Dagur - 21.05.1981, Blaðsíða 5
IMOTIR
Útgefandi: ÚTGAFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sfmi auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamaður: ASKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Hvað hef ur áunnist?
„Stjórnarandstæðingar syngja
þann söng, að allt sem ríkis-
stjórnin gerir í efnahagsmáium sé
tóm vitleysa og hafi engin áhrif á
að sporna gegn vaxandi verð-
bólgu í landinu. Lengst af öllum
gengur þó aöalmálgagn stjórnar-
andstöðunnar, Morgunblaðið,
sem sífellt reynir að æsa þrýsti-
hópana til frekari kröfugerðar á
hendur ríki og atvinnulífinu.“
Þannig fórust Tómasi Árnasyni,
viðskiptaráðherra, orð í al-
mennum stjórnmálaumræðum á
alþingi. Tómas gerði síðan grein
fyrir því helsta sem áunnist hefði í
efnahagsmálunum og sagði:
„Þrátt fyrir olíukreppu og óða-
verðbólgu er staða íslenska efna-
hagskerfisins furðanlega góð í
sumum greinum. Á síðasta ári
voru utanríkisviðskiptin hagstæð-
ari hér en hjá mörgum viðskipta-
og frændþjóðum okkar, þrátt fyrir
stórhækkun vaxta á erlendum
lánum og erfiðleika í flugrekstri.
Ríkisfjármálin hafa verið í þokka-
legu lagi síðan árið 1979, en þá
urðu þau mikilsverðu umskipti að
greiðsluafgangur varð í viðskipt-
um ríkissjóðs við Seðlabankann í
fyrsta skipti síðan 1972. Þetta hélt
áfram árið 1980 og þarf að verða í
framtíðinni.
Heildarinnlán banka og spari-
sjóða jukust um 10% umfram
heildarútlán á árinu 1980. Þessi
staðreynd er glöggt vitni um
marktækan árangur í peninga-
málum og bendir til hjöðnunar
verðbólgu. Þessi hagstæða þróun
hefur haldið áfram á þessu ári. Af
þessum ástæðum var mögulegt
að semja við bankakerfiö um að
breyta stuttum lánum og lausa-
skuldum húsbyggjenda, eða
þeirra sem keypt hafa íbúð til eigin
nota, til allt að átta ára. Bankar og
sparisjóðir vinna nú að fram-
kvæmd þessa máls.
Á síðasta ári hélst full atvinna í
landinu fyrir þá sem geta og vilja
vinna. Þjóðarframleiðslan jókst á
árinu um 2,5% sem er meira en
meðaltal 24 meðlimaríkja Efna-
hags- og framfarastofnunarinnar.
Hins vegar jukust þjóðartekjurnar
aðeins um 1,2% vegna rýrnandi
viðskiptakjara, en viðskiptakjörin
gagnvart útlöndum voru 12% lak-
ari á síðasta ári, en á árinu 1978.
Af þessu er Ijóst, að engin auk-
ning á verðmætasköpun á mann
var til staðar á síðasta ári.“
Tómas Árnason lagði síðan á-
herslu á það, að nauðsyn bæri til að
haga verðlagsmálum þannig, að
unnt væri að reka vel rekin fyrir-
tæki með eðlilegum hætti. Það
væri grundvallaratriði að skapa
atvinnuvegunum raunhæfan
rekstrargrundvöll, tii þess að
tryggja mikia framleiðslu sem yki
velmegun þjóðarinnar.
Vorsýning Myndlistarskólans
___ ____ O __^___
Á laugardaginn verður opnuð
sýning á verkum nemenda
Myndlistaskólans á Akureyri í
húsnæði skólans að Glerárgötu
34, 4. hæð. Á sýningunni verða
verk nemenda fornámsdeildar
(dagdeildar) skólans auk verka
nemenda úr grafíkdeild og
quiltingdeild.
Fornámsdeild skólans er sniðin
eftir því sem tíðkast við Myndlista-
og handíðaskóla íslands og veitir
sömu réttindi til inngöngu í sér-
náinsdeildir hans. í fornámsdeild-
inni eru eftirtaldar greinar kennd-
ar: frumform og hlutateiknun,
modelteiknun og anatomía, fjar-
vidd, myndbygging, litfræði, form-
fræði, mótun, umhverfisteiknun
listasaga og fagurfræði auk ís-
lenskrar myndlistarsögu.
