Dagur


Dagur - 26.04.1978, Qupperneq 8

Dagur - 26.04.1978, Qupperneq 8
DAGUR Akureyri, miðvikudaginn 26. apríl Sl. fðstudag var slökkvlllð Akureyrar kallað út vegna bruna í vöruportl BTB. Þar var eldur laus í tlmburhlaða og samkvæmt upplýsingum frá slökkvlllðinu munu 38 búnt af timbri hafa skemmst meira eða minna, þannig að um töluvert tjón er um að ræða. Grunur leikur á að börn hafi verið af fikta með eld- spítur með fyrrgrelndum afleiðlngum. Nú fer sá tíml ( hönd að sinubrunar gerast algengir í landi bæjarins. Þeir eru hlnsvegar algjörlega bannaðlr nema með fengnu leyfi frá slökkviliðsstjóra. Foreldrar og umráðamenn barna eru sérstaklega beðnlr um að gera börnunum grein fyrir þeim hættum sem af sinubrunum geta stafað. Undarleg var sú yfirreið Rlfkelsstöðum 16. apr. Vetri er að ljúka og nú er vorblíða. Snjór er svo til horfinn og hefir aldrei verið mikili í vetur, en svellabræðingur nokkur. í félagslífi hafa verið fremur lítil tilþrif hér um slóðir. Engin sjón- ieikur hefur verið settur upp innan hrepps. En hér hafa þó verið sýndir sjónleikir, sem æfðir hafa verið í nágrannasveitum og hefir það ver- ið vel þegið. Þorrablót var haldið í Freyvangi að venju, var þar fjöl- menni og hin ágætasta veisla. Guðmundur Þorsteinsson frá Akureyri hefir æft blandaðan kór hér í vetur og mun hann iáta til sín heyra upp úr sumarmálum. Þátt- takendur eru úr öllum hreppum innan Akureyrar. Af hitaveituframkvæmdum er fremur lítið að segja. Narfi heldur áfram borun að Ytri-Tjörnum, þar sem þegar hefir náðst góður árang- ur og líkur taldar á að enn meira vatn fáist þar en þessir 40 l á sek af 75 gráðu heitu vatni, sem þar streyma upp úr jörðinni. Búið er að tengja nokkra bæi við hitaveitunna, en æskilegri hefði verið meiri hraði á þeim framkvæmdum. Búið er að mæla fyrir hitalögn um hreppinn og stinga niður hælum, þar sem leiðslan skal koma og það jafnvel tvisvar. Nú síðast í vikunni sem leið, voru tveir menn frá hitaveitu Akureyrar á ferðinni að mæla upp fjósin á bæjunum vegna tilvonandi hitaveitu. Áttu margir illt með að skilja þá yfirreið. JH. DAGIJR kemur næst út föstudaginn 28. apríl. Vegaáætlun 1978 Framkvæmdir á Norðurlandi Vegaáætlun fyrir árið 1978 hefur verlð lögð fram tll annarrar um- ræðu á Alþlngi. Fastlega má gera ráð fyrlr að hún verðl sam- þykkt án teljandi breytinga. Samkvæmt glldandl vegaáætlun voru nlðurstöðutölur 7 milljarðar króna en við endurskoðun hefur hún hækkað um rúma 2 mill- jarða króna. Fjármagn hefur verið útvegað vegna hækkunar- innar. Af þessari upphæð fer 1 milljarður og 130 milljónlr til nýrra þjóðvega. Melrakkasléttu á að vinna fyrir 42 milljónir og lánsheimild er fyrir 5 milljónum. Syðra Áland-Langa- nesvegur: Á þessum kafla verður unnið fyrir 15 milljónir. í Ólafs- fjarðarvegi verður unnið fyrir 24 milljónir. Lánsheimild er fyrir 8 (Framhald á bls. 6). Áætlunin gerir ráð fyrir að 20 milljónum verði varið til vegagerð- ar á öxnadalsheiði. í veginn norðan Akureyrar og að gatna- mótum Dalvíkurvegarins á að verja 66 milljónum og lánsheimild er fyrir 12 milljónum. í Ljósavatns- skarði verður unnið fyrir 8 milljónir. I vegarkaflann Kross-Fosshóll verður varið 10 milljónum og láns- heimild er fyrir 3 milljónum. Brún-Máskot: þar á að vinna fyrir 10 milljónir. Lánsheimild er fyrir 5 milljónum. Vestan Helluvaðs á að vinna fyrir 6 milljónir og í kafl- anum Árnarvatn-Námaskarð á að verja 80 