Dagur


Dagur - 30.06.1981, Qupperneq 6

Dagur - 30.06.1981, Qupperneq 6
Bændur athugið Helgarvaktir í Véladeild KEA byrja laugardaginn 11. júlí. Opið verður laugardaga og sunnudaga kl. 10-12, sími 22997. ^VÉIADEILD sími 21400 og 22997 ^ESSUR - 1 Akureyrarkirkja. Messað n.k. sunnudag kl. II f.h. Sálmar: 455, 359, 181,348, 529. B.S. Lögmannshliðarkirkja. Messað n.k. sunnudag kl. 2 e.h. Sálmar nr. 3, 359, 181, 348, 529. Bílferð verður úr Glerárhverfi kl. 1.30. B.S. ^UNDIR ^ Sjálfsbjörg Akureyri minnir fé- laga sína á áður auglýstan framhaldsaðalfund félagsins fimmtudaginn 2. júlí kl. 20.00 að Bugðusíðu 1. Stjórnin. Friðbjarnarhús, minjasafn I.O.G.T., Aðalstræti 46, Akur- eyri, verður opnað almenningi til sýnis sunnudaginn 5. júlí n.k. og verður húsið opið á sunnu- dögum kl. 2-4.30 e.h. til ágúst- loka. Á kvisti Friðbjarnarhúss er uppsettur stúkusalur og þar var fyrsta stúkan á fslandi, stúkan ísafold nr. 1, stofnuð. Einnig er að sjá í húsinu myndir og muni frá upphafi Reglunnar. Sjón er sögu ríkari. Verið vel- komin í Friðbjarnarhús. Gestir, sem ekki geta skoðað safnið á framangreindum tímum, mega hringjat' síma 24459 eða 22600. Formaður Friðbjarnarhús- nefndar er Sigurlaug Ingólfs- dóttir. - Carmina Burana (Framhald af bls. 4). ekki sízt hvað hljóðfall og takt- skyn hrærir. Tónsviðið er líka umfangsmikið í þeim mæli, sem gæti skotið mörgum góðum kórnum og einsöngvaranum skelk í bringu. Ekki verður skilizt svo við þessar línur, að ekki sé getið um hlut einsöngvara Katrínar Sig- urðardóttur og Michael Clarke. en þeirra framlag var með þeim ágætum, að maður segir aðeins: „mættum við fá meira að heyra". Ég hef áður lokið lofsorði á kvenraddir Passíukórsins og er mér ljúft að taka fram, að ekki brugðust þær að þessu sinni frek- ar en endranær, en nú voru það karlaraddirnar, sem komu mér á óvart og áreiðanlega fleirum. Það væri reyndar gaman að heyra aðra sönghópa leika það eftir, sem karlaraddir Passíukórsins sýndu af sér þessa kvöldstund, þótt fáir væru. Passíukórinn og stjórnandi hans Roar Kvam hafa ekki gert það endasleppt á þessu vori í tónlistarlífi Akureyringa. Eftir flutning Passíukórsins í Akureyr- arkirkju á Messu í D-dúr eftir A.Dvorak var ýjað að því af minni hálfu, að slíkt þyrfti að endurtakast með tilliti til ágætis tónverksins, gæða flutningsins og þeirrár miklu vinnu, sem lögð var fram. Til þess væru allir mögu- leikar, og ekki skorti tækifærin í kirkjunni, því að ekki veit ég bet- ur en það sé ennþá plagsiður að messa á sunnudögum og koma þar saman af ýmsum tilefnum. Það sýnist tilvalið að punta ögn upp á músikhlið þeirra athafna. Nú er ég ekki að leggja til, að Carmina Burana verði endilega flutt í kirkjunni, þótt það væri ekki lakari messugjörð en hver önnur, heldur vildi ég láta það álit mitt í ljós, að Carmina Burana í flutningi Passíukórsins þarf að heyrast oftar en einu sinni. Hver veit nema andinn komi yfir Ríkisútvarpið að ná upptöku, væri ekki hægt að fara hér um nærliggjandi byggðarlög og enn og aftur í íþróttaskemmuna? Beztu þakkir skulu hér færðar Roari Kvam og liði hans öllu Sofffa Guðmundsdóttir. Vorhappdrætti Framsóknarflokksins Dregið var 12. júní 1981, en vinningsnúmer síðan innsigluð og geymd hjá Borgarfógetaembættinu í Fteykjavík til 3. júlí 1981. VERIÐ MEÐ — KAUPIÐ MIÐA. K.F.N.E. Útboð á Grenivíkurvegi Auglýsing um útboð Vegagerð ríkisins Akureyri auglýsir eftir tilboðum í lagningu 2,2 km. langs kafla af Grenivíkurvegi frá Víkurhólum að Fagrabæ. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu V.r. Mió- húsavegi 1, Akureyri, gegn 2500 króna skilatrygg- ingu frá kl. 13.00 miðvikudaginn 1. júlí 1981. Skila- frestur tilboða er til hádegis 13. júlí 1981. Akureyri 16. júní1981. Vegamálastjóri. F.V.S.A. F.V.S.A. Fjölskylduhátíð Fyrirhuguð er fjölskylduhátíð á vegum Félags verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og ná- grenni út í Grímsey. Farið verður með Drang laugardaginn 18. júlí kl. 18.30 og komið til baka eftirmiðdag á sunnudag. Þátttaka tilkynnist skrifstofu félagsins, sími 21635, eigi síðar en 10. júlí n.k. Verð fyrir fullorðna kr. 250,00, fyrir börn yngri en 12 ára kr. 150,00. Innifalið íverðinu er fargjaldið, gist- ing og ein heit máltíð. Félagar fjölmennið. Stjórnín. sf MARINÓ PÉTURSSON, Norðurgötu 11, lést á heillli sínu aðfaranótt sunnudagsins 28. júní. F. h. vandamanna, Halldóra KJartansdóttir. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns mfns og föður okkar, GERHARDS MAYER. Bryndfs Mayer, Matthías Mayer, Þráinn Mayer. , Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, NÖNNU INGJALDSDÓTTUR, Laxagötu 2, Akureyri. Gunnar Baldur Loftsson„Sigríður Guðmundsdóttir, Yngvi Ragnar Loftsson, Hrefna Jakobsdóttir, Margrét Yngvadóttir, Nanna Yngvadóttir. Alúðar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför systur okkar, GUÐNÝJAR SIGURÐARDÓTTUR frá Vatnsenda. Sérstaklega þökkum við læknum og starfsfólki Kristneshælis fyrir veitta umönnun. Alaðsteinn Sigurðsson, Jóhann Sigurðsson og aðrir aðstandendur. 6.DAGUR

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.