Dagur - 28.08.1979, Síða 5

Dagur - 28.08.1979, Síða 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167 Ritstjóri (ábm ). ERLINGUR DAVÍÐSSON Blaöamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf Hjálpum nauð- stöddum Fyrir tveim öldum vakti eymd Is- lendinga góðar hvatir í brjóstum nágrannaþjóða, sem vildu hjálpa með því að flytja fólk frá hinni norðlægu og harðbýlu eyju okkar til Jótlandsheiðanna dönsku. Það, sem mest þjakaði íslendinga á þeim tíma voru hin harðleiknu náttúruöfl. En það er fleira, sem hrjáir mannkyn en eldgos, þurrkar og önnur þau fyrirbæri, sem menn verða að fúa við í löndum sínum. Hörmulegt stjórnarfar í ýmsum þeirra á sinn þátt í hungri og landflótta. Milljónir manna láta líf- ið framan við aftökusveitir harð- stjóranna og nægir þar að nefna Idi Amin, Bokassa og Khomini, sem tákn mestu hörmunga af manna völdum. Sú mynd, sem við gerum okkur af því sem gerist hinumegin á hnettinum, er eflaust óljós og skökk í verulegum mæli, en hún er fyrst og fremst blóðug. Þó er í lengstu lög reynt að hylja hinar hroðalegustu staðreyndir. íslendingum gefst þess kostur að leggja fram fjármuni til að hjálpa flóttafólki í Suðaustur-Asíu. Rauði Krossinn og Hjálparstofnun kirkjunnar standa fyrir allsherjar söfnun í þrettán löndum í Vest- ur-Evrópu. 360 þúsund flóttamenn eru nú í flóttamannabúðum á veg- um Sameinuðu þjóðanna í Suð- austur-Asíu og 180 þúsund manns hefur fengið landvistarleyfi í hin- um ýmsu löndum á vegum Flótta- mannastofnunar. Nágrannaþjóðir okkar ætla að veita fióttafólki landvistarleyfi í nokkrum mæli og íslensk stjórn- völd hafa gefið 30 Víetnömum landvistarleyfi hér og munu þeir verða sóttir í næsta mánuði, en Rauði Krossinn sér um fram- kvæmd þess máis. Eflaust geta íslendingar sér að skaðlausu, tekið sinn þátt í flótta- mannavandamálinu fyrir sitt leyti með því að veita hóp nauðstaddra landvistarleyfi og greiða götu hans hér, og er hér ekki mælt gegn því, enda nauðsynleg sam- viskufriðun. Hitt er þó meira um vert, að hjálpa fólki á heimaslóð- um þess. Sagt er, að fleiri deyi af völdum mengaðs neysluvatns, en nokkurri annarri ástæðu. íslenskir samvinnumenn hófu í sumar „fötusöfnun" sína. Hún var við það miðuð að tryggja börnum í þróunarlöndum ómengað neyslu- vatn. Með lítilli fjárhæð má mikið gera á því sviði, en það kostar mikla fjármuni að fiytja flóttafólk landa og heimsálfa milli. Fyrir tveim öldum átti að flytja l'slend- inga á Jótlandsheiðar. Aðstoð við fólk á sínum heimaslóðum var nauðsynlegri þá og hún er það enn í dag. , ,Skólunum eiga skóla- stjórar og kennarar að stjórna“ — segir Sigurður Óli Brynjólfsson formaður Skólanefndar Skólarnir á Akureyri taka senn til starfa og til að fræðast um þá og skólamálin í bænum leitaði blaðið til formanns skólanefndar bæjarins, Sigurðar Óla Brynjólfssonar kennara og bæjarfulitrúa og bað hann að fræða lesendur um þennan gilda þátt í uppeld- ismálunum. Hvenær hefst skólastarfið? Það hefst á svipuðum tíma og verið hefur undanfarin ár. Nem- endur í 1.-6. bekk eiga að mæta í grunnskólum bæjarins 7. septem- ber og í 7.