Dagur - 14.06.1978, Síða 6
- Aðalfundur KEA
Á síðustu áratugum hafa allar
ríkisstjórnir neyðst til að gera
efnahagsráðstafanir, í því
skyni að koma í veg fyrir
stöðvun atvinnuveganna. Eins
og dæmin sanna, skipti það
litlu hvaða flokkar voru í ríkis-
stjórn. Úrræðin sem þær gripu
til hafa verið svo svipuð, að þar
er ekki nema stigsmunur á.
Gengisbreyting og skerðing
eða afnám verðlagsbóta, eru úr-
ræði sem allar ríkisstjómir hafa
gripið til. Hins vegar hefur
stjórnarandstaðan. hver sem hun
hefur verið, kyrjað sama sönginn
i hvert sinn, sem slíkar ráðstafanir
hafa verið framkvæmdar. Senni-
legt er þó, að í sambandi við síð-
ustu efnahagsráðstafanir hafi
meira borið á stóryrðum og
brigslum um svik en oftast áður.
Þar eiga síðdegisblöðin stærstan
hlut að máli, enda virðast þau
byggja tilveru sína á æsifrétta-
skrifum.
Til upprifjunar vil ég minna á,
að eftir að minnihlutastjórn Al-
þýðuflokksins var mynduð, með
hlutleysi Sjálfstæðisflokksins árið
1959, var vísitalan tekin úr sam-
bandi og sú skipan gilti á þriðja
ár. Þó kaupgjaldsvísitalan væri
195 stig eftir að búið var að auka
mikið niðurgreiðslur á vöruverði,
voru kaupgreiðslurnar miðaðar
við 175 stig, sem jafngilti 5,4%
kjaraskerðingu og sú skerðing
kom hlutfallslega jafnt niður á
þá sem lægstu launin höfðu, sem
og hina hálaunuðu. 1974 stóð
vinstri stjórnin eins að málum.
Tók vísitöluna úr sambandi, þeg-
ar kaupgjaldsvísitalan sýndi að
kaupgreiðslur áttu að hækka um
15,5 stig. Þá voru einnig auknar
niðurgreiðslur á vöruverði, um
sem svarar 7,86 stig eða helming
þess sem kaupgreiðslur áttu að
hækka samkvæmt samningum.
Kaupskerðingin var því 6,7% í
það sinn og hlutfallslega jöfn á öll
laun.
En nú, 1978, eru vísitölu-
greiðslur skertar um helming á
eftirvinnu og næturvinnu, og á
laun til hátekjufólks, en hinsvegar
fá þeir sem lág laun hafa fullar
verðlagsgreiðslu á dagvinnulaun
frá 1. júní sl. Sem sagt, að allir
6.DAGUR
þeir, sem vinna aðeins dagvinnu,
hvort sem um er að ræða tíma-
kaupsfólk eða mánaðarkaups-
fólk, t.d. allir sem taka laun sam-
kvæmt Iðju- og verkamannatöxt-
um eða hliðstæðum samningum,
fá nú óskertar verðlagsbætur á
launin, nema á yfir- og nætur-
vinnu.
Stefán Valgelrsson.
Á flestum vinnustöðum mun
að jafnaði vera unnir 10 tímar á
dag og er hjá því fólki kjara-
skerðingin 3,1% en var 1974 6,7%
hjá sömu launaflokkum.
Hins vegar er kjaraskerðingin
margfalt meiri hjá þeim sem hafa
há laun. Þeir fá nú hálfar verð-
lagsgreiðslur og nemur kjara-
skerðingin hjá þeim því um 11,5%
en kaupskerðingin var hjá öllum
eins í prósentvís 1959 og 1974.
Krafa stjórnarandstöðunnar er
nú sú að samningarnir taki strax
gildi. Sem sagt, að þeir sem hafa
hæstu launin fái nú fullar verð-
lagsbætur á sín laun.
Er þetta launajöfnunarstefna í
verki?
