Dagur - 04.03.1980, Síða 6
Brúðhjón. Hinn 2. febrúar voru
gefin saman í hjónaband í
Akureyrarkirkju Halldóra
Elín Ágústsdóttir verkakona
og Jón Ragnar Steingríms-
son verkamaður. Heimili
þeirra verður að Hrísalundi
18g, Akureyri. Hinn 9. febr.
voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju Sól-
veig Jóhannsdóttir nemi og
Þröstur Vatnsdal Axelsson
iðnnemi. Heimili þeirra
verður að Ránargötu 9, Ak-
ureyri.
70 ára er 5. mars n.k. Hörður
Kristjánsson, Norðurgötu
32, Akureyri. Sama dag
eiga silfurbrúðkaup hjón-
in Hörður Kristjánsson og
Sigríður Guðmundsdóttir.
90 ára er í dag 4. mars Krist-
ín Sigurðardóttir Glerár-
holti 1, Akureyri. Hún
verður að heiman.
Æskulýðssamkomur KFUM
og K. Dagana 7.—11. mars
verða haldnar 5 æskulýðs-
samkomur KFUM og K í
Kristniboðshúsinu Zíon og
hefjast þær öll kvöldin kl.
20.30. Aðalræðumaður á
samkomunum verður Ól-
afur Jóhannsson, guðfræði
nemi úr Reykjavík. Ungt
fólk tekur þátt í samkom-
unum í tali og tónum. All-
ir eru hjartanlega vel-
komnir á samkomur þess-
ar. KFUM og K.
n RÚN 5980357 — I Frl.
Atkv.
Lionsklúbburinn Hængur.
Fundur fimmtudaginn 6.
mars kl. 7.15 á H-100.
I.O.O.F. 2 — 161378 V2 =
Atkv.
Lionsklúbburinn Huginn. —
Fundur fimmtudaginn 6.
mars kl. 12.15 á Hótel
K.E.A.
I.O.G.T. st. ísafold Fjallkon-
an nr. 1. Fundur fimmtu-
daginn 6. þ.m. kl. 8.30 e.h.
í félagsheimili templara,
Varðborg. Eftir fund fé-
lagsvist - kaffi. Félagar tak
ið með ykkur gesti. Æ.t.
Aðalfundur íþróttafélagsins
Eikar verður haldinn að
Sólborg sunnudaginn 9.
mars kl. 14. — Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Hjálpræðisherinn. Nk. sunnu
dag sunnudagaskóli kl.
13.30 og almenn samkoma
kl. 17.00. Mánudaginn 10.
mars kl. 16.00 heimilissam-
band. Þriðjudag 11. mars
kl. 20.30 Hjálparflokkur.
Allir velkomnir.
Konur takið eftir. Alþjóðleg-
ur bænadagur kvenna er
föstudaginn 7. mars. Af
því tilefni er almenn bæna
samkoma í Fíladelfíu
Lundargötu 12 kl. 20.30.
Allar konur velkomnar.
Laugalandsprestakall. Mess-
að á Munkaþverá 9. mars
kl. 13.30 og Grund 16. mars
kl. 13.30. Sóknarprestur.
Akureyrarkirkja. Messað nk.
sunnudag 9. mars kl. 2 e.h.
P.S.
Framvegis verða kaþólskar
messur í Eyrarlandsvegi 16
(Kaþólsku kirkjunni) alla
virka daga kl. 6 e.h. og
sunnudaga kl. 11 f.h. Allir
velkomnir. Tími til skrifta
fyrir kaþólikka mun verða
á undan hverri messu. All-
ir eru velkomnir til að
biðja með okkur Rósa-
kransbæn kl. 8 e.h. alla
laugardaga.
Sunnudagaskóli Akureyrar-
kirkju verður n.k. sunnu-
dag kl. 11 f.h. Öll börn
hjartanlega velkomin. —
Laufáskirkja. Guðsþjónusta
n.k. sunnudag kl. 2 e.h.