-9. bekk eiga nemendur að mæta 18. september. Eftir því er leitað af menntamálaráðuneytinu að þeir bekkir byrji fyrr, en það er álit skólanefndarinnar og margra kennara, að hagnýta þetta íslenska fyrirkomulag, sem verið hefur, að tengjast atvinnulífinu eins vel og kostur er með sem lengstu sumar- hléi nemenda. Er það þá ekki talið eins mikil- vægt og áður, að ljúka námi sem fyrst? Það viðhorf hefur verið að breytast og nú þykir það ekki skipta eins miklu máli og áður, hvort fólk lýkur námi árinu fyrr eða síðar í framhaldsskólum. Þeirri stefnu mun aukast fylgi hér sem annars staðar á vesturlöndum, að með aukinni skipulagningu og vélvæð- ingu styttist hin unna starfsævi og ekki eins áríðandi og áður var talið, að fá unga fólkið sem fyrst til starfa að fullu. I vestrænum þjóðfélögum er nokkur vandi að skapa þeim eldri atvinnu og því ekki nauðsyn- legt að unga fólkið komi eins fljótt til fullra starfa og áður var lagt kapp á. En leggja verður áherslu á að unga fólkið kynnist atvinnulíf- inu strax á skólaárunum. Siguröur Óli Brynjólfsson. Grunnskólarnir í bænum? Þeir eru, sem kunnugt er, Barna- skóli Akureyrar, Oddeyrarskóli, Glerárskóli, Lundarskóli og Gagn- fræðaskólinn að mestu leyti þótt í honum séu einnig framhaldsdeild- ir. Bekkjardeildir á grunnskólastig- inu er 85 og við þá tölu bætast 14 bekkir forskóla, fyrir sex ára börn. Og framhaldsdeildirnar við Gagn- fræðaskólann eru 10-12. Samtals eru um 2800 nemendur í þessum skólum og kennarar eru um 170, þar af margir stundakennarar eða kennarar í hluta úr starfi. Er þröngt 1 skólunum? Megnið af skólastofunum er tví- sett, sem við köllum svo þ.e. yngri árgangamir nota sömu skólastofur eftir hádegi og eldri árgangarnir nota fyrir hádegi. Tvísetning skól- anna er eðlileg að ýmsu leyti, en kröfur um aukið húsnæði er vax- andi og stækkun bæjarins gerir auðvitað kröfu til aukins skólahús- næðis og nýrra skólabygginga. Hvar verður nýr grunnskóli byggður? I Síðuhverfi í Glerárhverfi, sem nú er aðal nýbyggingasvæðið. Sú bygging er enn ekki undirbúin, en hún hlýtur að rísa. Ýmis önnur verkefni liggja fyrir, sem fyrirsjá- anleg eru. Nú er hafin bygging nýrrar kennsluálmu við Glerár- skóla og þar verður byggð stjórn- unarálma og með henni verður sá skóli fullbyggður. Reiknað er með að þá geti allir árgangar grunnskóla þar, upp í 9. bekk, stundað nám sitt við þann skóla. Við Glerárskóla er komið gott íþróttahús en þar vantar kennslu- sundlaug og sundlaug til almennra nota. Við Lundarskóla þarf að bæta við stjórnunarálmu, sem um leið losar kennsluhúsnæði. Áætl- unin var að byggja þriðju álmuna þar, en búast má við að það dragist Guðrún Emilía Jónsdóttir 6. júní 1894 — 10. ágúst 1979 „Um héraðsbrest ei getur, þó hrökkvi sprek í tvennt" sagði eitt góðskáldanna, þegarþað minntist ekkju, sem fallið hafði í valinn. Líkt kynni einhverjum að hafa fundist þegar vinkona mín, Emma í Hátúni laut í lægra haldi fyrir hinum vanabundnu mót- herjum lífsins, elli og sjúkdómum hinn 10. ágúst s.l., 85 ára að aldri. Við hvert slíkt dauðsfalla er þó jafnan mikils að minnast, þótt æviatriðin komist ekki feitletruð í dálka