Stjórnarandstaðan segist berj-
ast fyrir auknum jöfnuði auknu
réttlæti. Eg sé ekki betur, en að
þeirra réttlæti sé í verki aukið
misrétti. Ef til vill telja þeir að það
þurfi að viðhalda misréttinu, til
þess að geta í orði kveðnu barist
fyrir réttlæti. Niðurstaða kjara-
samninga á undanförnum árum
gefur a.m.k. tilefni til þess að
slíkar grunsemdir sæki á hugann.
f hvert sinn sem kjarasamning-
ar eru í undirbúningi er sá ásetn-
ingur mjög auglýstur að nú skuli
stefnt að því að rétta hlut þeirra,
sem lægstu launin hafa. En hefur
niðurstaða orðið sú að launabilið
hafi minnkað, þrátt fyrir slík fyr-
irheit?... Hverjir hafa samnings-
réttinn og semja um kaup og kjör
fyrir það fólk sem er með lægstu
launin? Eru það láglaunamenn?
Er ekki mál til komið, að lág-
launafólkið fari að hugsa ráð sitt
betur en hingað til, láti ekki
endalaust villa sér sýn? Eða getur
það verið að það sé hagsmunamál
láglaunafólksins í landinu að há-
launamenn fái fullar verðlags-
bætur á sín laun?
Ef t.d. að matvörur hækka svo,
að þær hækkanir sýni að kaup-
greiðsluvísitala eigi samkvæmt
því að hækka um 5%, sem mundi
þýða að þeir sem hafa 120 þúsund
á mánuði fengju 6 þúsund króna
hækkun, en þeir sem hafa t.d. 360
þúsund, fengju 18 þúsund, og þeir
sem hafa um 600 þúsund, (sem
mun vera hæstu laun samkvæmt
kjaradómi hjá ríkinu) ættu þá að
fá 30 þúsund. Eftir þessari kenn-
ingu þarf hálaunamaðurinn að
borða margfalt meira en
láglaunamaðurinn! Fyrir hvaða
réttlæti er stjórnarandstaðan að
berjast þegar hún krefst samn-
ingana aftur í gildi? Er ekki rétt
að hugleiða það betur en hingað
til?
þau tvö skipti sem ríkisstjórnin
hefur reynt að stíga skref til
þeirrar áttar, að minnka launa-
mun í landinu, þá hefur stjórnar-
andstaðan brugðist hin versta við.
Þegar er láglaunabæturnar voru
teknar upp 1974, voru viðbrögðin
svipuð og nú, og ekki linnti lát-
• unum fyrr en allir voru búnir að
fá þessar láglaunabætur. Og nú er
sama krafan uppi og þá ætti öll-
um að vera það ljóst, að það
verður aldrei hægt að rétta hlut
þeirra lægst launuðu, ef þeir sem
hafa hærri iaun eiga jafnan að fá
hlutfallslega sömu hækkanir. Þeir
sem þannig vinna stuðla að því að
viðhalda og auka launamuninn í
landinu. Þess skulu menn minn-
ast í næstu kosningum.
Stefán Valgeirsson
(Framhald af bls. 1).
leggja skyldi 4 milljónir króna af
rekstrarafgangi í Menningasjóð
KEA. Ennfremur samþykkti fund-
urinn að úthluta og greiða út 4%
arði af úttekt félagsmanna í Stjörnu
Apóteki.
I skýrslu Menningasjóðs KEA
kom fram, að úthlutað hafði verið 8
styrkjum að upphæð samtals 1.4
millj. króna á nýafstöðnum fundi
sjóðsstjórnarinnar. Voru styrkirnir
veittir ýmsum aðilum, einstakling-
um og félögum á félagssvæði KEA.
Sérmál fundarins var „Verslun-
arþjónusta Samvinnuhreyfingar-
innar“ en framsögn hafði Björn
Baldursson, verslunarfulltrúi.
Miklar og góðar umræður urðu um
þetta mál. Samþykkt var eftirfar-
andi tillaga frá deildarstjórn Akur-
eyrardeildar.
