Dagur - 02.10.1979, Page 6
Lögmannshlíðarkirkja. Messað
verður n.k. sunnudag kl. 2
e.h. Bílferð verður úr Gler-
árhverfi kl. 1.30. Fólk úr
Glerárhverfi og úr Hlíðinni
fjölmennið í litlu kirkjuna
okkar. B.S.
Akureyrarkirkja. Messað kl. 2
n.k. sunnudag. Sálmar: 221,
9, 288, 308, 460. Eftir fund
hefur Kvenfélag Akureyrar-
kirkju kaffiveitingar á boð-
stólum í kapellunni. Allir
velkomnir. P.S.
Kvenfélag Akureyrarkirkju sér
um kaffiveitingar fyrir
kirkjugesti eftir messu kl. 3
sunnudaginn 7. október í
kirkjukapellunni.
I.O.O.F. - 216110581/2 Atkv.
□ HULD 59791037 IV/V
Fjhst.
Junior Chamber, Akureyri. Fé-
lagsfundur verður 8. október
kl. 17.15 á Hótel K.E.A.
Stjórnin.
K.F.U.M. og K. Sunnudaginn 7.
október kl. 11 sunnudaga-
skóli. Öll börn velkomin. Kl.
16 fundur í Kristniboðsfé-
lagi Kvenna. Allar konur
velkomnar. Kl. 20,30 sam-
koma, Björgvin Jórgenson
talar.
Fíladelfía, Lundargötu 12.
Sunnudagaskóli hvern
sunnudag kl. 10.30 f.h. Öll
börn velkomin. Almenn
samkoma hvern sunnudag
kl. 20.30. Almennur biblíu-
lestur á fimmtudögum kl.
20.30. Verið velkomin. Fíla-
delfía.
Hjálpræðirherinn. N.k. sunnu-
dag kl. 13,30 sunnudaga-
skóli og kl. 17 fjölskyldu-
samkoma með þátttöku
yngri liðsmanna vígslu.
(Ath. breyttan tíma).
Krakkar - krakkar, n.k.
mánudag 8. okt. byrjum við
barnavikuna. Barnasam-
komur hvern dag kl. 17,30.
Verið velkomin.
Finnbogi S. Jónasson
F. 16. mai ■1923-D. 6. ágúst 1979
Minning
Ég þakka alla ástúð mér til handa
afi minn góöi, þér ég gleymi eigi.
Virzt mér viö hlið í stríði lífs að standa,
styrk mig unz finnumst við á efsta degi.
Ég veit, til Guðs þótt sál þín horfiö hafi
hugur þinn vakir með mér úti og inni.
Hvíl þú í friði elskulegi afi,
umvafinn þökk frá sonardóttur þinni.
Í.S.J.
*
„Þar sem góðir menn fara eru Guðs-
vegir".
Því missir lífið hér á jörð ljúfan tón úr
hörpu sinni, þegar slikir hníga að foldu,
ekki hvað síst hafi þeir staðið í miðju
mikilvægu starfi og gróðurinn fengið
dafnað, þarsem þeiráttu leið.
Það skyggði að á skammri stundu við
andlát Finnboga S. Jónassonar, sem bar
að þann 6. ágúst síðast liðinn öllum að
óvörum.
Hann var fjölhæfur sæmdarmaður,
sem gekk veg sinn með þeim hætti að
vakti hlýju og virðingu.
Finnbogi var Húnvetningur, fæddur
aðGeirastöðum í Þingi.sonurhjónanna
Jónasar Stefánssonar bónda þar og Að-
albjargar Signýjar Valdimarsdóttur.
Hún lést, þegar Finnbogi og bróðir hans
Jakob (nú læknir í Reykjavík) voru á
bernskuskeiði. Fluttist Jónas þá með
sonu sína til Eyjafjarðar, þar sem hann
dvaldist æ síðan, lengst af á Akureyri.
Nokkru eftir að þangað kom kvæntist
Jónas Jónasínu Þorsteinsdóttur frá
Engimýri í öxnadal, mætri konu, sem
reyndist stjúpsonum sínum vel í hví-
vetna og átti sinn ríka þátt í, að þeir voru
settir til mennta.
Finnbogi varð stúdent frá M.A. 1944
og cand. fil frá Háskóla íslands 1945.
Árið 1952 fór hann til Skotlands til að
kynna sér og nema tækni vélabókhalds.
Starfsmaður Kaupfélags Eyfirðinga
gjörðist Finnbogi þann 6. apríl 1945 og
vann þar óslitið utan nefndrar náms-
farar, til 30. maí 1978, að hann gjörðist
forstöðumaður Kristneshælis.