þjóðarsögunnar. Móðirin, amman, sem ólst upp í lágum bæ á kaldsamri strönd um síðustu aldamót, vann fyrir sér hörðum höndum allt frá barnæsku, hóf efnalaus búskap með jafnsnauð- um eiginmanni á harðinda- og stríðsárum, varð bjargálna og kom upp dugmiklum afkomend- um, — slík kona á í sjálfu sér mikla sögu, sem afkomendunum er skylt að minnast. Emilía í Há- túni var í slíkum hópi. Hún átti þess eigi kost að reyna námshæfni sína í menntastofnunum, sjá sig um í víðri veröld eða njóta neinna lystisemda. Strafsdvöl á nokkrum góðum heimilum, samfara hlífð- arlausir vinnu við erfið störf varð eini skólinn hennar. Samt varð hún fróð um margt, stálminnug og einörð í tali, hafði fastmótaðar skoðanir jafnt á eilífðarmálum sem dægurmálum. Hún var skaprík kona, glaðbeitt og frísk- leg, hjálpfús og v.iðfelldin. Nú er hún gengin fyrir ætternisstapann. Emilía fæddist á Birnunesi á Árskógarströnd, þar voru for- eldrar hennar í húsmennsku, en fluttu 1895 að Svínakoti, grasbýli í landi Litla-Árskógar, voru við það kot kennd, og bjuggu þar í 18 ár. Móðir Emilíu var Soffía Björnsdóttir, ættuð úr Ólafsfirði, en faðir Jón Jónsson, jámsmiður, Hörgdælingur að ætterni. Tuttugu og tveggja ára gömul (24. nóv. 1916) giftist hún Bjarna Pálssyni, sonarsyni Hallgilsstaða- hjóna (Jóns Ólafssonar og Berg- þóru Pálsdóttur), en að móðerni ættuðum úr Skíðadal. Þau Bjarni voru fáein ár í húsmennsku, hjá föðursystrum hans að Arnarnesi og Stóru-Hámundarstöðum, en hófu búskap í Hátúni vorið 1920. Þar var þá nýdáinn föðurbróðir Bjama, Jósteinn Jónsson, og bjó ekkja hans, Jórunn Margrét Kristjánsdóttir og fóstursonur þeirra (undirritaður) félagsbúi með ungu hjónunum næsta ára- tuginn. 1929 fengu Bjarni og Emilía jörðina Syðri-Haga til ábúðar, en voru þar aðeins árið og hurfu aftur að Hátúni, sem þau þá keyptu og bjuggu þar alla tíð síðan. Emma missti mann sinn 10. mars 1957, hélt þó áfram búi með börnum sínum um skeið og raunar allt til enda, þó að þau tækju við forystu. Áhuginn og eljan var óslökkvandi, hvað sem kröftunum leið. Böm þeirra Bjarna og Emilíu eru fjögur: Hjalti, bílstjóri, kvæntur Jó- hönnu Gíslínu Vigfúsdóttur, heimili þeirra er í Sólvangi. Steinunn og Jón Reynir, vega- gerðarmaður, sem standa að bú- skapnum með bróður sínum Höskuldi og Ingibjörgu Ólafs- dóttur, konu hans. Emilía var til grafar borin að Stærra-Árskógi laugardaginn 18. ágúst s.l. að viðstöddu fjölmenni. Séra Kári Valsson í Hrísey jarð- setti. Kór heimamanna söng, undir stjórn Guðmundar Þor- steinssonar, sálma, sem hin látna hafði sjálf valið og báru vott um óhvikula ást hennar til heima- byggðarinnar, fúsleik hennar til að hvíla lúin bein í eyfirskri mold og glaða trú hennar á landnám í nýjum heimi. Þessi fáorðu eftirmæli mín um Emmu í Hátúni, eins og mér var tamast að nefna hana, eru rituð í þakklátri endurminningu um sambúðarárin á heimaslóðum, óbrigðula vináttu allrar fjöl- skyldu hennar til mín og minna. Sjálf mun hún nú fagna nýrri til - veru í betri heimi. í Guðs friði. Jóhannes Óli Sœmundsson 4.DAGUR helstu línur í skólamálunum. En ég hef lagt á það áherslu, að skól- unum verði fyrst og fremst