Dagur - 04.03.1980, Page 1

Dagur - 04.03.1980, Page 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI DAGUR LXIII. árgangur Akureyri, þriðjudagur 4. mars 1980 I5Í1 tölublað Útflufningsiðnaðurinn: Þarf 15 til 20% gengisfellingu ? GÍFURLEGIR erfiðleikar eru nú í útflutningsiðnaðinum og viðbúið að smærri fyrirtæki stöðvist þá og þegar, ef ekki verður bætt úr. Fjögur ráðu- neyti eru nú með þetta mál til umfjöllunar og það verður tek- ið sérstaklega fyrir á ríkisstjóm arfundi á fimmtudag, að sögn Hjartar Eiríkssonar, framkv.stj. Iðnaðardeildar Sambandsins. Hjörtur sagði í viðtali við Dag, að málið væri í rauninni mjög einfalt og til að lýsa vandanum væri nóg að benda á, að á síðasta ári hafi rekstrarkostnaður útflutn- ingsiðnaðarins hækkað um 55-60 prósent, á meðan verð á útflutn- ingsvörunum hækkaði ekki nema um 24-25 prósent. Ástandið væri nú þannig í ullariðnaðinum t.d., að fyrstu tvo mánuði ársins hafi verið 5% tap þrátt fyrir það, að nýlega væri búið að gera verð- samninga fyrir allt þetta ár. Búast mætti við 10-12% tapi í mars. Markaðirnir væru góðir og verðið væri út af fyrir sig gott, enda hefði það hækkað um 13 prósent að jafnaði frá því í fyrra. Hjörtur sagði, að þetta dygði hins vegar ekki til, þar sem verðbólgan væri svo gífurleg og stjórnvöld hefðu ekki viðurkennt þá gengisfell- ingu, sem þegar væri orðin í raun, sem væri 15-20%. Hjörtur sagði, að fjöldi fyrir- tækja í ullariðnaði, og reyndar öðrum greinum útflutningsiðnað- arins, væru nú á barmi gjaldþrots. Hann sagði að allt það starf, sem færi í að bjarga hlutunum frá degi til dags, ylli í raun miklum samdrætti í iðnaðinum, þar sent ekki væri hægt að gera neinar raunhæfar framtíðaráætlanir. — Hjörtur sagði að lokum, að lík- lega hefði ástandið aldrei verið eins diikkt og einmitt núna og nú virtist, sem verðbólgan væri end- anlega að gera út af við atvinnu- reksturinn í landinu. Veiðiferðin frumsýnd f Borgarbíói KVIKMYNDIN „Veiðiferðin" verður frumsýnd i Borgarbíói 8. mars, en á sama tíma verður hún jafnframt sýnd í Austur- bæjarbíói í Reykjavík. Myndin var tekin á Þingvöllum sl. sutn- ar og er fyrir alla fjölskylduna. Andrés Indriðason skrifaði hand rit og leikstýrði myndinni, en Gísli Gestsson annaðist kvik- myndatöku. 1 kvöld sýnir Borgarbíó dans- og söngvamyndina „Galdrakarl- inn frá Oz“. Meðal leikenda er söngkonan víðfræga, Diana Ross, sem öðlaðist heimsfrægð á sínum tíma með söngflokknum „The Supremes". Iðunn formaður Myndhópsins LAUGARDAGINN 9. febrúar sl. var aðalfundur Myndhópsins á Akureyri haldinn. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf. Kosið var í stjórn og nefndir. í stjórn voru kosin: Formaður Iðunn Ágústsdóttir, ritari Hörð- ur Jörundsson, gjaldkeri Úlla Árdal, meðstjórnendur Guð- mundur Ármann og Sigurður Randversson. Á fundinum var ákveðið, að félagið stuðlaði að sýningu á verkum Sigurðar Arnar Brynj- ólfssonar, hér á Akureyri. Til umræðu kom, að Myndhópur- inn efndi til vorsýninga, auk haustsýninganna, en þær hefur hópurinn haldið tvö sl. haust. Fundir með þingmönnum UM næstu helgi verða þing- menn Framsóknarflokksins með almenna fundi í Tjarnar- borg, Ólafsfirði, föstudagskvöld kl. 21, í Víkurröst, Dalvík, laug- ardag kl. 14.30 og á Hótel Varð- borg, Akureyri, sunnudaginn kl. 15.00. Gætu framleitt 50 einbýlishús Ný tæki við mjölþurrkun Engin mengun og 50% orkusparnaður EINS OG skýrt var frá í Degi fyrir rúmum mánuði, fóru Pét- ur Antonsson, forstjóri Krossa- nesverksmiðjunnar, og Gunnar Ólafsson, forstjóri Fiskiðjunnar í Keflavík, til Bandaríkjanna, ásamt Pétri Valdimarssyni, tæknifræðingi, til þess að kynna sér nýja gerð af tækjum til þurrkunar á mjöli, en sá síðast- nefndi er umboðsmaður fyrir þessi tæki í Norður-Evrópu. Pétur Antonsson sagði í viðtali við DAG, að nú