjög góð
og leikmynd Þráins Karlsson-
ar sérlega vel gerð.
Um skeið hafa menn haft
þá trú að rétt væri að draga
fram í dagsljósið og rseða allt,
sem á sér stað í mannfélagu
samlfdlagi. Er þetlla í raun
eðlileg afleiðing raunsæis í
bókmenntum og listum, sem
hófst fyrir meira en einni öld
og var liður í baráttu manna
fyrir rétti sínum og gegn kúg-
un og misrétti. Til þess að
létta af kúgun og baeta mis-
rétti er nauðsynlegt að gera
sér grein fyrir bæði misréttinu
og kúguninni, og til þess þarf
að draga hvort tveggja fram í
dagsljósið og ræða það. En
lausnin er ef til vill enn langt
undan, þótt miðað hafi í rétta
átt. Enn viðgengst misrétti, og
víða er beitt kúgun og ofbeldi
í mannlegum samskiptum,
meðal annars í hjónabandinu
og í fjölskyldunni, sem sumir
telja hornstein vestrænnar
menningar (og lýðræðis) og
aðrir telja helsta vígi auðvalds
skipulagsins og brjóstvörn
kúgunar þess. Hér fæst að sjálf
sögðu ekki einfalt svar við
flókinni spurningu. Enda þótt
eign atvinnutækjanna og
skipting arðsins sé víða undir.
rót misréttis og kugunar er
fleira sem veldur mismun-
andi manngerðir, leyndardóm
ar gagnsefjunar og ófúilnægja
sem rekja má til vanmáttar
mannsins.
Ekkert skortir á berort tal
og djarfmæltar lýsingar í leik
riti E. A. Whiteheads. Er það
mikill vandi að finna þessu
tali rétt orð. Tekst þýðanda
það furðuvel.
Hj ónabandsarj i ir eru orðn-
ar algengt viðfangsefni í bók-
menntum vesturlanda, og þyk
ir mörgum nóg um. Enda þótt
leikritið lýsi hjónaerjurn má
ef til vill telja, að efni þess
sé meira en hjónabandserjur
einar og leikritið fjalli um bar
áttu manna (og kvenna) fyrir
frelsi sínu og persónulegu
sjálfstæði. í rauninni er leikrit
þetta þáttur í kvenfrelsisbar-
áttu, eða réttara sagt mann-
frelsisbaráttu síðustu ára. Höf-
undur virðist þó ekki skella
allri skuldinni á samfélagið,
auðvaldið og misskiptingu
arðsins, heldur virðist mér
hann rekja ógæfu þessa fólks
til eigingirni þess og sjálfs-
elsku, til tillitsleysis þess og
vanstillingar. Lýsingar verks-
ins skjóta skökku við boðorð
hins fómæla samfélags, þar
sem aðgát skal höfð í nærveru
sálar og trúin á að talað orð
verði ekki aftur tekið er ríkj-
andi og fullvissas um betra sé
heilt en vel gróið er mönnum
í merg runnin. Þetta hefur
verið trú manna í íslensku sam
félagi. En gott er að hrista upp
í lognmollunni, þótt ljótt orð-
'bragð leysi að lokum engan
vanda.
Sigurveig Jónsdóttir hefur
oft sýnt stórbrotna hæfileika
sína á leiksviði. Hún gerir það
enn í þessu verki þar sem hún
lýsir sístarfa konunnar, sem
leyna vill ótta sínum og örygg
isleysi og felur kröfugirni sína
í umburðarlyndi. Að lokum
situr hún eftir útbrunnin með
hótanir sínar, sem ekki mega
sín neins. Túlkun Sigurveigar
er mjög áhrifamikil, og mætti
kalla þetta leiksigur, ef hún
hefði ekki fyrir löngu sannað
leikhæfileika sína.
Erlingur Gíslason kann vel
verk sitt sem leikari. Honum
tekst enn að gæða leik sinn
náttúrulegum andblæ, og svip-
ur þessa raunsæja, berorða
verks verður eðlilegur í hönd-
um tveggja mikilhæfra leik-
ara.
Þór var í fallhættu
KA bjargaði
Þór og Grótta léku í fallbarátt-
unni f annarrl delld s.l. föstu-
dagskvöld. Staða Gróttu í
deildinni var mjög slæm, en
með því að vinna bæði Þór og
KA gátu þelr fleytt sér yflr
verstu hindrunina. Gróttumenn
hófu lelkinn af fullum krafti, og
skoruðu hvert marklð á fætur
öðru. Þegar leikið hafði verið í
10 mrnútur var staðan orðin 7
mörk gegn 2 fyrlr Gróttu. Þessi
markamunur hélst það sem
eftlr var hálfleiksins en þá var
staðan 15 gegn 10 fyrir Gróttu.
I síðari hálfleik tókst Þórsurum að
minnka muninn allt niður í tvö
mörk, en þeir voru mjög óheppnir
með mörg af sínum skotum og
sóknum, og Grótta sigraði með 26
mörkum gegn 23. Flest mörk Þórs
skoraði Sigtryggur — 10 alls, þar
af 5 úr víti. Árni gerði 5, og Jón
Sig 4.
Gróttumenn verðskulduðu
sigur, en eins og áður segir voru
Þórsarar mjög óheppnir með skot
Leiðrétting
f Degi, í síðustu viku, var grein frá
komu iþróttamanna úr íþrótta-
félagi fatlaðra í Reykjavik. Þar
láðist að geta þess að Akureyrar-
bær bauð gestunum í
hádegidsverð a á sunnudag, og
fBA bauð til kaffidrykkju.
