Dagur - 21.07.1981, Side 5
Utgefandi: UTGAFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Hafnarstræti 90, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 21180
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamenn: Áskell Þórisson,
Gylfi Kristjánsson
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Aukinn veg
verkmennta
Nú er hafinn undirbúningur að
byggingu verkmenntaskóla á Ak-
ureyri, sem þjóni Norðurlandi öllu.
Þessum skóla er ætlað að hafa
svipaða stöðu í skólakerfinu og
hinir hefðbundnu menntaskólar
hafa haft. Þar verði kenndar þær
verkmenntagreinar sem hingað til
hafa tilheyrt iðnskólunum, auk
þess sem fleiri greinum er ætlað
að vera þar ínni. Skiptar skoðanir
eru um það hvort þessi skóli skuli
innlima aliar framhaldsgreinar ut-
an hinna hefðbundnu bóknáms-
greina Menntaskólans á Akureyri,
eða hvort einhverjir sérskólar
skuli verða við lýði, s.s. verslun-
arskóii, svo eitthvað sé nefnt. Hér
skal ekki tekin afstaða tii þessa
ágreinings, sem skólamenn og
þeir sem best þekkja til verða að
leysa. Hins vegar er rétt að vekja
athygli á því, hversu nauðsynlegt
er að gera veg verkmennta meiri
en hann hefur verið undanfarið.
Það er staðreynd, að þeirri
skoðun hefur á undanförnum ár-
um og jafnvel áratugum vaxið
fiskur um hrygg, að enginn geti
orðið maður með mönnum, nema
hafa stúdentspróf upp á vasann.
Þetta hefur orðið til þess, að fleiri
og fleiri hafa hafið nám í mennta-
skólunum, án þess jafnvel að hafa
mikla hæfileika til bóknáms.
Verkmenntir hafa af þessum sök-
um orðið hálfgerð hornreka og
ekki þótt eftirsóknarvert að nema
þær. Því hafa starfskraftar hæfi-
leikamanna nýst verr en skyldi. Ef
þessi nýi verkmenntaskóli getur
orðið til þess að vegur verk-
mennta vaxi, þá er það vel. Þetta
þjóðfélag okkar byggir í grund-
vallaratriðum á góðri verkkunn-
áttu í undirstöðuatvinnuvegunum.
Þá er ekki síður mikilvægt, að
unga fólkið geti stundað sitt nám í
eða sem næst heimabyggð sinni.
Það er enginn vafi, að fóiksflóttinn
til höfuðborgarsvæðisins var að
verulegu leyti vegna þess, að
tengsl unga fóiksins við heima-
byggðirnar rofnaði, þegar það
þurfti að sækja framhaldsnám til
Reykjavíkur. Ekki ósjaldan hafa
foreldrar talið sér nauðsynlegt og
skylt að fylgja börnum sínum og
ala önn fyrir þeim, meðan þau hafa
verið í námi í Reykjavík. Það hefur
svo verið undir hælinn lagt hvort
fiutt hefur verið í heimahagana á
ný.
Verkmenntaskólinn á Akureyri
verður vonandi til þess að auka
námsmöguleika Norðlendinga og
auka veg þeirra greina sem at-
vinnulíf okkar byggist á. Þetta er
mikílvægt fyrir uppbyggingu at-
vinnulífsins á Norðurlandi, sem
hefur átt í vök að verjast.
DVERGMÁL
Það er óvenjulegt að fá í hendur
þetta stóra ljóðabók, 160 bls., sem
hvergi verður fundinn formgalli á
og það á þeim vansæla tíma þjóðar
sem hefur týnt áður óskeikulu
brageyra sínu. Þá má það kalla
þakkarvert að bókin er skemmtileg
svo af ber sem einnig er í mótsögn
við algert húmorleysi þjóðar okkar.
Baldur hefur lengi verið þekktur
sem skemmtilegur ljóðasmiður
undir dulnefninu Dvergur. Árum
saman hefur hann tekið samtíma-
viðburði til meðferðar svo þeir
mættu geymast í þeim skarpa
spéspegli sem dísir gáfu höfundi
þessum í tannfé. Það er ómetanlegt
á „þessum alvöru tímum“ að ein-
hver geti séð þá og sýnt okkur í ljósi
skapsins því þegar frá líður sér
maður að alvara atburðanna var
skynvilla okkar hinna hversdags-
legu þræla „alvörunnar". Vanda-
málin voru fólgin í skorti á skop-
skyni, að mestu leyti.
