Dagur - 18.05.1978, Blaðsíða 8

Dagur - 18.05.1978, Blaðsíða 8
DAGUR Akureyri, fimmtudaginn 18. maí 1978 LlMUM BORÐA RENNUM SKÁLAR Á sunnudaglnn 21. maí n.k. halda hestamenn á Akureyri sfna árlegu firmakeppni og verður hún í Þórunnarstræti, við gamla golfvöllinn. Athygli er vakin á því að aðgangur er ókeypis. Myndin er af 5 efstu hrossum í fyrra og Ásmundi Jóhannssyni, en skrifstofa hans sigraði í firmakeppninni í fyrra. Starfsári leikhúsanna fer seiin að ljúka. Leikfélag Akureyrar hefur lokið sýningum á Hunangsilmi hér á Akureyri, En nú er ákveðið. að LA fer með Galdraland í leikför og verður fyrsta sýningin á Húsavík á sunnu- daginn kl. 4.00. Á mánudaginn verður leikurinn sýndur í Vopnafirði, á Þórshöfn á þriðjudag og á Raufarhöfn á miðvikudag. Baldur og Konni verða með í för. Með þessum sýningum verða sýningar orðnar um 20 talsins. Leik- arar í Galdralandi eru: ÁsaJóhannesdóttir, Aðal- steinn Bergdal og Gestur E. Jónasson, en leikstjóri er Erlingur Gíslason. Búnaðar- fræðsla á Laugum Aðaffundur Búnaðarsam- bands Suður-Þingeyinga haldinn á Húsavík 24. apríl fagnar því að fyrir liggur heimild menntamálaráðu- neytis til starfrækslu búnað- arfræðslu við Laugaskóla. Jafnfram bendir fundurinn á nauðsyn þess að kynna þessa væntanlegu starfsemi. 0 Mótmæia kjaraskerðingu Aðalfundur BSSÞ 1978 mót- mælir eindregið þeirri kjara- skerðingu, sem bændastéttín þarf að taka á sig vegna vöntunar á útflutningsbótum. Fundurinn télur, að ekki hefði þurft að koma til þessa ef stjórnvöld hefðu brugðist einarðlega við þessum vanda, sem blasað hefur við frá síðastliðnu sumri. 0 Grasköggla- verksmiðja Aðalfundur BSSÞ haldinn 24. apríl 1978 samþykkir að kjósa þriggja manna nefnd er vinni af alefli að framgangi þess að graskögglaverk- smiðjan verði reist í Saltvík. 0 Dómur Yfirnefndar Aðalfundur BSSÞ haldin 24. apríl 1978 mótmælir harð- lega dómi yfirnefndar um fjármagnslið vísitölubúsins. Fundurinn bendir á, að skatt- mat búpenings vísitölubús- ins er um 90% af því fjár- magni, sem því er ætlað. Verkin tala skýr- ustu máli um dug- mikla forystu framsóknar- manna. Hafnar framkvæmdir Hættuiegustu gatnamótin Alls urðu átta umferðaróhöpp á gatnamótum Þórunnarstrætis og Hamarsstígs á s.l. ári, en 1975 og 1976 urðu samtals 17 umferðaróhöpp á þessum gatnamótum. Oft er það svo að ökumenn, sem eru á Hamarsstíg, eiga í vandræðum með að sjá niður Þórunnarstræti og oft koma bílar á gífurlegum hraða upp Þórunnarstræti. Það myndi ekki saka þó lögreglan at- hugaði meðalhraða bíla er aka eftir umræddu stræti. Mynd:áþ. við nýja þró á öruggum stað Hafnar eru framkvæmdir við nýja þró skammt frá Kísiliðjunni f Mývatnssveit. Verkinu hefur ver- ið skipt í tvo áfanga og er sá fyrri jarðvegsvinna, en um hana sér fyrirtækfð Smiðlar h/f í Mý- vatnssveit. f öðrum áfanga er bygging dæluhúss og lagning pípu að verksmiðjunni. Verður sá áfangi boðinn út á næstunni. Umrædd þró mun taka álíka magn og þær þrær sem verk- smiðjan hafði fyrir en eru orðnar lélegar og sumar ónýtar. Dæling úr