Dagur - 09.10.1980, Side 8
BM5ILM
Mikil útgáfustarfsemi
Náttúrugripasafnsins
Á vegum Náttúrugripasafnsins á
Akureyri eru gefin út 4 ritraðir.
Þar er fyrst að nefna fjölrit,
Náttúrugripasafnsins, sem
koma út óreglulega, en nú eru
komin út 10 hefti. Einnig er
gefið út grasafræðitímaritið
Acta botanica islandica. Tímarit
þetta kemur nú út á 2ja ára
fresti á ensku. Það er vaxið upp
úr tímaritinu Flóra sem kom út á
árunum 1963 til 1968. Safnið
gefur út tímaritið Týli í sam-
vinnu við P.O.B. Það kemur út
tvisvar á ári og fjallar um nátt-
úrufræði og náttúruvernd. Að
lokum er það ársskýrsla
Náttúrugripasafnsins, en í henni
er gerð grein fyrir starfsemi
safnsins. Þess má geta að sum
þessara rita eru send til stofnana
hér heima og erlendis í staðinn
fyrir þau rit sem viðkomandi
stofnanir gefa út. Á þennan hátt
hefur safnið byggt upp viða-
mikið bókasafn sem í eru rúm-
lega 150 tímarit og ritraðir. Rit-
in fjalla aðalega um grasafræði
og mun safnið vera eitt það
besta á sínu sviði hér á landi.
Áhugi fyrir Esperanto
Esperanto hefur verið kennt á
Akureyri s.l. 5 ár og nú í vetur
verður byrjendakennsla við
Menntaskólann á Akureyri og
hafa 15 nemendur skráð sig til
þessa náms, en það er valgrein.
Þá mun Jón Hafsteinn Jónsson,
formaður esperanto-deildarinn-
ar á Akureyri, annast fram-
haldskennslu í málinu. Um 25
félagar eru nú í deildinni á
Akureyri.
Heimsþing Alþjóðlega
esperantosambandsins, hió 65. í
röðinni, var haldið í Stokkhólmi
Ólafsfjaröarflug F.N.
fyrir Flugráð á morgun
F.N. hefur sótt um leyfi til að fljúga á leiðinni
Akureyri - Sauðárkrókur - Blönduós - Reykjavík
Þi> bílstjórinn á forsíóumyndinni hafi veriö óviðbúinn vetrarkomunni verður ekki það
sama sagt um börnin. Hver veit raunar nokkurt dæmi þess aö börn hafi ekki fagnað
snjónum og verið tilbúin að móttaka hann? Mynd: H.Sv.
1.-9. september. Þingið sátu rúm-
Iega 1800 manns frá 51 þjóðlandi,
þar á meðal 8 frá íslandi. Aðalum-
ræðuefni þingsins var misrétti,
bæði þjóðernislegt, kynþáttalegt og
tungumálalegt, en auk umræðna
var fjölbreytt dagskrá hvern dag s.s.
fyrirlestrar, fundir sérgreinahópa,
kappræðufundir æskufólks, lista-
og skemmtikvöld, kvikmyndasýn-
ingar og messur. Við öll þessi tæki-
færi hljómaði aðeins eitt mál, esp-
eránto. Einn fyrirlesarinn var
Baldur Ragnarsson og hann var
kjörinn í stjórn Alþjóðlega
esperantosambandsins til næstu
þriggja ára.
— Við erum ákafiega bjartsýnir
á að fá Ólafsfjarðarflugið, en
teldum það hins vegar stór-
alvarlegt mál ef við fengjum það
ekki, sagði Torfi Gunnlaugsson
hjá Flugfélagi Norðurlands
þegar Dagur innti hann eftir því
hvemig umsókninni um flug-
rekstrarleyfi á leiðinni Akur-
eyri-Ólafsfjörður-Reykjavík
virtist ætla að reiða af.
— Við bíðum bara eftir því að
málið verði tekið fyrir í flugráði.
Gróskumikið
starf eldri
borgara á
Sauðárkróki
Félag Eldri Borgara á Sauðár-
króki var stofnað á síðast liðnu
ári og var starfsemi þess þá í
mótun. Haldnar voru 12
skemmtisamkomur og föndur-
dagar í Safnaðarheimili
Sauðárkrókskirkju.
