Dagur - 04.03.1980, Síða 8

Dagur - 04.03.1980, Síða 8
DAGTJR Akureyri, þriðjudagur 4. mars 1980 Bílasalan, Stórholti 1: Ekki leyfi á þessum stað Þrjár af fimm bílasölum i bænum hafa starfsleyfi EINS OG fram kom í síðasta blaði hefur byggingafulltrúa og skipulagsstjóra verið falið að stöðva starfsemi Bílasölunn- ar í Stórholti 1 og um leið á notkun svæðisins austan Hörg- árbrautar og sunnan Undirhlíðar. Bílasalan hefur aðsetur í fyrrgreindu húsnæði og notar lóð bæjarins fyrir bíla í Floti eigulegra farartækja á græna svæðinu og leikvellinum. Mynd: áþ. sölu. Eigandi bílasölunnar kom að máli við DAG og upplýsti að hann myndi vera eini bílasalinn á Akureyri sem hefði fulla heim- ild til að stunda bílasölu samkv. lögum frá sl. vori. Máli sxnu til sönnunnar sýndi hann bréf frá bæjarfógeta jtar scm eigandanum er veitt leyfi til að reka sölu með notaða lausafjármuni að Stór- holti 1. Blaðið fékk jtær upplýsingar hjá byggingafulltrúa að bæjar- fógeti gæti ekki gefið leyfi til breyttrar notkunar bygginga. „Hann (bílasalinn) hefur ekkert leyfi til að reka bílasölu á þessum stað samkvæmt byggingareglu- gerð," sagði Jón Geir Agústsson. „Það er ekki heimilt að breyta um notkun húsnæðis nema með leyfi og samþykki bygginganefnda viðkomandi sveitarfélags.“ Samkvæmt ^upplýsingum frá bæjarfógetaembættinu hafa þrjár Fjórðungssamband Norðlendinga: Stei nu I larverksm ið ja rísi á Sauðárkróki Harmar vinnubrögð Iðnaðarráðuneytisins Fjórðungssamband Norðlend- inga hefur nú lýst yfir fullum stuðningi við þær hugmyndir, að steinullarverksmiðja rísi á Sauðárkróki. Það krefst þess að frumkvæði Skagfirðinga verði metið að fullu og harmar þau vinnubrögð Iðnaðarráðuneytis- ins, að dreifa mikilvægum gögn- um og upplýsingum á við- kvæmu stigi málsins, til hvers þess aðila, sem sýni því áhuga. Ályktun j>essa efnis var sam- jtykkt á sameiginlégum fundi fjórðungsráðs og iðnþróunar- nefndar, sem haldinn var á Sauð- árkróki 27. febrúar sl. Ályktun Fjórðungssambandsins hljóðar svo: „Fjórðungssamband Norðlend- inga styður frumkvæði og fram- tak Skagfirðinga við þróun ný- iðnaðar, sem nú hefur leitt til þess að álitlegt jrykir að stofnsetja steinullarverksmiðju á Sauðár- króki. Fjórðungssambandið h e f u r fylgst með og stutt þetta mál frá upphafi cg jafnframt hvatt önnur byggðalög til iðnjrróunar. Fjórð- ungssambandið krefst jiess, að frumkvæði Skagfirðinga verði metið að fullu í þessu máli og telur ekki fýsilegt fyrir aðila að leggja í mikla vinnu og kostnað við athugun og undirbúning ný- iðnaðar, ef þeir eiga á hættu að verkefnið verði tekið úr þeirra höndum, þegar sýnt hefur verið fram á hagkvæmni þess. Fjórðungssambandið harmar þau vinnubrögð iðnaðarráðuneyt- isins, að dreifa mikilvægum gögn- um og upplýsingum á viðkvæmu stigi málsins, til hvers þess aðila, sem sýnir því áhuga. 42 myndir seldust fyrsta daginn Úlfur Ragnarsson opnaði málverkasýningu í Gallerý Háhól á laugardaginn. Um 500 manns voru við opnunina og má því segja, að byrlegar sé nú farið að blása fyrir Gallerýið, eftir mikla deyfð í aðsókn og sölu undanfarið. Opnunardaginn seld- ust 42 myndir, en á sýningunni eru 70 verk. Á meðfylgjandi mynd er Úlfur við nýjustu mynd sína, „Suðvestan rok“, sem máluð var undir stýri á Lödu-bifreið 25. febrúar s.l., en þann dag gekk mikið óveður yfir landið, sem síðar kom í ljós að olli mannskaða. Sýningin er opin kl. 20—22 virka daga og 15— 22 næstkomandi Iaugardag og sunnudag, og eru það síðustu sýningardagamir. Mynd: h.s. Fjórðungssambandið leggur þunga áherslu á, að iðnfyrirtækj- um sem reka má á rekstrarlega og þjóðhagslega hagkvæman hátt á landsbyggðinni, verði valinn þar staður. Fjórðungssambandið hvetur sveitarfélög, fyrirtæki og einstakl- inga á Norðurlandi til að styðja þetta mál með hlutafé, verði þess óskað. Jafnframt beinir Fjórðungs sambandið því til jringmanna Norðurlandskjördæmanna, að þeir styðji þetta mál. Fjórðungssambandið metur stuðning sunnlenskra sveitarfé- laga við rannsóknir