stjórnað af skólastjórum og kennurum hvers skóla, en að skólanefndin leggi að- eins meginlínurnar. Hinu innra starfi skólanna verða skólastjórar og kennaraliðið að stjórna. Takist það ekki, á skólanefnd að skipta um menn en ekki segja þeim hvað þeir eigi að gera og hvernig. Þetta held ég að hafi gefist vel. Skóla- stjórar og kennarar hafa haft for- göngu um breytingar og nýjungar sem vel hafa gefist eða gengið sér til húðar. Nýir menn koma með nýjungar, sem unnt er að taka til greina, en reynsla hinna eldri kennara skapar nauðsynlegan stöðugleika í starfinu. Skólastarfið held ég hafi yfirleitt vel tekist hjá okkur, svo er fjölmörgum ágætum skólamönnum að þakka. En aðrir skólar? Skólanefndin hefur að hluta til umsjón með framhaldsnámi, tengt Gagnfræðaskólanum, en mín skoðun er sú, að það eigi að setja framhaldsnámið undir sérstaka stjóm skolanefndar, sem annist yfirstjórn framhaldsskólanna. Hvernig svo sem það tengist sam- an, húsnæðislega séð, er svo önnur saga. En með endurskoðun þessara mála, sem nú stendur yfir er eðli- legt að ný skólanefnd taki að sér mótun framhaldsskólanna og sér- skólanna. En undir þetta heyra Gagnfræðaskólinn, Iðnskólinn, Menntaskólinn, Vélskóli, Stýri- mannaskóli, Myndlistarskóli, Tón- listarskóli og undirbúningsdeild Tækniskólans. Þessum málum þarf að skipa í frambúðarkerfi og taka tillit til þess, að úti um land eru miklar breytingar á skólamálum. Samkvæmt þeim má búast við því, að Akureyri gegni ekki eins þýð- ingarmiklu kennslustarfi á fyrstu stigum framhaldsskóla og verið hefur, en þeim mun mikilvægari kennslustarfi á ýmsum sérsviðum, sem verða að tengjast framhalds- skólum hér. En öll eru mál þessi í mótun um þessar mundir, Sagði Sigurður Óli Brynjólfsson, for- maður skólanefndar Akureyrar að lokum. Rauði krossirm á Akureyri: Kaupa nýjan sjúkrabíl RAUÐI KROSSINN á Akur- eyri er þessa dagana að ganga frá kaupum á nýjum sjúkrabfl erlendis, sem koma í stað eldri sjúkrabflsins, sem fyrir er, og komið hefur til orða, að hann verði seldur Skagfirðingum til að þjóna sama hlutverki þar. Þetta staðfesti Halldór Hall- dórsson læknir, formaður Rauðakrossdeildarinnar. og sagði það í samræmi við gamla samþykkt stjórnar deildarinnar. Hann sagði, að sennilega kæmi bíllinn alveg tilbúinn, í stað þess að kaupa traustan sendiferðabíl og láta innrétta hann og jafnvel yfir- byggja hér heima. En yfirbygg- ingaverkstæði í Kópavogi hefði oft tekið slík verk að sér. Dalvíkingar gerðu það þó sjálfir sagði hann, þegar þeir fengu sjúkrabíl og tókst vel. En við stöndum tiltölulega vel að vígi peningalega, því 50 krónu kassarnir okkar gefa af sér góðan pening, sem við fáum hluta af, sagði Halldór Halldórsson. Fyrir nokkru stóð yfir í Odd- eyrarskóla á Akureyri namskeið í skyndihjálp eða hjálp í viðlögum, sem áður var nefnt svo. Veitir Björn Þórleifsson því forstöðu og er námskeiðið fyrir verðandi kennara í skyndihjálp. Ætlunin er síðan, að öll börn í átta ára bekk grunnskóla geti notið kennslunnar á næsta skólaári hér á okkar félagssvæði, sagði læknirinn. Nú er sjúkrahótelið í skólastíg, sem rekið er af