Dagur - 18.04.1979, Blaðsíða 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri
Ftitstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími augiýsinga og afgreiöslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVÍÐSSON
Blaöamaöur: ASKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr : JOHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf
Við sumarkomu
Þegar litið er um öxl við þau árs-
tíðaskipti, sem nú fara í hönd, og
sumri er fagnað, verður margt of-
arlega í huga. Óvenjulega mikið
fannfergi sunnanlands hefur vald-
ið erfiðleikum, frosthörkur á miðj-
um vetri hafa verið meiri en oftast
áður frostið gengið dýpra í snjó-
létta jörð á Norðurlandi, en á und-
anförnum áratugum. Hafís truflaði
bæði samgöngur og þó einkum
sjósókn fyrir Norðurlandi, en varð
hvergi samfrosinn og því breyti-
legur frá degi til dags. Hafís og
djúpfrosin jörð létta undir hrak-
spár um grasleysi í sumar.
En fiskimiðin hafa verið gjöful á
vetrarvertíð. Hér við Norðurland
hefur þorskgengd aukist ár frá ári
og stórfiskur aukist í aflanum.
Mátti heita, að um mokafla væri að
ræða síðustu vikurnar áður en
hafísinn torveldaði bátum neta-
veiði. Allar sjávarvörur seljast fyrir
hagstætt verð á erlendum mörk-
uðum, atvinna hefur verið mikil og
jöfn, svo að segja um land allt á
liðnum vetri, peningaveltan er því
mikil og Iffskjör almennings hafa
sjaldan verið betri. Verulega er
hamlað gegn verðbólgu, en þó
skorti samkomulag innan stjórn-
arflokkanna um raunhæfari að-
gerðir.
Skuggi óðaverðbólgu ógnar því
enn sem fyrr öllu efnahagslífi
þjóðarinnar. Allir sjá þetta og við-
urkenna, enda hver maður vitni að
þeim endaskiptum á viðteknu við-
skiptasiðgæði, sem átt hafa sér
stað hér á landi á síðustu árum og
meiri eignatilfærslu í þjóðfélaginu
af hennar völdum, en dæmi eru
um áður í sögunní. Um þetta eru
flestir fúsir að bera vitni, enda
auðveldast, en herkvaðning til að
ráðast gegn þessum óvini, hefur
ekki mikill árangur borið og sjálf-
boðaliðar eru ekki í sjónmáli.
Á stjórnmálasviðinu hefur ríkt
stöðug spenna, allt frá síðustu al-
þingiskosningum til þessa dags.
Óreyndir alþingismenn, sumir
með innihaldslitla fortíð, hafa
„stolið senunni“ til skiptis á sjálfu
Alþingi, sett fram dagsetta úr-
slitakosti um eitt og annað, svo
samstarf ríkisstjórnarinnar hefur
hvað eftir annað verið í hættu.
Óvenjulegir forystuhætileikar eins
manns og jafnframt kjölfesta á
sömu hendi, hafa til þessa reynst
þjóðinni giftudrjúgir í óvenjuleg-
um sviptivindum íslenskra stjórn-
mála. Þrátt fyrir allt tal um efna-
hagsvanda og annan vanda, býr
þjóðin við nokkurn hagvöxt og
vaknar þá sú spurning, hvort það
sé ekki öðru fremur stjórnmála-
vandi, jafnvel stjórnmálakreppa,
sem við búum við og þurfum að
ráða bót á.
Gleðilegt sumar.
Eigum nokkrar íbúðir
óseldar í einnar hæðar raðhúsí við Arnasíðu 27.
Geta verið með eða án bílskúrs.
Upplýsingar í símum 23382 eða 21481.
Trésmíðaverkstæði Jóns
Gíslasonar hf.
Framsóknarfélag
Húsavíkur
boðar til almenns stjórnmálafundar í félagsheimili
Húsavíkur sunnudaginn 22. apríl kl. 16.
Steingrímur Hermannsson ráðherra og formaður
Framsóknarflokksins mætir á fundinn ásamt þing-
mönnum flokksins í kjördæminu.
Fjölmennið
Stjórnin
Folaldakjöt
Saltað
H. F. Eimskipafélag íslands
AÐALFUNDUR
Aðalfundur H.f. Eimskipafélags fslands verður
haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík
miðvikudaginn 23. maí 1979 kl. 13.30.
Dagskrá:
I. Aðalfundarstörf samkvæmt 13. grein samþykkta
félagsins.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins
samkvæmt 15. grein samþykktanna.
3. önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu
félagsins, Reykjavík, 16-21. maí.
Reykjavík, 31. mars 1979
Stjórnin
Viljum ráða nú þegar ötulan mann til starfa við
skipaafgreiðslu
vora á Oddeyrartanga.
Upplýsingar gefur Jón Samúelsson forstöðumaí
skipaafgreiðslunnar.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Stúlkur óskast
til afgreiðslustarfa (vaktavinna) í biðskýli S.V.A.
Sími24425.
Viljum ráða
aðstoðarmanneskju
á tannlæknastofuna Glerárgötu 20.
Upplýsingar á staðnum.
Hörður Þórleifsson tannlæknir,
Ingvi Jón Einarsson tannlæknir.
Óskað eftir framtíðarstarfi
Þrítugur fjöldskyldumaður óskar eftir framtíðar-
starfi, þokkalega launuðu. Hef annað stig sjó-
mannaskólans í Reykjavík. Heiti reglusemi og
stundvísi.
Þeir sem hug hafa á að ráða sér starfskraft leggi
tilboð inn á afgreiðslu DAGS merkt „framtíð 1979“
fyrir 1. maí n.k.
Akureyri
nærsveitir
Píanóstillingar. Tekið á móti pöntunum í síi
24163.
Ottó Ryel.
Hótel Húsavík
auglýsir
Fiðlarinn á þakinu er sýndur á Húsavík um þess
mundir. Við gefum hópum sérstakan afslátt á fæ
og gistingu í tengslum við sýningarnar
Verið velkomin Gleðilegt sum
EFNAVERKSMIÐJAN SJOFN - AKUREYRI - SIMAR (96) 21400 & 21165
UR POLYURETAN.
Allar stærðir og gerðir
Sérstaklega vönduð
framleiðsla.
Sníðum eftir máli.
Getum einnig afgreitt
rúmdýnur með veri.
Svampdynurnar laga sig
fullkomlega eftir líkamsbyggingu
ABYRGÐ TEKIN A ALLRI FRAMLEIÐSLU — LEITIÐ UPPLYSINGA UM VERÐ OG GÆÐI
4.DAGUR