Dagur - 13.03.1979, Qupperneq 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVÍÐSSON
Blaöamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf
Verður krónunni
fleygt?
Haukur Ingibergsson, skólastjóri
Samvinnuskólans flutti nýlega er-
indi í útvarp og ræddi meðal ann-
ars um íslenska gjaldmiðilinn,
krónuna. Hann minnti á, að þegar
íslendingar hefðu sótt frelsi sitt og
sjálfstæði í hendur Dönum, hefði
sérhvert spor á þeirri erfiðu braut
verið talið heillaspor. Og það þótti
nokkurs vert að íslendingar fengju
sína eigin mynt,íslensku krónuna,
enda þótti hún hluti sjálfstæðisins
og hefur svo lengi verið. Skóla-
stjórinn sagði ennfremur:
„íslenska krónan hefur ekki
farið neina sigurför um heiminn,
og virðist stefnt að því að leggja
hana niður á vissum sviðum efna-
hagslífsins og taka upp nýja mynt í
hennar stað. Það á sem sagt að
fara að nota tvær tegundir af
gjaldmiðli. Gamla krónan er ætluð
sem annars flokks mynt, en hin
nýja skal notuð til allra alvöru við-
skipta. Og nýja myntin á svo
sannarlega að standa fyrir sínu.
Og hvað heitir hún svo? Jú, hún
heitir einfaldlega, erlend mynt. Nú
skal miða við erlenda mynt.
Fyrsta merkið um þessa breyt-
ingu peningamála var, er yfirvöld
tilkynntu, að nú væri öllum heimilt
að stofna gjaldeyrisreikninga.
Stjórnvöldum þótti svo fráleitt, að
nokkur maður vildi breyta útlend-
um peningum yfir í íslenskar
krónur og leyfðu að stofna banka-
reikninga með erlendri mynt. En
þetta var aðeins byrjunin, því eins
og oft vill verða, vilja fleiri fá að-
gang að gæðum þessa heims en
þeir, sem til eru kallaðir í fyrstu.
Ekki leið á löngu áður en sú
hugmynd kom fram á Alþingi, að
rétt væri að koma á þeirri skipan,
að þegar íslenskir menn ieggðu
íslenskar krónur í íslenska banka,
yrði þeim breytt í erlenda munt við
innlögnina. Er litlum vafa undir-
orpið, að ef sú skipan kæmist á,
yrði meginhlutinn af því fé, sem
geymt væri í böndkum, von bráðar
reiknaður í erlendri mynt. En ekki
er allt búið enn, því nú fyrir jólin
kom á Alþingi fram frumvarp þess
efnis, að Seðlabankanum væri
heimilt að veita útflytjendum lán
vegna framleiðslu og birgða og
færi endurgreiðsla höfuðstóls og
vaxta af þessum lánum eftir á-
kveðinni þróun erlendrar myntar.
Frumvarp þetta var samþykkt og
þannig er það orðið að lögum, að
miða ákveðna þætti efnahagslífs-
ins við erlenda mynt. Það er engin
furða þótt fólk spyrji hvað sé hér á
seyði. Á að taka upp tvo gjald-
miðla eða eingöngu erlenda
mynt?“
Orð skólastjórans mættu verða
mörgum umhugsunarefni.
Sigurbjörn P.
Árnason
frá Hallbjarnarstöðum
F. 30. júlí 1902.
D. 13. október 1978.
ÁSTVINAKVEÐJA
Á grænni strönd þar sem hafaldan kliðar við kletta
um kyrrlátu dægrin, meðan sólin vakir í hafi,
stóð vagga þíns lífs. Þar vöknuðu vonir og draumar
í veröld sem barnssálin reit sína gullnu stafi.
Og svo komu árin með atorku ungrar gleði
og athafnaþrá sem var heit í fögnuði sínum.
Öll fágun í starfi var stolt þinna högu handa,
sá hamingjudraumur sem rættist í verkum þínurh.
Nú andvarpar haustið kuli á kvistina og blöðin
og hverfleikinn stígur til jarðar og þung eru sporin.
En lífið er eilíft. Það faðmar fræ sinnar moldar
og fagnandi rís það á ný þegar hlýnar á vorin.