Ouilting.
Myndmótun.
Myndmótun.
Formfræði — nemendur ganga frá verkunum til sýningar.
Tilgangur fornámsdeildar er að
veita nemendum alhliða undir-
búningsmenntun í almennum
myndlistum og undirbúa fyrir nám
í sérdeildum Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands.
Inntökupróf í fornámsdeild
verður haldið dagana 1. til 4. júní.
Almenn námskeið hafa verið
starfrækt í teiknun og málun fyrir
börn og fullorðna, tauþrykki.
myndvefnaði, byggingalist, quilt-
ing, letrun og grafík svo eitthvað sé
nefnt.
Nemendur voru í vetur rúmlega
200 og kennarar 7. Sýningin verður
opin laugardag og sunnudag kl.
15-22 báða dagana.
Umhverfisteiknun.
Hlutateiknun.
A'tmhus Jof íuWISSOII..
Hmw JrJJist \ SLvjum i jxirsl.i-
Jiríi iSjt. Ölst ujj> i Pólum cuj
FLtey á Btriljiníi Vjr vij ujm
i tmíuttjijrjrJi i Ijcjn ityt-j. cn
i íjrrih skoLnn ifi?.
scttist
Letrun.
Þurranál.
Nemendur í samræmda námskerfinu
á alls 20 námsbrautum
eiga völ
f haust hefst annað námsár við
11 skóla á Norðurlandi, sem
starfa eftir nýrri samræmdri
námsskrá fyrir framhaldsnám.
Skólarnir eru: Dalvíkurskóli,
Fjölbrautaskólinn á Sauðár-
króki, Gagnfræðaskóli Akur-
Ákveðið hefur verið að reka
gistiaðstöðu þ.e. svefnpokagist-
ingu í Steinsstaðaskóla í 2 mán-
uði á þessu sumri, og verður
einnig hægt að fá eidhúsafnot
eða kaupa veitingar.
Skólinn er á jarðhitasvæði í Lýt-
ingsstaðahreppi í Skagafirði, 10
km. fyrir framan Varmahlíð, og er
þar þéttbýliskjarni sveitarinnar,
sem heitir Steinsstaðabyggð. í
skólahúsinu eru 3 kennslustofur og
4 minni herbergi, rúmgóð borð-
stofa og eldhús ásamt snyrtiher-
bergjum. Ný sundlaug hefur verið
eyrar, Gagnfræðaskóli Húsa-
víkur, Gagnfræðaskólinn Ólafs-
firði, Grunnskólinn Blönduósi,
Grunnskólinn Siglufirði, Hér-
aðsskólinn að Reykjum, Iðn-
skólinn á Akureyri, Laugaskóli
og Menntaskólinn á Akureyri.
sett upp við félagsheimilið Árgarð
þar á svæðinu ásamt setlaug, en
baðklefar eru í félagsheimilinu.
Hægt er að fá lánaðan íþróttasál í
Árgarði og þar er ágæt aðstaða til
fundahalda. Nálægt er góð grasflöt,
sem notuð er sem íþróttavöllur.
Tjaldstæði eru fyrir hendi á svæð-
inu og er umhverfið kyrrlátt. Kjör-
inn staður fyrir fjölskyldur og hópa
sem njóta vilja sveitakyrrðarinnar á
friðsælum stað. Upplýsingar gefur
Sigríður Jónsdóttir, Lækjarbakka
9, Steinsstaðabyggð, sími um
Sauðárkrók.
Allir skólarnir starfa eftir þrí-
þættu námskerfi: einingakerfi,
annakerfi og áfangakerfi. I
einingakerfinu felst að nemendur
fá námseiningar fyrir hvert próf
sem þeir taka. Skólaárinu er skipt í
tvær jafnlangar námsannir, haust-
önn og vorönn, og lýkur hvorri með
prófi. I áfangakerfinu er námsefni í
hverri grein skipt í skilgreinda
námsáfanga sem hver tekur eina
önn.
- Vélsmiðja
Steindórs...
(Framhald af bls. 8).
hans Steindór, tók síðan við
rekstrinum. Nú annast reksturinn
sonarsynirstofnandans SteindórG.
