Dagur


Dagur - 03.09.1981, Qupperneq 1

Dagur - 03.09.1981, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR v SIGTRYGGUR & PÉTUR ' AKUREYRI mmmmmmammmmmmmimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmtmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm 64. árgangur Akureyri,fimmtudagur3. september 1981 67. tölublað wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmÉmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm Deilt um hús við Skipagötu Verður hús Skipaafgreiðslu Jakobs Karlssonar við Skipa- götu til þess að lítið sem ekkert verður hægt að hagga við Torfunefshöfninni næstu 2 til 3 árin? Sú staða getur komiðupp, en í dag mun Friðrik Magnús- son, hæstaréttarlögmaður, skila af sér greinargerð í bæjarþingi með kröfum dánarbús Guðnýj- ar Jakobsdóttur um bætur vegna niðurrifs á umræddu húsi. Til skamms tíma hafði Eimskip aðsetur í húsinu. Gera má ráð fyrir að lögmaður Akureyrarbæjar, Hreinn Pálsson, 12 millión vatnsflöskur á Bandaríkia- markað á ári Hreinn Sigurðsson á Sauðár- króki hefur gert samninga um að selja 12 milljón flöskur af neysluvatni á Bandaríkjamark- að árlega. Verður vatnlnu tapp- að á eins og hálfsliters flöskur og er hér um að ræða 18 þúsund tonn af vatni á ári. Sl. þriðjudag var tekin skóflu- stunga að byggingu á Sauðárkróki þar sem starfsemin verður til húsa. Er hér um að ræða 4 þúsund fer- metra byggingu, og ef allt fer að óskum er áætlað að hefja fram- leiðsluna í apríl á næsta ári. Verksmiðjan á Sauðárkróki mun framleiða flöskumar undir vatnið, en þær verða úr plasti. Franskir framleiðendur vom á ferð á Sauðárkróki ekki alls fyrir löngu og tókust þá samningar um kaup á tækjum og hráefni til flöskugerðar- innar. Alls er gert ráð fyrir því að hægt verði að framleiða um 50 þús- und flöskur á dag. í samtali við DAG sagði Hreinn að hugmyndin að þessu hefði fæðst hjá sér er hann var á ferðalagi í S- Evrópu, og sá þar neysluvatn til sölu í hverri búð. Undirbúningur hefur staðið yfir í 6 ár og hefur Hreinn fengið viðurkenningu heilbrigðisyfirvalda í Bandaríkjun- um á gæðum vatnsins og samningar um sölu hafa sem fyrr segir verið undirritaðir. Vatnið sem flutt verð- ur út þykir vera mjög gott, það er þannig að efnasamsetningu vegna lítilla sem engra öskulaga að eng- inn fluor er í því og þykir það kostur. Reiknað er með að starfsmenn í verksmiðjunni verði um 30 talsins, en um 40 ef unnin verður vakta- vinna. Sagði Hreinn að hann væri mjög bjartsýnn á að þessi rekstur væri arðvænlegur, en áætlað sölu- verðmæti á ári nema nokkmm mill- jörðum g.kr. „Skammdegi" mætti kalla þessa mynd Kristjáns Amgrimssooar. Hún minnir okk- ur á áð tryggara er að ganga réttu megin götu og að hafa á sér cndurskinsmerki ískammdeginu. Tefur málarekstur mikla samgöngubót? muni fá frest til að kynna sér kröfurnar, en í framhaldi af því verður málið sett í flutning og dæmt. Dómurættiaðgetafalliðum áramót. Ef annar hvor aðilinn sættir sig ekki við lyktir málsins og áfrýjar til hæstarétts getur dregist um 2 til 3 ár að endanleg niðurstaða fáist. Ef sú staða kemur upp verður líkast til lítið átt við gerð vegar um höfnina. Eigendum hússins var á sínum tíma boðið upp á að húsið yrði metið og rifíð og síðan leitað til dómsstóla um hve háa fjárhæð Akureyrarbær ætti að greiða fyrir húsið - ef bæjarsjóður yrði yfirleitt dæmdur til þess. ,,Enn a.m.k. hafa eigendurnir ekki fallist á þetta tilboð“, sagði Hreinn Pálsson í samtali við Dag. „Hins vegar hafa þeir gert sérstaka bótakröfu með bréfi sem barst Akureyrarbæ í s.l. mánuði í tilefni