Baldur stundar orðaleiki af mik-
illi íþrótt. Einnig leikur hann að
hugmyndum svo fimlega að maður
verður að fletta upp í vísnabók
Káins til að finna samanburð.
Hann yrkir raunar ágætt kvæði um
þann snilling, svo og annað um
meistara Kjarval en þeir voru ekki
óskyldir.
Aðeins örfá dæmi sem rök-
stuðning við framansagt: í kvæð-
inu úr dreifbýlinu, sem fjallar um
brottflutning úr sveitunum, kemst
hann að þessari niðurstöðu:
.....en sums staðar um sveitirnar
svo er autt, að nú er þar
ekkert nema sveitasáelan eftir.“
í görðum heitir kvæði og fjallar
um dútl manna í garðinum sínum.
Niðurstaða:
„Sama garð við síðast byggj-
um,
sá, er stríddi í eigin garði,
og ég, sem átti engan garð.“
Tvöhundruð — metra þulan er
fjarska skemmtilegt kvæði um nor-
rænu sundkeppnirnar. Þar fléttar
hann inn í kvæðið kunn stef úr
söngvum bræðraþjóðanna og end-
irinn verður:
„Fósturjörðin mætir mér,
móðum eins og hundi,
nýkomnum af samnorrænu
sundi.“
Lax(veiði)maður er forláta
kvæði, m.a. þetta:
„Ekki mátti hann sleppa stöng,
í strauminn til hans, með veislu-
föng,
óð þrifleg þjónustupíka.
Eftir að hafa snætt um stund,
steig hann á land og fékk sér blund,
— laxinn sofnaði líka.“
Þá langar mig að benda á kvæðin
Orlofsferð til Grænlands, Hrafna-
Flóki, List og listkynning, Minkur-
inn, Að lokinni smalamennsku og
þannig mætti áfram telja.
Sjónvarp og önnur vör er kvæði
sem sannar snilld Baldurs í orða-
leikjum, þar sem orðið „varp“
kemur fyrir í ótal merkingum, en
það endar svo:
„Vörpin áttum við ekki fá
til óþurftar, fyrr og síðar.
Ef sjónvarpið bætist ofan á,
hin íslenska menning tekur þá
andvörpin, innan tíðar.“
Skop Baldurs er alveg laust við
öfund, gremju og sjálfsdekur.
Maðurinn virðist óvenjulega heil-
brigður, og sá sem tekur vanda-
máli þessum tökum er hamingju-
maður.
Menningarsjóður KEA heiðraði
Baldur í tilefni af útkomu þessarar
bókar. Ég hygg að stjórn sjóðsins
hafi gjört ýmislegt sem fremur
orkar tvímælis en það.
Kristján frá Djúpalœk.
Nú fagnar öll
vor byggð
Við guðsþjónustu í Akureyrarkirkju 28. júni s.l. í tilefni 1000
ára afmælis kristnisboðs á íslandi var frumfluttur sálmur eftir
séra Pétur Sigurgeirsson, vígslubiskup, sem við höfum fengið
góðfúslegt leyfi hans til að birta:
Nú fagnar öll vor byggð,
er aldir tíu runnu.
í þúsund ár með dáð og dyggð
hér Drottins þjónar unnu.
Og ekkert stœrra höndlað hnoss
þar hafa landsins feður
en dóminn þann, hinn dýra. Oss
það dásamlega gleður.
Og Ijósið milda lýsti þjóð
á löngum vetrarkvöldum.
Þar aldrei brást sú innri glóð
frá œðstu máttarvöldum.
Vor þakkargjörð er þúsundföld,
að því ver skulum hyggja:
A miskunn Guðs um ár og öld
var alltaf hœgt að byggja.
Vort stefnumark, vor stjórnarskrá,
á stoð í kristindómi.
Það er vor bœn og einlœg þrá
að erfist þjóðarsómi.
Ef sinnaskiptin vottum vér
í verki dag frá degi,
þá blómgast allur hagur hér,
sú heill oss vernda megi.
Pétur Sigurgeirsson.
Æskulýðs- og söngmót
söngur og hljóðfærasláttur. Þátt-
taka er opin öllum áhugamönnum,
leikum og lærðum 14 ára og eldri
hvaðan sem er af landinu. Böm eru
einnig velkomin í fylgd með
fullorðnum. Flestir munu búa í
tjöldum, og hafa sitt eigið nesti, en
möguleiki er á gistiplássi og mat á
staðnum.