Steindórsson og Sigurgeir Stein-
dórsson. Það voru síðan synir
þeirra, fjórði ættliður Steindóra,
sem formlega tóku verkstæðið í
notkun með því að gangsetja stóran
og mikinn „hlaupakött“ á verk-
stæðinu.
Við framhaldsskólana 11 er unnt
að stunda nám á um 20 mismun-
andi námsbrautum, svo sem eðlis-
fræðibraut, heilsugæslubraut, iðn-
náms- og verknámsbrautum
málmiðnaðargreina, rafiðnaðar-
greina og tréiðnaðargreina,
íþróttabraut, málabraut, myndlist-
arbraut, náttúrufræðibraut, sam-
félagsbraut, skipstjórnarbraut,
tónlistarbraut, uppeldisbraut, vél-
stjórnarbraut og viðskiptabraut.
Auk þess er unnt að stunda að-
faranám að ýmsum sérskólum og
meistaranám.
Sama námsefni verður kermt í
Fyrstu íbúarnir fluttu inn í dval-
arheimili aldraða á Húsavík í
byrjun mánaðarins, en heimilið
verður formlega vígt í júní.
Lionsmenn héldu mikinn fagnað
í dvalarheimilinu um síðustu helgi
og kynntu heimilið um leið. Mikil
ánægja var með þessa samkomu,
skólunum öllum á sömu náms-
brautum og sömu reglur gilda um
próf og einkunnir. Nemendur fá
því nám sitt metið að fullu hvar
sem það er stundað við skóla á
Norðurlandi.
Til þess að tryggja samvinnu
skólanna um hina nýju námsskrá
starfar sérstök nefnd, Samstarfs-
nefnd framhaldsskóla á Norður-
landi og eiga sæti í henni skóla-
stjórar skólanna II. Hægt er að
leita frekari upplýsinga um fram-
haldsnámið í skólunum eða í
færðsluskrifstofunum á Blönduósi
og Akureyri.
en Lionsmenn eru vanir að halda
eina slíka á hverju ári.
Alls búa nú 26 í heimilinu og
rúmast ekki fleiri í þeim áfanga,
sem búið er að byggja. Að sögn
heimamanna er dvalarheimiiið
ákaflega skemmtilegt hús og vel frá
öllum hlutum gengið.
Gisting í Steins-
staðaskóla
Dvalarheimili aldraðra á Húsavík:
Þeir fyrstu fluttir inn
Tónlistarskólinn
á Akureyri:
Skólaslit
á morgun
Tónlistarskólanum á Akureyri
verður slitið í Akureyrarkirkju,
föstudaginn 22. maí kl. 18. Við
þá athöfn verða nemendum af-
hentar einkunnir og umsagnir.
Oliver J. Kentish sellókennari,
hefur samið tónverk fyrir hljóm-
sveit skólans — sérstaklega fyrir
þetta tækifæri *—, sem verður
frumflutt þá. Einnig verður annar
tónlistarflutningur á bóðstólum.
460 nemendur hafa stundað nám
við skólann í vetur og voru
kennarar 26. Nemendur léku á 8
opinberum tónleikum, auk þess var
sérstök tónlistarstund á hverjum
laugardegi, þar sem nemendur og
kennarar léku á hin ýmsu hljóð-
færi. Aðsókn á tónleikana var
jafnan góð.
Fyrri innritun fyrir næsta vetur
fer fram 25. og 26. maí, þ.e. mánu-
dg og þriðjudag, milli kl. 13 og 17 á
skrifstofu skólans.
Barnakór
Lundaskóla
með tónleika
Á sunnudagskvöldið heldur
barnakór Lundarskóla tón-
leika í Akureyrarkirkju.
Einnig koma fram nokkrir
hljóðfæraleikarar í kórnum.
Tónleikarnir hefjast kl.
20.30.
Ágóðinn af tónleiknum verð-
ur notaður til Reykjavíkurfarar
um mánaðamótin, en þar mun
kórinn taka þátt í landsmóti ís-
lenskra barnakóra. Kórfélagar
eru á aldrinum 10 til 12 ára. Þeir
eru 46 talsins.
Að sögn kórstjórans, Elín-
borgar Loftsdóttur, hafa börnin
æft mikið í vetur og eru í góðri
þjálfun. Alls munu ellefu kórar
taka þátt í landsmótinu, sem er
á vegum félags íslenskra tón-
menntakennara.
