Dagur - 09.06.1978, Síða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXI. ÁRG.
Akureyri, föstudaginn 9. júní 1978
36. tölublað
' m \\m\. niaMeto papp"
'■ ■——==== AnurtEYRi:
Dauðadæmd
ef...
Ólafur Jóhannesson,
dóms- og viðskiptaráð-
herra sagði nýlega um
kaupgjaldsmálin og
bráðabirgðarlögin:
„Eg held, að ef t.d.
forsvarsmenn launþega-
samtakanna vilja einskis
meta þessa tilraun til
þess að koma á launa-
jöfnun, þá sé launajöfn-
unarstefna alveg dauða-
dæmd og maður verður
bara að horfast í augu
við þá staðreynd.“
Þetta eru athyglisverð
orð og allt útlit á, að
verkalýðsforystan ætli
að halda áfram að vinna
gegn sinni eigin launa-
jöfnunarstefnu. En hve
lengi láta hinir almennu
láglaunahópar teyma sig
af svo óábyrgri forystu
og svo langt af leið?
Forysta ASÍ og
BSRB á villigötum
í forsíðugrein lngvars
Gíslasonar alþingis-
manns í síðasta blaði,
segir hann orðrétt m.a.:
„Ekki verður séð að
þessi samtök hafi launa-
jöfnunarstefnu á oddin-
um. Þó er hálfu verra að
ASÍ og BSRB gerast sek
um það nú, að berjast
leynt og ljóst gegn
launajöfnunarstefnu.
Það kemur fram þannig,
að þeir hamast á móti
því, að láglaunafólkið
fái hærri vísitölubætur
en hálaunamenn. For-
ysta ASÍ og BSRB er á
villigötum í þessum
málum og skaðar með
því meirihluta félags-
manna sinna, einkum
verkamenn og verslun-
ar- og skrifstofufólk."
Sameiginlegir
framboðsfundir
Hinir sameiginlegu
framboðsfundir stjórn-
málaflokkanna standa
yfir. Næsti fundur er í
kvöld, 9. júní á Grenivík,
hinn 10. júní í Ólafsfirði,
12. júní á Dalvík, 13. júní
á Kópaskeri, 14. júní á
Raufarhöfn og 15. júní á
Þórshöfn.
Aðeins vinstra sam-
starf kom til greina
- segir Sigurður Oli Brynjólfsson
„Fyrst vil ég lýsa yfir sérstakri
ánægju minni með það að Helgi
M. Bergs, skyldi vera kosinn
bæjarstjóri með atkvæðum allra
bæjarfulltrúanna. Samþykki
sjálfstæðismanna var veigamikil
traustsyfirlýsing og eiga þeir
þakkir skyldar. Bæjarstjóranum,
og raunar okkur öllum, hlýtur að
vera að því mikill styrkur að
honum sé sýnt svo mikið traust
eftir tuttugu mánaða starf.
Bæjarfélagið mun njóta þess
bæði inná og útá við“.
Þannig komst Sigurður Óli
Brynjólfsson, fyrsti maður á lista
Framsóknarflokksins að orði. þeg-
ar blaðið innti hann eftir tiðindum
að afloknum fyrsta bæjarstjórnar-
fundinum. Sigurður sagði það hafa
komið fram í kosningarbaráttunni
hjá framsóknarmönnum, að stefnt
yrði að samstarfi vinstri flokkanna í
bæjarstjórn. Ekki hefði verið geng-
ið á hina vinstri flokkana í kosn-
ingabaráttunni og haldið hefði
verið uppi málefnalegri umræðu
um bæjarmálin.
„Það var því rökrétt að við hefð-
um forgöngu um samninga milli
hlutaðeigandi aðila um áfram-
haldandi samstarf, stjórn og
skipan bæjarmála. Þegar farið var
fram á viðræður tóku vinstri flokk-
arnir vel undir þá málaleitan,"
sagði Sigurður Óli „Aðnr
möguleikar en vinstra samstarf
komu ekki til greina að okkar áliti,
þó svo einhverjir kunni að hafa haft
þá í huga. Samningarnir gengu vel,
eins og við var að búast og eru
svipaðir þeim sem gerðir voru eftir
síðustu kosningar, enda við nær
sömu menn að semja og þá. Ég vil
flytja flokkunum þakkir fyrir lip-
urð í viðræðunum og þá einkum
Hvenær myndaðist skuld
ríkis við Seðiabankann?
Nú halda sjálfstæðfsmenn því
fram, að sú mikla skuld ríkis-
sjóðs við Seðlabankann, sé
arfur frá ríkisstjórn Ólafs
Jóhannessonar.
Mér þykir því rétt að leiðrétta
þær missagnir með þvl að birta
hvemig heildarskuldir ríkissjóðs
hafa staðið við Seðlabankann um
áramót fyrir og eftir síðustu
stjómarskiptin.
Þessar upplýsingar eru fengnar
hjá ríkisbókhaldinu.
Hinn 31. desember 1973 voru
heildarskuldir ríkissjóðs við
Seðlabankann 672 milljónir
króna.
Hinn 31 desember 1974 voru
þær 4187 milljónir króna.
Hinn 31. desember 1975 voru
þær 9988 milljónir króna.
Sýnir þetta, að skuldirnar
höfðu hækkað um 5801 millj.
króna á fyrsta heila árinu, sem
núverandi fjármálaráðherra
stjórnaði fjármálunum.