Rauðakrossdeild- inni og Félagsmálastofnun Akur- eyrarbæjar, starfrækt með öðrum hætti en fyrr. Því veitir forstöðu Bjami Sigtryggsson, framkvæmda- stjóri Rauðakrossdeildarinnar á Akureyri og hefur hann eina stúlku með sér í því starfi. Áður var sjúkrahótelið ætlað þeim til skammrar dvalar, sem biðu eftir sjúkrahúsvist eða voru útskrifaðir af sjúkrahúsi og biðu heimferðar. Nú dvelja ýmsir menn þarna, fá fæði og húsnæði og vinna eitthvað sumir þeirra. Þetta eru menn, sem ekki spjara sig fullkomlega á eigin spítur. Fyrirkomulag þetta er talið hagkvæmt fyrir þá aðila og einnig fyrir bæjarfélagið. Allir dvalarges.t- ir'nir eru á fullum örorkustyrk. Reksturinn er tilraunarekstur í eitt ár og sýnist hann ganga vel, sagði Halldór Halldórsson, læknir, að lokum. Rekstur Sjúkrahótelsins er meö nokkru ööru sniði þetta árið. Glerárksóli, einn af fimm grunnskólum á Akureyri, ef Gagnfræðaskólinn er meðtalinn. Samtals stunda nám um 2800 nemendur á grunnskólastigi og kennarar eru um 170. eitthvað vegna þess að núverandi álmur hafa notast betur til kennsl- unnar en ráð var gert fyrir. Þar er áætlað að byggja íþróttasal og sundlaug til kennslu. Svipað er að segja um Oddeyrarskólann. Hvernig gengur skólanefnd að áætla skólaþörfina í hinum ýmsu skólahverfum? Það kemur hvarvetna í ljós í vaxandi bæjum, að ný byggða- hverfi eru venjulega mjög barn- mörg á vissu árabili og barnafjöld- inn meiri en síðar verður. Þess vegna þarf að miða skólana fremur við framtíðarþörf, en brúa bilið e.t.v. með færanlegum kennslu- stofum eða skólabíl til flutninga milli skólahverfa um eitthvert ára- bil. En það er fremur óvinsælt að flytja börnin milli hverfa, enda ekki æskilegt nema til bráðabirgða og þarf að forðast það eftir megni. opinbera, en aðrir eftir námskeið, sem haldin eru fyrir réttindalausa kennara. Þá bendir margt til þess, m.a. vegna mikillar aðsóknar í Kennaraskólann í vetur, að kenn- araskortur verði ekki hér á landi til langframa. Búið er að ráða í allar stöður í grunnskóla bæjarins í vet- ur, nema tónmenntakennara og kennara við sérkennsludeild Lundarskóla, sem þar er starfrækt. En stefnt er að því, að þar komi upp öflug sérkennsluaðstaða. Geta má þess, að skólanefndin fékk til ráðstöfunar fjórar íbúðir til ráðstöfunar fyrir kennara, sem hingað vildu koma en vantaði hús- næði. En að sjálfsögðu reiknum við með því, að hingað ráðist kennarar, sem vilja dvelja hjá okkur áfram og eignist þá sitt eigið húsnæði eins og aðrir íslendingar. Er kennaraskortur? Kennaraskortur hefur verið hér sem annars staðar, en það mál hef- ur verið leyst með ráðningu vel menntaðra og ágætra manna, sem ekki hafa hlotið kennararéttinda. En með nýrri reglugerð fá menn, sem kennslu hafa stundað árum saman, sín fullu réttindi til kennslu, ýmist strax með staðfestingu hins Hvert er verksvið skólanefndar nú? Skólanefnd er kosin af bæjar- stjórn og í henni er fimm menn, en síðan eiga kennarar tvo menn, sem í nefndinni hafa málfrelsi og til- lögurétt á skólanefndarfundum, auk skólastjóranna. Eru skóla- nefndarfundirnir því tólf manna fundir að jafnaði og leggja þeir KA í fyrstu deild í