Dagskrá mótsins verður byggð
upp á söng og hljóðfæraleik,
biblíulestri, kvöldvökum og frjáls-
um tíma. Farið er fram á að þeir
þátttakendur sem spila á meðfæri-
leg hljóðfæri taki þau með sér.
Upplýsingar varðandi mótið og
innritun fer fram á skrifstofu
Æskulýðsstarfs þjóðkirkjunnar á
Akureyri, sími 96-24873. Innritun
fer fram á skrifstofu Æskulýðs-
starfs þjóðkirkjunnar á Akureyri,
sími 96-24873. Innritun þarf að
vera að mestu lokið fyrir 28. júlí.
Eftir það verða upplýsingar veittar
í sumarbúðunum að Vestmanns-
vatni, sími 96-43553.
Margar hátíðir eru haldnar í
tilefni 1000 ára kristniboðs á fs-
landi, og eitt meiriháttar átak í
æskulýðsstarfi kirkjunnar á
kristniboðsárinu verður æsku-
lýðs- og söngmót sem haldið
verður að Vestmannsvatni og
Hafralæk í Aðaldal, S.-Þing.
dagana 12.-16. ágúst.
Á mótið koma í heimsókn
norskir unglingar sem eru æsku-
lýðsfélag og sönghópur úr sveita-
sókn. Hópur þessi er hluti af hreyf-
ingu sem nefnist „ten-sing“, en í
Noregi munu vera um 200 slíkir
hópar starfandi.
Gert er ráð fyrir að þátttakendúr
á mótinu verði 150 eða jafnvel fleiri
svo væntanlega verður mikill
Norski flokkurinn sem kcmur til mótsins.
Hefur komið fyrir að
lögreglan vakti stöðina
Slökkvilið Akureyrar heimsótt
„Það sem okkur finnst einna
mest aðkallandi er að það verði
fjölgað á vöktunum hjá okkur.
Nú eru þrír menn á hverri vakt,
og ef útkall kemur vegna slyss er
einungis einn maður eftir á
stöðinni. Ef þá kemur upp annað
slys eða einhver annar brýnn
sjúkraflutningur þá er stöðin
mannlaus, og það hefur komið
fyrir að lögreglan hefur orðið að
vakta stöðina fyrir okkur“
sögðu slökkviliðsmennirnir sem
við hittum á vakt á slökkviliðs-
stöðinni á Akureyri föstudags-
eftirmiðdag í síðustu viku.
Þá voru þeir Guðmundur
Halldórsson og Ólafur Búi
Gunnlaugsson nýkomnir úr
sjúkraflutningi frá Grenivík, og
hafði Sigurður Gestsson verið einn
á vaktinni í höfuðstöðvunum á
meðan. Reyndar hafði hann kallað
út einn aukamann eins og oft er
gert ef staða sem þessi kemur upp
að degi til, en það hefur komið fyrir
að ekki hefur unnist tími til þess að
gera slíkt ef tvö útköll vegna
sjúkraflutninga hafa komið upp
með stuttu millibili.
Erindi okkar á slökkvistöðina
var að fræðast svolítið um þá sem
þar starfa, og við spurðum fyrst
Tómas Búa Böðvarsson slökkvi-
stjóra um fjölda útkalla vegna
eldsvoða það sem af er þessu ári.
„Við höfum fengið 39 útköll á
þessu ári vegna eldsvoða sem er
minna en verið hefur undanfarin
ár, og þakka ég það betri eldvörn-
um en áður, en útköll á einu ári
hafa flest orðið 106“ sagði Tómas
Búi. „Eldsvoðum hefur farið fækk-
andi hægt og sígandi undanfarin
ár. Hinsvegar er engin fækkun
hvað verðar útköll vegna sjúkra-
flutninga, og á síðasta ári urðu þau
rúmlega 1000 eða liðlega 3 á dag.“
14 fastráðnir
í slökkviliði Akureyrar eru 14
fastráðnir starfsmenn, og þar af eru
12 sem ganga vaktir. Þrír eru á vakt
í senn og vinna í 12 klukkustundir.
Ekki eru þeir sífellt í útköllum, en
hvað gera þeir fleira? Við spurðum
þá sem voru á vakt um það en það
voru þeir Guðmundur Hálldórs-
son, Ólafur Búi Gunnlaugsson og
Sigurður Gestsson.