væri beðið eftir teikningum og verðtilboði, sem Pétur skoðar vélar á sýningu vestur í Bandaríkjunum. kæmi líklega um miðjan mars. Búast má við að ákvörðun um mengunartæki verði tekin á- þessu ári. Að sögn Péturs Valdimarssonar, er hér um að ræða nýja tækni við þurrkun á mjöli og öðrum efn- um, auk þess, sem engin mengun á að vera samfara þessari nýju að- ferð og mjölið verður mun betra, þar sem meira verður af eggja- hvítuefnum í því. í stað venju- legs þurrkara, er þrýstilofti dælt af miklu afli í skeifulaga rör, og myndast þá hátíðnihljóðsveiflur, en þær aðskilja vatn frá þurrefn- inu. Vegna þess hve þessi aðferð er skjótvirk og hráefnið hitnar ekki nema í 65 gráður, brennur það aldrei. Eggjahvítuefni og önnur efni, sem þola illa hita s.s. vítamín, verða því nær óskert og 5% meiri en við gufuþurrkun, að því er talið er. Miðað við að verk smiðjurnar séu í gangi allan sól- arhringinn, er orkusparnaður allt að 50%, og munar um minna Mengun samfara þessari þurrk- un er engin, því það eina sem fer út um reykháf er hrein vatns- gufa, sem einnig er hægt að losna við með kælingu. Miðað við af- köst Krossanesverksmiðjunnar þyrfti þrjár einingar, sem tækju minna pláss en núverandi þurrk- tæki og væru að líkindum talsvert ódýrari en mengunartæki. Ef þessi tæki yrðu sett upp í verksmiðjum hér á landi, væri unnt að smíða stærstu hlutina í þau hér heima. Eins og áður sagði, eru meng- unarmál Krossanesverksmiðjunn- ar nú í athugun og til greina get- ur komið, að fjárfesta í þessum tækjum, en allt er þó óvíst um það ennþá. Pétur Valdimarsson mun kynna þessa nýju tækni for- ráðamönnum Rannsóknastofnun- ar fiskiðnaðarins og Fistifélagsins INNAN SKAMMS verður stofn að samvinnufyrirtæki með hlutafélagssniði á Húsavík. Til- gangur félagsins er að fram- leiði hús úr steyptum eining- um. í athugun er kaup á véla- samstæðu, sem gæti framleitt allt að 50 einbýlishúsum á ári hverju, en samstæðan verður ekki eingöngu í slíkri fram- leiðslu heldur líka til að fram- leiða stöðluð útihús fyrir bænd- ur. Auk þess mun fyrirtækið framleiða ýmiskonar hluti úr steinsteypu s.s. hellur og fleira. Það eru þeir Helgi Vigfússon, Örn Jóhannsson og Sveinbjöm Magnússon sem hafa haft allan veg og vanda að undirbúningi málsins. Orn Jóhannsson, múrarameist- ari, sagði í viðtali við DAG að þeir félagar teldu mikinn markað vera fyrir einingahús úr stein- steypu og ýmislegt annað úr steini. „Með þeirri tækni sem nú er að koma á markaðinn í sam- bandi við steinsteypu eru mögu- leikarnir óendanlegir. Þar sem trjáviður er að ganga til þurrðar hafa farið fram rannsóknir á notk unarmöguleikum steinsteypu og gefa þær góðar vonir," sagði Örn. „Við ætlum að taka til starfa strax í vor og framleiða hús og reisa í sumar," sagði Örn. „Hve margir geta fengið atvinnu er ekki ljóst, en til að byrja með yrðu það 5-10 manns. Annars er það hugmyndin að eigendur fyrir tækisins séu starfsmenn þess um leið. Þetta verður samvinnufélag i hlutafélagsformi, en Jrað hefur sýnt sig á Húsavík að þannig eru þau fyrirtæki sem hafa skilað bestum árangri." „Markaður er fyrir hendi. Það er alveg klárt. Menn verða alltaf að byggja yfir sig,“ sagði Örn að lokum. 12% útsvar NÚ ER talið nær fullvíst, að ríkisstjórnin muni leggja fram frumvarp um það, að sveitarfélögunum verði heimilað að leggja á útsvar allt að 12%, í stað 11% há- marks sem verið hefur. Sveitarfélög hafa kvartað mjög yfir rýrnandi tekju- stofnum vegna verðbólg- unnar og er 12. prósentu- stigið hugsað sem eins kon- ar verðbótaþáttur. Talið er fullvíst að Akureyrarbær muni nýta sér þessa heim- ild, enda munu bæjarfull- trúar allra flokka hafa lýst því yfir við fyrstu umræðu fjárhagsáætlunar að mikil þörf væri fyrir hækkun tekjustofna.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.