frjálsum íþróttum Bikarkeppni FRÍ í frjálsum íþróttum önnur deild fór fram á Akureyri um helgina. Keppendur voru frá sex aðil- um, KA, UMSE, UMSB, UMSS, HSK, og UNÞ. KA sá um mótið og var Haraldur Sigurðsson formaður félags- ins mótstjóri, sem fór mjög vel fram. Veður var gott til keppni báða dagana og voru sett mörg hérðasmet. Aðeins einn keppandi mátti keppa í 4*. Kúluvarp 110 m grindahlaup karla 1. Óskar Reykdalsson KA 15.41 1. Hjörtur Gíslason KA 15.3 2. Einar Vilhjálmsson UMSB 13.97 2. Þorsteinn Þórsson UMSB 15.7 3. Pétur Guðmundsson HSK 12.76 3. Jason ívarsson HSK 16.5 400 m hlaup kvenna 800 m hlaup 1. Sigríður Kjartansdóttir KA 57.6 1. Jón Diðriksson UMSB 1.55.6 2. Ragnheiður Jónsdóttir HSK 60.2 2. Steindór Helgason KA 2.01.1 3. Ingibjörg Guðjónsdóttir UMSS 63.2 3. Jón Aðalsteinsson UMSE 2.09.5 Kúluvarp kvenna Kringlukast kvenna 1. Sigurlína Hreiðardóttir UMSE 11.13 1. Sigurlína Hreiðarsdóttir UMSE 35.46 2. íris Grönfelt UMSB 10.62 (Héraðsmet) 3. Dýrfinna Torfadóttir KA 10.21 2. Dýrfinna Torfadóttir KA 31.91 3. Elín Gunnarsdóttir HSK 30.73 400 m hlaup karla 1. Aðalsteinn Bernharðsson KA 49.5 200 m hlaup kvenna 2. Jón Diðriksson UMSB 51.7 I. Sigriður Kjartansdóttir KA 25.7 3. Jason ívarsson HSK 53.2 2. Hólmfriður Erhngsdóttir UMSE 26.0 3. Ragnheiður Jónsdóttir HSK 26.3 Stangarstökk 1. Þorsteinn Þórsson UMSS 3.35 2. ólafur Sigurðsson UMSE 3.25 f * (Héraðsmet) 3. Jón Sævar Þórðarson KA 3.25 200 m hlaup karla Sigursveit KA i 4x100 m hlaupi. Eins og sjá má á myndinni er meðalaldur- inn ekki hár. hverri grein frá hverju félagi, og hlaut fyrsti maður sex stig, annar fimm o.s.frv. Meðal keppenda voru þrír bræður í Borgarfirðinum, Einar, Rúnar og Unnar Vil- hjálmssynir, en þeir eru synir hins fræga þrístökkvara Vil- hjálms Einarssonar. KA vann yfirburðasigur á mótinu og flyst því upp í fyrstu deild frjálsíþrótta. Þeir hlutu 92 stig í karlagreinum, 65 í kvennagreinum eða saman- lagt 157 stig. I öðru sæti voru Borgfirðingar með 74 í karlagreinum, 49 í kvenna- greinum eða samanlagt 123 stig. Síðan kom HSK með 74 í karlagreinum, 49 í kvenna- greinum eða samanlagt 101 stig. UMSE var í fjórða sæti með 45,5 stig í karlagreinum 50,5 í kvennagreinum eða 1 samanlagt 97 stig. Síðan kom UMSS með 47,5 í karlagreinum,50,5 í kvenna- greinum, eða samanlagt 84,5 stig. UNÞ rak síðan lestina með 31,5 í karlagreinum, 8 í kvennagreinum eða saman- lagt 40,5 stig. 100 m hlaup kvenna 1. Hólmfríður Erlingsdóttir UMSE 12.6 2. Sigríður Kjartansdóttir KA 12.6 3. Svafa Grönfelt UMSB 12.7 100 m hlaup karla 1. Hjörtur Gislason KA 11.2 2. Gísli Sigurðsson UMSS 11.8 3. Árni Snorrason UMSE 11.9 Hástökk karla 1. Einar Vilhjálmsson UMSB 1.93 (Héraðsmet) 2. Jón Oddsson KA 1.85 (Ak.met) 3. Þorsteinn Þórsson UMSS 1.80 1500 m hlaup kvenna 1. Birgitta Guðjónsdóttir HSK 5.11.9 2. Sigurbjörg Karlsdóttir UMSE 5.14.4 3. Hjördís Árnadóttir UMSB 5.18.3 1500 hlaup karla 1. Jón Diðriksson UMSB 3.59.5 2. Steindór Tryggvason KA 4.05.7 3. Einar Hermannsson HSK 4.35.4 Spjótkast 1. Einar Vilhjálmsson UMSB 64.36 2. Þorsteinn Þórsson UMSS 55.23 3. Baldvin Stefánsson KA 51.79 