Þú hverfur í sólskin og geislarnir vísa þér veginn.
Þeir verma þá fegurð sem minningar áranna geyma.
Við kveðjum þig hljóð. Guð blessi, bróðir og vinur.
Það er bjart yfir landtöku þinni á ströndinni heima.
Valdimar Hólm Hallstað.
Byrjaði allt í einu að
mála og hélt sýningu
— segir Iðunn Ágústsdóttir, húsmóðir og listakona
Húsmóðir ein á Akureyri,
Iðunn Ágústsdóttir, dóttir
Ágústar Ásgrímssonar og
Elísabetar Geirmundsdóttur
listakonu, sem látin er fyrir
alimörgum árum, opnaði
myndasýningu í Galleri Háhóli
16. febrúar og lauk henni 25.
sama mánaðar. Það er
skemmst af sýningu þessari að
segja, að henni var framúr-
skarandi vel tekið og fast að 50
myndir af 69, sem þarna voru
sýndar, seldust.
Þegar tillit er tekið til þess, að
þessi listakona hefur ekki í neinn
myndlistarskóla komið og hefur
ekki einu sinni haft málun né
teikningu fyrir tómstundastarf
fyrr en fyrir tæpum tveim árum,
er árangurinn ótrúlega góður.
Dagur ræddi við Iðunni Ágústs-
dóttur að sýningu lokinni og fer
það samtal hér á eftir.
Hvenœr kom þessi árútta yfir
Það eru tæp tvö ár síðan ég
byrjaði að mála og teikna, en áð-
ur hafði ég örlítið fengist við
skúlptúr. Ég var ekkert gefinn
fyrir að teikna og var alveg viss
um að ég hefði ekki hæfilega í þá
átt.
Iðunn Ágústadóttir
Hvernig myndir voru á sýningu
þinni?
Það voru þurr-plastelmyndir
og pennateikningar. Ég er lítil-
lega byrjuð að kynna mér með-
ferð olíulita, en hef hug á að gera
það, og það er mér ákaflega mikil
uppörfun hve margar myndanna
seldust.
Eru pels- eða bílakaup á dag-
skrá?
Pelsar freista mín ekki, en mér
leikur hugur á að eignast bíl, sem
hægt er að komast meira á en al-
faraleiðir. í þetta sinn verður
maður þó að láta sér nægja
minna, en hver veit hver þróunin
verður í því efni.
Urðu ekki brevtingar á heimil-
ishögum þinum þegar þú fórst allt i
eintt að sökkva þér niður i mvnda-
gerð?
Jú, þær urðu miklar og það er
e.t.v. erfitt fyrir eiginmanninn og
börnin mín að ég fór að skipta
mérsvona á milli húsmóðurstarf-
anna og þessa nýja verkefnis. Og
það getur einnig verið erfitt fyrir
mig þegar hvort tveggja togar í
mig og ég þarf að velja. Sem betur
fer eru vinkonur mínar ætíð fúsar
að gæta barna fyrir mig, því
stundum verð ég að fara út í
náttúruna og Ieita mér fyrir-
mynda, og þá vil ég vera ein.
Móðir þín var listakona svo þti
hefur alist upp við svipaða verka-
skiptingu?
Já, móðir mín hafði stórt
heimili og hafði þvi nóg á sinni
könnu við börn og bú. En hverja
stund, sem aflögu var, notaði hún
til listsköpunar. Höggmyndir,
tréskurður, málun og Ijóðgerð
voru henni hjartfólgin viðfangs-
efni í stopulum tómstundum. Við
þetta ólst ég upp og fannst þá, að
ekkert væri sjálfsagðara.
Þú leitar þér fyrirmvnda?
Stundum leitar maður, en
stundum veit ég um einhverja
staði, sem betur þarf að sjá og
skoða. og þá er ekið af stað þegar
tök eru á. Þegar á staðinn er
komið, reyni ég að átta mig á
viðfangefninu og hvað ég sé í því,
sem áhugavert er að fram komi á
mynd. Geri ég þá skissu, oft fleiri
en eina. En þegar ég síðar vinn úr
þeim, byrja ég á því að gera bæn
mína og biðja um styrk til að
vinna mín beri sem bestan ávöxt.