Stórutjarnarskóli. Fjölskyldu
guðsþjónusta í Stórutjarn-
arskóla fimmtudagskvöldið
6. mars kl. 21. Oddur Al-
bertsson æskulýðsfulltrúi
talar. Fólk af skólasvæð-
inu hvatt til að fjölmenna.
Sóknarprestar.
Fíladelfía Lundargötu 12.
Almenn samkoma sunnu-
daginn 9. mars kl. 20.30.
Gleðiboðskapur Krists
fluttur í ræðu og söng.
Allir hjartanlega velkomn-
ir. Hvern fimmtudag er
almennur biblíulestur kl.
20.30. Verið velkomin. —
Sunnudagaskóli hvern
sunnudag kl. 10.30 f.h. Öll
börn velkomin. Fíladelfía.
Auglýsing um kosningu fullfrúa í
Iðnráð Akureyrar
Öll starfandi iðnfélög, sveina og meistara, skulu kjósa einn aðalfulltrúa og
annan til vara hvert fyrir sína iðngrein til setu í Iðnráði næstu fjögur ár.
Tilkynna skal kjör fulltrúa til undirritaðs með bréfi eigi síðan en föstudag-
inn 14. mars n.k.
Kosning fulltrúa þeirra iðngreina sem ekki hafa starfandi félög fer fram á
KJÖRFUNDI
sem haldinn verður á Hótel Varðborg laugardaginn 15. mars n.k. kl. 14.00.
Kosningarétt eiga allir, sem lögleg iðnréttindi hafa í einhverri iðngrein,
þó þannig, að þar sem sveina- og (eða) meistarafélög eru starfandi er kosn-
ingaréttur bundinn við félagsréttindi í viðkomandi félagi.
IÐNRÁÐ AKUREYRAR. Haukur Árnason formaður, Óseyri 4, Akureyri.
Firma- og Einmenningskeppni
Bridgefélags Akureyrar lokið
NÚ ER lokið Firma- og Ein-
menningskeppni Brigdefélags
Akureyrar. [Einmenningsmeist-
ari B. A. varð Jóhann Helga-
son með 316 stig, en annar varð
Frímann Frímannsson 13 ára.
Röð efstu manna varð þessi:
stig
1. Jóhann Helgason 316
2. Frímann Frím.s. 13 ára 307
3. Rafn Kjartansson 301
4. Örn Einarsson 293
5. Guðmundur Víðir 292
6. Ólafur Ágústsson 292
7. Grétar Melsteð 281
8. Hafþór Jónasson 266
Jafnhhða Einmenningskeppn-
inni var spiluð Firmakeppni.
6.DAGUR
Þar sigraði Vélsmiðjan Atli,
annars er röð efstu fyrirtækja
þessi og eru nöfn spilara í svig-
um undir. s^jg
1. Vélsmiðjan Atli 120
(Jóhann Helgason)
2. Verkfræðist. Sig Thor. 118
(Frímann Frím.s. 13 ára)
3. Efnaverksmiðjan Sjöfn 116
(Öm Einarsson)
4. Skeljungur h.f. 115
(Ólafur Ágústsson)
5. Bókabúð Jónasar 115
(Hörður Steinbergsson)
6. Bjami Gíslason 109
(Rafn Kjartansson)
7. ' Bílaleiga Akureyrar 108
(Soffía Guðmundsdóttir)
8. Akurvík h.f. 108
(Hafþór Jónasson)
9. Varmi h.f 108
(Zarioh Hammad)
10. Úrsmíðav.st. J. Bjamas. 106
(Rafn Kjartansson)
11. Bláfell 106
(Grétar Melsteð)
12. Vélsmiðjan Oddi 105
(Guðmundur Víðir)
13. Iðunn, skógerð 105
(Stefán Ragnarsson)
14. Bautinn 102
(Alfreð Pálsson)
15. Brunabótafélag íslands 102
(Adam Ingólfsson)
Bridgefélag Akureyrar þakk-
ar öllum er studdu starfsemi
félagsins með þátttöku í Firma-
keppninni.
