Dagur - 28.08.1979, Síða 1
TRÚLOFUNAR.
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXII. árg.
Akureyri, þriðjudagur 28. ágúst 1979
54. tölublað
m \dd'ié\aí
= riLMU Kunrvn,
Flóamarkaður
N áttúrlækningafélag
Akureyrar ætlar að
halda flóamarkað eftir
miðjan september til
fjáröflunar fyrir hælis-
bygginguna í Kjarna-
landi. Treystum við því
að velunnarar félagsins
leggi eitthvað af mörk-
um. Allt er vel þegið ætt
og óætt, stórt og smátt,
heimaunnir smámunir,
hreinn fatnaður, potta-
plöntur, búsáhöld, bæk-
ur, leikföng o.s.frv. Tek-
ið verður á móti munum
í þriðju hæð Amaró 3.-7.
september n.k. frá kl
15-17 daglega. Stjórnin.
Næmur
skilningur
í síðasta mánuði var lagt 11
fram í bæjarráði bréf
dómsmálaráðuneytisins,
þar sem leitað var um-
sagnar vegna erindis
Stefáns Gunnlaugssonar
og Þórar Gunnarssonar |p
um vínveitingarleyfi í
Bautanum. Bæjarráð
mælti ekki gegn veitingu
leyfisins. Bæjarstjórnar-
menn á Akureyri virðast
hafa næman skilning á
„þörfum“ þeirra, sem
fást við áfengissölu.
Frá lögreglunni
Aðfararnótt síðasta
laugardags hófst með
því slysi hjá Hvammi í
Arnarneshreppi að bíll
úr Ólafsfirði ók á kú og
þurfti eigandinn ekki að
hafa fyrir því að lóga
henni. Þá ná nefna þau
slys um helgina, að bíll
lenti út af Vaðlaheiðar-
vegi. Enginn slasaðist en
bíllinn var beyglaðri en
áður. Árekstrar og ölvun
var ekki með meira móti
þessa helgardaga. En
kona ein, sem var að
koma úr Sjálfstæðishús-
inu, gerði nokkurn usla
með grjótkasti á heim-
leið sinni og á öðrum
stað vaknaði bíleigandi
um miðja nótt við það,
að annar steinkastari
braut rúðu í bílnum
hans, sem stóð þar úti
fyrir. Ekki voru nema
tveir teknir fyrir meinta
ölvun við stýri og þykir
ekki mikið, sagði E.P.
varðstjóri blaðinu í gær.
Frjálsíþróttafólk KA vann um helgina glæsilegan sigur,
þegar það sigraði aðra deild og flyst þvf í fyrstu deild á
komandi keppnistfmabili. Mótið var haldið á Akureyrar-
veili f góðu veðri og voru keppendur frá sex íþrótta- og
ungmennafélögum. KA vann auðveldan sigur yfir and-
stæðingum sínum, jafnvel þótt fljótasti maður landsins
Oddur Sigurðsson væri erlcndis um þessar mundir, en
Hjörtur Gíslason hélt uppi merki félagsins i spretthlaup-
unum og sigraði í þeim öllum. Flestir sigrar féllu honum og
Sigríði Kjartansdóttur í skaut, en hún sigraði í 200, 400,
800 og 100 m grindahlaupi 4x100 m boðhlaupum og einnig
í langstökki. Þá varð hún önnur í 100 m hlaupi sjónarmun á
eftir Hólmfríði Erlingsdóttur UMSE.
Blönduós:
Keyptur
nýr rækju-
bátur
Rækju- og skelfiskbáturinn
Þröstur HU, sem brann á
Blönduósi var dænidur ónýtur af
tryggingunum og fengu eigend-
ur greiddar 25 milljónir frá
tryggingunum og 7 milljónir úr
aldurssjóði. Á föstudag skrifuðu
eigendur undir samninga um
kaup á örðum bát, sem er 65
tonn, og fer hann á hörpudisk-
veiðar um mánaðamótin.
Að sögn Kára Snorrasonar for-
stjóra Rækju- og skelfiskvinnsl-
unnar á Blönduósi, er nú mjög lítið
að gera í vinnslunni, sökum hrá-
efnisleysis, þar sem aðeins einn
bátur Nökkvi HU 15, er á veiðum, í
stað þriggja fyrr í sumar. Einn bát-
ur færði sig yfir á Skagastrandar-
verksmiðjuna um það leyti er bát-
urinn Þröstur brann.
