Dagur - 21.07.1981, Blaðsíða 1

Dagur - 21.07.1981, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 64. árgangur HHHBI Akureyri, þriðjudagur 21. júií 1981 55. tölublað ■■ „Töpuðu mikilli sölu vegna mistaka lögreglu“ Á föstudag í fyrri viku lokaði lögreglumaður, eftir skipun frá varðstjóra, tískuversluninni Cesar. Klukkan var að ganga sjö og streymdi fólk út og inn í verslunina. Eigendur verslunar- innar gerðu ekki athugasemd við þessa aðgerð lögreglu- mannsins, en uppgötvuðu síðar að eitthvað hefði laganna vörð- um brugðist bogalistin því í reglugerð um opnunartíma verslana á Akureyri segir skýrt og greinilega að verslunum sé heimilt að hafa opið til klukkan sjö á föstudögum. Bjarki Tryggvason og Jón Bjarnason, eigendur Cesars, sögðu að skipun varðstjórans hefði kostað þá miklar fjárhæðir því umræddan dag hefði mikið verið af ferðafólki í bænum. Bjarki sagði að í upphafi hefðu þeir talið að lögregluþjónn- inn hefði verið í fullum rétti, en þeir komust að öðru eftir viðræður við form. Kaupmannafélags Akur- eyrar. Dagur hafði samband við um- ræddan varðstjóra, sem sagði að hér hefðu einfaldlega verið á ferð- inni mannleg mistök. Undirbúningi miðar vel „Ætlar þú aö taka mynd af mér manni.“ — Litla hnátan ð hjólinu hafði ekkert við það að athuga og stillti sér upp fyrir Kristján Arngrímsson Ijósmyndara. „Það er allt í fullum gangi við undirbúning mótsins, milli 30 og 40 manns við vinnu í Kjama- skógi á hverju kvöldi“ sagði Garðar Lámsson sem á sæti i undirbúningsnefnd fyrir Lands- mót skáta sem haldið verður í Kjarnaskógi 26. júlí—2. ágúst. Landsmót skáta eru haldin á fjögurra ára fresti, og eru þetta miklar og fjölsóttar samkomur. Að sögn Garðars munu um 1100 skátar mæta á mótið í Kjarnaskógi auk þess sem reiknað er með um 500 Þær Guðrún Björk Eydal, Lfna Magga Magnúsdóttir og Lena Lénharðsdóttir unnu af fullum krafti um helgina við að undirbúa mótið. öðrum gestum. Laugardaginn 1. ágúst verður almenningi gefinn kostur á að heimsækja svæðið, og er reiknað með að fjölmargir muni notfæra sér það. Um helgina var lokið við að reisa öll meiriháttar mannvirki varðandi mótið. Þá hafa símaleiðslur, raf- magnsleiðslur og vatnsleiðslur ver- ið lagðar um svæðið. Sérstakt dag- blað verður gefið út alla mótsdag- ana, og pósthús verður rekið á staðnum þar sem frímerkjasafnarar geta fengið sérstimpil mótsins á merki sín. Við handjárnum hann“ Aðfararnótt s.l. sunnudags var Þór- arinn Björnsson, framkvæmdastjóri Skúlagarðs, handtekinn á skrif- stofu sinni i Skúlagarði. Samkvæmt því sem næst er hægt að komast er ástæðan sú að Þórarinn neitaði að greiða Jóhanni Þórarinssyni, lög- reglumanni frá Raufarhöfn reikn- ing fyrir hluta af löggæslu um kvöldið. Þórarinn var settur í hand- járn og ekið sem leið lá til Raufar- hafnar og ekki sleppt fyrr en um hádegisbil á sunnudag. Sigurður Gizurarson, sýslumaður á Húsavík, sagði í gær að hann gerði ráð fyrir að misskilningur milli Jóhanns og starfsbræðra hans á Húsavík ætti sök á því hvaða stefnu málið tók þegar Þórarinn var rukkaður um nóttina. Aðspurður sagði Sigurður að málið gæti orðið „óþægilegt“ fyrir Jóhann Þórarinsson. Samkvæmt reglugerð um skemmtisamkomur eiga að vera tveir héraðslöggæslumenn á þeim. Þórarinn sagði að hann hefði verið búinn að ganga frá því við lögregl- una á Húsavík að s.l. laugardags- kvöld yrðu lögreglumennirnir tveir, enda var ekki gert ráð fyrir mörgum samkomugestum. Þegar til kom mættu þrír löggæslumenn — tveir frá Raufarhöfn og einn frá Þórshöfn. „Þegar dansleik var lokið komu þeir með aukareikning sem þeir höfðu gert á staðnum. Ég neit- aði að greiða reikninginn — benti þeim á að þeir yrðu að fara með reikninginn til sinna húsbænda og láta innheimta þetta eftir öðrum leiðum því þessi þriðji lögreglu- þjónn væri mér óviðkomandi. Nú, ég var að gera upp við fjárhalds- mann hljómsveitarinnar á skrif- stofunni þegar bankað var á dymar með gauragangi og inn ryðjast lög- regluþjónarnir. Ég bað þá að ganga út því ég mætti ekki vera að því að sinna þeim; væri upptekinn við peningamál. Þá segir varðstjórinn: „Hann er með mótþróa. Við hand- járnum hann.