Kór Lundarskóla er ekki eini
norðlenski bamakórinn á
landsmótinu, því þar verða líka
kórar frá Raufarhöfn og Húsa-
vík.
Lokahóf
skíða-
manna
Á sunnudaginn 24. maí
verður haldið í Sjálfstæð-
ishúsinu lokahóf Skíða-
ráðs Akureyrar.
Það herfst kl. 13.00 fyrir
12 ára og yngri, og kl. 14.30
fyrir 13 ára og eldri. Þar
verða veitt verðlaun fyrir öll
mót á vegum ráðsins, bæði í
alpagreinum og Norrænum
greinum. Allir velunnarar
skíðamanna eru velkomnir í
hófið og að sjálfsögðu mæta
allir þeir sem keppt hafa í
vetur.
UMSJÓN:
Ólafur Ásgeirsson
Kristján G. Arngrímsson
Gunnar
í K.R.
Það mun nú vera afráðið
að Gunnar Gíslason gangi
til liðs við KR í handbolta.
Hann fetar þar í fótspor
eldri bróður síns Alfreðs,
sem s.l. vetur lék einnig með
því liði. Gunnar hefur verið
leikmaður með KA í öllum
flokkum í handbolta og
knattspyrnu allt frá því að
hann hóf að iðka íþróttir.
Hann hefur verið
unglingalandsliðsmaður
bæði í knattspyrnu og hand-
bolta. Gunnar stundar nám
við Iþróttaskólann að Laug-
arvatni, og á eftir einn vetur.
Það verður óneitanlega
auðveldara fyrir hann að
leika með KR þennan vetur,
heldur en KA þar sem það
krefst mikilla ferða og
langra. Vonandi eiga hand-
knattleiksunnendur eftir að
sjá Gunnar aftur í KA peysu
en honum fylgja góðaróskir
með sínu nýja félagi.
Þess má að lokum geta að
þriðji bróðirinn Hjörtur
keppir einnig fyrir KR, en
hann er frjálsíþróttamaður.
Óskar Ingimundarson, fyrrum leikmaður hjá KA, getur orðið varnarmönnum sfns
gamla félags erfiður í leiknum við KR.
K.A. - K.R.:
Bæði vilja
fá stigin
í kvöld leika á Melavellinum
í Reykjavík KA og KR í
fyrstu deild í knattspyrnu.
Þetta er annar leikur KA, en
þeir töpuðu naumlega fyrir
Akurnesingum í fyrstu um-
ferð.
Nokkur forföll geta orðið
hjá KA í þessum leik, en í síð-
asta leik meiddust tveir leik-
menn eins og áður hefur verið
sagt frá, og einnig hafa aðrir átt
við meisl að stríða.
Jóhann Jakobsson er nú að
ná sér eftir meiðslin sem hann
hlaut í „samstuðinu" við mark-
mann Skagamanna, en þau
voru niinni en á horfðist. Ekki
er þó víst að hann verði með í
þessum leik.
Elmar þurfti að yfirgefa völl-
inn í síðasta leik eftir spark í
öklann, og er einnig óvíst hvort
hann verður með. Gunnar
Blöndal hefur verið haltur und-
anfarið, og einnig er óvíst með
hann. Eyjólfur Ágústsson mun
hins vegar verða orðinn góður
af sínum meiðslum og verður
því með.
KA vörnin mun örugglega
hafa góðar gætur á Óskari Ingi-
mundarsyni, en hann leikur nú
með KR og hefur verið einn af
aðal markaskorurum KA und-
anfarin ár. Þetta verður því
hörkuleikur sem beðið verður
eftir með óþreygju, þar er bæði
liðin vantar tilfinnanlega stigin
sem sigur gefur.
Föstudagskvöld:
Þór - Breiðablik
Á föstudagskvöldið leika á
Þórsvelli Þór og Breiðablik
og hefst leikurinn kl. 20.00.
Þórsarar munu geta teflt fram
sínu sterkasta liði gegn þeim, þó
mun Magnús Helgason eiga við
meiðsl að stríða og óvíst hvort
hann verður með. Hvort Þórs-
völlurinn hjálpar heimamönn-
um skal látið ósagt, en eitt er víst
að betri barátta á að geta verið á
sínum eigin velli.
