Dagur - 26.04.1978, Blaðsíða 8
DAGUR
Akureyri, miðvikudaginn 26. apríl
Sl. fðstudag var slökkvlllð Akureyrar kallað út vegna bruna í
vöruportl BTB. Þar var eldur laus í tlmburhlaða og samkvæmt
upplýsingum frá slökkvlllðinu munu 38 búnt af timbri hafa
skemmst meira eða minna, þannig að um töluvert tjón er um
að ræða. Grunur leikur á að börn hafi verið af fikta með eld-
spítur með fyrrgrelndum afleiðlngum.
Nú fer sá tíml ( hönd að sinubrunar gerast algengir í landi
bæjarins. Þeir eru hlnsvegar algjörlega bannaðlr nema með
fengnu leyfi frá slökkviliðsstjóra. Foreldrar og umráðamenn
barna eru sérstaklega beðnlr um að gera börnunum grein fyrir
þeim hættum sem af sinubrunum geta stafað.
Undarleg var
sú yfirreið
Rlfkelsstöðum 16. apr. Vetri er
að ljúka og nú er vorblíða. Snjór er
svo til horfinn og hefir aldrei verið
mikili í vetur, en svellabræðingur
nokkur.
í félagslífi hafa verið fremur lítil
tilþrif hér um slóðir. Engin sjón-
ieikur hefur verið settur upp innan
hrepps. En hér hafa þó verið sýndir
sjónleikir, sem æfðir hafa verið í
nágrannasveitum og hefir það ver-
ið vel þegið. Þorrablót var haldið í
Freyvangi að venju, var þar fjöl-
menni og hin ágætasta veisla.
Guðmundur Þorsteinsson frá
Akureyri hefir æft blandaðan kór
hér í vetur og mun hann iáta til sín
heyra upp úr sumarmálum. Þátt-
takendur eru úr öllum hreppum
innan Akureyrar.
Af hitaveituframkvæmdum er
fremur lítið að segja. Narfi heldur
áfram borun að Ytri-Tjörnum, þar
sem þegar hefir náðst góður árang-
ur og líkur taldar á að enn meira
vatn fáist þar en þessir 40 l á sek af
75 gráðu heitu vatni, sem þar
streyma upp úr jörðinni. Búið er að
tengja nokkra bæi við hitaveitunna,
en æskilegri hefði verið meiri hraði
á þeim framkvæmdum. Búið er að
mæla fyrir hitalögn um hreppinn
og stinga niður hælum, þar sem
leiðslan skal koma og það jafnvel
tvisvar. Nú síðast í vikunni sem
leið, voru tveir menn frá hitaveitu
Akureyrar á ferðinni að mæla upp
fjósin á bæjunum vegna tilvonandi
hitaveitu. Áttu margir illt með að
skilja þá yfirreið. JH.
DAGIJR
kemur næst út föstudaginn
28. apríl.
Vegaáætlun 1978
Framkvæmdir á Norðurlandi
Vegaáætlun fyrir árið 1978 hefur
verlð lögð fram tll annarrar um-
ræðu á Alþlngi. Fastlega má
gera ráð fyrlr að hún verðl sam-
þykkt án teljandi breytinga.
Samkvæmt glldandl vegaáætlun
voru nlðurstöðutölur 7 milljarðar
króna en við endurskoðun hefur
hún hækkað um rúma 2 mill-
jarða króna. Fjármagn hefur
verið útvegað vegna hækkunar-
innar. Af þessari upphæð fer 1
milljarður og 130 milljónlr til
nýrra þjóðvega.
Melrakkasléttu á að vinna fyrir 42
milljónir og lánsheimild er fyrir 5
milljónum. Syðra Áland-Langa-
nesvegur: Á þessum kafla verður
unnið fyrir 15 milljónir. í Ólafs-
fjarðarvegi verður unnið fyrir 24
milljónir. Lánsheimild er fyrir 8
(Framhald á bls. 6).
Áætlunin gerir ráð fyrir að 20
milljónum verði varið til vegagerð-
ar á öxnadalsheiði. í veginn
norðan Akureyrar og að gatna-
mótum Dalvíkurvegarins á að verja
66 milljónum og lánsheimild er
fyrir 12 milljónum. í Ljósavatns-
skarði verður unnið fyrir 8
milljónir.
I vegarkaflann Kross-Fosshóll
verður varið 10 milljónum og láns-
heimild er fyrir 3 milljónum.
Brún-Máskot: þar á að vinna fyrir
10 milljónir. Lánsheimild er fyrir 5
milljónum. Vestan Helluvaðs á að
vinna fyrir 6 milljónir og í kafl-
anum Árnarvatn-Námaskarð á að
verja 80 milljónum. f Ólafsfjarðar-
vegi að Hörgárdalsvegi verður
unnið fyrir 30 milljónir.