En þess er einnig að geta, að
stundum sé ég ekki neitt og er eins
og tóm, þótt ég leiti að mótífum,
og get þá ekki lifað mig inn í um-
hverfið. En eftir ljósmyndum get
ég ekki unnið, því ég fæ enga til-
finningu fyrir þeim, eins og ég
verð fyrir í náttúrunni þegar
heppnin er með.
Sumar mvnda þinna nálgast hið
dulrœna eða trúarlega Hvernig
verða þær til?
Það kemur fyrir, að mér finnst
ég þurfi að búa til mynd, en geri
mér ekki nánari grein fyrir því.
Byrja ég þá á því að velja mér
einhverja krít, oft bláa eða gula,
og svo þróast þetta stig af stigi.
Ertu þá ttndir einhverjum áhrif-
um frá öðrum, dánum eða lifandi?
Maður er aldrei einn, hvort
sem menn gera sér grein fyrir því
eða ekki, trúa því eða trúa ekki.
Ég get ekkert fuliyrt um. hvort
einhverjir hjálpa mér, en margt er
ótrúlegra.
GÍGJAN RÆÐST í
PLÖTU (JTGÁFU
„í vetur höfum við æft upp lög af eldri söngskrám og höfum hugsað
okkur að halda tónleika í Borgarbíói 24. og 25. mars. Hugmyndin
er að þeir séu nokkurskonar sýninshorn af því sem við höfum verið
að gera undanfarin ár,“ sagði Gunnfríður Hreiðarsdóttir, for-
niaður Söngfélagsins Gígjunnar á Akureyri í samtali við Dag. „Við
höfum annars ýmislegt á prjónunum svo sem plötuútgáfu, en það
er fjárfrekt fyrirtæki og vart framkvæmanlegt nema með stuðningi
bæjarbúa. Jakob Tryggvason mun stjórna kórnuni á þessari plötu,
en hann hefur verið stoð og stytta kórsins frá upphafi og Jakobi á
kórinn velgengni sína að þakka.“
Ekkert kynslóða-
bil í Gígjunni
Félagar í Söngfélaginu Gígj-
unni eru nú um 30 talsins og sagði
Gunnfríður að ekkert kynslóða-
bil ríkti innan félagsins og alltaf
fjölgaði yngri konunum og þá
sérstaklega í efri röddunum.
Anna Kjartansdóttir hefur að-
stoðað kórinn með undirleik á
æfingum í vetur, en á tónleikun-
um í Borgarbíói mun Thomas
Jacmann leika með kórnum.
Einsöngvari verður Gunnfríður
Hreiðarsdóttir. En Akureyringar
sitja ekki einir að söng Gígjunnar
því kórinn mun einnig halda tón-
leika utan bæjarins.
— Hvernig er fjárhagurinn?
„Hann er vægast sagt ákaflega
bágur, Við höfum aðeins starfað í
12 ár og höfum engin hliðarfélög,
eins og karlakórarnir, til að afla
fjár. Þeir hafa „eiginkvennafé-
lög“ ef svo má að orði komast, en
bændur okkar hafa ekki enn
stofnað félag sem gæti styrkt
Gígjuna. Með þessum orðum er
ég ekki að gera lítið úr okkar
ágætu eiginmönnum — síður en
svo. Hvað húsnæði varðar, þá
höfum við ekki eigið æfingarhús-
næði og höfum öll árin æft á
tveimur stöðum og oftast í kap-
ellu kirkjunnar, en minna í Tón-
listarskólanum. Ég viidi nota
tækifærið og þakka viðkomandi
aðilum fyrir veittan stuðning á
liðnum árum.“
Hefur raddseft á
annað hundrað
lög
Gígjan mun fara suður til
Reykjavikur í maí og ætlunin er
að taka upp plötuna hjá Hljóðrita
í Hafnarfirði og eins og áður sagði
mun Jakob Tryggvason stjórna
kórnum við það tækifæri.