„Við sjáum að nokkru leiti um
viðhald á þeim tækjakosti sem
stöðin hefur yfir að ráða, og einnig
sjáum við um hleðslu á hand-
slökkvitækjum, bæði fyrir Akureyri
og nágrenni og eins fyrir báta og
skip.“
Það kom fram að handslökkvi-
tæki eru nú mun algengari en áður,
og á það örugglega sinn þátt í
fækkandi útköllum vegna elds-
voða. Talið er að með slíku tæki
megi slökkva um 50% eldsvoða sem
upp koma ef eldurinn- er
uppgötvaður strax eða fljótlega, en
auðvitað verða menn að kunna að
nota þessi tæki. Þá er talið að reyk-
skynjarar sem hafa náð talsverðri
útbreiðslu geti enn hækkað þessa
tölu.
Varahlutir af rusla-
haugunum
„Tækjakostur okkar saman-
stendur af 5 slökkvibifreiðum og
þann 6. sem er í eign Brunavarna
Eyjafjarðar sjáum við einnig um“
sagði Tómas Búi slökkviliðsstjóri.
„Elstu bílarnir eru 39 ára gamlir
en sá yngsti 5 ára. Þetta er auðvitað
ekki nógu gott því það er orðið vont
að fá varahluti í þessa bíla sem
verða ávallt að vera í fullkomnu
lagi. Oft björguðum við okkur með
að fá varahluti hjá einkaaðilum, og
varahluti höfum við fengið á rusla-
haugunum oftar en ekki.“
— Ef tilkynning kemur um
eldsvoða fara tveir af þeim þremur
mönnum sem á stöðinni eru á vett-
vang, en sá þriðji hefst handa við að
boða út liðið. Það er gert á fljót-
virkan hátt, en alls er hægt að kalla
út mjög snögglega 40 manna lið.
Auk þess er gert ráð fyrir því að
hjálparsveitir komi til aðstoðar ef á
þarf að halda.
„Eins og hvert annað
starf“
Starf þeirra sem eru í slökkvi-
liði Akureyrar felst ekki einungis í
því að fást við eldsvoða. Eins og
fram hefur komið annast þeir alla
sjúkraflutninga og það kemur í
þeirra hlut að sækja slasað fólk á
vettvang t.d. eftir árekstra. Oft get-
ur sú aðkoma verið ljót, en hvemig
líður þeim slökkviliðsmönnum sem
koma að slíku. Svör þeirra sem
voru á vaktinni og við ræddum við
voru á einn veg.
„Við göngum að þessu eins og
hverju öðru starfi og þetta venst
eins og allt annað. Við komum á
staðinn, gerum það sem þarf að
gera án þess að vera með neinar
vangaveltur eða tilfinningasemi, en
það kemur fyrir að þegar allt er um
garð gengið að maður fer að hugsa
um það sem fengist var við.
— Okkur varð það ljóst eftir
þessa stuttu heimsókn okkar á
slökkvistöðina að þar vinna frískir
menn við erfiðar aðstæður. And-
rúmsloftið var mjög létt, menn
gerðu góðlátlegt grín að félögum
sínum eins og vera ber. Þessir menn
vinna þó við allt of slæmar að-
stæður, húsakynni þeirra eru of
lítil, tækjakostur ekki nægilega
fullkominn, en þeir eru ávallt í
viðbragðsstöðu, reiðubúnir að
leggja sitt af mörkum til þess að
bjarga lífi eða eignum samborgar-
anna.
Vaktmcnnirnir þrfr, f.v. Guðmundur Halldórssnn, Ólafur Búi Böðvarsson og Sig-
urður Gestsson. Þeir standa við elstu bfla stöðvarinnar sem eru orðnir gamlir og
þreyttir, enda 39 ára að aldri.
Sigurlás með fernu
Leikur Vestmannaeyinga og
Þórs í fyrstu deild í knatt-
spyrnu, var leikinn á sunnu-
dagskvöldið eftir að forustu-
menn knattspyrnudeildar
Þórs, höfðu þrívegis breytt
leiktíma og leikdegi á auglýs-
ingum um leikinn. Ástæðan var
sú að ekki var flugveður til
Eyja fyrr en seinni partinn á
sunnudag. Á laugardag átti
leikurinn upphaflega að vera.