Hagaás-Dalvík: þar verður unnið
fyrir 20 milljónir og lánsheimild er
fyrir 12 milljónum. í Köldukinn
verður unnið fyrir 21 milljón og
lánsheimild er fyrir 7 milljónum. í
vegagerð á Tjörnesi verður varið 20
milljónum. Lón-Víkingavatn: þará
að framkvæma fyrir 26 milljónir og
lánsheimild er fyrir 5 milljónum. Á
Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum. Mynd: E.D.
Framboös-
þjónusta
Samtakana
Samtök vinstri manna á
Akureyri hafa lagt fram
framboðslista sinn til
bæjarstjórnarkosninga og
eru þessir efstir:
1. Ingólfur Árnaspn, raf-
veitustjóri, Byggðavegi
132.
2. Úlfhildur Rögnvalds-
dóttir, húsmóðir, Eikar-
lundi 8.
3. Þorsteinn Jónatansson,
ritstjóri, Grundargerði 3a.
4. Dröfn Friðflnnsdóttir,
húsmóðir, Lerkilundi 38.
5. Ari Rögnvaldsson, vél-
stjóri, Skálagerði 2.
6. Björn Hermannsson,
verkstjóri. Aðalstræti 54.
„Óánægður farþegi sendi
eftirfarandi: Eins og
kunnugt er, hafa Flugleiðir
svo gott sem einokun á
flugsamgöngum innan-
lands sem utan og mætti
ætla að hægt væri að reka
þennan þátt samgangna
án teljandi erfiðleika, en
fyrirtækið kvartar um lé-
lega afkomu á innan-
landsfluginu. Þjónustan er
heldur ekki frábær — það
má ekki hreyfa vind því þá
fer áætlunin á skjön. Það
væri út af fyrir sig f lagi, ef
allt kapp væri lagt á að
koma þeim sem bíða f
áfangastað sem fyrst. Þ.e.
að fljúga til viðkomandi
staðar strax og veður leyfir
og hætta ekki fyrr en síð-
asti farþeginn er kominn
um borð.
• Leiöur
þvælingur
„óánægður heldur áfram:
Föstudaginn 14. apríl féll
niður flug til og frá Akur-
eyri. Á laugardag kom ein
flugvél um morguninn,
önnur um miðjan dag og
það var ekki fyrr en um
kvöldið að fjör fór að að
færast í leikinn, en 1>á
höfðu sumir beðið vel
rúmar sólarhring. Annað
dæmi: Um páskana urðu
farþegar í Reykjavík, sem
ætluðu til Akureyrar, að
hafa stöðugt samband við
Reykjavíkurvöll og a.m.k.
einu sinni voru þeir beðnir
um að mæta. Að lokum var
farið með þá til Keflavíkur.
Þar var farið um borð í
þotu, henni ekið dágóðan
spöl um völlinn, en far-
þegunum sfðan boðið að
fara inn aftur. Biðin á
Keflavíkurvelli var mæld í
klukkustundum og engin
versiun var opin og fengu
farþegarnir því hvorki vott
né þurrt, enn síður baðst
fyrirtæklð afsökunar á
þessum þvælingi.
# Píanóleikari
frá Akureyri
Jóhannes Vigfússon
píanóleikari frá Akureyri
lék nýlega á hljómleikum í
Wintherthur f Sviss og gat
sér góðan orðstfr.
f einu svissnesku blað-
anna dáir gagnrýnandinn
einieik Jóhannesar, en
verk það er þarna var
frumflutt , er eftir Martin
Schlumpf. I sama blaði,
degi fyrr, segir gagnrýn-
andinn að píanóleikur Jó-
hannesar hafi verið mjög
sannfærandi. Og í öðru
blaði segir frá þvf, að ein-
leikaranum hafi verið
mjög vel fagnað að leik
loknum.
Kærðir fyrir of mörg net
í síðustu viku kom varðskip til
Dalvíkur, en ástæðan fyrir kom-
unni þangað var sú að fjórir
Eyjafjarðarbátar höfðu orðið
uppvlsir að of mörgum netum í
sjó. Bátarnir voru: Níels Jónsson
EA 106, Víðir Trausti EA 517 frá
Hauganesi, Stefán Rögnvaldsson
EA 345 frá Dalvík og Auðbjörg
EA 22.
Að sögn dómsforsetans, Ás-
geirs P. Ásgeirssonar, viður-
kenndu skipstjórar brot sín, en
þeir voru með eina trossu fram
yfir leyfilegan netafjölda. Mál-
unum lauk með dómssáttum
Myndina af varð-
skipinu á Dalvík tók áþ. í sl. viku.