.t
Tengdafaðir minn og afi okkar
KJARTAN SIGURTRYGGVASON,
Víðimýri 6,
er lést fimmtudaginn 28. febrúar verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju laugardaginn 8. mars kl. 13.30.
Elín Hannesdóttir og börn.
Iskappleikar
hestamanna
íþróttadeild Hestamannafélags-
ins Léttis hefur ákveðið að
haldá ískappleika á Leirutjörn
laugardaginn 22. mars n.k. Voru
ískappreiðar haldnar í fyrra á
sama stað og þótti góð tilbreyt-
ing. Keppt verður í gæðinga-
skeiði, 150 m nýliðaskeiði og 200
m skeiði. Einnig verður keppt í
tölti, bæði fyrir unglinga og
fullorðna. Aðgangur á þessa ís-
kappleika er ókeypis og allir
velkomnir, einnig á æfingar,
sem haldnar verða á Leirutjöm
fimmtudaginn 6. mars kl. 20.30,
laugardaginn 8. mars og sunnu-
daginn 9. mars kl. 14.00.
Keppnin er öllum opin. Knap
ar láti skrá sig til keppni fyrir
15. mars hjá Ragnari Ingólfs-
syni, Grundargerði 2C og greiði
skráningargjald, kr. 2.000 fyrir
fyrstu skráningu og kr. 1.000
fyrir aðrar.
(Fréttatilkynning).
Nýbygging Tónlistarskólans
tekin I notkun
Nýbygging Tónlistarskólans í
Hafnarstræti 81 hefur nú ver-
ið tekin í notkun, og í tilefni af
því efnir skólinn til kynningar
og skemmtunar næstkomandi
sunnudag, 9. mars, sem verður
um leið fjáröflunardagur.
Dagskráin hefst kl. 14 með
lúðrablæstri og ávarpi við Tón-
listarskólann. Glæsilegur köku-
basar hefst hálftíma síðar, sem
verður ásamt kaffisölu opinn til
kl. 19. Kl. 15.30-19.00 verða tón-
leikar á sal skólans með fjölbreytt
um efnisskrám fluttum af kenn-
urum og nemendum, en ný dag-
skrá hefst á klukkustundar fresti.
Sérstök stofa verður búin út
fyrir börn og vanar barnfóstrur
hafa ofan af fyrir krökkum í leik
og söng. Sérstakt sjónvarpsher-
bergi er einnig á staðnum. í skól-
anum verður upplýsingamiðstöð
þar sem fræðast má um starf skól-
ans. Efnt verður til happdrættis
með eigulegum vinningum, sem
ýmis fyrirtæki í bænum hafa
gefið.
Við þessi tímamót flyst öll starf
semi skólans á sama stað, en að
undanförnu hefur verið kennt á
fjórum stöðum í bænum til mikils
óhagræðis fyrir nemendur og
kennara. í nýrri álmu á þriðju
hæð eru 6 góðar kennslustofur og
á fjórðu hæð verður 110 fermetra
salur og að auki eitt herbergi,
sem ekki verður fullgert að sinni.
Þar sem skólinn er skv. lögum
sjálfseignarstofnun er viðbygging-
in ekki kostuð af ríki og bæ svo
sem títt er um annað skólahús-
næði. Akureyrarbær hefur þó
heitið skólanum árlegum bygg-
ingarstyrk, svo og að greiða fyrir
lánum til hans. Enda þótt þessi
stuðningur sé mikilsverður er
nauðsynlegt að allt áhugafólk
leggi eitthvert lið við þetta mikla
átak. Þess er vænst að einstakling-
ar og fjölskyldur komi og njóti
þessarar dagstundar og veiti skól-
anum þannig umtalsverðan stuðn-
ing.
Galdrakarlinn í Oz
sýnd í kvöld klukkan 9.
Helstu leikendur Diana Ross og Michael Russell.
Borgarbíó