Dagur - 27.03.1980, Blaðsíða 1
Besta kjara-
bótin að út-
rýma verð-
bólgunni
Framhaldsaðalfundur Verka-
lýðsfélagsins Einingar haldinn
22. mars harmar þá þróun rnála,
sem orðið hefur í verðiags- og
kjaramálum og stefnir nú öryggi
fjölda launafólks í mikla hættu.
Á aðalfundi 1979 fagnaði Eining
myndun vinstri stjómar, sem hafði
sett sér félagsleg markmið sem
leiðarljós, og batt miklar vonir við
þá stjóm.
Þrátt fyrir að sú stjórn kom í
framkvæmd mörgum málum til
hagsbóta fyrir launafólk, þá hafa
samt vonir stórra hluta launþega
brugðist gjörsamlega, vegna að-
gerðarleysis hennar við verðbólg-
una.
Verðbólgan sem er versti vágest-
ur þess fólks sem minnst má sín,
hefur geisað með meiri þunga en
nokkru sinni fyrr og ekkert bendir
til þess að nokkuð sé gert til að
stemma stigu við áframhaldandi
framgangi hennar.
Ríkisstjómin hefur nú boðað
4—5% kjaraskerðingu í fjárlaga-
frumvarpi sínu til viðbótar því sem
þegar hefur átt sér stað frá gerð
síðustu samninga 1977.
Samningar verkalýðsfélaga inn-
an A.S.Í. hafa verið lausir frá síð-
ustu áramótum, en launafólk hefur
beðið með aðgerðir í trausti þess,
að þær þjóðfélagsaðgerðir yrðu
gerðar sem gerðu kjarabaráttuna
auðveldari.
Verkalýðsfélagið Eining getur
tekið undir þær raddir, að ekki sé
nú tími, né aðstæður til almennra
grunnkaupshækkana til handa öll-
um, en bendir jafnframt réttilega á
að hlutur stórra hópa launafólks
hefur dregist svo langt aftur út
öðmm sambærilegum starfshóp-
um, og hlutur þess svo illa kominn,
að ekki verður nú lengur við unað,
án þess að til komi fullkomin leið-
rétting þessu fólki til handa.
Því skorar fundurinn á ríkis-
stjóm og vinnuveitendur að mæta
nú til samningviðræðna með já-
kvæðara hugarfari en til þessa, svo
útiloka megi það misrétti sem á sér
stað í launamálum þessa fólks.
Verði hins vegar ekki orðið við
þessum óskum fljótlega verður
(Framhald á bls. 3).
Gunnar og Agnar við komuna til Akureyrar fyrir 42 árum. Skyldum við eiga eftir að eignast svona vél og hafa til sýnis á Akureyri?
Vísir að flugminjasafni á Akureyri:
Vilja kaupa fertugan Vaco
— Af sömu gerð og fyrsta flugvél Flugfélags Akureyrar
„Mér er sagt að þetta sé eina
vélin í veröldinni. Hún er nú fá-
anleg af hreinni tilviljun. Lífið
er eintóm tilviljun. Eftir að
Flugsögufélagið komst á iagg-
irnar, og Ijóst var að þar var
mikið af hörkuduglegum mönn-
um, þá fór ég að kanna, gegnum
vini mina úti, hvort væri nokkurs
staðar von um að svona gripur
fyndist. Það var talið afar
ósennilegt, en allt í einu, í
febrúar, komst ég á sporið,“
sagði Agnar Kofoed Hansen
flugmálastjóri í samtali við
DAG, um hugsanleg kaup á
Vaco flugvél í Bandaríkjunum,
Slysavarnafélagið:
Góðir vinningar
Slysavarnafélag fslands fer nú
af stað með hið árlega
enn
happdrætti sitt, sem efnt er til í
þeim tilgangi að bæta hag fé-
lagsins, efia og treysta starfsemi
deildanna um land allt og end-
umýja og bæta búnað björgun-
arsveitanna, sem gegna iífs-
nauðsynlegum störfum á landi
og sjó með varðstöðu allan sól-
arhringinn árið um kring.
Vinningar verða að þessu sinni
tuttugu talsins, gagnlegir og
skemmtilegir, samtals að verðmæti
kr. 10.124.000.
Fyrsti vinningur er bíll — Mazda
929 Station Wagon 1980 — annar
tvævetra hestur, og síðan 18 hestar
af öðru tagi nefnilega reiðhjól og
eru þau með 10 gírum og full-
komnum öryggisbúnaði.
Happdrættismiðarnir flytja að
þessu sinni hnitmiðaða fræðslu um
blástursaðferðina í máli og mynd-
um. Ættu því allir, sem kaupa
miðana, að kynna sér þessa björg-
unaraðferð, því að vart getur betri
lýsingu á henni í stuttu máli en þar
er að hafa.