Skipsvélum breytt til
svartolíunotkunar
dalvIk 27. Agúst. Nú er verið að
breyta vélum Björgúlfs og
Björgvins til svartolíunotkun-
ar. Þá er unnið af kappi við
endurbætur á frystihúsinu og
hefur svo verið þennan mán-
uðinn.
Hér á Dalvík standa endurbætur
yfir í sláturhúsi KEA, þar sem lóga
á um 18 þúsund fjár í haust. Setja á
upp nýjan slátrunarbekk og ýmis-
legt fleira, en verkið hefur dregist á
langinn vegna þess að loforð inn-
flytjenda eru ekki haldin.
í síðustu viku var malbikað tals-
vert hér á Dalvík og þessa vikuna er
malbikað í Olafsfirði. Malbikunar-
stöðin á Akureyri aðstoðar við
þessar góðu framkvæmdir.
í þessari viku hefjast hafnar-
framkvæmdir og verður gerð smá-
bátahöfn, er vantað hefur lengi.
Unnið verður fyrir 35 milljónir
króna. Fyrstu tækin eru að koma
hingað á morgun.
Rækjutogarinn Dalborg kom inn
í morgun með 75 tonna afla eftir
þriggja vikna útivist á Dornbanka.
Rækjan verður seld í Svíþjóð.
Keyptir hafa verið tveir þilfars-
bátar. Bliki h.f. keypti 150 tonna
bát og Haraldur s.f. keypti 60-70
tonna bát. K.Ó.
Síðasti aðalfundur KEA samþykkti að styrkja framkvæmdir Sjálfsbjargar á Akureyri
með 10 milljón króna framlagi.
Á föstudaginn var þessi mynd tekin er stjórnarformaður KEA, Hjörtur E. Þórar-
insson, afhenti Heiðrúnu Steingrimsdóttur, formanni Sjálfsbjargar ávísun á þessa
peningaupphæð, á stjórnarfundi kaupfélagsins. Lengst t.v. situr Sigurður Óli
Brynjólfsson, varaformaður félagsins en lengst t.h. Valur Arnþórsson, kaupfélags-
stjóri. Myndina tók G.P.K.
Fundur landlækna Norðurlanda á Akureyri:
„Næsta átak í heilbrigðismálum
er bættur aðbúnaður aldraðra“
leggja áherslu á í heilbrigðis-
þjónustinni í hverju landi og í því
sambandi má það segja um heil-
brigðisþjónustu á Islandi að lögð
var megináhersla á sjúkrahús-
byggingar á árunum 1960-1970.
Frá árinu 1970 höfum við lagt
mesta áherslu á byggingu heilsu-
gæslustöðva og næsta skrefið hjá
okkur verður að bæta aðbúnað
aldraðra, en þar höfum við dreg-
ist aftur úr. Ráðherra skipaði
nefnd, sem mun skila áliti fyrir
haustið, þar sem lagðar eru fram
tillögur um hvernig bæta megi
aðbúnað aldraðra, sagði Ólafur
Ólafsson landlæknir er blaða-
maður Dags náði tali af honum á
fundinum.
Kostnaður við heilbrigðisþjón-
ustuna hér á landi hefur aukist frá
því að vera 3% af þjóðarfram-
leiðslu árið 1950 upp í að vera
1,2% af þjóðarframleiðslu 1977.
Kostnaðurinn er lægstur hér og í
Finnlandi, sé miðað við hin
Norðurlöndin. Ólafur sagði að
það hefði m.a. komið í ljós á
þessum fundi hve tannlækna-
þjónustu væri hér mikið ábóta-
vant, sérstaklega úti á landi.
____________(Framhald á bls. 2).
segir Ólafur Ólafsson landlæknir
Fimm landlæknar saman komnir á Akureyri. Fv. Sören K. landlæknir í Finnlandi og Þorbjöm Mork landlæknir í
Sörensen landlæknir Danmerkur, Ólafur Ólafsson land- Noregi. Mynd: G.V.
læknir, Barbro Westcrholm landlæknir Sviþjóðar, E. Kivalo
FUNDIR landlækna á Norð-
urlöndum eru haidnir árlega
og að þessu sinni var fundurinn
haldinn hér á Akureyri dagana
23.-24. ágúst. Á fundinum var
fjallað um heilbrigðisástand
og heiibrigðisþjónustu í við-
komandi löndum. Þar eru
teknar ákvarðanir sem eru
stefnumótandi í heilbrigðis-
þjónustunni og hafa bein og
óbein áhrif á tillögur um
breytingar.
„Umræður á þessum fundi
snerust mest um hvað eigi að