„Við eigum Jakobi mikið að
þakka eins og reyndar allir bæj-
arbúar. þvi hann hefur helgað
tónlistarlífi bæjarins alla sína
krafta — enda virtur af tónlistar-
fólki víða um land. Það sáum við
best á kórafmæli L.B.K. síðast
liðið vor í Reykjavík. Það má líka
geta þess að Jakob hefur raddsett
fyrir kvennakór flest þeirra laga
sem kórinn hefur sungið frá upp-
hafi, en okkur telst til að það séu
nokkuð á annað hundrað lög.“
Tökum glaðar á
móti sfyrktarfé-
lögum
„Við höfum í hyggju að safna
áskriftum að plötunni meðal vel-
unnara kórsins þegar þar að
kemur og ýmsar aðrar leiðir
koma til greina í sambandi við
fjáröflun. T.d. dettur okkur í hug
að fara af stað með einhverskonar
fjölskylduskemmtun með haust-
inu og trúlega verður hún að
veruleika, því meðlimir kórsins
eiga ýmislegt í pokahorninu.
Marga góða styrktarfélaga eigum
við og tökum glaðar á móti fleiri.
Nú, það eina sem ég hef við þetta
spjall að bæta er það að ég vona
að tónleikarnir í Borgarbíói verði
vel sóttir og fólk getur átt von á að
heyra mörg lög, sem hafa joótt
takast vel á fyrri tónleikum. Og
ekki get ég sleppt tækifærinu til
að auglýsa miðasöluna — hún
verður við innganginn og forsala í
Bókabúðinni Huld.“
Svning þin fékk mjög góða
dóma?
Ég vona að góðar undirtektir
verði ekki til þess að ég láti mér
nægja, að standa þar sem ég er
nú, heldur að gera betur og auka
„breidd mína“, ef svo má segja.
Það er svo ótal margt, sem að
myndum mínum má finna, væru
þær „saumfarnar“ og það geri ég
mér ljóst, hve óendanlega margt
ég þarf að læra og að þroskast.
Hefur þút yndi af að mála?
Annars væri ég ekki að þessu.
Þetta veitir mér að vissu leyti
hamingju, þótt það valdi einnig
vanda fyrir húsmóður. Þessi tvö
siðust ár hafa verið mér erfiðari
en flest önnur ár, en þó er mér
ekkert fjær en að leggja árar í bát,
þótt það væri e.t.v. auðveldara.
Hvernig stóð á því, að þú fórst
ekki i myndlistarskóla?
Mig skorti fé-til þess, en einnig
hefur það eflaust komið til, að ég
hafði ekki bein í nefi til að brjót-
ast þangað, Litlu síðar eignaðist
ég mann, heimili og börn og lagði
aliar vanga veltur um myndlist-
arnám á hilluna, enda hafði ég þá
staðfasta trú, að ég gæti ekki
teiknað. Og víst má mér ganga
betur, en eitthvað hefur líklega
~verið að brjótast í mér, sem upp-
eldi mitt hefur eflaust átt þátt í,
þar tii ég kastaði mér út í þetta
fyrir tæpum tveim árum. Stund-
um finnst mér ég á einhvern hátt
notuð til að koma vissum boð-
skap á framfæri, en það er of
flókið mál til að ræða það nánar,
segir Iðunn Ágústsdóttir að iok-
um. Og um leið og blaðið þakkar
viðtalið, óskar það listakonunni
góðs gengis. — E.D.
Ljósm.: Norðurmynd.
Skoraði 16 mörk
KA menn voru sannarlega á
skotskónum í Reykjavík um
helgina en þá léku þeir tvo
leiki í hinni hörðu baráttu í
annarri deild í handboltan-
um. Þeir unnu báða þessa
leiki, Leikni með 33 mörkum
gegn 20 og síðan Þrótt með
29 gegn 25. Með þessum
sigrum komust þeir endan-
lega úr fallhættu, og með smá
heppni ættu þeir að geta orð-
ið í einu af efstu sætum
deildarinnar.
