Dagur - 15.04.1980, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXIII. árgangur Akureyri, þriðjudagur 15. apríl 1980
27. tölublað
„Fáránlegt að gjalda fyrir
mokafla suðvestanlands“
segir Tryggvi Finnsson, á Húsavík, um stöðvun þorskveiðanna
Mikil togstreita er nú komin
upp vegna þeirrar ákvörðunar
sjávarútvegsráðherra, að
stöðva þorskveiðar í net á há-
degi 30. apríl á svæðinu frá
Eystra-Homi, vestur og norð-
ur um að Bjargtöngum. Hins
vegar ákvað ráðuneytið að
fresta ákvörðun um stöðvun
þorsknetaveiða á Vestfjörð-
um, fyrir Norðurlandi og
Austurlandi, þar sem bátaafli
hafi verið minni á þessu svæði
en í fyrra. Á að bíða með
ákvörðun þar til séð verður
hvernig aflabrögð þróast í
aprflmánuði.
Stórorðar yfirlýsingar hafa
verið gefnar vegna þessa máls.
Kristján Ragnarsson hjá LlÚ
hefur sagt, að þetta sé ekki fisk-
veiðitakmörkun í sjálfu sér, held-
ur sé verið að efna til landshluta-
stríðs. Óskar Vigfússon, formaður
Sjómannasambands Islands, hef-
ur sagt að með þessu sé gengið
þvert á vilja hagsmunasamtak-
anna. Hins vegar er vitað, að
fjölmargir sjómenn og útvegs-
menn á landsbyggðinni telja, að
um stórlega mismunun verði að
ræða, nema þorsknetaveiði við
Vestur-, Norður- og Austurland
verði leyfð eitthvað fram í maí.
— Vertíðin hjá bátunum hefur
verið léleg núna og var léleg í
fyrra og því finnst okkur ansi hart
ef skerða á veiðarnar á grundvelli
aflaaukningar, sagði Pétur Már
Jónsson, bæjarstjóri á Ólafsfirði
— Fyrstu þrjá mánuði ársins
varð afli þeirra átta báta, sem
stundað hafa netaveiðar, tæplega
770 lestir. Þetta er svipaður afli á
hvern bát og í fyrra, en þá voru
fleiri bátar og aflinn fyrstu þrjá
mánuðina varð 1146 lestir, sagði
Pétur Már.
— Nokkrir bátar fóru suður
fyrir land, vegna þess hve vertíðin
virtist ætla að verða léleg. Mér
finnst hins vegar alls engin
ástæða til þess, að þeir sem voru
fyrir sunnan fái að halda áfram
veiðum eftir 30. apríl, frekar en
aðrir þeir sem gert hafa góða
vertíð, sagði Pétur Már. Hann
sagði að um 100 manns á Ólafs-
firði hefðu afkomu sína af báta-
veiðunum.
Tryggvi Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjusamlags
Húsavíkur, sagði að Húsavíkur-
bátamir væru nú með heldur
slakari afla en í fyrra, en þá hafi
vertíðin verið lélegri en menn
hafi áður þekkt til.
— Mér finnst algjörlega
glórulaust að setja allt landið
undir sama hatt í þessum efnum
og fáránlegt að við skulurn ef til
vill þurfa að gjalda fyrir mokafla
Suðvestanlands. Vertíðin hér fyr-
ir norðan er oft á tíðum best í
maímánuði. Hins vegar er oftast
farið að draga úr vertíðaraflanum
fyrir sunnan í maí. Þetta getur því
komið þannig út, að Sunnlend-
ingar fái sína mokvertíð, en við
enga,-nema okkur verði leyft að
veiða eitthvað fram í maí, sagði
Tryggvi Finnsson.
Flugfélag Norðurlands:
Listhúsið:
Málverka-
uppboð
og list-
sýningar
Óli G. Jóhannsson, Reyni-
lundi 5 og Jón G. Sólnes,
Bjarkarstíg 4 Akureyri hafa
opnað fyrirtæki í Verzlunar-
miðstöðinni (Kaupangi) á
Akureyri undir nafninu
LISTHÚSIÐ s/f, Akureyri.
Fyrirtækið mun hafa á boð-
stólum allskonar listaverk,
listmuni, safnmuni, bækur og
fleira. Ennfremur mun fyrir-
tækið sjá um listaverkasýn-
ingar og leigja húsnæðið
undir slíkar sýningar.
Ráðgert er að halda á vegum
fyrirtækisins opinber uppboð á
listaverkum, listmunum, bók-
um og ýmsum safnmunum.
Uppboðshaldari verður Jón G.
Sólnes.
Fyrsta málverkauppboðið
verður fyrrihluta maímánaðar.
Þeir sem kynnu að óska eftir að
fela þeim félögum sölu á mál-
verkum á uppboði þessu eru
vinsamlegast beðnir að hafa
samband við Óla G. Jóhanns-
son í síma 23567 fyrir 3. maí.