Þess má geta að endingu, að
gefnir eru út 40.000 miðar og kostar
hver kr. 1500. Dregið verður 17.
júní.
en vél þessi er af sömu tegund og
Flugfélag Akureyrar notaði fyrir
rúmum 40 árum.
Samkvæmt upplýsingum
DAGS mun flugvélin kosta um
10 milljónir króna. Þegar er
hafin fjársöfnun og mun vera
búið að safna a.m.k. helmingi
kaupverðsins. Bæði er safnað
hér fyrir norðan og fyrir sunn-
an.
„Víst yrði ég ánægður ef
tækist að kaupa vélina. Það má
geyma hana í Reykjavík, en ég
var að vona að það yrði hægt að
geyma hana á Akureyri e.t.v. í
gamla flugskýlinu. Það yrði þá
norðlenskt „flugmúseum." Ég
hugsaði fyrst og fremst um Ak-
ureyri, því þar stóð vagga þessa
flugtímabils, sem nú hefur
haldið áfram.“, sagði Agnar.
Annan maí n.k. eru liðin 42
ár síðan Agnar Kofoed Hansen
og Gunnar Jónsson (forstjóri
Stálhúsgagna) flugu Vaco vél-
inni frá Reykjavtk og norður til
Akureyrar. Flugferðin tók
rúmar tvær klukkustundir.
Flugvélin tók 4 farþega og í
henni var hvorki sendistöð né
siglingatæki.
I samtali við DAG í apríl
1978 sagði Agnar Kofoed Han-
sen m.a.: „Ef Akureyringar,
undir forystu Vilhjálms Þórs,
hefðu ekki stofnað Flugfélag
Akureyrar eru litlar líkur á að
við hefðum getað hafið flug fyrr
en eftir heimsstyrjöldina. Þá
gátum við hins vegar hafist
handa strax og byggt á reynslu
íslenskra flugmanna.“
(Framhald á bls. 3).
Miðbæjarskipulagið:
Athugasemdir
Eins og kunnugt er af fréttum
DAGS er útrunninn sá tími sem
bæjarbúar höfðu til að gera at-
hugasemdir við tillögu að deili-
skipulagi miðbæjar Akureyrar.
Alls bárust athugasemdir um 25
atriði. Auk þess hafa borist at-
hugasemdir við tillögu skipu-
lagsnefndar að nýju deiliskipu-
lagi frá skipulagsstjórn ríkisins,
dagsettar í júlí á síðasta ári.
Hér á eftir er skrá yfir þá
aðila sem hafa gert athuga-
semdir
1. Frá eigendum Skipagötu 13.
2. Frá íbúum við Oddeyrargötu.
3. Frá K.E.A. (í mörgum liðum).
4. Frá verkalýðsfélögunum
v/hornsins Strandgata/Geisla-
gata.
5. Frá eiganda Strandgötu 11.
6. Frá eiganda Bjarmastíg 10 og
Hafnarstræti 107B.
7. Undirskriftarlisti með áskorun
um að „varðveita hafnarað-
stöðn fyrir skip og smábáta við
Torfunef“.
8. Frá Guðmundi Sigurðssyni —
hugmyndaskissa af bátahöfn.
9. Frá Oddfellowstúku nr. 2,
Sjöfn (Brekkugata 14).
10. Frá íbúum við Laxagötu (16
manns).
11. Frá Kaupfélagi verkamanna.
12. Frá Ólafi H. Oddssyni (Höfn
— Hraðbraut — Heilsugæslu-
stöð).
13. Frá Kristínu Sigfúsdóttur (4
liðir).
14. Frá verslunum í Hafnarstræti
96.
15. Frá Rafni Hjaltalín (varðar
höfnina o.fl.).
16. Frá Önnu Kristjánsdóttur
(varðar höfn).
17. Frá húseigendum við Hóla-
braut.
18. Undirskriftalisti 1862 nöfn,
vilja varðveislu Torfunefs-
bryggja.
19. Frá eigendum húsa austan
Ráðhústorgs og Skipagötu.
20. Frá Brynjólfi Sveinssyni h/f.
21. Frá Jóhanni Ingimarssyni,
Ráðhústorgi 7.
22. Frá Náttúruverndarnefnd, vill
tjörn í stað uppfyllingar neðan
Samkomuhúss (bókun 14. 02.
80).
23. Frá L.Í.Ú. varðandi höfn.
24. Frá eigendum Kaupvangs-
strætis 4.
25. Frá Ásgeiri Höskuldssyni
(varðar hraðbraut).