Dagur - 18.05.1978, Side 8
DAGUR
Akureyri, fimmtudaginn 18. maí 1978
LlMUM BORÐA
RENNUM SKÁLAR
Á sunnudaglnn 21. maí n.k. halda hestamenn á Akureyri sfna árlegu firmakeppni og verður hún í
Þórunnarstræti, við gamla golfvöllinn. Athygli er vakin á því að aðgangur er ókeypis. Myndin er af
5 efstu hrossum í fyrra og Ásmundi Jóhannssyni, en skrifstofa hans sigraði í firmakeppninni í
fyrra.
Starfsári leikhúsanna fer seiin að ljúka. Leikfélag
Akureyrar hefur lokið sýningum á Hunangsilmi hér á
Akureyri,
En nú er ákveðið. að LA fer með Galdraland í
leikför og verður fyrsta sýningin á Húsavík á sunnu-
daginn kl. 4.00. Á mánudaginn verður leikurinn
sýndur í Vopnafirði, á Þórshöfn á þriðjudag og á
Raufarhöfn á miðvikudag.
Baldur og Konni verða með í för. Með þessum
sýningum verða sýningar orðnar um 20 talsins. Leik-
arar í Galdralandi eru: ÁsaJóhannesdóttir, Aðal-
steinn Bergdal og Gestur E. Jónasson, en leikstjóri er
Erlingur Gíslason.
Búnaðar-
fræðsla á
Laugum
Aðaffundur Búnaðarsam-
bands Suður-Þingeyinga
haldinn á Húsavík 24. apríl
fagnar því að fyrir liggur
heimild menntamálaráðu-
neytis til starfrækslu búnað-
arfræðslu við Laugaskóla.
Jafnfram bendir fundurinn á
nauðsyn þess að kynna
þessa væntanlegu starfsemi.
0 Mótmæia
kjaraskerðingu
Aðalfundur BSSÞ 1978 mót-
mælir eindregið þeirri kjara-
skerðingu, sem bændastéttín
þarf að taka á sig vegna
vöntunar á útflutningsbótum.
Fundurinn télur, að ekki hefði
þurft að koma til þessa ef
stjórnvöld hefðu brugðist
einarðlega við þessum
vanda, sem blasað hefur við
frá síðastliðnu sumri.
0 Grasköggla-
verksmiðja
Aðalfundur BSSÞ haldinn 24.
apríl 1978 samþykkir að
kjósa þriggja manna nefnd er
vinni af alefli að framgangi
þess að graskögglaverk-
smiðjan verði reist í Saltvík.
0 Dómur
Yfirnefndar
Aðalfundur BSSÞ haldin 24.
apríl 1978 mótmælir harð-
lega dómi yfirnefndar um
fjármagnslið vísitölubúsins.
Fundurinn bendir á, að skatt-
mat búpenings vísitölubús-
ins er um 90% af því fjár-
magni, sem því er ætlað.
Verkin tala skýr-
ustu máli um dug-
mikla forystu
framsóknar-
manna.
Hafnar framkvæmdir
Hættuiegustu gatnamótin
Alls urðu átta umferðaróhöpp á gatnamótum Þórunnarstrætis
og Hamarsstígs á s.l. ári, en 1975 og 1976 urðu samtals 17
umferðaróhöpp á þessum gatnamótum. Oft er það svo að
ökumenn, sem eru á Hamarsstíg, eiga í vandræðum með að
sjá niður Þórunnarstræti og oft koma bílar á gífurlegum hraða
upp Þórunnarstræti. Það myndi ekki saka þó lögreglan at-
hugaði meðalhraða bíla er aka eftir umræddu stræti. Mynd:áþ.
við nýja þró á öruggum stað
Hafnar eru framkvæmdir við nýja
þró skammt frá Kísiliðjunni f
Mývatnssveit. Verkinu hefur ver-
ið skipt í tvo áfanga og er sá fyrri
jarðvegsvinna, en um hana sér
fyrirtækfð Smiðlar h/f í Mý-
vatnssveit. f öðrum áfanga er
bygging dæluhúss og lagning
pípu að verksmiðjunni. Verður
sá áfangi boðinn út á næstunni.
Umrædd þró mun taka álíka
magn og þær þrær sem verk-
smiðjan hafði fyrir en eru orðnar
lélegar og sumar ónýtar. Dæling
úr Mývatni hófst í byrjun apríl, og
mátti það ekki tæpara standa
þar sem hráefnið var á þrotum.