Aðalbókari K.E.A. varð Finnbogi
árið 1952 og jafnframt þeim störfum var
hann skipaður skrifstofustjóri félagsins
á miðju ári 1971. Naut hann óskoraðs
trausts og ríkra vinsælda i þessum
ábyrgðarmiklu og umsvifasömu störf-
um, svo og hvervetna, þar sem hann
lagði hönd að starfi. En auk þess, sem
hér hefur verið talið, sem mörgum þætti
að fyllt hefði í ærið dagsverk, annaðist
Finnbogi bókhald og fjárvörslu fyrir
ýms aðila, Var hann einhver færasti
bókhaldsmaður og starfsamur með af-
brigðum.
Utan skyldustarfa vann hann mikið
að félagsmálum, var m.a. um árabil fé-
lagi í Lúðrasveit Akureyrar og Tónlist-
arfélaginu og lengi átti hann sæti í
sóknamefnd Akureyrarkirkju. Var um
árabil formaður hennar og jafnframt
gjaldkeri, eða til dauðadags. Hvar sem
Finnbogi Jónasson lagði að huga sinn
og hendur fór að birta og hlýja og eitt-
6.DAGUR
hvað gott gréri, enda auðnaðist honum
að njóta frábærra vinsælda. Á vegferð
sinni fékk hann litið marga glaða geisla
og á honum sannaðist að „gleðin er eins
og Ijósið — ef þú kveikir það fyrir aðra,
skin það á sjálfan þig.“
Hér hefur verið getið giftu Finnboga
hið ytra, þ.e. i störfum og opinberum
skiptum við samtíð sína. En eigi var
hann siður hamingjumaður i einkalífi
sínu. Um það bil, að faðir hans giftist
öðru sinni kynntist hann Helgu Svan-
laugsdóttur, sem síðar varð lífsföru-
nautur hans. Helga var næstyngst af
fimmtán börnum þeirra sæmdar- og
dugnaðarhjóna, Rósu Þorsteinsdóttur
og Svanlaugs Jónassonar, sem lengi
bjuggu að Varmavatnshólum í Öxna-
dal. En Rósa var systir Jónasínu stjúp-
móður Finnboga. Þau Helga og Finn-
bogi gengu í hjónaband þann 4.
nóvember 1948. Tók Helga þá við
heimilinu að Gránufélagsgötu 19, sem
var mannmargt. Þar voru m.a. Jónas
faðir Finnboga og Jónasína stjúpmóðir
hans. Þau ásamt ýmsum fleiri vanda- og
venslamönnum, áttu samastað á heimili
þeirra Helgu og Finnboga, uns yfir
og nutu hlýju á æfikvöldi. Helga Svan-
laugsdóttir er dugmikil atgjörviskona,
svo sem hún á ætt til. Ung að árum lagði
hún stund á hjúkrunarfræði og hefur
löngum jafnhliða húsmóðurstörfum
sínum unnið við hjúkrun, meira og
minna.
Heimili þeirra Helgu og Finnboga
var vel búið og bar glöggt vitni um
smekkvísi og menningarbrag. Ung tók-
ust þau i hendur i einlægri trúfesti. Það
handtak var alltaf jafn hlýtt og traust.
Samband þeirra var ofið af hinum dýr-
ustu þáttum.
Þeim Helgu og Finnboga varð þriggja
bama auðið, þau eru:
Jónas flugmaður, kvæntur Eyrúnu
Eyþórsdóttur hjúkrunarfræðingi, Aðal-
björg Jónasína og Svanlaug Rósa, sem
báðar stunda hjúkrunarnám. öll bera
systkinin uppeldi og erfðum hið besta
vitni.
í fjölskyldunni rikti samheldni og
hamingja. Nú er skarð fyrir skildi og
rúmið auða vekur djúpan trega. En
huggun er það harmi gegn — þeim, sem
næstir standa, að festi minninganna
fylla fagrar perlur. Sú auðlegð fellur
aldrei að gildi. Sem fyrr segir var Finn-
bogi Jónasson skipaður forstöðumaður
Kristneshælis og fór til starfs og búsetu
þangað þann l. júní 1978, eftir að hafa
starfað hjá Kaupfélagi Eyfirðinga yfir
30 ár. Það, að hann breytti um starf
stafaði einvörðungu af því, að hann
vildi draga aðeins saman seglin, hverfa
um stund í hlé frá glaumi og gný bæj-
arlifsins og eignast friðarstundir í faðmi
fagurrarsveitar. En þaðferaðlíkum, að
þessum trúa, glaða og félagslynda
manni, hafi orðið það nokkur viðbrigði
að hverfa frá því starfi, sem hann hafði
stundað svo lengi, að það var orðið
honum samgróið og hverfa þá jafnframt
frá samstarfsfólki og góðum félögum,
sem áttu verulegt fúm í hjarta hans. En
innan tíðar fann hann sig í sínu nýja
starfi og hópi samstarfsfólks í Kristnesi,
og ávann sér sem fyrr öruggt traust og
ríkar vinsældir.