Sennilega hefur þessi frestun á
leiknum tekið Þórsara á taugum
því í fyrri hálfleik voru þeir eins
og byrjendur á móti harðsnúnu
Eyjaliðinu. Þetta lagaðist aftur í
síðari hálfleik en þegar flautað
var til leiksloka hafði Sigurlás
skorað fjögur mörk fyrir ÍBV en
Þórsarar aðeins eitt, og var þar að
verki varnarmaðurinn Þórarinn.
Vestmannaeyingar hófu leik-
inn af miklum krafti og fengu
strax á fyrstu mín. leiksins margar
hornspymur.
Fyrsta markið kom á 6. mín. Þá
tók Ómar góða hornspyrnu og
Sigurlás skallaði af öryggi í netið.
Vestmannaeyingar sóttu mun
meira til að byrja með, en
sóknarlotur Þórs voru máttlausar
gegn sterkri vörn Eyjamanna.
Besta marktækifæri Þórs og nán-
ast það eina í fyrri hálfleik kom á
18. mín. Þá rak Óksar Gunnars-
son endahnútinn á ágæta sókn
Þórsara með því að hitta ekki
markið í dauðafæri. Margsinnis í
fyrri hálfleik skali hurð nærri
hælum við Þórsmarkið. Annað
hvort varði Eiríkur eða Eyjamenn
hittu ekki markið í mörgum af
sínum dauðafærum. Annað mark
Eyjamanna kom á 28. mín.
Þá tók Ómar hornspymu, og
Gústaf „nikkaði“ boltanum aftur
fyrir sig til Sigurlásar, sem hrein-
lega hljóp með boltann framan á
sér inn í markið. Á síðustu mín.
fyrri hálfleiks átti Kári Þorleifs-
son hörkuskot af löngu færi og
Eiríkur rétt náði að lyfta boltan-
um sem small í þverslá.
Sennilega hefur Ámi Njálsson
þjálfari Þórsara lesið yfir þeim í
hálfleiknum, því þeir komu tví-
efldir til leiks í síðari hálfleik. Þeir
hófu leikinn af miklum krafti og
sóttu stíft að marki ÍBV. Á fyrstu
mínútum leiksins fengu þeir þrjár
hornspyrnur í röð.
f einni af sóknarlotum þeirra
ætlaði einn Eyjapeyinn að
hreinsa frá sínu marki en tókst
ekki betur en svo að skjóta upp í
þverslá og þaðan spýttist boltinn
út.
Þarna skall hurð nærri hælum
hjá þeim. Mark Þórs kom á 12.
mín. síðari hálfleiks. Þá fengu
Þórsarar hornspyrnu og Þórarinn
skallar í stöng og inn. Nokkrum
mín. síðar fær Sigurlás stungu-
bolta innfyrir Þórsvörnina og
skorar örugglega. Einni mín. síð-
ar ver Vestmannaeyingur á línu
skalla frá Áma Stefánssyni, og
rétt á eftir átti Guðmundur
Skarphéðinsson hörkuskot sem
Páll Pálmason markmaður ÍBV
rétt náði að verja.
Vestmannaeyingar áttu síðan
næstu sókn sem endaði með fyr-
irgjöf frá Kára á Lása stórabróðir
sem afgreiddi boltann örugglega í
netið. Skömmu síðar átti Ámi
Stefánsson gott færi en Páll varði.
Nú voru KA-
menn heppnir
„Þessi leikur vannst fyrst og
fremst vegna ódrepandi áhuga
og dugnaðar KA-strákanna
sem aldrei gáfu eftir allan
leikinn" sagði Gunnar Níels-
son en hann stóð fyrir rútuferð
til Akraness til að sjá leik ÍA
og KA á laugardaginn. Gunnar
sagði bæði liðin hafa átt góð
marktækifæri sem þeim tókst
þó ekki að nýta.
Eina mark leiksins gerði Ás-
bjöm Bjömsson á 7. mín. síðari
hálfleiks en þá komst hann
skyndilega í dauðafæri og skaut í
einn vamarmanna f A og lét hann
stýra boltanum í netið.
í rútunni sem fór til Akraness
voru 24 og sagði Gunnar að
einnig hefði verið þar mikill fjöldi
einkabíla, og hefði heyrst vel i
áhangendum KA í þessum leik.