„Aðalfundur Kaupfélags Ey-
firðinga haldinn 9. og 10. júní 1978
felur stjóm félagsins að gangast
fyrir víðtækri könnun á afstöðu
viðskiptavina félagsins á þeirri
verslunarþjónustu sem félagið
veitir á félagssvæðinu.
Athugun þessi beinist annars-
vegar að þjónustu félagsins að því
er tekur til dagvöru og sérvöru,
hvað sé til fyrirmyndar og hvað
mætti betur fara. I því sambandi
verði sérstaklega kannað hvort
viðskiptavinir félagsins leggi meira
upp úr fjölbreytni í vöruvali þó það
(Framhald af bls. 51.
Heimir Hannesson.
stuðning við framleiðsluatvinnu-
vegina og viðnám gegn verðbólgu
er rétt stefna. Ég hefði hinsvegar
kosið, að þegar á árinu 1977 eða
fyrr hefði ríkisstjórnin gripið til
róttækra viðnámsaðgerða gegn
verðbólgunni og tengt þær að-
gerðir öðrum langtíma sjónar-
miðum, sem kynntar hefðu verið
um leið. Slík stefnumörkun hefði
bæði verið líklegri til raunveru-
legs árangurs og áreiðanlega
fengið betri viðtökur. Það er alltaf
spenna í þjóðfélaginu á kosn-
ingaári og fer ekki allt sem skyldi.
Þjóðin ætlaðist til þess, að ríkis-
stjóm með þennan sterka þing-
meirihluta gripi til sterkra og
áhrifaríkra aðgerða það má
gagnrýna, að of seint var brugðizt
við og með of einhliða aðgerðum.
Hvaða leið telur þú
skynsamlegasta í iðn-
aðarmálum til að taka
við auknum fólksfjölda
geti leitt til þess að verðlag verði
hærra en ella.
í annan stað verði kannað hver
sé afstaða félagsmanna og við-
skiptavina félagsins til þeirrar þró-
unar síðustu ára að hafa verslanir
færri en stærri. Einnig verði kann-
að hvort áhugi sé fyrir því að reistur
verði svonefndur stórmarkaður á
Akureyri.
Stjórnin leggi niðurstöður þess-
arar könnunnar fyrir næsta aðal-
fund félagsins."
Tillaga um sameiningu Kf. Ól-
afsfirðinga og Kf. Eyfirðinga var
samþykkt samhljóða.en slíka til-
lögu þurfa tveir félagsfundir í röð
að samþykkja.
Úr stjórn félagsins áttu að ganga
Hjörtur E. Þórarinsson, Tjöm, og
Sigurður Óli Brynjólfsson, Akur-
eyri, en þeir voru báðir endur-
kjörnir. Einnig voru endurkjörnir í
varastjórn þeir Sigurður Jósefsson,
Torfufelli, og Jóhannes Sigvalda-
son, Akureyri. Hilmar Daníelsson,
Dalvík, var endurkjörinn endur-
skoðandi, en Jóhann Helgason,
Akureyri var kjörinn varaendur-
skoðandi. Séra Birgir Snæbjörns-
son var endurkjörinn í stjórn
Menningasjóðs KEA svo og þau
Hólmfríður Jónsdóttir, mennta-
skólakennari og Jóhannes Sig-
valdason, ráðunautur. Þá voru
kjörnir 17 fulltrúar á aðalfund
Sambands íslenskra Samvinnufé-
laga.
á Norðurlandi? Og tel-
ur þú stóriðju - s.s. ál-
bræðslu - nauðsynlega
við Eyjafjörð?