SÖNG-
SVEIT
HLtDAR-
BÆJAR
HELDUR 3 TÓNLEIKA
Á skíðum
með
Andrési Önd
og félögum
Sjá íþróttasíðu
34 ferðir á viku
Sumaráætlanir Flugfélags
Norðurlands, Flugfélags Aust-
urlands og innanlandsflugs
Arnarflugs hefjast á sama tíma
og sumaráætlun Flugleiða, þ.e.
1. maí n.k. Ferðatíðni og
áfangastaðir félaganna eru sem
hér segir:
Flugfélag Norðurlands fer 34
ferðir á viku frá Akureyri til 10
áfangastaða, þ.e. til Egilstaða,
arflugs frá Reykjavíkurflugvelli eru
22 á viku til níu áfangastaða. Þeir
eru Bíldudalur, Blönduós, Flateyri,
Gjögur, Hólmavík, Rif, Siglufjörð-
ur, Stykkishólmur og Suðureyri.
Ferðatíðni félaganna þriggja á
hvern stað er frá tveimur flugum á
viku í allt að fimm og sex.
Skv. ofansögðu og að meðtöldu
innanlandsflugi Flugleiða er reglu-
bundið áætlunarflug til 31 staðar á
landinu.
Grímseyjar, Húsavíkur, ísafjarðar,
Kópaskers, Mývatns, Raufarhafn-
ar, Siglufjarðar, Vopnafjarðar og
Þórshafnar.
Frá Egilstöðum flýgur Flugfélag
Austurlands 18 flug á viku til níu
áfangastaða. Þeir eru Akureyri,
Bakkafjörður, Borgarfjörður,
Breiðdalsvík, Fagurhólsmýri,
Hornafjörður, Norðfjörður,
Reykjavík og Vopnafjörður.
Brottfarir í innanlandsflugi Arn-
Næstkomandi fimmtudag hcldur
Söngsveit Hlíðarbæjar konscrt í
Hlíðarbæ og hefst hann klukkan
21. Þetta er fyrsti konsertinn af
þremur sem söngsveitin heldur
næstu daga.
Annar konsertinn verður í fé-
lagsheimilinu Höfðaborg, Hofsósi,
laugardaginn 19. apríl og síðasti
konsertinn verður á sumardaginn
fyrsta í Hlíðarbæ. Konsertarnir
hefjast allir á sama tíma.
Óliver Kentish, kennari við
Tónlistarskólann á Akureyri, er
stjórnandi söngsveitarinnar, en
hann tók við stjórninni af Sigurði
Dements s.l. haust. Undirleikari er
Kári Gestsson, sem tók við af
Tómasi Jackmann. Sigurður og
Tómas höfðu verið með söngsveit-
inni frá upphafi. Þetta er fimmta
starfsár söngsveitarinnar.
Góð af koma
Á aðalfundi Sparisjóðs Ólafsfjarð-
ar, sem haldinn var fyrir skömmu,
kom fram að á síðasta ári var mikil
aukning á inneignum viðskiptavina
sjóðsins og var afkoma sjóðsins
mjög góð. Tekjuafgangur var nær
34 milljónir króna.
Landbúnaðarráð-
herra kemur á
bændaklúbbs-
fund
Bændaklúbbsfundur verður í
Hlíðarbæ mánudaginn 21. apríl
og hefst fundurinn klukkan 21.
Frummælandi á fundinum verð-
ur Pálmi Jónsson, landbúnaðar-
ráðherra.
Tónlist og Gjörn-
ingur í Stóru-
tjarnarskóla
Næstkomandi föstudag kl. 21
verður tónlist og Gjörningur í
Stórutjarnarskóla. Tónlist á efn-
isskrá er eftir: Saint-Sáens, Elgar,
Schubert og Beethoven ásamt ísl.
þjóðlögum. Flytjendur eru:
Jonathan Bager þverflauta,
blokkflauta, píanó. Hrefna
Hjaltadóttir lágfiðla, blokkflauta.
Oliver Kentish celló.
Eftir hlé verður fluttur Gjörn-
ingur eftir Örn nefnist hann:
9999“
)>••••
Frá Gallery Háhól
Næsta sýning i Gallery Hóhól
verður sýning Gísla Sigurðssonar
ritstjóra Lesbókar Morgunblaðs-
ins 26. apríl.
Frá Listhúsinu
Laugardaginn 19. apríl verður
opnuð sýning á verkum Steinþórs
Marinós Gunnarssonar og dóttur
hans Sigrúnar Steinþórsdóttur
Eggen. Sýningin verður í List-
húsinu s.f. sem er í Kaupangi
(Verslunarmiðstöðinni).
Steinþór Marinó er bróðir
þeirra Benedikts og Veturliða
Gunnarss. sem eru þekktir list-
málarar og nú í seinni tíð hefur
Steinþór haslað sér völl meðal
efnilegustu málara. Hann hélt
sýningu í Reykjavík nýverið í 1
sýningarsal F.Í.M. (Félag ísl- 1
enskra myndlistarm.) ásamt dótt- |
ur sinni og fengu þau góða dóma
Sýningin opnar sem fyrr segir
19. apríl kl. 16.00 og stendur til
27. apríl. Opin virka daga kl. |
20.00 til 22.00 og um helgar frá |
16.00 til 22.00.