Lítið hefði hins vegar farið fyrir
hvatningarópum Skagamanna,
en hann sagði þá hafa eytt sínu
púðri í að reyna að púa niður KA
mennina. Gunnar taldi að það
hefði hjálpað KA-strákunum að
Skagamennirnir hefðu verið
búnir að vinna leikinn fyrirfram,
enda aldrei áður tapað stigi til
KA í deildarkeppninni. Með
þessum sigri náði KA í sitt 10. og
II. stig og er nú úr fallhættu í
bráð, og á því að geta leikið næstu
leiki án þess að falldraugurinn
hrelli þá.
Rétt fyrir leikslok meiddist Páll skulduðum sigri ÍBV, en þeir
eftir „samstuð“ við Þórsara og skoruðu fjögur mörk en Þór eitt.
varð að yfirgefa völlinn. Góður dómari leiksins var Óli
Leiknum lauk því með verð- Ólsen. Áhorfendur voru 1100.
Þórarinn B. Jóhannsson (örin bendir á hann), skorar mark Þórs með þrumuskalla
I stöng og inn.
Jaðarsmótið í golfi:
Páll var
langbestur
Norðlendingar áttu 6 af 10
bestu mönnunt í opna Jaðars-
mótinu í golfi sem fram fór hjá
Golfklúbbi Akureyrar um
helgina, en í því móti tóku þátt
alls 85 kylfingar víðsvegar af
landinu. Reyndar var minni
þátttaka að sunnan en stund-
um áður, enda hcfur heryst að
kylfingar þaðan ætli að fjölm-
enna til Akureyrar þegar 18
holu völlurinn verður vígður í
næsta mánuði.
Páll Ketilsson úr Golfklúbbi
Suðurnesja var hinn öruggi sig-
urvegari sem enginn fékk ógnað.
Hann var strax eftir 9 holur í
fremstu röð og eftir fyrri
keppnisdaginn átti hann fimm
högg á þá Hannes Eyvindsson og
Sigurð Albertsson og 7 högg á Jón
Þór Gunnarsson GA.
Þegar 9 holur voru óleiknar var
staðan þannig að Páll hafði aukið
við forskot sitt, en Jón Þór hafði
náð Hannesi í baráttunni um 2.
sætið. Jón Þór gaf þó eftir á
endasprettinum og röð efstu
manna varð þessi, í sviga lands-
liðsstig sem þeir hlutu:
1. Páll Ketilss. GS 151 (19)
2. Hannes Eyvindss. GR 157 (17)
3. Jón Þór Gunnarss. GA 161 (15)
4. Gunnar Þórðars. GA 162 (13)
5. Sigurður Albertss. GS 163 (10)
6. Kristján Hjálmarss. GH 163 (10)
7. Magnús Birgi ss. GA 165 (7)
8. Viðar Þorsleinss. GA 166 (3)
9. Guðm. Hafliðason GR 166 (3)
10. Baldur Sveinbj.son GA 166 (3)
Þá fór einnig fram kvenna-
keppni, svokallað Ragnarsmót
sem RagnarLár. listamaðurgefur
verðlaun til. Þar urðu úrslit þau
að Inga Magnúsdóttir GA sigraði
á 185 höggum, önnur Karólína
Guðmundsdóttir GA á 214
höggum og þriðja Pat Jónsson
GA á 225. f keppni með forgjöf
varð Arnheiður Jónsdóttir GH
fyrst á 179 höggum, önnur Sig-
ríður B. Ólafsdóttir GH á 186 og
Erla Adolfsdóttir GA þriðja á
188, en þess skal getið að sama
konan gat ekki fengið verðlaun
bæði með og án forgjafar.
ÞORSARAR
LEIKA I
BIKARNUM
Á miðvikudagskvöldið
leikur Þór gegn Fylki í
átta liða úrslitum Bikar-
keppni KSÍ, og fer sá
leikur fram í Reykjavík.
Fylkir er núverandi
Reykjavíkurmeistari en
liðið leikur í annarri
deild.
Ároðinn
tapaði
aftur
Tveir leikir voru í E-riðli 3.
deildar um helgina. Á föstu-
dagskvöldið léku Árroðinn og
Magni á Laugalandi og sigraði
Magni 5-3.
Á laugardaginn léku síðan í
Mývatnssveit HSÞ-b og Dags-
brún og sigraði HSÞ 1-0.
Inga Magnúsdóttir varó öniggur sigurvegari í Ragnarsmótinu i golfi
4.DAGUR
DAGUR.5
tluuimimuil