milljónum. f Ólafsfjarðar- vegi að Hörgárdalsvegi verður unnið fyrir 30 milljónir. Hagaás-Dalvík: þar verður unnið fyrir 20 milljónir og lánsheimild er fyrir 12 milljónum. í Köldukinn verður unnið fyrir 21 milljón og lánsheimild er fyrir 7 milljónum. í vegagerð á Tjörnesi verður varið 20 milljónum. Lón-Víkingavatn: þará að framkvæma fyrir 26 milljónir og lánsheimild er fyrir 5 milljónum. Á Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum. Mynd: E.D. Framboös- þjónusta Samtakana Samtök vinstri manna á Akureyri hafa lagt fram framboðslista sinn til bæjarstjórnarkosninga og eru þessir efstir: 1. Ingólfur Árnaspn, raf- veitustjóri, Byggðavegi 132. 2. Úlfhildur Rögnvalds- dóttir, húsmóðir, Eikar- lundi 8. 3. Þorsteinn Jónatansson, ritstjóri, Grundargerði 3a. 4. Dröfn Friðflnnsdóttir, húsmóðir, Lerkilundi 38. 5. Ari Rögnvaldsson, vél- stjóri, Skálagerði 2. 6. Björn Hermannsson, verkstjóri. Aðalstræti 54. „Óánægður farþegi sendi eftirfarandi: Eins og kunnugt er, hafa Flugleiðir svo gott sem einokun á flugsamgöngum innan- lands sem utan og mætti ætla að hægt væri að reka þennan þátt samgangna án teljandi erfiðleika, en fyrirtækið kvartar um lé- lega afkomu á innan- landsfluginu. Þjónustan er heldur ekki frábær — það má ekki hreyfa vind því þá fer áætlunin á skjön. Það væri út af fyrir sig f lagi, ef allt kapp væri lagt á að koma þeim sem bíða f áfangastað sem fyrst. Þ.e. að fljúga til viðkomandi staðar strax og veður leyfir og hætta ekki fyrr en síð- asti farþeginn er kominn um borð. • Leiöur þvælingur „óánægður heldur áfram: Föstudaginn 14. apríl féll niður flug til og frá Akur- eyri. Á laugardag kom ein flugvél um morguninn, önnur um miðjan dag og það var ekki fyrr en um kvöldið að fjör fór að að færast í leikinn, en 1>á höfðu sumir beðið vel rúmar sólarhring. Annað dæmi: Um páskana urðu farþegar í Reykjavík, sem ætluðu til Akureyrar, að hafa stöðugt samband við Reykjavíkurvöll og a.m.k. einu sinni voru þeir beðnir um að mæta. Að lokum var farið með þá til Keflavíkur. Þar var farið um borð í þotu, henni ekið dágóðan spöl um völlinn, en far- þegunum sfðan boðið að fara inn aftur. Biðin á Keflavíkurvelli var mæld í klukkustundum og engin versiun var opin og fengu farþegarnir því hvorki vott né þurrt, enn síður baðst fyrirtæklð afsökunar á þessum þvælingi. # Píanóleikari frá Akureyri Jóhannes Vigfússon píanóleikari frá Akureyri lék nýlega á hljómleikum í Wintherthur f Sviss og gat sér góðan orðstfr. f einu svissnesku blað- anna dáir gagnrýnandinn einieik Jóhannesar, en verk það er þarna var frumflutt , er eftir Martin Schlumpf. I sama blaði, degi fyrr, segir gagnrýn- andinn að píanóleikur Jó- hannesar hafi verið mjög sannfærandi. Og í öðru blaði segir frá þvf, að ein- leikaranum hafi verið mjög vel fagnað að leik loknum. Kærðir fyrir of mörg net í síðustu viku kom varðskip til Dalvíkur, en ástæðan fyrir kom- unni þangað var sú að fjórir Eyjafjarðarbátar höfðu orðið uppvlsir að of mörgum netum í sjó. Bátarnir voru: Níels Jónsson EA 106, Víðir Trausti EA 517 frá Hauganesi, Stefán Rögnvaldsson EA 345 frá Dalvík og Auðbjörg EA 22. Að sögn dómsforsetans, Ás- geirs P. Ásgeirssonar, viður- kenndu skipstjórar brot sín, en þeir voru með eina trossu fram yfir leyfilegan netafjölda. Mál- unum lauk með dómssáttum Myndina af varð- skipinu á Dalvík tók áþ. í sl. viku.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.