af auglýsingu frá Akureyrarbæ, þar sem þeim er teldu sig eiga bótakröfu var skilt að senda inn slíkar kröfur innan ákveðins tíma. Það einkennilega við þessa kröfur er það að þar er krafist nánast þess sama og við buðum í upphafi". Hreinn sagði að það væri fullur vilji fyrir því hjá bæjaryfirvöld- um að láta umrætt tilboð standa og samþykkjat.d. brunabótamat. Með því móti yrðu núverandi eigendur síður en svo hlunnfarnir ef dómur félli þeim í vil. Skipaafgreiðsla Jakobs Karissonar var hér lengi til húsa. Búið er að rífa korn- vöruskcmmurnar sem stóðu norðan við húsið. Mynd: á.þ. Útflutningur frá Sauðárkróki: NÝ TÖLVU- TÆKNI Umboð Samvinnutrygginga á Akureyri hefur frá því um miðjan ágúst verið í beinu sambandi við tryggingaskrá félagsins í aðaltölvu Sambands- ins í Reykjavík. Eins og stendur hefur umboðið á Akureyri þessa tækni til aðlögunar og með aðgang að upplýsingum, en þegar umboðið hefur flutt í nýtt húsnæði að Skipagötu 18 sem verður bráðlega, fær það aukinn aðgang að öllum tryggingaskrám félagsins. Þá verður umboðið með beinan aðgang að öllum upplýsing- um um alla viðskiptavini Sam- vinnutrygginga, hvar sem er á landinu og getur gefið út skírteini og skrifað þau út samstundis á tölvuprentara. Auk vinnuhagræð- ingar við þessa nýju tækni sparar hún spjaldskrárhald hér nyrðra um viðskiptavini umboðsins, en allar upplýsingar þaðan fara beint inn í tölvuna í Reykjavík. 1 Þórshöfn m Flytja inn húsgögn „Þetta er óskaplegur munur. Viðfluttum úrl50fer- metra húsnæði og í 550 fer- metra“, sagði Jón Jóhannesson, deildarstjóri Kaupfélags Lang- nesinga, Þórshöfn, en fyrir skömmu flutti byggingavöru- deild kaupfélagsins og stórjók þjónustu sína við viðskiptavini. Hafinn er innflutningur á hús- gögnum frá Svíþjóð og fullyrti Jón að þau húsgögn, sem Kaup- félag Langnesinga gæti boðið viðskiptavinum sínum, væru mun ódýrari en innlend fram- leiðsla. Hins vegar verða inn- lend húsgögn einnig til sölu „svo fólk geti valið á milli og borið saman verð“ eins og Jón orðaði það. Fram til þessa hefur starfsemi byggingavörudeildarinnar verið á ýmsum stöðum á Þórshöfn, en nú kemst allt á einn stað. Að sjálf- sögðu verður deildin með alla al- genga byggingavöru. en auk þess bækur, sportvörur, viðlegubúnað og leikföng - að ógleymdum hús- gögnunum, sem eru nú seld í fyrsta skipti. „Við höfum unnið tveir í bygg- ingavörudeildinni, en verðum þrjú, þar sem bætt var viðsvona mörgum vörufiokkum", sagði Jónaðlokum. Brúin við Hrafnagi) er mikið mannvirki eins og sjá má. Ljúsm. H.Sv. Brúin yfir Eyjafjarðará við Hrafnagil: Hitaveita tengd I október og opnuð til umferðar næsta sumar Framkvæmdum við hitaveitu- brúna yfir Eyjafjarðará frá Hrafnagili að Laugalandi miðar vel, að sögn Jakobs Böðvars- sonar,xyfirbrúarsmiðs. Búið er að reisa íjóra af sex stöplum brúarinnar og byrjað er að hengja hitaveiturör á stöplana. Ekki verður lokið við brúna til umferðar í sumar, en unnt á að vera að tengja hitaveituna frá Botnslaug yfir í Laugaland í október. Þar fást nú 30 sekúndulítrar af heitu vatni, en verið er að bora aðra holu nokkru sunnar, til að athuga hvort meira vatn fæst á svæðinu, að sögn Inga Þórs Jóhannssonar, fulltrúa hjá Hitaveitu Akureyrar. Brúin verður 137 metra löng. Nú eru uppi hugmyndir um að steypa brúargólfið strax næsta vor, þannig að hún verði tilbúin til umferðar um mitt næsta sumar. Verður hugsan- lega unnið við uppslátt brúargólfs- ins í vetur. fl« AU feB \ff05“ 8 á sil ainviAfS f RITSTijOnN: 241OO U B I w W

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.