íslenskra jarð- efna og hagnýtingu Hekluvikurs til iðnaðarframleiðslu." Allir eru þeir eins Grenivík 29. febrúar LEIKFÉLAGIÐ er búið að sýna leikritið „Allir eru þeir eins“, 8 sinnum við góðar undirtektir og aðsókn. Búið er að sýna 3 sinnum hér hcima og leikar- arnir fóru til Blönduóss, Hofs- óss og Stóru-Tjarna. Búið er að ákveða að sýna ann- að kvöld í Ljósvetningabúð. Síð- ar verður farið á fleiri staði, en ekki hefur verið ákveðið hvert verður haldið. Að lokum verður ein sýning hér á Grenivík. í jiessu risjótta tíðarfari er sjó- sókn ákaflega erfið og bátarnir komast ekki á sjó nema öðru hvoru. Þeir kornu að í gærkveldi með 3ja nátta fisk og litlu bát- arnir komast varla út. Um helgina verður Kvenfélagið Hlín með námskeið í púðasaumi. Kvenfélagasamband S.-Þing. er að fara af stað með spurningakeppni og ágóðinn rennur til elliheimil- isins á Húsavík. Fyrsta keppnin verður í Skjólbrekku annað kvöld. Þá leiða saman hesta sina konur úr Hlín og kvenfélagi í Mývatnssveit. P. A. bílasölur á Akureyri starfsleyfi — þ.e. bílasalan í Stórholti 1, Bíla- sala Norðurlands og Bílasalinn. Tvær aðrar bílasölur, sem eru í bxnurn, hafa enn ekki fengið starfsleyfi. Það má benda á að í einhverjum tilvikum munu aðrar bílasölur en í Stórholti 1 nota land bæjarins undir bíla i sölu cg væri jrví e.t.v. ástæða til fyrir bæjaryfirvöld að láta bílasölurnar njóta jafnræðis í Jressu sambandi. Mýsnar átu 59 súkkulaðimola EFTIRFARANDI atburður gerðist að vísu fyrir jól, en hefur hvergi komið á prent svo vitað sé. Aðfararnótt 18. desember s.l. var mikill músa- gangur á skrifstofu forstöðu- konu barnadagheimilisins á Húsavík og átu mýsnar stóran hluta af jólasælgæti bamanna, nánar tiltekið 59 súkkulaði- bita. Forstöðukonan var eins og gefur að skiljan lítt hrifin al missi sælgætisins og enn minna hrifin af þessum ferfættu gest- um er ruddust þarna inn í óþökk allra. Brá hún við skjótt og hringdi í heilbrigðisfulltrúa sem hafði samband við Arnvið meindýra- eyði, sem brá við skjótt og eitr- aði fyrir músunum seinnipart 18. desember og aftur á gamlárs- dag. Árangurinn er ekki kom- inn í ljós. Heilbrigðisfulltrúinn hefur, á fundi í heilbrigðisnefnd, bent á að barnadagheimilið væri léleg bygging og nánast óhæf sem geymslustaður barna og svo er það gisið að það er ekki hægt að gera músahelt nema með ærnum tilkostnaði. Sem betur fer er nýtt barna- dgheimili og leikskóli í bygg- ingu á Húsavík og samkvæmt upplýsingum sem DAGUR afl- aði sér þaðan verða 2/3 hlutar hússins tilbúnir til notkunar í sumar. Með tilkomu nýja húss- ins verður gamla húsið yfirgefið. Eflaust munu mýsnar fá það til búsetu og vonandi lætur Arn- viður þær í íriði eftir það. • Skipulagsmál í brennidepli Um næstu helgi verður haldinn borgarfundur um skipulagsmél é Akureyri. Þar verður eflaust gerð grein fyrir í hverju hið nýja deiliskipulag miðbæj arins er fólgið og eftir þann fund endurskoða bæjarfulltrúarnir e. t. v. fyrri ákvarðanir og láta Torfunefsbryggjuna að mestu i friði. Það getur nefnilega ekki verið nauð- synlegt að leggja „hrað- braut“ í gegn um miðbæ Akureyrar og sníða svo til alveg af bænum þau mannvirki sem hafa sett hvað mestan svip á hann til þessa. • Dýr viðgerð Ef „friðarsinnar“ fengju ráðið yrði að gera miklar endurbætur á bryggjun- um því kantar eru illa farnir — t.d. hrundi fylla úr kantinum austan korn- vöruskemmunnar fyrir nokkru. Það er Ijóst að viðgerðin verður kostnað- arsöm, en það er líka dýrt að fleygja þessum brygqj um, því víst er að það lið- ur ár og öld áður en ný hafnarmannvirki verða reist. • Af hverju er deilt? Þær raddir hafa heyrst að deilt sé um Torfunefs- bryggjuna af því að ein- hverjir vilji láta þögn rikja um aðrar breytingar sem gera á samkvæmt skipu- laginu. Ef menn skoða skipulagstillögurnar, loka augunum og hugsa fram í framtíðina er Akureyri óþekkjanlegur bær — e.t.v. fallegri bær, en það er að sjálfsögðu smekks- atriði.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.