Æskulýðsráð fór með gestina upp
i Skíðahótel, og var þeim ekið um
Hlíðarfjall i snjóbO, og aðstoðuðu
félagar í Hjálparsveit skáta við þá
ferð. M.a. fengu margir fatlaðir
íþróttamenn að fara í stólalyftuna
og höfðu af þvi hina mestu
skemmtun. Þjálfarar íþrótta-
félags fatfaðra á Akureyri eru
Magnús Ólasfsson og Þröstur
Guðjónsson.
sín og sóknir. Þórsarar voru nú í
mikilli fallhættu nema félagar
þeirra í KA ynnu Gróttu næsta
dag. Það gerðu KA menn svo
sannarlega, en þeir gjörsigruðu
Gróttu með 24 mörkum gegn 14,
og með þeim sigri sendu þeir
Gróttu niður í þriðju deild. Jón
Hauksson var bestur KA manna
en hann á nú hvern stórleikinn á
fætur öðrum. Þá varði Gauti
einnig markið mjög vel. Akur-
eyrarfélögin eiga aðeins éftir að
leika einn leik hvert, og það við
hvort annað, og vonandi verður
þar um góðan leik að ræða og
góður handbolti látinn sitja í
fyrirrúmi en ekki pústrar og
hrindingar.
Þórsstúlkur unnu
Þórsstúlkur léku vlð stðllur
sfnar úr Haukum í fyrstu deild
f handknatlelk s.l.
fðstudagskvöld. Haukar
byrjuðu leiklnn a( fullum
krafti og í fyrrl hálfieik var, á
tfmablll, 5 marka munur
Haukum f hag. Þórsstúlk-
unum tókst hins vegar smám
saman að minnka munlnn og
skömmu fyrir lelkslok tókst
þeim loks að jafna 9 mðrk
gegn 9.
Þegar rúm mínúta var til
leiksloka var dæmt vítakast á
Þórsara. Auður Dúadóttir
markmaður Þórs varði víta-
kastið og Þórsarar fengu
boltann á síðustu minútunni og
eftir mikinn „darraðardans“
beggja liða skoraði Anna Greta
aðeins örfáum sekúndum fyrir
leikslok og tryggði Þór sigur —
10 mörk gegn 9. Vonandi hafa
Þórsstúlkumar með þessum
sigri sínum tryggt sér sæti í
fyrstu deild.
Akureyrarmót
yngsta
skíðafólksins
Tapí
Körfubolt-
anum
Þór og KR léku síðari leik sinn í
fyrstu deild i körfubolta um
síðustu helgi. KR-ingar voru
fyrirfram taldir sigurvissir, en
þeir tróna nú á toppi
deildarinnar. Þórsarar stóðu hins
vegar í meisturunum og í fyrri
hálfleik munaði oftast tveimur til
þremur stigum á liðunum.
KR—ingar voru síðan sterkari á
endasprettinum og sigruðu með
86 stigum gegn 71.
Leikur þessi var mjög góður
hjá Þórsurum og einn sá besti í
vetur. Að venju skoraði Mark
flest stig, eða 31, Jón Indriða
gerði 14 og Eiríkur 10. Hjá KR
skoraði Picca 22, og Einar Bolla-
son 21. Næsti leikur Þórs er í
bikarkeppninni á þriðjudags-
kvöld kl. 20 og þá við Val. en á
laugardaginn leika þeir hér í
Skemmunni við ÍR kl. 15.00.
Stúlkurnar leika sama dag við ÍR
kl. 16.30 Kvennalið Þórs lék tvo
leiki við stöllur sínar úr KR.
Annar leikurinn var í deildinni en
hinn í bikarkeppninni. Þórsarar
töpuðu báðum en ekki með
miklum mun.
Á sunnudaginn var haldið Akur-
eyrarmót í stórsvigi fyrir yngstu
skíðamennina. Veður var gott til
að byrja með, en síðan kom hríð
og dimmviðri, og varð að hætta
keppni áður en kom að flokki 10
til 12 ára.
Úrslit mótsins urðu þessi:
Stúlkur 7 ára og yngri.
1. María Magnúsdóttir KA 48.4
2. Rakel Reynisdóttir Þór 60.8
3. Eva Jónasdóttir Þór 90.5
Eva er eflaust yngsti Akur-
eyringurinn, sem hafnað hefur í
verðlaunasæti, á Akureyrarmóti á
skíðum, en hún er aðeins 3 ára.
Foreldrar hennar eru kunnir
skíðamenn, Jónas Sigurbjömsson
og Guðrún Frímannsdóttir.
Drenglr 7 ára og yngrl.
1. Jón Ingvi Árnason KA 44.2
2. Jón Harðarson KA 45.5
3. Vilhelm Þorsteinsson KA 45.7
Stúlkur 8 ára.
1. Kristín Hilmarsdóttir Þór 58.2
2. Laufey Þorsteinsdóttir KA 62.4
3. Kristin Jóhannsdóttir Þór 69.6
8 ára drenglr.
1. Jón Halldór Harðarson KA
61.3
2. Jónas R. Einarsson KA 62.1
3. Gísli Magnússon KA 62.3
9 ára stúlkur.
1. Erla Bjömsdóttir Þór 58.8
2—4 Gréta Björnsdóttir Þór 58.9
2—4 Ama fvarsdóttir KA 58.9
2—4 Hanna Dóra Markúsd. KA
58.9
9 ára drengir.
1. Hilmir Valsson Þor 52.6
2. Gunnar Reynisson Þór 56.0
3. Aðalsteinn Árnason Þór 58.1
Unglingameistaramót
íslands á skíðum fer
fram í Hlíðarfjalli
dagana 18.—20. mars
4 DAGUR
DAGUR•5