Mývatni hófst í byrjun apríl, og mátti það ekki tæpara standa þar sem hráefnið var á þrotum. ..Við vonumst til þess að verkinu Góður afli á Húsavík Trillur Húsvíkinga hafa aflað ágætlega að undan- förnu og að sögn Tryggva Finnssonar. framkvæmda- stjóra Fiskiðjunnar, er aflinn rneiri en á sama tíma undanfarin ár. Húsavíkur- togarinn. Júlíus Havsteen, landaði á Húsavík sl. þriðjudag um 85 tonnum eftir rúmlega viku útivist. miði svo vel áfram. að hægt verði að dæla hráefni í þróna í byrjun júli. Með því móti ætti reksturinn að vera kominn í eðlilegt horf í haust“, sagði Þorsteinn Ólafsson framkvæmdastjóri. „Þróin er í NNV frá verksmiðjunni í um 1200 metra fjarlægð. M.ö.o. á þeim stað. sem jarðfræðingar telja að muni ekki verða fyrir hnjaski í eldsum- brotum eða jarðhræringum". Þorsteinn sagði að áætlað væri að verkið kostaði um 300 milljónir króna, en þá er ekki tekið tillit til fjármagnskostnaðar sem er veru- legur. Brúttó er þróin um 350 þús- und rúmmetrar, en nettó um 250 þúsund rúmmetrar. Það er nægilegt rými til geymslu á hráefni yfir þann tíma sem ekki er dælt úr Mývatni. Innvegin mjólk hjá K.S. jókst um 5,02% frá fyrra ári Aðalfundur Mjólkursamlgs Skagfirðlnga var haldlnn 21. apríl s.l. Fundinn sátu 47 fulltrú- ar, auk samlagsráðsmanna, stjórnar og endurskoðanda. Formaður Kaupfél. Skagfirðinga Gísli Magnússon setti fundinn, bauð fundarmenn velkomna og ræddi m.a. um tankvæðingu Mjólkursamlagsins, sem tekin var upp á á árinu 1977. Sólberg Þorsteinsson mjólkur- bústjóri flutti skýrslu um rekstur og afkomu mjólkursamlagsins á liðnu ári. í skýrslu samlagsstjórans kom fram að innvegin mjólk á árinu I977 var 9.219773 Itr. og hafði tukist um 5.02% frá f. ári. Birgðir mjólkurvara um áramót voru alls kr. 450 millj. Á árinu 1977 fækkaði innleggjendum um 23 og eru nú skráðir 217 mjólkurinnleggendur. Meðalinnlegg hækkaði um 4810 Itr. og hæsta mjólkurinnlegg hafði Reynir Gíslason bóndi Bæ 158.658 ltr. Útborgunarverð á árinu til bænda var kr. 62.56.9 eða 75.170 af grundvallarverði sem var 83.34.7 en fullnaðargreiðsla varð kr. 83.355 á Itr. sem er liðlega grundvallar- verð. Heildarkostnaður við rekstur samlagsins varð kr. 24.97 pr.ltr. og er það kr. 6.73 hækkun frá f. ári. G.Ó. wm^mmmmmmm—^m [i iiiiiirn .............. Frá skrifsfofu Framsóknarflokksins Níu kjördeifdir verða við bæjarstjórnarkosning- arnar þann 28. maí, en þær voru sjö við sfðustu kosningar. Kosningin hefst kl. 9. f.h. og kjörstað verður lokað kl. 23. Stuðningsfólk B-listans er minnt á síma flokks- skrifstofunnar, en þeír eru sem hér segir: 21180, 21510 og 21512. Bílasími á kjördag verður aug- lýstur síðar. Skrifstofan, Hafnarstrætí 90, er opin alla vlrka daga frá kl. 13 til 19. Fulltrúar Framsóknarflokksins í bæjarstjórn eru til viðtals á skrifstofunni frá kl. 17 til 19 vírka daga. Kjósendur - ef ykkur vantar nánari upplýsingar um bæjarstjórnarkosningarnar - lítið inn - eða hrlnglð. B-llstinn. Kísiliðjan í Mývatnssveit:

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.