1 sumar var farin skemmtiferð á
vegum félagsins út á Skaga og eru
fyrirhugaðar nokkrar styttri ferðir
um nágrannabyggðir í vetur.
Starf vetrarins hófst á nú laugar-
daginn 27. september með
skemmtisamkomu en þær verða
framvegis hálfsmánaðarlega í
Safnaðarheimilinu, sú næsta laug-
ardaginn 11. október. Föndurdagar
verða annan hvorn miðvikudag,
næst miðvikudaginn 15. október.
Föndurstarfið er í mótun og
miklar vonir bundnar við það.
Álíka félag var stofnað í Hofsósi í
sumar og verður náið samstarf milli
þeirra.
Nýlega var kosin framkvæmda-
nefnd elliheimilisbyggingar í
Skagafirði og binda eldri borgarar
Skagafjarðar miklar vonir við starf
hennar en það má benda á að mjög
brýnt er að veglegt elliheimili rísi á
Sauðárkróki og smærri ibúðarein-
ingar fyrir aldraða bæði í Hofsósi
og í Varmahlíð.
HELGARSKÁKMÓT
HALDIÐ Á AKUREYRI
Um næstu helgi verður haldið
skákmót á Akureyri á vegum
Timaritsins Skákar og Skák-
sambands íslands. Mót af þessu
tagi hafa verið haldin víða um
land með þátttöku margra af
sterkustu skákmanna landsins.
Mótið á Akureyri verður á
Hótel K.E.A. og hefst kl. 14 n.k.
föstudag. Tefldar verða tvær
umferðir á föstudag og jafn-
margar á laugardag og sunnu-
dag. Hálfur annar tími verður í
30 leiki og hálf klukkustund til
að Ijúka við skákina. Þctta
fyrirkomulag býður upp á injög
skemmtilegar og snarpar viður-
eignir. Allir eru velkomnir á
skákmótið til þess að taka þátt í
því.
Jóhann Þórir Jónsson, ritstjóri
Skákar, verður skákstjóri á mótinu.
Hann sagði í viðtali að þessi mót
hefðu notið vaxandi vinsælda al-
mennings, en þarna gefst fólki
kostur á að tefla við marga af
sterkustu skákmönnum okkar ís-
lendinga.
„Fyrsta mótið var í Keflavík, en
síðan hafa þau verið í Borgarnesi,
ísafirði, Bolungarvík og Húsavík.
Nú varð Akureyri fyrir valinu.
Seinna munu skákmennirnir tefla á
Neskaupstað, Vestmannaeyjum og
Vík í Mýrdal.
„Alla tíð hefur það verið svo að
skákmenn úti á landi hafa ekki
setið við sama borð og þeir á suð-
Því var vísað frá fundi í september
og 2. október átti síðan að vera
fundur í flugráði en honum var
frestað til 6. október og þeim fundi
var aftur frestað til 10. október, þ.e.
til morguns. Bæjarstjórnarmenn á
Ólafsfirði styðja okkur í þessum
fyrirætlunum okkar og við erum
mjög bjartsýnir. Við höfum hins
vegar gert það alveg ljóst, að við
munum ekki taka að okkur að
fljúga bara á leiðinni Akureyri-
Ólafsfjörður, sagði Torfi Gunn-
laugsson.
Flugfélag Norðurlands hefur
einnig farið fram á flugrekstrarleyfi
á leiðinni Akureyri-Sauðárkrók-
ur-Blönduós-Reykjavík, m.a. með
það í huga að tengja Norðurland
vestra Akureyri. Hefur verið rætt
um tvær ferðir í viku í þessu sam-
bandi. Sem kunnugt er sótti félagið
um flug á leiðinni Siglufjörður-
Blönduós-Reykjavík en var hafnað
og Amarflugi veitt flugrekstrarleyfi
á öllum leiðum Vængja. Flugfélag
Norðurlands hefur áætlunarleyfi á
leiðinni Reykjahlíð-Reykjavík, en
völlurinn í Reykjahlíð við Mývatn
er aðeins opinn á sumrin og því
hefur verið farið fram á að fá að
fljúga tvær ferðir í viku frá Húsavík
til Reykjavíkur. Allar ofangreindar
umsóknir FN munu hafa fengið
neikvæða umsögn Flugleiða h.f.