Ég eins og fleiri norðanmenn er
lítt hrifinn af álveri við Eyjafjörð
af margvíslegum ástæðum. En ég
vil alls ekki útiloka nýjan meng-
unarlausan iðjurekstur, ef hann
fellur inn í þjóðfélagslegar að-
stæður og á sér hagstæðan við-
skiptalegan grundvöll frá ís-
lenzku sjónarmiði og samstarf við
erlenda vil ég heldur ekki útiloka,
t.d. um markaðs- og sölumál, ef
innlendir aðilar hafa að öllu leyti
síðasta orðið. Það sem við blasir
hinsvegar á næstunni er veruleg
efling á þeirri íslenzku stóriðju,
sem þegar er í fullum gangi og er
þar átt við iðnrekstur samvinnu-
hreyfingarinnar það er ein nær-
tækasta leiðin til að taka við
auknum fólksfjölda ogstyrkja þar
með öflugustu byggðina utan
Faxaflóans. Erfiðleikar í mark-
aðsmálum hafa skapað sam-
vinnuiðnaðinum á Akureyri
tímabundna erfiðleika, sem m.a.
stafa af tregðu í Rússlandsvið-
skiptum. Það er líklegt að valda
erfiðleikum að þurfa að treysta á
einn viðskiptaaðila, hvort sem
hann er austan tjalds eða vestan
og skal með þessu sízt gert lítið úr
hinum mikilvægu viðskiptum við
Sovétríkin. Það hlýtur hinsvegar
að vera mikilvægt stefnumark
fyrir samvinnuiðnaðinn að stór-
auka útflutning til hinna frjálsu
markaðssvæða um leið og stjórn-
völd verða að leggja aukinn
íþrýsting á Sovétríkin þess efnis,
að á meðan við kaupum í veru-
legum mæli frá þeim er til þess
ætlast að þau haldi áfram við-
skiptum við okkur.
A lúðarþakkir færi ég öllum þeim er heiðruðu mig
með heimsóknum, heillaóskum og gjöfum á sjö-
tugsafmœli mínu þann 1. júní sl.
KJARTAN SIGURÐSSON, Löngumýri 5.
j Akureyrarkirkja. Messað n.k.
sunnudag kl. II f.h. Sálmar
455,368,196,343,529. B.S.
Laufáskirkja, fermingarguð-
þjónusta 17. júní kl. 2 e.h.
Fermingarbörn Hannes
Skýmisson Skarði, Jóna
Hrönn Bolladóttir Laufási.
Kristinn Snæbjörnsson Nolli.
Sóknarprestur.
Fíladelfía Lundargötu 12. Al-
mennur biblíulestur fimmtu-
daginn 15 júní kl. 20.30. Al-
menn samkoma sunnudaginn
18 júní kl. 20.30. Fagnaðarer-
indið flutt í tali og tónum.
Allir hjartanlega velkomnir.
Fíladelfía.
mmmmtmmmmm
Ferðafélag Akureyrar. Herðu -
breiðarlindir og Bræðrafell
16-18 júní. Brottför kl. 8 á
föstudagskvöld. Næstu ferðir
Engidalur-Svartárkot og
Hvamdalur-Héðinsfjörður.
Skrifstofan er opin mánudaga
og fimmtudaga kl. 6-7
Orlofsferð verður farin á vegum
Árskógs, Arnarnes, Skriðu,
Öxnadals og Glæsibæjar-
hrepps orlofsnefndar dagana
28, 29 og 30 júní. Auglýst
nánar. Nefndin
St. Georgsgiidið. Landsþingið
verður sett við Hvammstanga
laugardaginn 1. júlí kl. 5 e.h.f
Þátttaka tilkynnist í símum I
24225 og 22738 fyrir 25 júní. j
Tökum börnin með. Stjórnin
Skákmenn munið 15 mínútna
mótið í Félagsborg, klukkan
20 á miðvikudag. Stjómin
11®
Þann 10. júní voru gefin sam-
an í hjónaband í Akureyrar-
kirkju brúðhjónin ungfrú i
Margrét Guðbjörg Hólm-!
steinsdóttir og Haukur Kristj-
ánsson tæknifræðingur frá
Leyningi Eyjafirði. Heimili
þeirra verður að Bjarmastíg 5,
Akureyri
Hi
Stefán Valgeirsson, alþingismaður:
Allir stjórnmálaflokkarnir
hafa framkvæmt svipaðar
efnahagsaðgerðir og nú
- Tilgangurinn