Langstökk kvenna 1. Sigríður Kjartansdóttir KA 5.18 2. Svafa Grönfelt UMSB 5.11 3. Hólmfríður Erlingsdóttir UMSE 5.03 4x100 m hlaup karla 1. sveit KA, Hjörtur, Baldvin Aðalsteinn, Jón Sævar 44.4 2. SveitUMSS 45.8 3. Sveit HSK 46.8 Minningar- leikurinn í kvöld þriðjudag kl. 19.00 verður hinn árlegi minningar- leikur um Jakob heitinn Jakobsson, og renna tekjur af leiknum í minningarsjóð hans. Eins og venjulega leikur KA leikinn og andstæðingar að þessu sinni eru gömlu iBA meistararnir. Áhorfendur eru hvattir til að fjölmenna á leik- inn og sjá góða knattspyrnu, og ekki sýst til að styrkja sjóðinn, en hann hefur styrkt fjölda íþróttamanna undanfarin ár. 1. Hjörtur Gíslason KA 22.8 2. Gísli Sigurðsson UMSS 23.4 3. Gísli Pálsson UMSE 24.0 800 m hlaup kvenna 1. Sigríður Kjartansdóttir KA 2.27.8 2. Birgitta Gujónsdóttir HSK 2.31.8 3. Hjördís Árnadóttir UMSB 2.35.8 Kringlukast karla 1. Vésteinn Hafsteinsson KA 46.67 (Ak.met) 2. Einar Vilhjálmsson UMSB 41.45 3. Ásgrímur Kristófersson HSK 38.83 Hástökk kvenna 1. María Guðnadóttir KA 1.60 2. Ragnheiður Karlsdóttir HSk 1.50 3. íris Grönfelt UMSB 1.45 5000 m hlaup karla 1. Steindór Tryggvason KA 15.46.6 2. Björn Halldórsson UNÞ 17.00.2 3. Benedikt Björgvinsson UMSE 17.29.9 4x100 m hlaup kvenna 1. SveitKA 51.7 2. SveitUMSB 53.1 3. Sveit HSK 53.2 Þrístökk karla 1. Rúnar Vilhjálmsson UMSB 13.46 2. Guðmundur Nikulásson HSK 13.41 3. Aðalsteinn Bernharðsson KA 13.10 1000 m boðhiaup karla 1. Sveit KA Jón Odds, Jón Sævar Steindór Helga, Hjörtur Gísla 2.04.0 2. Sveit UMSS 2.07.1 (Héraðsmet) 3. SveitUMSB 2.07.9 Jón Oddsson er velþekktur knatt- spymumaður í KR en æfir frjálsar íþróttir með KA. Hann setti Akur- eyrarmet í hástökki 1,85 og sló 20 ára gamalt Akureyrarmet Leifs Tómassonar í langstökki. Langstökk karla 1. Jón Oddsson KA 6.95 (Ak.met) 2. Þorsteinn Jensson UMSS 6.27 3. Rúnar Vilhjálmsson UMSB 6.21 Spjótkast kvenna 1. María Guðnadóttir KA 38.47 2. íris Grönfelt UMSB 37.71 3. Hildur Harðardóttir HSK 31.81 3000 m hlaup karla 1. Jón Diðriksson UMSB 8.45.5 2. Jónas Clausen KA 9.36.3 3. Björn Halldórsson UNÞ 9.43.7 100 m grindahlaup kvenna 1. Sigríður Kjartansdóttir KA 15.11 2. Hólmfriður Erlingsdóttir UMSE 15.9 3. Hjördís Ámadóttir UMSB 17.8 Norðurlands- mót í knatt- spyrnu á Húsavík Húsavík 27. ágúst. Norður- landsmót í yngri flokkum hald- ið á Húsavík 25. og 26. ágúst. Svarfdælingar og KS Siglufirði mættu ekki til leiks. En Þór og KA á Akureyri sendu lið, Völs- ungar Húsavík og Tindastóll, Sauðárkróki. LJrslit i 5. flokki: Völsungar - KA 1:2 Tindastóll - Þór 0:5 Völsungur - Tindastóll 3:1 Þór - KA 3:0 Úrslit í 4. flokki: Völsungur - KA 0:2 KA - Tindastóll 2:0 Þór - Tindastóll 7:0 Völsungur - Þór 1:3 Norðurlandsmeistarar í fimmta flokki varð Þór og í fjórða flokki KA. Fyrri hluti þessa móts fór fram á Dalvík fyrr í sumar. Völsungur, 2. flokkur fór til Selfoss á sunnudaginn og keppti við 2. flokk þar í ís- landsmótinu. Völsungur sigruðu 5:2. Mörk Völsungs skorðuðu Hörður Benonísson tvö, en Olgeir, Guðmundur og Björn eitt hver. E.O. DAGUR.5

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.