Af þessu má sjá að mikill hugur
er í FN-mönnum og verður fróð-
legt að sjá hverju fram vindur sér-
staklega varðandi Ólafsfjarðar-
flugið.
Ein af vélum Flugfélags Norðurlands
urhorninu og því ekki getað keppt
við þá snjöllustu. Að sjálfsögðu
hefur þetta háð þroska þeirra sem
skákmanna og með þessum mótum
erum við að gera veika tilraun til að
bæta úr og sýna fram á að sé hægt
að halda svona mót úti á landi með
þátttöku bestu skákmannanna,"
sagði Jón Þorir.
Til þess að gefa lesendum hug-
mynd um styrk mótanna sem búin
eru má geta þess að í Keflavíkur-
mótinu urðu þrír jafnir og efstir:
Helgi, Friðrik og Margeir. í Borg-
amesi varð Guðmundur Sigur-
jónsson efstur, en Helgi og Jón L.
skiptu með sér öðru sætinu. I þriðja
mótinu urðu jafnir og efstir Friðrik
og Helgi og sá síðarnefndi vann
fjórða mótið.
£7
'X 7T~ Ti f A (1 Ð J]
líAÍ /11 (1) J] ö. 1 JÍ_
0 Innheimtur
Einn af lesendum blaðsins
hringdi og vildi koma þeirri
ábendingu á framfæri við
bæjarfyrirtækin, Hitaveftuna
og Rafveituna, að þau sendu
ekki frá sér reikninga í sama
mánuði, heldur Rafveitan
annan og Hitaveitan hinn, en
bæði þessi fyrirtæki inn-
heimta tvo mánuði í einu.
§ Ábending
Fyrir skömmu var í þessum
þætti fjallað um notkun
starfsmanna bæjarskrifstof-
unnar á bílastæðum í ná-
grenninu. Lesandi blaðsins
hafði samband og bað fyrir
eftirfarandi ábendingu:
„Margir þurfa að leíta að-
stoðar og hjálpar í Fjórð-
ungssjúkrahúsi Akureyrar.
Margir hverfa þaðan aftur
hressari og með þakklæti í
huga. En betur mætti gera.
Ég hefi í huga þá, sem lítt eða
ekki eru gangfærir, jafnvel
þótt ekið geti bíl. En komi
slíkir þarna að morgni, til
stundar dvalar við þjálfun, til
myndatöku eða rannsóknar,
finnst mjög sjaldan nokkur
„auður bás“ fyrir bíl þeirra —
nema þá norður við Lystigarð
eða langt upp með vegi! Full-
hraust starfsfólk stofnunar-
innar og læknar láta bfla sína
standa — jafnvel daglangt —
við lyftudyrnar — að kalla!
Hefðu þarna sumir úr stóra
hópnum bara gott af því að
ganga svona 40-50 metra að
og frá vinnustað! Mætti ekki
ákveða og merkja þessum
hreyfifötluðu 2 bílastæði í
nánd við hvorar aðaldyr
hússins. Mér virðist að það
væri spor í rétta átt og engum
til meins.“
Um snjó-
keðjur
Akureyringar voru margir
óviðbúnir snöggri vetrar-
komunni með fannfergi og
hálku. Fæstir voru komnir
með snjóhjólbarða undir bíl-
ana og gripu því margir til
keöjanna. En það er eftirtekt-
arvert hversu keðjurnar eru
slakar hjá sumum en vel
strekktar hjá öðrum. Einn
kunningi blaðsins hafði á
takteinum góða lausn varð-
andi þetta vamdamál. Hans
aðferð við að setja keðjurnar
á og láta þær sitja vel og
fastar án sérstaks strekking-
arbúnaðar var einfaldlega sú,
að hleypa örlitlu loftl úr hjól-
börðunum, strekkja keðjurn-
ar síðan á eins og unnt var
með höndunum og hleypa
síðan lofti í á ný. Arangurinn
var frábær.