“ Mótþróinn var í því fólginn að ég neitaði að greiða reikning. Ég rétti fram hendurnar og sagði að slíkt væri á þeirra ábyrgð, en að sjálfsögðu tækju þeir afleiðingunum,“ Sagði Þórarinn Björnsson skömmu eftir að hann kom af fundi Sigurðar Gizurarson- ar í gær. Þórarinn kvaðst því næst hafa kallað á yfirdyravörðinn sem fór í vasa Þórarins og tók þaðan lykla. Einnig tók hann að sér að ganga frá uppgjöri við hljómsveitina, enda átti Þórarinn óhægt um vik. Sami maður lét Björn Guðmundsson, hreppstjóra vita og kom Björn í Skúlagarði eftir að Þórarinn og lög- reglumennirnir þrír voru lagðir af stað austur. Björn, sem tók skýrslur af vitnum um nóttina, tjáði Degi að ekki væri hægt að kenna víni um því málsaðilar hefðu ekki smakkað það. „Mér var fyrst ekið upp í Ásbyrgi handjárnaður aftan við bak. Þau skárust í únliðinn því maður er ekki vanur að bera svona. Þegar kom til Kópaskers spurði ég þá hvort ekki væri óhætt að sleppa mér úr hand- járnunum og það gerðu þeir um- yrðalaust. Á Raufarhöfn krafðist ég þess að fá að tala við konu mína eða mína nánustu. Mér var neitað um öll samtöl. Jóhann hringdi um nóttina til systur minnar og til- kynnti stuttlega að ég sæti inni. Ég bað um mat á þeirri forsendu að ég væri. magasjúklingur, en því var hafnað. Að lokum var allt tekið af mér — meira að segja úrið — og ég settur í einangrun. Um klukkan 13.30 daginn eftir losnaði ég. Ég skrifaði aldrei undir skýrsluna þar sem ég var sakaður um að hafa tafið lögregluna í starfi.“ Þórarinn sagði að fyrir rúmu ári hefðu lögreglumenn reynt að fá svipaðan aukareikning greiddan, en þá hefði hann neitað því, enda væri hann búinn að semja fyrir- fram við yfirmenn héraðslögreglu- manna um hve mikið lið væri nauðsynlegt að hafa. Skýrslugerð verður haldið áfram í dag og væntanlega kemst endan- lega botn í málið í kvöld. Landsmót skáta í Kjarnaskógi: Lögreglan lokar tískuverslun Framkvæmdastjóri Skúlagarðs neitar að greiða reikning „Hann er með mótþróa „Eg ætla að nota þetta efni í nýja heyhlöðu“ „Sumt af þessu virðist vera ágætisefni. £g hef að vísu ekki sagað það og veit þess vegna ekki nákvæmlega hvort það er eitthvað fúið, en þetta lítur bara þokkalega út“ sagði Þorsteinn Jónsson, bóndi i Samkomugerði í Saurbæjarhreppi, er við hittum hann að máli. Þorsteinn var í óða önn ásamt syni sínum að rífa gömlu korn- vörugeymsluna við Skipagötu, en hann keypti réttinn til þess að fá að hirða allt efni úr annarri geymsl- unni. „Ég borga 100 þúsund gamlar krónur fyrir þetta, það er nú bara svona til málamynda. Annars finnst mér frekar að það hefði átt að borga með þessu, það er svo mikil vinna að rífa þetta“ sagði Þorsteinn sem hafði eitt í það hálf- um mánuði að rífa niður og keyra efni heim. „Ég þarf að sjá um að rífa allt niður nema steinvegginga, og tek síðan timbrið og bárujárnið og kem því burtu. Það er meiningin að byggja úr þessu hlöðu, en ég er ekki ennþá byrjaður á henni.“ Sá sem keypti efnið úr hinu hús- inu var Haukur Tryggvason frá Laugabóli í Reykjadal. Þorsteinn Jónsson og Jón sonur hans. AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 21180

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.