..Við vonumst til þess að verkinu
Góður afli
á Húsavík
Trillur Húsvíkinga hafa
aflað ágætlega að undan-
förnu og að sögn Tryggva
Finnssonar. framkvæmda-
stjóra Fiskiðjunnar, er aflinn
rneiri en á sama tíma
undanfarin ár. Húsavíkur-
togarinn. Júlíus Havsteen,
landaði á Húsavík sl.
þriðjudag um 85 tonnum
eftir rúmlega viku útivist.
miði svo vel áfram. að hægt verði
að dæla hráefni í þróna í byrjun
júli. Með því móti ætti reksturinn
að vera kominn í eðlilegt horf í
haust“, sagði Þorsteinn Ólafsson
framkvæmdastjóri. „Þróin er í
NNV frá verksmiðjunni í um 1200
metra fjarlægð. M.ö.o. á þeim stað.
sem jarðfræðingar telja að muni
ekki verða fyrir hnjaski í eldsum-
brotum eða jarðhræringum".
Þorsteinn sagði að áætlað væri
að verkið kostaði um 300 milljónir
króna, en þá er ekki tekið tillit til
fjármagnskostnaðar sem er veru-
legur. Brúttó er þróin um 350 þús-
und rúmmetrar, en nettó um 250
þúsund rúmmetrar. Það er nægilegt
rými til geymslu á hráefni yfir þann
tíma sem ekki er dælt úr Mývatni.
Innvegin mjólk hjá K.S.
jókst um 5,02% frá fyrra ári
Aðalfundur Mjólkursamlgs
Skagfirðlnga var haldlnn 21.
apríl s.l. Fundinn sátu 47 fulltrú-
ar, auk samlagsráðsmanna,
stjórnar og endurskoðanda.
Formaður Kaupfél. Skagfirðinga
Gísli Magnússon setti fundinn,
bauð fundarmenn velkomna og
ræddi m.a. um tankvæðingu
Mjólkursamlagsins, sem tekin
var upp á á árinu 1977.
Sólberg Þorsteinsson mjólkur-
bústjóri flutti skýrslu um rekstur og
afkomu mjólkursamlagsins á liðnu
ári. í skýrslu samlagsstjórans kom
fram að innvegin mjólk á árinu
I977 var 9.219773 Itr. og hafði
tukist um 5.02% frá f. ári. Birgðir
mjólkurvara um áramót voru alls
kr. 450 millj. Á árinu 1977 fækkaði
innleggjendum um 23 og eru nú
skráðir 217 mjólkurinnleggendur.
Meðalinnlegg hækkaði um 4810
Itr. og hæsta mjólkurinnlegg hafði
Reynir Gíslason bóndi Bæ 158.658
ltr.
Útborgunarverð á árinu til
bænda var kr. 62.56.9 eða 75.170 af
grundvallarverði sem var 83.34.7
en fullnaðargreiðsla varð kr. 83.355
á Itr. sem er liðlega grundvallar-
verð. Heildarkostnaður við rekstur
samlagsins varð kr. 24.97 pr.ltr. og
er það kr. 6.73 hækkun frá f. ári.
G.Ó.
wm^mmmmmmm—^m [i iiiiiirn ..............
Frá skrifsfofu
Framsóknarflokksins
Níu kjördeifdir verða við bæjarstjórnarkosning-
arnar þann 28. maí, en þær voru sjö við sfðustu
kosningar. Kosningin hefst kl. 9. f.h. og kjörstað
verður lokað kl. 23.
Stuðningsfólk B-listans er minnt á síma flokks-
skrifstofunnar, en þeír eru sem hér segir: 21180,
21510 og 21512. Bílasími á kjördag verður aug-
lýstur síðar. Skrifstofan, Hafnarstrætí 90, er opin
alla vlrka daga frá kl. 13 til 19.
Fulltrúar Framsóknarflokksins í bæjarstjórn eru
til viðtals á skrifstofunni frá kl. 17 til 19 vírka daga.
Kjósendur - ef ykkur vantar nánari upplýsingar
um bæjarstjórnarkosningarnar - lítið inn - eða
hrlnglð.
B-llstinn.
Kísiliðjan í Mývatnssveit: