Dagur - 03.02.1981, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
64. árgangur
■HHBUBHHBHKSBHHn
Mann-
talið
gekk vel
„Manntalið hér á Akureyri gekk
mjög vel og eftir því sem teljarar
hafa tjáð mér, var þeim yfirleitt
mjög vel tekið og algjörar und-
antekningar ef svo var ekki.
Einstaka neitaði að útfylla ein-
staklingsskýrslu, en þau tilvik
voru sárafá,“ sagði Valgarður
Baldvinsson, bæjarritari.
Teljarar störfuðu til klukkan 22 á
sunnudagskvöld, þeir sem síðastir
voru. Reyndist teljarastarfið taf-
samara en menn höfðu reiknað
með, einkum í gömlum hverfum
þar sem mikið býr af eldra fólki.
Var nokkuð um að það hefði beðið
með að gera skýrslurnar þar til
teljarar koniu og gátu aðstoðað. Að
jafnaði fór hver teljari til 70-80
einstaklinga, en íbúðafjöldinn var
mjög mismunandi.
Ekki tókst öllum teljurum að
skila af sér í hverfamiðstöðvarnar á
sunnudagskvöldið og var það gert I
gærkvöldi. Gögnin verða síðan
send suður, eftir að kannað hefur
verið hvort allir sem eru á íbúaskrá
í bænum hafi skilað skýrslum.
Verður reynt að nálgast þá sem það
hafa ekki gert, ef einhverjir eru.
mm^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmrn,
Dýrt að eiga
hund
Meirihluti bæjarráðs hefur lagt
það til að leyfisgjald fyrir hunda
á þessu ári verði 500.00 krónur.
Málið verður lagt fyrir bæjar-
stjórní dag og líklega verður það
samþykkt.
Heita vatnið
stenst allar
kröfur sem gerðar
eru til neysluvatns
Er heita vatnið á Akureyri
ekki drykkjarhæft þó það fari
í gegnum ofna í húsum bæj-
arbúa, í kyndistöðina og aft-
ur í neysluvatnskranana?
Þessari spurningu hafa ýmsir
bæjarbúar verið að velta fyrir
sér að undanförnu og svörin
hafa verið á marga vegu.
Vilhelm G. Steindórsson,
hitaveitustjóri sagði að bæjar-
búar þurftu ekki að hafa
áhyggjur af gæðum heita vatns-
ins þrátt fyrir það að vatnið hafi
runnið í gegnurn ofna í íbúðar-
húsum. Hann benti á að heita
vatnið hefur runnið í gegnum
dælubúnað, í gegnum skiljustöð
og eftir lögnum hér innanbæjar
áður en það kæmi í ofnalagnir.
Þar sem vatnið er tekið til baka
úr íbúðarhúsum hefur ofna-
kerfið verið skolað sérstaklega
vel og vatnið á ekki að mengast í
slíku frekat en öðrum kerfum.
sem það rennur eftir.
Hitaveitustjóri minnti einnig
á að heilbrigðisyfirvöld athuga
vatnið reglulega, en það
uppfyllir allar þær kröfur sem
gerðar eru til neysluvatns.
9. tölublað
mammmmmmaaa
■BBaBBBHHMBBSHBflflflHBBBBBBBB
Akureyri, þriðjudaginn 3. febrúar 1981
Kodák
Þettaeru nemendur í Clerárskóla. í siöustu viku fóru þau ásarnt kennurum sínum í kvnnisfcrð í lögreglustöðina og var það samdóma álit þeirra harna.
sem Ijósmyndarínn talaði við, að fcrðin hefði verið skemmtileg. MYND: áþ.
Stóriðja hjá Hjalteyri?
Þar er heppilegasta svæðið að
finna segir Atvinnumálanefnd Akureyrar
„Atvinnumálanefnd Akureyrar
álítur að æskilegasta staðsetn-
ing stóriðjuvers eða meðalstórrar
stóriðju væri á svæðinu sunn-
an Hjalteyrar en norðan Hörg-
ár. Um 15 km. norðan Akureyr-
ar og 25 km. sunnan Dalvíkur.
Skilyrði til að gera höfn á þess-
um stað teljum við góð, en þessi
skilyrði þurfa sjálfsagt að at-
hugast af sérfróðum aðilum,“
segir í 2. lið bókunar sem
gerð var á fundi hjá atvinnu-
málanefnd Akureyrar s.l. föstu-
dag, en á þeim fundi var tekið
fyrir bréf Staðarvalsnefndar til
sveitarfélaga og þær spurningar
sem nefndin óskar svara við í
sambandi við forkönnun um
staðarval vegna iðnaðar.
Ekki voru allir nefndarmenn
sammála bókuninni og gerði Páll
Hlöðversson fyrirvara um ýmsa
liði, en þeir Gunnar Ragnars,
Hákon Hákonarson. Ingólfur
Árnason og Jón Helgason sam-
þykktu bókunina athugasemda-
laust.
í þriðja lið segir að nefndarmenn
telji að landslagsskilyrði séu mjög
góð. ,,Hér er nóg landrými lítið
ræktað land þyfti að fara undir
hugsanlegt iðjuver. Á því svæði
sem nefnt er í lið 2 (sem rakinn er í
upphafi) er víðari og opnari fjalla-
hringur en víðast hvar annars stað-
ar við Eyjafjörð. Allt umhverfi er
aðlaðandi fyrir starfsfólk."
Atvinnumálanefndin segir einn-
ig að auðvelt sé með öflun steypu-
efnis og að tenging við raforkunetiu
sé auðveld, vegalengdin að að-
veitustöðinni við Akureyri er 15 til
17 km. en þar mætast Norðurlínan.
Austurlínan og Laxárlínan. Orku-
afhending sé því öruggari en víðast
hvar annarsstaðar. Línuleiðin Ak-
ureyri-Hjalteyri er talin góð og
hefur reynst áfallalítil undanfarin
30 ár, en það er sá tími sem
háspennulína hefur verið i rekstri á
þessu svæði, segir I hókun At-
vinnumálanefndarinnar.
Sá óvenjulegi atburður gerðist á
bænum Nolli í Grýtubakka-
hreppi við Eyjafjörð, sem er
annar bær sunnan Laufáss, að
ær bar þar síðasta dag janúar-
mánaðar. Þar við sat ekki, því
nú hafa fjórar ær á bænum
borið sex lömbum og að sögn
bóndans þar, Snæbjörns
Björnssonar, eru að minnsta
kosti sex ær til viðbótar, sem
eiga eftir að bera innan skamms.
Snæbjörn sagði að þetta hefði
aldrei fyrr hent á sínum bæ. að ær
bæru svona snemma. og að þetta
væri raunar óþekkt fyrirbæri þar í
sveitinni. Sauðburður hefst al-
mennt ekki fyrr en um eða upp úr
mánaðamótunum apríl-maí. Snæ-
björn sagði að allt virtist í lagi með
lömbin. Þó væri ekki því að neita
að þetta væri mjög óheppilegt.
Lömbin yrðu koniin á fjórða mán-
uð þegar sauðburður almennt hæf-
Bókun Atvinnumálanefndar
verður rædd á fundi bæjarstjórnar í
dag og má búast við að einhverjir
bæjarfulltrúanna hafi eitthvað við
einstaka liði að athuga. með hlið-
sjón af þeim umræðum sem fram
hafa farið í bæjarstjórn um þessi
mál.
ist og þennan tima þvrl'tu þau
mikla umhyggju t)g mikið fóður.
Hann sagði að snémmborin lömb
virtust oft væn á haustin. en þau
væru oft beinamikil og að vmsu
leyti ekki eins væn og þau litu iit
fvrir að vera.
Bygging
verkamanna-
bústaða
Að tillögu stjórnar verka-
mannabústaða hefur bæjarráð
lagt það til við bæjarstjórn. að á
vegum nefndarinnar verði
heimilað að hefja bvggingu á
allt að 42 íbúðum á árinu 1481.
Ákvörðun um fjárveitingu bæj-
arsjóðs verður tekin við gerð
fjárhagsáællunar. þegar nánari
fjármögnunaráætlun liggur
fvrir.
Hjalteyri. Frcmst á myndinni cr gamla vcrksniiöjan en ofar í krikanum er smáhála-
höfn. Mynd á.þ.
Sauðburður
í janúarlok