Um síðustu áramót voru heild-
arskuldir rikissjóðs við Seðla-
bankann 15174 milljónir króna
og um síðustu mánaðamót 23900
milljónir króna.
Þessar tölur segja ailt sem segja1
þarf í þessu máii. Þær sýna, að
engar umtalsverðar skuldir höfðu
myndast í stjómartíð Ólafs
Jóhannessonar. Skuld ríkissjóðs
við Seðlabankann er því arfur,
sem myndast hefur i stjórnartið
Geirs Hallgrímssonar.
Stefán Valgeirsson.
Sigurður Oli
Brynjólfsson
forystumönnum þeirra, þeim Frey
Ófeigssyni. Soffíu Guðmundsdótt-
ur og Ingólfi Árnasyni".
„Ég held að öll bæjarstjórnin geti
verið sammála um að vinna að
þeim markmiðum. sem sett eru
fram í yfirlýsingunni. Að sjálfsögðu
verður að leysa hvert einstakt mál.
þegar það ber að og alltaf koma
upp mál sem ekki hafa verið séð
fyrir og reynir þá á samkomulags-
vilja bæjarfulltrúanna. Með hlið-
sjón af undangenginni reynslu er ég
bjartsýnn á að málin verði leyst í
samræmi við hagsmuni heildar-
innar“.
Aðspurður um verkefni bæjar-
fulltrúanna á næstunni. sagði Sig-
urður að t.d. bæjarfulltrúar Fram-
sóknarmanna hefðu skipt með sér
nokkrum mikilvægum störfum i
bæjarstjórn. Þannig er Sigurður
Jóhannesson, forseti bæjarstjórnar.
i ár og sömuleiðis er hann i bvgg-
ingarnefnd og rafveitustjórn.
Tryggvi Gíslason er í skipulags-
nefnd. framkvæmdaáætlananefnd.
'sjúkrahússtjórn og Sigurður Óli
Brynjólfsson er í bæjarráði og
skólanefnd.
„Það þarf að draga úr verðbólg-
unni og bæta rekstrarstöðu vmissra
mikilvægra atvinnugreina. Ef það
tekst er ég bjartsýnn á að Fram-
kvæmdastefnan verði ríkjandi á
þessu kjörtímabili, eins og því síð-
asta, á Akureyri." sagði Sigurður
Óli Brynjólfsson að lokum.
DALVIK:
Vetrarvertíð lokið
Dalvískir netabátar, hafa
að undanskyldum einum,
tekið upp netin eftir
vetrarvertíðina, sem gekk
nokkuð sæmilega. Alls
fengu bátarnir 2200 tonn af
óslægðum fiski frá áramót-
um og stunduðu 13 bátar
veiðarnar, þegar flest var.
Aflahæstur netabátanna er
Otur EA með 335 tonn, en
fast á hæla honum kemur
Haraldur EA með 334
tonn.
„Það er Vinur EA, sem
ekki hefur tekið upp netin
og síðast kom hann inn í
gærkveldi með 7,5 tonn af
Kolbeinseyjarmiðum.“
sagði Ingimar Lárusson
hafnarvörður. „Vertíðin
gekk nokkuð bærilega og
það er komin 2200 tonn á
land. Nokkrir aðkomubát-
ar hafa lagt upp á Dalvík í
vetur og um skeið voru 13
bátar, frá 7 og upp í 50
tonn, gerðir út frá staðn-
um.“
Gert við Breka VE
hjá Slippstöðinni
Fyrirtækiö fyllilega samkeppnisfært við erlendar
stöðvar, segir fulltrúi Tryggingamiðstöðvarinnar.
Eins og kunnugt er af fréttum
voru opnuð í fyrri viku tilboð í
viðgerð á togaranum Breka VE,
sem stórskemmdist í eldi, þar
sem hann var bundinn við
bryggju hjá Slippstöðinni h/f.
Búið er að bera tilboðin saman
og að sögn Gunnars Felixson-
ar, fulltrúa hjá Tryggingarmið-
stöðinni, hefur verið ákveðið
að fela Slippstöðinni h/f við-
gerðina á togaranum. Alls bár-
ust sex tilboð í viðgerðina, tvö
íslensk og fjögur frá erlendum
skipasmíðastöðvum. Tilboð
Slippstöðvarinnar hljóðaði
upp á um 300 milljónir króna,
en hið hæsta var 440 milljónir
króna.
„Það voru tilboð frá Portúgal
og Svíþjóð sem voru hæst,“ sagði
Gunnar Felixson. „Eflaust mun
það vekja athygli að hér hefur
innlendur aðili verið talinn fylli-
lega samkeppnisfær við erlendar
skipasmíðastöðvar. Þetta á ekki
einungis við Slippstöðina, heldur
líka hinn aðilann sem bauð í
verkið.“
Gert er ráð fyrir að viðgerðin
taki hálfan fimmta mánuð. Tveir
erlendu aðilanna voru með mun
styttri viðgerðartíma, en engu að
síður ákvað tryggingarfélagið, í
samráði við eigendur togarans, að
fela Slippstöðinni h/f að sjá um
viðgerðina. (Framhald á bls. 6).
Búið er að rífa ónýt tæki úr skipinu. Mynd: áþ.