Eins og áður segir hefst leik-
urinn kl. 20.00 og eru áhorf-
endur hvattir til að greiða skil-
víslega aðgang að leiknum. en
miðasölumenn niunu verða
dreifðir allt í kring urn völlinn.
UTLA BUÐIN ER MEIRA VIRÐI
Ég get ekki lengur orða bundist og
tala fyrir munn margra, sem lítils
mega sín. Það er vegna þeirrar
áráttu, sem gripið hefur forráða-
menn Kaupfélags Eyfirðinga, að
leggja niður útibúin hér á Akureyri.
Aðallega er það Brekkugata 47
(Hornið) sem ég hef í huga og
leggja á niður um mánaðamótin
maí-júní, en ég veit að fleiri fara
sömu leið seinna.
Hvar er nú hugsjón samvinnu-
hreyfingarinnar? Að þjóna við-
skiptavinunum? Og þar með sú
hugmynd, við stofnun KEA, að
allir gætu auðveldlega verslað með
því að hafa mörg útibú og gefa þar
með bæði heilbrigðum og þeim,
sem verra áttu með að komast til og
frá, kost á að fará sjálfir til að
kaupa það sem þá vanhagaði um.
Hvars *vegna mátti ekki nota
milljónirnar, sem notaðar eru til
kaupa á stórri verslun úti í bæ, til að
endurbæta og lagfæra litlu útibúin.
Ég er viss um það, að það hefði ekki
þurft að nota þær allar til endur-
bótanna.
En það er engu líkara en framá-
menn kaupfélagsins hafi sérstak-
lega mikinn áhuga á að losna við
Brekkugötu 47, þrátt fyrir að þetta
er eina matvörubúðin á stóru svæði
og langt í allar aðrar matvörubúðir.
Brekkugata 47 hefur þjónað okkur
íbúum ytri brekkunnar vel og
dyggilega, eftir því sem aðstæður
hafa leyft, því stundum hefur verið
ógerningur fyrir afgreiðslufólk að
fá vörur sem vantað hafa í búðina
fyrr en eftir margar ítrekanir. Ekki
vegna þess að þær hafi ekki verið
til. Vörur sömu tegundar hafa á
sama tíma fengist í stærri búðum
kaupfélagsins. En þrátt fyrir ýmis-
legt sem betur mátti fara, við-
víkjandi sendingu vara í litlu úti-
búin, til dæmis á Homið, hefur það
verið mörgu fólki til hjápar og
nauðsynlegt.
Á þessu svæði, ytri brekkunni, er
margt eldra fólk, sem gleðst yfir því
að geta komist í búðina sína á
Horninu hjálparlaust og þannig
bjargað sér sjálft með innkaupin.
Hvernig á þetta fólk að fara að
þegar kippt er undan því fótunum?
Panta gegn um stma? Jú, það er
hægt, en búðarferð gamla fólksins
er meira en matarkaup. Það eru
samskipti við annað fólk, af-
greiðslufólk sem það þekkir eftir
margra ára samskipti, vinsamlegt
lipurt, og annað fólk sem kemur
einnig til að kaupa og gefur sér
stundum tíma til að skiptast á orð-
um, bæði í gamni og alvöru. Þannig
verður litla búðin meira virði.
En þegar aldurinn færist yfir
minnka innkaupin og þá minnkar
einnig peningurinn sem verslunin
fær. Svo er það líka fólkið í verk-
smiðjunum, sem er fegið að geta
keypt ýmislegt sem það vantar um
leið og það kemur heim úr vinn-
unni.
Á búðarfundum tvo undanfarna
vetur hafa komið fram eindregnar
óskir um að búðin í Brekkugötu 47
fengi að vera í friði. En allar þessar
beiðnir hafa verið hundsaðar. Nei
takk, ekki gera neitt með slíkt, enda
hafa engir undirskriftalistar verið
lagðir fram. Hvað varðar ráða-
menn kaupfélagsins um það. þó að
gamla fólkið felli tár yfir búðinni
sinni, sem á að loka.
Ég skora á ykkur, forráðamenn
kaupfélagsins, að sýna á ykkur
betri hliðina og hætta við að loka
útibúinu að Brekkugötu 47. Og
þökk sé búðarfólkinu á Horninu
fyrir sérstaka lipurð og greiðvikni.
Megi það starfa þar áfram.
Ingibjörg Jónsdóttir,
á ytri Brekkunni.
DAGUR.5
4.DAGUR