Leikurinn við Þrótt á laugar-
daginn var algjör einstefna, eins
og búast mátti við. Leiknir teflir
fram mjög lélegu liði og þeir
hafa ekki ennþá hlotið stig, en
mikil óeining hefur ríkt í her-
búðum þeirra. í hálfleik var
staðan 16 gegn 10 fyrir KA, og
þeir juku það forskot í síðari
hálfleik og sigruðu með 33
mörkum gegn 20. Flest mörk
KA í þessum leik gerðu Jón
Árni og Þorleifur 7 hver og
Guðbjörn gerði 6 og aðrir færri.
Á sunnudaginn lék KA við
Þrótt og þar var búist við
hörkuleik. KA menn brugðust
ekki vonum stuðningsmanna
sinna og náðu strax forustu í
leiknuiri- Oftast var tveggja
marka munur í fyrri hálfleik
KA í vil, en Þróttur náði nokkr-
um sinnum að jafna. I hálfleik
var staðan I6 gegn 14 fyrir KA.
I síðari hálfleik náðu KA menn
strax fjögurra marka forskoti,
og héldu því þar til 7 min voru
eftir af leiknum en þá kom lé-
legur kafli og Þróttur komst i
eins marks mun 24-23. Þá tók
Þorleifur fyrirliði KA völdin í
sínar hendur og gerði fjögur
síðustu mörkin, og tryggði sigur
KA 29-25.
Flest mörk KA í þessum leik
gerðu Þorleifur eða I6 talsins (9
úr víti), og það er algjört eins-
dæmi í leik sem þessum þegar
tvö áþekk lið leika saman að
einn og sami maður geri 16
mörk.
MAÐUR
MÓTSINS
Uni helgina var haldið svo-
kallað Þorramót á ísafirði,
en það er punktamót í alpa-
greinum fullorðinna. Allir
bestu skíðamenn landsins
voru þar mættir til keppni.
Það stóð hins vegar enginn
skíðamanninum unga frá
Húsavík Birni Olgeirssyni á
sporði, en liann sigraði bæði í
stórsvigi og svigi. Þá vann
hann einnig alpatvíkeppnina.
Björn er nú orðinn einn besti
skíðamaður landsins þótt
ungur sé að árum en hann
keppir nú i fyrsta sinn í full-
orðinna flokki.
UM5J0N;
OLAFUR ASGEIRSSON
Mark skorar körfu. Mynd: Á.H.
Loksins sigur
— en of seint
Það fór þó aldrei svo að stuðn-
ingsmenn Þórs í úrvalsdeildinni
í körfubolta fengju ekki sigur í
seinni umferð mótsins. Öllum á
óvart sigruðu Þórsarar ÍR-inga í
íþróttaskcmmunni á laugardag-
inn.
Leikurinn var jafn allan tíman
en Þórsarar voru þó yfirleitt
fyrri til að skora og leiddu mest
allan fyrri hálflcikinn.
ÍR-ingum tókst hins vegar að
skjótast yfir á lokamínútum fyrri
hálfleiks og þegar flautað var til
hálfleiks var staðan 43-41 fyrir ÍR.
Fljótlega í síðari hálfleik komust
Þórsarar yfir og héldu forustu, en
unt miðjan hálfleikinn var jafnt
77-77.
En á ný komst Þór yfir og hélt
forustunni út leikinn og sigraði
með 88 stigum gegn 83. Sigur þessi
var sanngjarn en ÍR-ingar hafa
sennilega búist við léttum leik. svo
fer venjulega fyrir þeim sem van-
meta andstæðinga sína. Mark var
að venju stigahæstur Þórsara með
26 stig. Næstir komu Eiríkur og Jón
Indriða með 16 hvor, Birgir gerði
14. Eiríkur 12 og aðrir færri.
Paul Stuart var stigahæstur ÍR-
inga með 21 stig. Kristinn Jör. og
Kolbeinn gerðu 14 hvor, Stefán 16
og Jón Jör. og Signtar 8 hvor.
Þórsarar hafa nú unnið þrjá leiki
i úrvalsdeildinni og hafa hlotið 6
stig. Þeir eiga ennþá eftir að leika
tvo leiki — báða ntjög erfiða
þannig að sennilega hljóta þeir ekki
stig á móti þeim toppliðum og falla
þess vegna niður í fyrstu deild.
4.DAGUR
DAGUR.5