Kunni hann og þau hjónin bæði, vel
að meta hið fagra umhverfi staðarins og
horfðu glöð til góðra daga.
En — „sem næturís -— sem veðra-
brigði á vori svo valt er lífið hér, I hverju
spori.“ Skyndilega var hér sköpum
skipt. I heimi tímans varir ljúf minning
um mætan dreng. En á hærra sviði, þar
sem „víðsýnið skín“, verður vorhugan-
um vegurinn greiður — til þess „meira
að starfa guðs um geim."
Skugga ber yfir
frá skapadómi
og harmurinn býr
í hörpuómi.
Drjúpa nú rósir
i daggarskrúða.
Vefja að barmi
sinn vininn prúða.
Þú vökumaður
á vorið trúðir,
við geislabros þess
að gróðri hlúðir.
Stóðst þú á verði
með stilltu geði
og gjörðum þinum
æ góðvild réði.
Þú harmaðir sárt
þá hjörtum blæddi.
Mundin þin hlýja
margt sárið græddi.
Sjónum þú beindir
til sólaráttar
og hönd þig leiddi
’ins hæsta máttar.
Siglt er nú fleyi
til sólarianda
og vaka og starf
i vorsins anda
þér verður falin
og veginn hillir
f morgunbirtu,
sem merkið gyllir.
Jórunn Ólafsdóltir
frá Sörlastöðum.
JÓN FRIÐLAUGSSON,
Grenivöllum 22, Akureyri,
sem andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn
29. september, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju laugar-
daginn 6. október kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Valgerður Magnúsdóttir,
Magnús Jónsson,
Sigríður Loftsdóttir.
Öllum þeim, sem á einn eða annað hátt, sýndu mér
ógleymanlegan vináttuvott og hlýhug á 90 ára af-
mœli minu 22. sept. s.l., þakka ég innilega og bið
blessunar um ókomin œviár.
ÞORÐMÓÐUR SVEINSSON.
AKUREYRARBÆR
Paff sníðanámskeið
verður haldið á vegum Námsflokka Akureyrar Inn-
ritun og upplýsingar í síma 22505 fyrir hád. fram á
föstudag.
Námsflokkar Akureyrar
Fulltrúakjör
Auglýst er eftir framboðslistum vegna kjörs fulltrúa
félagsins á 12. þing Landssambands ísl. verslun-
armanna og 16. þing Alþýðusambands Noður-
lands. Framboðslisti til þings Landssambands
verslunarmanna skal skipaður 9 mönnum og jafn-
mörgum til vara. Þá skulu fylgja hverjum lista með-
mæli 100 fullgildra félagsmanna.
Framboðslistum skal skilað á skrifstofu félagsins
aö Brekkugötu 4, eigi síðar en kl. 12 á hádegi mið-
vikudaginn 10. október n.k.
Allsherjar atkvæðagreiösla verður auglýst síöar
komi fram fleiri en einn listi vegna fulltrúakjörs til
hvors þings.
Stjórn félags verslunar og skrifstofufólks
á Akureyri og nágrenni.
Fulltrúakjör
Kjör fulltrúa Sjómannafélags Eyjafjarðar á 16. þing
Alþýðusambands Norðurlands fer fram að við-
hafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. Framboðslistum
með nöfnum 3 aðalfulltrúa og 3 til vara skal skila til
skrifstofu félagsins, Skipagötu 12, Akureyri, eigi
síðar er kl. 17 föstudaginn 26. október þ.m.
Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 26
fullgildra félaga.
Akureyri 1. október 1979
Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar
Jörð til sölu
Erum með í einkasölu jörðina Króksstaði í önguls-
staðahreppi Eyjafirði. Á jörðinni er nýtt íbúðarhús
með tveimur íbúöum, hlaða, hesthús og fjárhús.
Jörðin sem er ca. 7 km. frá Akureyri er liðlega 20 ha
innan girðingar og vel fallin til kartöfluræktar. Sala
á vélum og áhöfn kemur einnig til greina.
Þriggja herbergja úrvals raðhúsaíbúð við Einilund.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
FuUlfta >r||ár>|j4vr_
WaBtmigMÍr vUaUra ha|f_
Tramst H*nuita.~
optékl.s.j
-|DD riiNi 2x878
I IwISTdGHASAlAH HJ.
Strandgötu 1, Akureyri símar 21820 og 24647.